Morgunblaðið - 12.12.1989, Síða 61

Morgunblaðið - 12.12.1989, Síða 61
, M()K<jUNE;LAfcHÐ ;ÞRH).|UDAGURj 1,2.: DESEMB%R,,lþ89 & Rósa B. Blöndals „Mér þykir leitt, að skáldið sem ungur ýtti úr Vör og hélt sínu striki, skuli ekki sjá, hve sterkur er höfimd- arsvipurinn á vísunni „Þó að kali heitur hver“, og öðrum æsku- vísum Rósu til Páls. Þar hefur hún sig langt yfir hagyrðinga múgann og ferskeytlu grúann í Húnaþingi, sem skáld.“ hver“, og um allt sem ég hafði sagt í því sambandi. Mér þótti sérlega vænt um, að Ólafur telur eins og ég, að vísan brotlendi ef „hverinn heiti“ er hafður í þolfalli. Hálfpartinn grana ég annanhvorn fræðimanninn, Theódór eða Arnór, fremur en Sigurð Ólafsson, um að hafa leiðrétt málfræðiviliuna í fyrstu hendingu. Þeir hafa áreiðanlega báðir verið vandlátir íslenskumenn, eins og sá menntamaður, sem ég heyrði fyrst tala um þolfallið, og vildi hafa „heit- an hver“. Mér þykir leitt, að skáldið, sem ungur ýtti úr Vör og hélt sínu striki, skuli ekki sjá, hve sterkur er höfund- arsvipurinn á vísunni „Þó að kali heitur hver“, og öðrum æskuvísum Rósu til Páls. Þar hefur hún sig langt yfir hagyrðinga múgann og fer- skeytlu grúann í Húnaþingi, sem skáld. Eins og Jón hefur sagt, þá er ekk- ert auðvelt að gjöra ferskeytlur svo sérpersónulegar, að þær í sínum sér- staka tóni skeri sig úr. Þetta hefur samt nokkram skáldum tekist. Og Rósa hefur í umræddum vísum sinn sérstæða svip. En óskylt þessu máli, þá minnist Jón á Þorgerði systur sína og skóla- systur mína og Ingólfs. Ég man hana vel. Ég get séð hana mjög skýrt enn, ef ég í minningú lít inn í annan eða þriðja bekk kennaraskólans á okkar tíð. Ung stúlka grönn, ekki há. Fallegt brúnsvart hár, ekki bla- svart, stuttklippt, þykkt og fór alltaf jafn vel. Svartur fríður augnaumbún- ingur. Stór dökkbrún augu, greindar- leg, þau Ijómuðu þegar hún brosti. Við sáumst síðast við brautskráningu fjölmennasta kennarahóps, sem kvatt hafði skólann þá, og fór frá hlöðum gamla Kennaraskólans, með sín réttindaskírteini í allar áttir. Elskulega unga stúlkan, Þorgerð- ur, er mér alltaf minnisstæð. Hún var heitrar trúar. Ofur heitt er syrgð- ur sá sem ungur deyr. Svo bjartsýn erum vér öll á lífið, þrátt fyrir marg- ar skuggahliðar þess. .En að síðustu þakka ég Jóni úr Vör fyrir svargreinina. Kjarnorkustórveldin ættu að geta komið sér saman um öll sín ágrein- ingsmál. En að semja um hver sé höfundur heitustu ástarvísu á íslensku er ómögulegt. Það er ekki nema einn sannleikur. Ekki hægt að fara hinn fræga milliveg. Sendi friðsamlega og kæra kveðju frá húsi mínu til Jóns úr Vör. Höfundur er rithöfundur. evo ^aro\e\oaí s\.eOíS^a 'C' . m3\0S’ S£*«3* „ Leitiö tíl okkar: SMITH&NORLAND NÓATÚNI 4 ■ SÍMI 28300 HVERSDAGSSKÓR OG SKÝJABORGIR eftir Björgúlf Ólafsson Frábær bókfyrir unglinga 14-17 ára KX-T 2386 BE — Takkasfmi með sfmsvara — Sjálfvirkt val — Innbyggð- ur hljóðnemi og hátalari — 12 minni — 3 minni fyrir beint útval — Hvert móttekið skilaboð í allt að 150 sek. — Ljós í takkaborði — Tónval, púlsval — Veggfesting. HEKLAHF Laugavegl 170-174 Sími 695500 Símar fyrir heimilið og vinnustadirai KX-T 2342 E — Takkasími með sjálfvirku vali og innbyggðum hátalara og hljóðnema — Handfrjáls notkun — 20 minni — 6 minni fyrir beint útval — Endurvalstakki fyrir sfðasta númer — Hægt að geyma viðmælanda — Tónval, púlsval — Veggfesting KX-T2135 BE — Takkasími með sjálfvirku vali — 28 minni — Inn- byggður hátalari og hljóðnemi — Handfrjáls notkun — Skjár sem sýnir klukku, valið númer, tfmalengd sfmtals — Elti—hringing (ef símanúmer er á tali hringir síminn sjálfkrafa í næsta valið númer) — Hægt að geyma viðmælanda — Endurvalstakki fyrir síðasta númer — Styrkstillir fyrir hljóð — Púlsval, tónval — Veggfesting

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.