Morgunblaðið - 12.12.1989, Blaðsíða 34
rfÖftbí)ftíiÍÍÁ!Ö&1 Þ'RIÐlJÍjöXGtíR,,r2.1 ÉÉSÉtáÉÉIÚMfefr'
Sovéskir harðlínumenn gagnrýna perestrojku:
Gorbatsjov býðst til
að afsala sér völdum
Moskvu. Reuter.
UMBÓTASTEFNA Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétforseta sætti harðri
gagnrýni harðlínumanna á fundi miðstjórnar sovéska kommúnista-
flokksins á laugardag. Gorbatsjov brást reiður við og bauðst til þess
að segja af sér en því var hafhað, að því er haft var eftir eistneskum
embættismönnum í gær.
Erlendir fréttaskýrendur í
Moskvu segja að með þessu tilboði
hafi Gorbatsjov aðeins viijað sýna
hversu sterk staða hans sé. „Nokkr-
ir ræðumenn sögðust óánægðir með
perestrojkuna sem miðstjómin að-
hyllist nú,“ sagði índrek Toome,
forsætisráðherra Eistlands, í viðtali
við dagblað í lýðveldinu. „Gorbatsj-
ov missti stjórn á skapi sínu og
sagði: „Ef þetta er skoðun ykkar
skulum við ræða það mál og ég er
þá reiðubúinn að segja af mér“,“
bætti Toome við. Forsætisráðherr-
ann sat fundinn þótt hann eigi ekki
enn sæti í miðstjóminni.
ráðherra Sovétríkjanna, sagði í við-
tali við bandarískan sjónvarpsmann
á sunnudag að sovésk stjórnvöld
myndu ekki beita valdi heldur for-
tölum til að koma í veg fyrir að
kommúnistaflokkurinn missti tökin
á Litháen og öðrum lýðveldum Sov-
étríkjanna. Litháenska þingið sam-
þykkti á þriðjudag að koma á fjöl-
flokkakerfi í Iýðveldinu og afnema
þá grein stjórnarskrárinnar sem
kveður á um forystuhlutverk
kommúnistaflokksins.
Brent Scowcroft, öryggisráðgjafi Bush Bandaríkjaforseta, ræðir við
Deng Xiaoping í Peking á sunnudag.
För öryggisráðgjafa Bandaríkjaforseta til Kína;
Grænland:
Rækjuveiðar
ganga illa
Kaupmannahöfn. Frá Nils Jorgen Bruun,
fréttaritara Morgunblaðsins.
GRÆNLENSKUM rækjutogurum
hefur gengið erfiðlega að finna
rækju á mlðunum við Austur-
Grænland að undanfornu. Þeir
hafa verið tvöfalt lengur en venju-
lega að ná sama afla og gerir það
veiðamar langdregnar og óhag-
kvæmar.
Þetta hefur í för með sér að togar-
ar landstjórnarinnar komast ekki
yfir að veiða upp í kvótann fyrir
áramót. Útgerðarstjórnin vonast til
að ná 1.200 tonnum af 2.000 tonna
veiðikvóta. Þau 800 tonn sem þá
verða óveidd eru töpuð útgerðinni,
en verðmæti þeirra er um 50 milljón-
ir danskra króna (um 450 millj. ísl.
kr.).
Það sem erfiðleikunum veldur er
bæði ótíð og eins hitt að rækjan
heldur sig ekki á sömu svæðum og
venjulega.
Míkhaíl Gorbatsjov sagði á mið-
stjórnarfundinum að kröfur um að
endi yrði þegar í stað bundinn á
alræði kommúnistaflokksins væru
ótímabærar. Hann gaf þó í skyn
að breyta mætti stjómarskránni
síðar og þar á meðal sjöttu grein-
inni, sem kveður á um forystuhlut-
verk kommúnistaflokksins og
tryggir alræðisvald hans.
Edúard Shevardnadze, utanríkis-
Gagnkvæmur vilji fyrir því að
treysta samskipti ríkjanna
Peking, Washington. Reuter.
BRENT Scowcroft, öryggisráðgjafi George Bush Bandaríkjaforseta,
átti um helgina fundi með kínverskum ráðamönnum í Peking. Þetta
er í fyrsta skipti sem svo háttsettir fiilltrúar ríkjanna tveggja ræða
saman frá því að andóf kínverska námsmanna var brotið á bak aftur
með hervaldi í júnímánuði.
