Morgunblaðið - 12.12.1989, Side 41

Morgunblaðið - 12.12.1989, Side 41
MORGUNBLABIB ÞRÍÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1989 41 Boeing 737-400-þotur Flugleiða: Heimild fyrir fullu flugtaksafli 1 fimm þúsund feta hæð BOEING 737-400-þotur Flugleiða, Aldís og Eydís, hafa nú fengið leyfi flugmálayfirvalda fyrir fullu flugtaksafli upp í 5.000 feta hæð. í júní- mánuði síðastliðnum voru þoturnar kyrrsettar vegna galla sem fiind- ust í hverfilblöðum sams konar véla í Bretlandi. Létu Flugleiðir þá skipta um hverfilblöð og disk í hreyflunum og flugmálayfirvöld tak- mörkuðu flugtaksafl vélanna. Leifur Magnússon, framkvæmda- stjóri flugrekstrarsviðs Flugleiða, segir að fyrir skömmu hafi bandarísk flugmálayfirvöld gefið þarlendum flugfélögum leyfi til að nota fullt flugtaksafl upp í 5.000 feta hæð. Flugmálayfirvöld annarra þjóða hefðu gefið út samskonar til- kynningar, þar á meðal Bretar, Þjóð- verjar og Frakkar, og nýlega hefðu íslensk yfirvöld gefið Flugleiðum þessa sömu heimild. Stykkishólmur: Arlegur bas- ar Hringsins Stykkishólmi. HINN árlegi basar Kvenfé- lagsins Hringsins í Stykkis- hólmi var haldinn sunnudag- inn 3. desember sl. og hefiir líklega aldrei verið eins mikið af góðum munum á basarnum. Konur í kvenfélaginu hafa undanfarna mánuði unnið mikið verk með að útbúa muni á bas- arinn, auk þess sem margir hafa gefið kvenfélaginu muni, enda rennur ágóðinn til nýju kirkj- unnar okkar, því er nú vantar aðeins herslumuninn á að geta tekið hana í notkun. Sesselja Pálsdóttir formaður kvenfélags- ins flutti í upphafi nokkur orð og skýrði tilgang basarsins og vinnuna við hann. Þá spilaði bjöllukór grunnskólans nokkur jólalög og einnig söng barnakór- inn nokkur lög undir stjórn Ron- alds Turner. - Árni Leifur sagði að sú takmörkun sem verið hefði í gildi hefði ekki komið að sök nema við flugtak fullhlaðinna véla til langflugs af flugvöllunum í Ósló og Salzburg. Þetta hefði því lítil áhrif haft á reksturinn hjá Flug- leiðum. Jón Óttar Ólafsson, deildar- stjóri hjá Flugleiðum, vissi ekki til þess að Aldís og Eydís hefðu þurft að nota þessa auknu heimild frá því hún var veitt. Flugstjórarnir fengju þessa heimild með því skilyrði að þeir nýttu hana ekki nema þörf væri á og þeir þyrftu ekki að til- kynna um það. Leifur sagði ekki vitað hvenær hreyflar Aldísar og Eydísar yrðu lagfærðir þannig að nota mætti fulit afl í öllu flugtakinu, en bjóst við að það yrði á næsta ári. Morgunblaðið/Theodór Jólasveinarnir komu úr Skarðsheiðinni með epli í pokum handa börnunum og léku síðan á als oddi í kringum jólatréð. Kveikt á jólatré Borgnesinga Borgarnesi. FJÖLDI barna og fúllorðinna kom á Kveldúlfsvöll í Borgar- nesi þegar kveikt var þar á jóla- tré í blíðskaparveðri sl. sunnu- dag. Athöfnin byijaði strax að lokinni aðventusamkomu í kirkjunni. Eyj- ólfur Torfi Geirsson forseti bæjar- stjórnar flutti ávarp og tendraði síðan Ijósin á jólatrénu. Kirkjukór- inn söng nokkur lög undir stjóm Jóns Björnssonar og Lúðrasveit grunnskólans lék undir stjóm Björns Leifssonar. Þá höfðu félag- ar í Lionsklúbbi Borgarness náð samkomulagi við nokkra jólasveina um að koma sérstaklega úr Skarðsheiðinni af þessu tilefni. Komu jólasveinarnir með fulla poka af jólaeplum og voru margar iitlar hendur á lofti í einu þegar pokarnir voru opnaðir við jólatréð. Síðan var sungið, gengið í kring um jólatréð og nartað öðm hvom í gómsæt eplin. TKÞ Samtök atvinnurekenda í byggingariðnaði krefja fjármálaráðherra svars: Reglugerðadrög um framkvæmd virðisaukaskatts algjörlega óraunhæf REGLUGERÐIR, sem kynntar hafa verið í drögum um greiðslu virðis- aukaskatts í byggingariðnaði og um sérstaka og frjálsa skráningu vegna leigu eða sölu fasteigna, eru algjörlega óraunhæfar, að mati Vinnuveitendasambands Islands, Verktakasambands íslands, Meistara- sambands byggingarmanna og Landssambands iðnaðarmanna. Sam- tökin sendu Olafi Ragnari Grímssyni fjármálaráðherra bréf síðastlið- inn föstudag, þar sem reglugerðunum er mótmælt og ráðherra er krafinn svara við fyrri fyrirspurnum samtakanna um framkvæmd virð- isaukaskattsins. Fer bréf þeirra hér á eftir í heild. Undirrituð samtök atvinnurek- enda í byggingariðnaði vísa til fyrri bréfaskrifta við þig (síðasta bréf og minnisblað frá 5. des. sl.), funda með þér og starfsmönnum skattyfir- FISKVERÐ Á UPPBOÐSMÖRKUÐUM 11. desember. