Morgunblaðið - 12.12.1989, Side 35

Morgunblaðið - 12.12.1989, Side 35
MORGUNBiaADIl>)| ÞiyÐJUDAGljSK iU. þ>K,^EMBER; 198?,__ Utanríkisráðherrar EFTA-ríkjanna 3! Reuter Pólskir verkamenn fjarlægja risastóra styttu af Vladimír Lenín sem trónað hefur á aðaltorgi stálframleiðsluborgarinnar Nowa Huta. Rótttæk ungmenni hafa gert þrjár tilraunir að undanfbrnu til að fella styttuna af stalli og ákváðu yfirvöld því að íjarlægja hana. Þúsundir manna voru viðstaddir og fögnuðu nyög þegar styttan var tekin niður. Pólskir fangar í mótmælasvelti Samkomulag í sjónmáli um mikla eftiahagsaðstoð við Pólland Varsjá. Reuter. ÞÚSUNDIR fanga í 17 fangelsum i Póllandi héldu áfram hungurverk- falli á sunnudag, fjórða daginn í röð. Munu þeir vera að mótmæla því að síbrotamenn skyldu undanskildir þegar þing landsins sam- þykkti almenna sakaruppgjöf á dögunum. Samkvæmt upplýsingum inn- anríkisráðuneytisins munu um 4.000 fangar taka þátt í hungur- verkfallinu. Ýmsir þeirra munu þó láta nægja að neita að borða fang- elsismat en borða í staðinn mat sem fjölskyldur þeirra færa þeim. Jafnframt hefur komið til upp- þota í fangelsunum og hafa sex fangar a.m.k. beðið bana í þeim. Fullyrða embættismenn að þeir hafi týnt lífi í innbyrðis átökum en ekki failið í bardögum við lögreglu. Nokkrum fangelsum náðu fangar á sitt vaid í síðustu viku en hafa ýmist gefist upp eða verið yfirbug- aðir af lögreglu og fangavörðum. Lech Walesa, leiðtogi Samstöðu, óháðu pólsku verkalýðsfélaganna, hvatti landsmenn um helgina til þess að búa sig undir að þurfa að strekkja sultarólina enn frekar. Vegna ástands í efnahagsmálum þjóðarinnar yrði að sýna mikið að- hald meðan reynt væri að ná hag- vexti. Talið var að samkomulag við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um sjö hundruð milljóna doliara efnahags- aðstoð væri á næstu grösum. Sjóð- urinn setur það sem skilyrði fyrir aðstoðinni að Pólverjar taki upp markaðsbúskap, dragi úr opinber- um útgjöldum og niðurgreiðslum, breyti skattakerfinu og takmarki kauphækkanir. Með því móti gerir sjóðurinn ráð fyrir að draga megi úr verðbólgu, sem nú er um 450%. Ráðstafanir sem fram undan eru munu skerða kaupmátt pólskra launþega um 20% og sagði Leszek Balcerowicz, fjármálaráðherra, þá skerðingu óhjákvæmilega þó svo hún gerði landsmönnum erfitt fyrir. „Við verðum að horfast í augu við raunveruleikann og það verður hart á dalnum en á næstu mánuðum. En þá ræðst líka hvort okkur mun takast að reisa efnahag landsins viðj“ sagði hann. I gær var gengi zlotísins fellt um 16% og er það níunda gengisbreyt- ing stjórnar Tadeusz Mazowieckis frá því hún tók við völdum í septem- ber sl. Sovétríkin: Arftakar Gorb- atsjovs ávallt sagðir til taks Búdapest. Reuter. EINN AF andstæðingum stefnu Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétleið- toga sakar hann um að víkja af braut grundvallarsjónarmiða leninismans og segir að vel sé hægt að skipta um leiðtoga. Þetta kom fram í viðtali sem ung- verska dagblaðið Mngyar Hirlap biiti á föstudag við Nínu Andrejevu sem er kennari í Leníngrað. Hún réðst einnig á Gorbatsjov og stefnu hans í bréfi