Morgunblaðið - 12.12.1989, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1989
hanna Margrét fæddist 1957, en
hún lést sviplega 1973 og er sárt
saknað úr systkinahópnum. Yngst
er svo Gerður, fædd 1961, kennari
að mennt, en maður hennar er
Sveinn Þórisson, vélstjóri. Barna-
börnin munu verða orðin sautján,
og barnabörnin eru þegar farin að
líta dagsins ljós.
Ferðalög hafa löngum verið yndi
Gerðar, og hin síðari ár hefur hún
fengið nokkur tækifæri til að svala
útþrá sinni. Mér er minnisstætt,
þegar við hjónin skruppum með
henni til Vínarborgar fyrir fáum
árum, og máttum kallast góð að
geta fylgt henni eftir, slíkur var
áhuginn og ákafinn að koma á sem
flesta merkisstaði og ganga ‘ um
söfn og sýningar — skoða og njóta
í hinni fornfrægu menningarborg.
Ég vil að lokum flytja Gerði
.Magnúsdóttur hugheilar árnaðar-
óskir í tilefni af sjötugsafmælinu
og óska þess, að lífsgleðin endist
henni langa ævi. Ég veit, að ég
mæli fyrir munn margra, bæði af-
komenda og nemenda, þegar ég
þakka henni veitta'leiðsögn og upp-
örvun.
Ég lýk þessum línum með hend-
ingum eftir þann mann, sem faðir
hennar, Magnús Stormur, taldi bera
höfuð og herðar yfir öll íslensk skáld
bæði fyrr og síðar, og greinar-
höfundi hefur verið efst í huga um
langt skeið — Einar Benediktsson:
Það. liðna, það sem var og vann;
er vorum tíma yfir;
því aldur deyðir engan mann,
sem á það verk,' er lifir.
Gylfi Gröndal
Gerður tekur á móti gestum í
Félagsheimili starfsmannafélags
Rafmagnsveitu Reykjavíkur við
Rafstöðvarveg milli kl. 5 og 7 í
dag, afmælisdaginn.
EPLI í EFTIRRÉTT
Innbökuð epli.
Heimilishorn
Bergljót Ingólfsdóttir
Það er langt síðan epli urðu
hversdagslegur ávöxtur hérlend-
is, gagnstætt því sem eldri kyn-
slóðir þekktu en epli voru þá flutt
inn einu sinni á ári, rétt fyrir
jól, og því réttnefnd jólaepli.
Um magn þess sem nú er flutt
inn af eplum er ekki vitað en það
hlýtur að vera talsvert því þau
eru fáanleg allt árið. Það er held-
ur ekki vitað hvort epli teljast til
daglegrar fæðu hjá öllum al-
menningi, en óhætt er að segja
að menn eru ósviknir af þeim
ávexti. Epli henta vel í nestispak-
kann hjá öllum aldri og tilvalin
til að gefa börnum á milli mála
ef svengd segir til sín. Epli eru
góð í allskonar bakstur eins og
kunnugt er en þau eru líka góð
í eftirrétt, ein sér, og fylgja hér
með nokkrar uppskriftir af slíku
góðgæti.
Innbökuð epli
4 epli
smjördeig (bútterdeig)
smjör
4 tsk. saxaðar möndlur
4 tsk. sulta
þeytt egg til að smyija með.
Eplin afhýdd og kjarninn
stunginn úr, í raufina er sett (í
þessari röð) smjörbiti, möndlur
og sulta. Einfaldast er að kaupa
tilbúið smjördeig hjá bakara en
auðvitað er hægt að búa það til
heima. Smjördeigið er flatt út svo
úr verði fjórir hlutar, 17x34 sm.
Eplin sett á miðju hvers hluta
og þeim pakkað inn í deigið. Tii
að festa það að ofan er settur
smá deigbiti og þrýst vel niður.
Samanþeyttu eggi smurt vel yfir
deigið, bakað í 15—20 mín. við
200°C.
Rommepli
4—6 meðalstór epli
sykur
rúsínur
4—6 msk. romm
60 g smjör
Eplin eru afhýdd, kjarninn
stunginn úr og þau sett í ofnfast
fat. I holuna er sett smjör sem
hrært hefur verið með sykri og
rúsínum, rommi hellt yfir. Eplin
eru bökuð í meðalheitum ofni í
20—25 mín. Borin fram volg með
þeyttum íjóma.
Sírópsepli
4 stór epli
100 g marsipan
4 msk dökkt síróp
1 msk. smjör.
Kjarninn stunginn úr eplunum
og marsipan sett þar í staðinn.
Eplin sett í ofnfast fat, sírópinu
hellt yfir og smjörbitar settir yfir.
Bakað í ofni við 200°C í 20—30
mín. eða þar til eplin eru meyr.
Með er hægt að bera mjúkan ís
eða þeyttan ijóma.
Oínsteikt epli
Hýðið tekið af eplunum, kjarn-
inn stungin úr og þau sett í ofnf-
ast fat. Jarðarbeijarsulta sett í
holuna, smjörbiti ofan á og sykri
stráð yfir. Vatni hellt í botninn
og bakað við vægan straum í
30—40 mín. Þeyttur íjómi borinn
með og gott er að setja saxaðar
möndlur yfir eplin um leið og
borið er fram.
níu níu & fimmtíu
BAKVÖRÐ í
JÓLAGJÖF
.m
Þessi stóll styður vel við bakið og gætir þess að
þú sitjir rétt. Hann er með léttri hæðastillingu,
veltanlegu baki, fimm arma öryggisfæti og með
hjólum fyrir parkett og dúk.
Þetta er gæðastóll á góðu verði.
Þetta er góð jólagjöf.
chhh>=
Hallarmúla 2 Sfmi 83211
Söluaöili Akureyri, Tölvutœki — Bókval.
GJAFAHLUTIR
SPEGILGUÁANDI STÁLI
Sérverslun með listræna húsmuni ís.
Borgartúni 29 Simi 20640
^%a/ • • ^(a£ • ^(a£ • • ‘^CCáí •