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 74,00 35,00 64,65 53,917 3.485.634 Ýsa 107,00 40,00 87,61 25,842 2.264.099 Ýsa(ósl.) 90,00 86,00 89,20 6,000 535.200 Samtals 66,26 104,129 6.899.103 I dag verða meðal annars seld 70 tonn af þorski, 15 tonn af ýsu og 5 tonn af steinbít úr Núpi ÞH og fleiri skipum. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 72,00 30,00 56,05 63,322 3.549.176 Ýsa '100,00 45,00 70,95 38,867 2.757.573 Samtals 60,92 118,524 7.220.278 l dag verður selt óákveðið magn úr línu - og netabátum. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 76,00 44,00 66,43 119,375 7.930.500 Ýsa 103,00 15,00 80,32 23,946 1.923.228 Samtals 58,26 214,317 12.486.099 í dag verða meðal annars seld 20 tonn af þorski, 10 tonn af ýsu og óákveð- ið magn af öðrum tegundum úr línu- og netabátum. SKIPASÖLUR í Bretlandi 4. til 8. desember. Þorskur 96,33 219,830 21.176.372 Ýsa 109,28 45,595 4.982.457 Ufsi 59,14 11,855 701.144 Karfi 69,70 1,020 71.096 Koli 110,65 42,225 4.672.199 Grálúða 90,05 15,485 1.394.353 Samtals 98,89 344,135 34.031.756 Selt var úr Gjafari VE i Hull 4. des., Björgvini EA í Hull 7. des. og Gullveri NS í Grimsby 7. des. GÁMASÖLUR í Bretlandi 4. til 8. desember. Þorskur 96,82 662,804 64.171.756 Ýsa 109,77 392,655 43.101.500 Ufsi 59,45 24,760 1.472.047 Karfi 58,30 16,365 954.030 Koli 115,74 110,799 12.824.081 Samtals 101,97 1,283,657 130.898.696 SKIPASÖLUR í Vestur- -Þýskalandi A 1. til 8. desember. Þorskur 94,55 11,092 1.048.774 Ufsi 109,82 8,167 896.859 . Karfi 84,56 549,472 46.461.293 Grálúða 138,42 0,250 34.605 Samtals 83,97 593,909 49.871.862 Selt var úr Engey RE 5. des., Skafta SK 6 . des. og Klakki VE 7. des. Selt var úr öllum skipunum i Bremerhaven. valda og margítrekaðra ábendinga um óleyst vandamál varðandi fram- kvæmd virðisaukaskatts í bygging- ariðnaði. Samtökin hafa nú fengið send frá ríkisskattstjóra drög að reglugerð- um, dags. 7/12/89, „um greiðslu virðisaukaskatts af byggingarstarf- semi“ og „um fijálsa og sérstaka skráningu vegna leigu eða sölu á fasteign". Þrátt fyrir tvo fundi með starfs- mönnum ríkisskattstjóra, ítarlegar ábendingar samtakanna um fyrirsjá- anleg vandamál við framkvæmd virðisaukaskatts í byggingariðnaði m.v. þá aðferð, sem skattyfirvöld ráðgera og tillögur samtakanna um mun einfaldari og betri aðferð, hefur lítið sem ekkert tillit verið tekið til ábendinga þeirraj umræddum reglu- gerðardrögum. I þessu sambandi vísar embætti ríkisskattstjóra til þess, að ekki liggi fyrir ákvörðum fjármálaráðherra um aðra útfærslu en lögin gera ráð fyrir. Samtökin telja, að þessi reglu- gerðardrög geti í núverandi mynd aldrei orðið grundvöllur eðlilegrar og viðunandi framkvæmdar virðis- aukaskatts í byggingariðnaði, og miðað við það, að nánast enginn tími er til -stefnu til kynningar, eru þess- ar reglugerðir algjörlega óraun- hæfar. Þótt margsinnis áður hafi verið tíundaðir þeir alvarlegu gallar, sem eru á ráðgerðri framkvæmd skatt- yfirvalda, skal það samt gert hér enn á ný, m.v. fyrirliggjandi reglu- gerðardrög: Reglugerð um greiðslu virðisaukaskatts af byggingarstarfseini í 2. grein er skattstofn skilgreind- ur sem kostnaðarverð, þ.e. ekki er ætlunin að skattleggja virðisauka í sama einfalda skilningi og í öllum öðrum atvinnugreinum, heldur innri hreyfingar hjá byggingaraðila, sem er vægast sagt flókið og erfitt í framkvæmd. Auk þess telja samtök- in, að þessi flókna aðferð muni leiða til endalausra spádóma og mismun- andi túlkunar um skattmeðferð, eft- ir því hvernig að framkvæmdum er staðið og þar með til misræmis í skattlagningu. í þessu felast m.