Morgunblaðið - 12.12.1989, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUÐAGUR 12. DESEMBER 1989
Plasteinangrun hf. leitar
heimildar til nauðasamninga
FIMM mánaða greiðslustöðvun
Plasteinangrunar hf. rann út á
sunnudag. Síðdegis á fostudag
í fyrri viku var lögð inn til
skiptaráðanda bæjarfógetaemb-
ættisins á Akureyri beiðni um
heimild til að leita nauðasamn-
inga við kröfiihafa.
Skiptaráðandi, Arnar Sigfússon
skoðaði gögn frá fyrirtækinu í gær
og sagðist hann búast við að niður-
staða lægi fyrir í málinu lægi fyr-
ir í dag, en þó væri ekki að fullu
ljóst hvort hann myndi óska eftir
frekari gögnum varðandi stöðu og
efnahag fyrirtækisins.
Fari svo að úrskurður skiptaráð-
anda verði á þá leið að Plastein-
angrun verði veitt heimild til að
leita nauðasamninga, verður gefin
út innköllun þar sem væntanlegir
kröfuhafar gefa sig fram og í
framhaldi af því verður boðað til
fundar með þeim þar sem endan-
lega verða greidd um það atkvæði
hvort þessi leið verðuí' samþykkt
eða ekki.
*
A142 km hraða í kolniðamyrkri
LÖGREGLAN á Akureyri stóð
ökumann að akstri á 142 kíló-
metra hraða á Eyjafjarðarbraut
neðan við Kristneshæli aðfara-
nótt laugardagsins.
Að sögn lögreglunnar var maðurinn
sviptur ökuleyfinu þegar í stað.
Kolniðamyrkur var þegar maðurinn
var tekinn, en gott færi mun hafa
freistað hans.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Jólaljósin tendruð
Ljós voru kveikt á jólatré sem vinabær Akureyrar, Randes í Dan-
mörku, sendi Akureyringum að gjöf á laugardaginn. Við athöfn á
torginu spilaði Blásarasveit Tónlistarskólans jólalög, og flutt voru ávörp
þar sem Randesbúum voru færðar þakkir fyrir gjöfina, en þetta er í
annað sinn sem Akureyringum berst jólaté að gjöf þaðan. Þá voru
sungnir jólasöngvar og þeir Kertasníkir, Hurðaskellir og Kjötkrókur
komu í heimsókn og tóku lagið með Helenu Eyjólfs söngkonu. Að
lokum var gengið í kringum jólatréð, en fjölmargir lögðu leið sína í
miðbæ Akureyrar á laugardaginn í blíðskaparveðri.
Helgi magri og Þórunn hyma
í þriggja ára „afVötnun“
Tilboð borist frá Englandi um að steypa styttuna í brons
UM ÞESSAR mundir eru þrjú ár
liðin frá því styttan af Helga
Sex bílar
skemmdir
ALLS var tilkynnt um skemmd-
ir á sex bílum til rann&óknarlög-
reglunnar á Akureyri um helg-
ina, en svo virðist sem sömu
aðilar hafi verið að verki í öllum
tilvikunum.
Sparkað var í afturhurð bíls sem
stóð við Skipagötu og hún
skemmd, þá var framrúða brotin
í bifreið sem stóð við Smiðjuna og
grjótgrind var einnig beygluð.
Framrúða var brotin í bifreið sem
stóð við Hótel KEA, útvarpsstöng
brotin, sem og stefnuljós og húdd-
ið dældað.
Brotin var rúða í bíl sem stóð
við Akureyrarkirkju, hliðarspeglar
brotnir og bifreiðin öll rispuð. Við
Eyralandsveg varð enn einn bíllin
á vegi skemmdarvarga og var
brotin í honum framrúða. Loks var
gler í speglum bifreiðar sem stóð
við Laugagötu brotið.
Á fimmtudag var ráðist að bif-
reið sem stóð við íþróttahús Gler-
árskóla og hún öll rispuð með
eggjárni. Þar var um að ræða
nýja bifreið.
Rannsóknarlögreglan á Akur-
eyri biður þá aðila sem kynnu að
hafa orðið varir við óeðlilega
mannaferðir á þessum stöðum
aðfaranótt sunnudags að hafa
samband, en málið er óupplýst.
magra og Þórunni hyrnu var tek-
in niður af Miðhúsaklöppum og
færð í kyndistöð Hitaveitu Akur-
eyrar. Styttan var orðin mjög illa
farin, gegnblaut og sprungin. Fyrr
á þessu ári var leitað eftir tilboði
frá aðilum í Englandi um viðgerð
á styttunni og hefur það nú bor-
ist, en reiknað er með að um 2,5
milljónir kosti að steypa styttuna
í brons, auk annars sem með þarf.
Það var Jónas S. Jakobsson
myndhöggvari sem gerði styttuna
árið 1956 og vann hann að gerð
hennar í sundlaugarbyggingunni á
Akureyri sem þá var í byggingu.