er hún sendi blaðinu Sov- étskaja Rossíja í fyrra. „Komi til þess að vikja verði Gorb- atsjov er nóg af arftökum í miðstjórn- inni,“ sagði Andrejeva. „Mörgum finnst hann hafa vikið frá grundvall- aratriðum lenínismans og gefið lausan tauminn and-sósíaliskum hugmyndum." Andrejeva, sem varð formaður samtaka í Moskvu er nefn- ast Eining um hugsjónir Leníns og kommúnismans síðastliðið vor, hældi Nicolae Ceausescu Rúmeníuleiðtoga fyrir að benda öllum ríkjum, sem hygðust taka upp markaðsbúskap, á að þau myndu þurfa að sætta sig við verðbólgu, svartamarkaðsbrask og versnandi lífskjör. Yilja ljúka samningum við EB fyrir árslok 1990 - rýmri tími gefinn hjá Evrópubandalaginu Genf. Frá Kristófer Má Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. VÆNTANLEGAR samningaviðræður við Evrópubandalagið (EB) bar hæst á fundi utanríkisráðherra aðiidarlanda Fríverslunarbandalags Evrópu (EFTA), sem hófst hér í gær. Fögnuðu ráðherrarnir stefinu- yfirlýsingu leiðtogaráðs EB, sem birt var síðdegis á laugardag í Strassborg. Er það vilji EFTA-ráðherranna og EB-leiðtogaráðsins, að samningaviðræðum milli bandalaganna ljúki sem fyrst og vilja ráðherranir að það takist fyrir lok næsta árs. Á lokastigi fundar leiðtoga EB- landanna í Strassborg á laugardag var horfið frá því ráði að hafa í ályktun fundarins, að stefnt skyldi að því að viðræðunum við EFTA lyki fyrir árslok 1990, eins og sagt var í frétt Morgunblaðsins á sunnu- dag. Breyttu leiðtogarnir drögum að yfirlýsingu sinni á þann veg síðdegis á laugardag, að í stað þess að nefna ákveðinn tíma, segir í endanlegum texta, að samningun- um við EFTA skuli ljúka svo fljótt sem auðið er. Bent er á, að fram- kvæmdastjórn EB fái ekki formlegt umboð til samninga fyrr en snemma í vor og því kunni árið að reynast of skammur tími. Þá hafa Belgar bent á, að EB þurfi að gera ráð fyrir því að finna málamiðlun í ýmsum ágreiningsefnum við EFTA. Loks vilja suðlægu ríkin innan EB hafa nægilegt svigrúm til að gæta hagsmuna sinna, einkum varðandi viðskipti með landbúnaðarvörur. Á fundi EFTA-ráðherranna í gær gerðu þeir hver um sig grein fyrir almennum fyrirvörum ríkisstjórna sinna, sem þær ætla að kynna í viðræðunum við EB. Lagði Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráð- herra áherslu á sérstaka hagsmuni íslendinga vegna viðskipta með sjávarafurðir. í dag ræða ráðherrarnir hvernig samskiptum EFTA við Austur- Evrópuríki skuli háttað. Er ráðgert að ganga formlega frá stofnun þró- unarsjóðs fyrir Júgóslavíu en svip- aður sjóður var stofnaður á sínum tíma fyrir Portúgal, sem nú hefur gengið í EB. Talsmaður EFTA sagði við blaðamenn, að samtökin þættu fýsilegur samstarfsaðili fyrir ríki, sem standa utan við evrópska sam- vinnu. Hefðu ríki við Miðjarðarhaf og Persaflóa lýst áhuga á sam- starfi við EFTÁ-ríkin. Myndi gildi EFTA aukast enn eftir að samning- ar hefðu tekist við Evrópubandalag- ið. Fundi ráðherra lýkur í dag. Á morgun sitja þeir flestir sameigin- legan fund ráðherra 24 ríkja um þróunaraðstoð við Pólland og Ung- veijaland, sem haldinn er í Brussel.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.