ö.o. sömu erfiðleikar í framkvæmd og skatteftirliti og eru í núverandi sölu- skattskerfi. Vandamálunum mun hins vegar fjölga mikið vegna víðtækari skattskyldu. Þessi aðferð er því gloppótt og býður upp á alvar- lega misnotkun og skattsvik. Skattaðferðin tekur ekkert tillit til eðli þessarar starfsemi að því er varðar verðmyndun og markaðsað- stæður. Þannig gerir 5. gr. ráð fyrir • því, að ýmsir kostnaðarþættir, sem koma til skattlagningar, lúti ákvörð- un skattyfirvalda og séu því óháðir raunverulegum kostnaði eða því end- urgjaldi, sem í reynd fæst fyrir við- komandi þætti. Þannig er hætt við því, að skatthlutfall bygginga verði mjög mismunandi eftir markaðs- aðstæðum hveiju sinni. Jafnframt er ljóst, að virðisaukaskattur mun verða mun hærra hlutfall af mark- aðsverði fasteigna í þeim landshlut- um, þar sem fasteignaverð er lágt, heldur er þar sem fasteignaverð er hátt. Samkvæmt 6. grein og drögum að reglugerð um sérstaka skráningu (1.-3. gr.) er innskattsfrádráttur mjög takmarkaður og afar flókinn í framkvæmd. Þessar reglur munu hafa í för með sér mikla en mismun- andi fjárbindingu og óeðlilega mis- munun milli aðila, bæði í atvinnuhús- næði og íbúðarhúsnæði. í 7. gr. eru gerðar kröfur um bókhald byggingaraðila, sem er langt umfram það, sem lög um bók- hald gera og margfalt meiri en hjá öðrum innheimtuaðiium virðisauka- skatts. Þessar kröfur eru gjörsam- lega óviðunandi og óframkvæman- legar. Þær munu leiða til mjög auk- ins kostnaðar hjá byggingaraðilum við flókið bókhald, og þar með til hækkunar á byggingarkostnaði fyrir húsbyggjendur. Þessar kröfur eru mun meiri en gerðar eru samkvæmt lögum og reglugerðum í Danmörku, en þangað hafa íslensk skattyfii'völd sótt allar fyrirmyndir að hinu íslenska virðisaukaskattskerfi. Auk þess er vitað, að fæstir þeirra, sem þessar kröfur eru gerðar til, munu geta undirbúið sig undir þær, á þeim ' fáu dögum, sem eru til stefnu. Einn- ig er vitað, að'endurskoðendur og bókhaldsstofur munu almennt ekki geta veitt byggingaraðilum þá þjón- ustu, að færa bókhald samkvæmt þessum kröfum. Reglugerð um frjálsa og sérstaka skráningu ... Skilyrði fyrir sérstakri skráningu samkvæmt þessu eru óeðlilega þröng og munu í reynd leiða til fjárbinding- ar hjá aðilum, sem byggja á eigin reikning til að selja skattskyldum aðilum. Ekki verður séð, að nauðsyn- legt sé, að byggingaraðilar setji fyr- irfram tryggingar vegna sérstakrar skráníngar. Hér ættu að duga ai- T* mennar reglur um það, þegar bygg- ingar skattskyldra aðila breyta um notkun. Að auki ítreka samtökin, að þau hafa engar upplýsingar fengið um raunhæfar leiðir við endurgreiðslu á virðisaukaskatti til íbúðabyggjenda, sem komið geti í veg fyrir hækkun á byggingarvísitölu og lánskjaravísi- tölu eftir gildistöku laganna. Einnig eru ennþá óleyst mjög flókin og erf- ið úrlausnarefni varðandi meðferð verk- og kaupsamninga, sem verða í gangi við gildistöku laganna. Loks skal þess getið, að samtökin telja, aö þau viðmiðunarmörk, sem sett eru sem skilyrði fyrir endurgreiðslu virðisaukaskatts á viðgerðum og i endurbótum (7% af fasteignamati) séu of há og muni leiða til svartrar atvinnustarfsemi. Samtökin vilja ekki trúa því, að umrædd drög að reglugerðum séu endanlegt svar yf irvalda við tillögum samtakanna og óska því eftir form- legu svari fjármálaráðherra við þvi, hvort fallist verði á þá aðferð, sem samtökin hafa lagt til eða ekki, og hvort yfirvöld eru reiðubúin til þess að breyta fyrirliggjandi reglugerðar- drögum í framkvæmanlegt horf. Virðingarfyllst, Vinnuveitendasambaud íslands, Ólafur Hjálmarsson, hagfr. Verktakasamband íslands, Pálmi Kristinsson, framkv.stj. Landssamband iðnaðarmanna, Þórleifur Jónsson, framkv.stj. Meistara- og verktakasam- band byggingamanna, Gunnar S. Björnsson, form.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.