Morgunblaðið - 12.12.1989, Blaðsíða 75
;.-i j <4r,mr-svpwn oi Tíiuíininiqd ííwa iíui/’irium./
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1989 75
Húsavík:
| Fiskiðjusamlagið
fær viðurkenningu
Húsavík.
Piskiðjusamlag Húsavíkur hlaut nýlega viðurkenningu frá stjórn
i sjávarafúrðadeildar SIS fyrir sérstaklega góða umgengni og aga á
vinnustað, en það er þáttur í því að bæta framleiðslu fisks í neytenda-
] pakkningar til sölu á erlendum markaði.
Um vinnslusali fiystihússins hafa
! verið settar vissar umgengnisregl-
ur. Nú gengur starfsmaður ekki í
vinnusal á sínum útiskóm. Hann á
sérstök stígvél, sem aðeins eru not-
uð í vinnunni og áður en gengið er
j á þeim að vinnuborði eða vél, fer
* starfsmaðurinn yfir sérstaka vatns-
: þró svo stígvélin séu hrein. Hringar
og eyrnalokkar eni bannaðir. Vasar
á sloppum eru ekki leyfðir, til þess
að fyrirþyggja að hringar eða annað
séu settir í þá. Slíkar eru umgengn-
isreglumar. Þetta hefur verið að
þróast hjá Fiskiðjusamlaginu og
| hafa erlendir kaupendur, sem kom-
| ið hafa til að skoða vinnslusali, lok-
: ið lofsorði á þá.
I slíkri eftirlitsferð voru m.a. eft-
írgreindir Isiendingar: Jóhann Þor-
steinsson, Halldór Karlsson, Guð-
mundur Jónsson og Aðalsteinn
Gottskálksson, sem afhenti svo-
hljóðandi viðurkenningu:
„Fiskiðjusamlag Húsavíkur hefur
náð framúrskarandi árangri í sókn
til bættra framleiðsluhátta. Við
færum starfsfólki og stjórn alúðar-
þakkir.“
Tryggvi Finnsson þakkaði viður-
kenninguna og ræddi um nauðsyn
þeirrar þróunar að vinna sem mest
úr hráefninu hér heima og koma
því í neytendapakkningar því með
minnkandi afla væri nauðsynlegt
að auka verðmæti þess, sem á land
kæmi og útflutt væri.
- Fréttaritari
Morgunblaðið/Silli
Sigríður Aðalgeirsdóttir tekur á móti viðurkenningunni.
Unglingasveit björgunarsveitarinnar á Flateyri.
Flateyri:
Morgunblaðíð/Magnea Guðmundsdóttir
Unglingasveit stoftiuð
Flateyri.
UNGLINGASVEIT Björgunarsveitarinnar á Flateyri var stofnuð
fostudaginn 17. nóvember. Ragnar Björnsson, félagsmálafulltrúi
SVFI, stofnsetti unglingasveitina sem ber nafnið Sæunn. í stjórn
sveitarinnar eru Kristinn Andri Þrastarson, formaður, Helga Jón-
inna Guðmundsdóttir, ritari, og Stefán Steinar Jónsson, varaformað-
ur.
Björgunarsveitin Sæbjörg fékk
fyrir stuttu 12 manna slöngubát.
Séra Gunnar Bjömsson gaf bátnum
nafnið Ólafur.
Unglingasveitin var óformlega
stofnuð síðastliðið vor en síðan hafa
verið í gangi æfingar, gönguferðir,
hnútanámskeið og ýmislegt fleira.
Karla- og unglingadeildirnar sjá um
dósasöfnun á staðnum. Þær safna
dósum hálfsmánaðarlega. Flestar
dósirnar gefur fólkið og rennur
ágóðinn til björgunarsveitarinnar á
staðnum. Umsjónarmaður Sæunnar
er Jón Svanberg Hjartarson.
Björgunarsveitin Sgebjörg réðst í
bátakaupin í vor og báturinn var
afhentur í október. Ólafur Sveins-
son, sem báturinn er nefndur eftir,
var ættaður frá Hvilft í Önundar-
firði. Hann mun hafa verið íyrsti
skipaskoðunarmaður á íslandi og
frumkvöðull að því, að bátar þessar-
ar tegundar voru viðurkenndir sem
björgunartæki við land.
Ættingjar Ólafs afhentu pen-
ingagjöf við skím bátsins upp á kr.
50.000, og hafa einnig styrkt björg-
unarsveitina meira í gegnum tíðina.
Einnig gáfu Kvenfélagið Brynja,
Sparisjóður Önundarfjarðar og
Hjálmur hf. peninga.