Bátafólkið
senn á brott
Hong Kong. Reuter.
Stjómarerindrekar sögðu í
gær að hafíst yrði handa við að
flytja víetnamskt bátafólk aftur
til heimalands síns innan sólar-
hrings.
Ríkisútvarpið í Hong Kong hafði
eftir embættismanni víetnamska
utanríkisráðuneytisins að bresk og
víetnömsk stjórnvöld hefðu komist
að samkomulagi um flutningana.
Stjórnarerindrekar skýrðu frá því
að fyrsti hópurinn, alls 51 Víet-
nami, yrði fluttur til Víetnams í
leiguflugvél innan sólarhrings.
Talsmenn Bandaríkjastjómar
sögðu tilganginn með heimsókninni
hafa verið þann að skýra kínversk-
um ráðamönnum frá niðurstöðum
Möltu-fundar leiðtoga risaveldanna,
þeirra Bush Bandaríkjaforseta og
Míkhaíls S. Gorbatsjovs leiðtoga
sovéska kommúnistaflokksins í
byijun mánaðarins. Heimildarmenn
Reuters-fréttastofunnar í Peking
sögðu að förin hefði ekki síst verið
farin til að koma í veg fyrir frekari
einangrun kínverskra stjórnvalda á
alþjóðavettvangi en ríki Vestur-
landa sameinuðust um að fordæma
blóðbaðið á Torgi hins himneska
friðar í júnímánuði. Hafa samskipti
Bandaríkjamanna og Kínverja verið
takmörkuð mjög frá því þetta gerð-
ist og sögðu heimildarmenn að það
hefði verið gáfuleg ákvörðun að
freista þess að treysta þau á ný.
Töldu þeir hugsanlegt að Richard
Nixon, fyrrum Bandaríkjaforseti
sem enn hafður í hávegum eystra,
hefði haft frumkvæði að heimsókn-
inni en hann ræddi við kínverska
embættismenn í síðasta mánuði
\__
Scowcroft og Lawrence Eagle-
burger, aðstoðarvarnarmálaráð-
herra, var vel tekið í Peking en
þeir ræddu við Deng Xiaoping, sem
enn er taiinn valdamesti maður
Kína, Jian Zemin flokksleiðtoga,
Li Peng forsætisráðherra og Qian
Kosningar í Eistlandi og Lettlandi:
Umbóta- og* aðskilnað-
arsinnar fá mikið fylgi
lállinn. Reuter. ^ *
SVO virðist sem róttækar umbóta- og aðskilnaðarhreyfingar hafí
unnið sigur í bæjar- og sveitastjórnakosningum í Sovétlýðveldunum
Eistlandi og Lettlandi um helgina. Endanlegar niðurstöður munu
þó ekki Iiggja fyrir fyrr en síðar í vikunni.
í gær höfðu fulltrúar hreyfingar
róttækra umbótasinna unnið 18
sæti í borgarráði Tallinn, höfuð-
borgar lýðveldisins, en þar sitja 80
fulltrúar. Var talið að hreyfingin
fengi að minnsta kosti 40 sæti.
Háttsettur embættismaður komm-
únistafiokksins í lýðveldinu sagði í
samtali við Reuters-fréttastofuna
að ljóst væri að mikið af nýju fólki
myndi taka sæti í borgarráðinu og
bætti við að svo virtist sem borgar-
stjórinn hefði verið borinn ofurliði
í kosningunum. Þá lá ennfremur
fyrir að fulltrúi samtaka umhverfis-
verndarsinna hafði náð kjöri.
Skoðanakannanir í Lettlandi
þóttu benda til þess að frambjóð-
endur, sem njóta stuðnings Þjóð-
fylkingarinnar sem berst fyrir því
að Iýðveldið segi sig úr sovéska
ríkjasambandinu og verði sjálfstætt
ríki, myndu fá um 60 prósent at-
kvæða. Valdis Berzins, fréttastjóri
málgangs hreyfingarinnar,
Atmoda, sagði þetta mjög góðan,
árangur og bætti við að þetta myndi
treysta mjög stöðu fylkingarinnar.