Styttan er mótuð úr leir og af henni
tekið gifsmót sem síðan var steypt
í steinsteypu. Jónas var á iaunum
hjá Akureyrarbæ í nokkur ár og
gerð á þeim tíma nokkrar styttur
sem prýða bæinn. Styttunni af
Helga magra og Þórunni hyrnu,
þeim sem fyrst byggðu Eyjafjörð,
var komið fyrir á Miðhúsaklöppum
á Akureyri þar sem þau stóðu um
þijátíu ára skeið.
Styttan er afar illa farin, var
mikið sprungin og gegnblaut er
henni var komið fyrir í „afvötnun“
eins og það hefur verið kallað í
kyndistöð hitaveitunnar. Fyrr á
þessu ári var leitað eftir tilboði frá
Englandi í að gera upp styttuna og
sagði Ingólfur Ármannsson menn-
ingarfulltrúi að gert væri ráð fyrir
að kostnaður við það að steypa
styttuna í brons auk annars nemi
um 2,5 milljónum króna og mun
verða leitað eftir því fé af fjár-
hagsáætlun bæjarins fyrir næsta
ár. Ingólfur reiknaði með að um
hálft ár tæki frá því ákvörðun um
viðgerð er tekin og þar til unnt
yrði að setja hana upp.
Morgunblaöio/Kunar Por
Styttan af frumbyggjum Eyjafjarðar, Helga magra og Þórunni hyrnu
hefúr um þriggja ára skeið verið í „afvötnun" hjá kyndistöð Hita-
veitu Akureyrar, en styttan var afar illa farin og gegnblaut er hún
var tekin niður af Miðhúsklöppum. Tilboð hefúr borist frá Englandi
um að steypa styttuna í brons, en það er háð fjárveitingum næsta
árs hvort af því verður.
Fiskihöftiin:
Austurbakki tekinn formlega í notkun
FISKIHÖFNIN var formlega
tekin í notkun við athöfii á laug-
ardaginn, en á þessu ári eru 100
liðin frá því fyrsta höfnin á veg-
um Haiharsjóðs Akureyrar var
tekin í notkun. Framkvæmdir
hafa staðið yfir Irá sumrinu
1987 og nemur heildarkostnað-
ur vegna framkvæmdanna 108,6
milljónum króna miðað við
síðustu mánaðamót. Við athöfh-
ina var formönnum Slysavarna-
félags kvenna og Sjóbjörgunar-
sveit SVFI á Akureyri aflientar
100 þúsund krónur að gjöf frá
Hafiiarsjóði. Hrímbakur, togari
Útgerðarfélags Akureyringa,
sigldi fánum prýddur að
bryggju. Gunnar Arason for-
maður hafharnefndar afhenti
Guðmundi Sigurbjörnssyni
hafnarstjóra táknrænan lykil að
Fiskihöfninni, í líki fisks, en sá
hluti hennar sem tekin var I
notkun fékk nafiiið Austur-
bakki. Þá gerði hafnarstjóri
grein fyrir framkvæmdum við
höfyiina.
Á þessu ári var steyptur 210
metra kantur ofan á stálþil, reist
voru fjögur masturshús fyrir ljós-
amöstur, en þar eru einnig raf-
magnstöflur og vatnsinntök. Snjó-
bræðslukerfi var lagt í 10 metra
breitt svæði meðfram viðlegukant-
inum, sem er 180 metra langur,
síðan var steypt 15 metra breið
þekja, eða alls um 2700 fermetrar.
Utan á stálþilinu eru stigar með
15 metra millibili og er þeir upplýst-
ir, en þessi lýsing ásamt snjó-
bræðslukerfinu er nýjung í hafnar-
gerð á Akureyri.
Heildardýpkun hafnarinnar er
orðin um 60 þúsund rúmmetrar.
Frárennslis- og niðurfallslagnir
voru lagðar í haust í svæðið austan
masturshúsanna, en næsta sumar
er gert ráð fyrir að setja á það
bundið slitlag.
„Þetta er aðeins fyrsti áfangi í
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Austurbakki Fiskihaftiarinnar á Akureyri var formlega tekinn í notk-
un við athöfn á laugardaginn, en þá lagðist Hrímbakur, togari Út-
gerðarfélags Akureyringa, fánum prýddur að bryggjunni. Á mynd-
inni eru hafnarstjórnarmennirnir Sigurður Oddsson og Hilmir Helga-
son, Guðmundur Sigurbjörnsson hafharstjóri, Gunnar Arason formað-
ur hafharstjórnar, Vilhelm Þorsteinsson og Einar Sveinn Ólafsson í
hafnarstjórn.
byggingu Fiskihafnarinnar, en
síðari áfangar fela m.a. í sér tæp-
lega 200 metra viðlegukant að vest-
anverðri höfninni og hugsanlega
allt að 130 metra viðlegukant að
sunnanverðu, en þá er gert ráð fyr-
ir að gömlu verbúðirnar við smá-
bátadokkina víki og flytjist út í
Sandgerðisbót,“ sagði Guðmundur.
Á næsta ári verður áhersla lögð
á að leggja bundið slitlag á hafnar-
svæðið og fegra umhverfið, einnig
er gert ráð fyrir að byggja 70 metra
viðlegukant norðan gömlu Sverris-
bryggjunnar, en þegar hann verður
tilbúin mun öll vöruafgreiðsla flytj-
ast af athafnarsvæði Fiskihafnar-