Formaður kvennadeildarinnar
Sæljóss er Erla Hauksdóttir og for-
maður karladeildar Sæbjargar er
Grétar Björgvinsson.
- Magnea
Nýr hafhsögubátur til Keflavlkur
LANDSHÖFN Keflavík-Njarðvík fær nýjan hafnsögubát afhentan um
miðjan desember. Báturinn kemur í stað lítillar trillu, sem hefur
verið notuð sem hafnsögubátur undanfarin tuttugu ár.
Skipasmíðastöð Þorgeirs og Elierts bátnum til sjósetningar, en reynslu-
hf. á Akranesi er nú að ganga frá sigling hans fer fram í vikulokin.
Bókaforlagið Svart á hvítu:
Nýtt spil sem byggir á at-
burðum Sturlungaaldar
BÓKAFORLAGIÐ Svart á hvítu hefur gefið út nýtt íslenskt spil, sem
nefnist Sturlungaspilið, eða Orustan um ísland. Spilið er byggt. á hug-
•nynd Gunnars Þórs Guðmundssonar, en fjöldi fólks hefiir lagt hönd á
plóginn við að þróa spilið og útfæra. Spilið krefst engrar þekkingar á
atburðum Sturlungaaldar, og er það íyrst og íremst hugsað til skemmt-
unar og dægrastyttingar.
Gunnar Þór Guðmundsson sagði í
samtali við Morgunblaðið að hug-
myndin að spilinu hefði orðið til fyr-
h’ rúmlega einu ári síðan. „Ég hef
lengi þaft áhuga á spiium af þessu
tagi. í barnaskóla fannst mér þetta
tímabil íslandssögunar alltaf vera
áhugaverðast, og í fyrra datt mér í
hug að búa tii spil sem byggði á
atburðum Sturlungaaldarinnar, en
það er alveg óþarfi að sækja hetjur
í svona spil til annarra landa. Spilið
er fyrst og fremst hugsað til skemmt-
unar, en einnig er hugmyndin að
hægt verði að nota spilið á einhvern
hátt við kennslu í skólum, og er nú
verið að kanna möguleika á því í
samvinnu við Námsgagnastofnun.“
Sturlungaspilið er ætlað fyrir alla
aldurshópa. Leikmenn velja sér eina
af þeim ættum sem börðust um völd-
in á Sturlungaöld, og fá þeir mynd
af goða ættarinnar og peð til að
hreyfa á spilaborðinu. Einnig fær
hver leikmaður úthlutað peningum
og þeim jörðum sem tilheyrðu ætt-
inni á Sturlungaöld. Þegar Jeikurinn
hefst ferðast leikmenn um ísland og
reyna að ná undir sig sem flestum
jörðum, ýmist með kaupum eða or-
ustum, en markmiðið er a’ eignast
sem flestar jarðir og ná þannig lands-
yfirráðum."
„Báturinn, sem er sérstaklega
hannaður sem hafnarbátur, er mjög
lipur og með góðan togkraft. Hann
er með sleppikrók, sem hægt er að
stýra innan úr húsi,“ sagði Bene-
dikt Guðmundsson skipaverkfræð-
ingur hjá Þorgeir og Ellert hf.
Báturinn er 14,45 metra langur
og 4,28 metrar á breidd. Hann er
með 260 hestafla vél. Skrokkur
bátsins verður svartur, lunningin
blá og báturinn verður hvítur að
ofan.
Akurnesingar fá eins bát eftir
áramót. Bátarnir eru smíðaðir eftir
teikningum frá Hollandi. Hann er
nýsmíði númer 40 hjá Þorgeir og
Ellert hf.
SIEMENS
Morgunblaðið/.Jón Gunnlaugsson
Unnið er við að mála nýja hafnsögubátinn fyrir Landshöfn Keflavík-
Njarðvík í Skipasmíðastöð Þorgeirs og Ellerts hf. á Akranesi.
Litlu raftœkin frá SIEMENS gieðja
augað og eru afbragðs jólagjafir!
, kaffivélar
| hrærivélar
brauðristar
vöfflujárn
strokjárn
handþeytarar
eggjaseyðar
djúpsteikingarpottar
hraðsuðukönnur
dósahnífar
áleggshnífar
kornkvarnir
,j-aclette“-tæki
veggklukkur
vekjararklukkur
rakatæki
bílryksugur
handryksugur
blástursofnar
hitapúðar
hitateppi o.m.fl.
Morgunblaðið/RAX
Helgi Iljörvar, starfsmaður Svart á hvítu, og Gunnar Þór Guðmunds-
son, höfúndur spilsins sem byggir á atburðum Sturlungaaldarinnar.
Lítiö inn til okkar og skoöið vönduö tœki.
Munið umboðsmenn okkar víös vegar um landið!