Sérfræðjngar sem Reuters-
fréttastofan ræddi við í gær töldu
margir hveijir villandi að túlka hið
mikla fylgi róttækfa frambjóðenda
sem beinan ósigur fyrir kommún-
istaflokkinn. Klofningur væri kom-
inn upp í flokkunum í lýðveldunum
tveimur. Hluti flokksmanna væri
hiynntur hugmynd þeirri að segja
skilið við ráðamenn í Moskvu en
aðrir væru fylgismenn núverandi
ráðamanna í Kreml. Bentu þeir hin-
ir sömu á að nokkrir fulltrúar
kommúnista hefðu náð kjöri í Tall-
inn og kváðu kosningabaráttuna
ekki hafa farið fram samkvæmt
hefðbundnum flokkslínum. Þá væru
margir þeirra sem notið hefðu
stuðnings Þjóðfylkingarinnar í
Lettlandi jafnframt félagar í komm-
únistaflokknum.
Valdis Berzins sagði að áhugi á
kosningunum hefði verið fremur
takmarkaður en í gær var talið að
þátttakan hefði verið um 70%.
„Menn binda einkum vonir sínar
við þingkosningarnar í maímánuði,"
sagði hann.
í síðustu viku samþykkti þing
Litháen, þriðja Eystralsaltsríkisins,
að innleiða þar fjölflokkakerfi með
því felia úr gildi ákvæði í stjómar-
skrá lýðveldisins, er kvað á um for-
ystuhlutverk kommúnistaflokksins.
Sams konar tillaga verður lögð fyr-
ir þing Eistlands síðar í þessum
mánuði. Þá hafa kommúnistar í
lýðveldum þessum uppi áform um
að segja flokka sína úr lögum við
kommúnistaflokkinn í Moskvu. Til-
laga í þá veru verður lögð fram í
Litháen á þingi flokksins í næstu
viku og fastlega er búist við því að
eistneskir kommúnistar ræði sam-
bandið við Moskvu á sérstöku þingi
í marsmánuði. Er það hald margra
að einungis með þessum hætti geti
kommúnistar get sér vonir um að
vinna hylli almennings í kosningum
í Eystrasaltsríkjunum á næsta ári.
Qichen utanríkisráðherra. Opinberir
fjölmiðlar skýrðu frá heimsókninni
og athygli vakti að Bandaríkjamenn
voru ekki gagnrýndir fyrir afskipti
af innanríkismálum Kínveija líkt
og venjan hefur verið. Mun Deng
Xiaoping m.a. hafa látið þá von í
ljós að unnt yrði að leysa með hraðj
þau deilumál sem spillt hefðu sam-
skiptum ríkjanna tveggja
CAW-sjónvarpsstöðin greindi frá
því í fréttum á sunnudagskvöld að
þeir Scowcroft og Eagleburger
hefðu með för sinni til Kína viljað
freista þess að fá ráðamenn til að
hætta við fyrirhugaða eldflauga-
Reuter
Dalai Lama fær
friðarverðlaun Nóbels
Dalai Lama, andlegur leiðtogi Tíbeta, tók á sunnudag við friðarverð-
launum Nóbels í Ósló. Var það Egil rvik, formaður norsku nóbelsnefnd-
arinnar sem afhenti verðlaunin. Við það tækifæri sakaði Dalai Lama
Kínveija um að herða stöðugt tökin á Tíbetum. Hann sagði að náms-
menn sem létu lífið á Torgi hins himneska friðar í vor hefðu ekki dáið
til einskis því kínverskir leiðtogar fengju ekki umflúið friðarandann
sem nú gengi yfir heimsbyggðina. Stjómvöld í Kína mótmæltu verð-
launaafhendingunni sem þau segja samsæri Vesturlanda til að ijúfa
einingu Kína.
sögu til Sýrlands. Fylgdi fréttinni
að eldflaugar þessar gætu dregið
600 kílómetra og gætu Sýrlending-
ar í krafti þessa vopnabúnaðar haft
í hótunum við ein tíu ríki í Mið-
Austurlöndum þ. á m. ísraela.
Heimildir herma að samningur um
eldflaugasöluna liggi fyrir en Sýr-
lendingar munu enn ekki hafa feng-
ið vopnin afhent. James Baker, ut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna,
staðfesti að mál þetta hefði borið á
góma og sagði stjórn Bush forseta
hafa miklar áhyggjur af vopnasöl-
unni og vígvæðingu ríkja í þessum
heimshluta.