Morgunblaðið - 12.12.1989, Síða 62
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1989
----I!IW; ffi'M'MaaSCl .iif jlJi)ACliK.JljM-OB<-IA.JFrH ii'iIOM
3ils st. 8-16 . 2.390.-
Peysast. 8-16 . 3.465.-
izerjakkist. 6-16 .6.790.-
ixur st. 6-16......2.999._
Blazer jakki st. 6-16 .. 6.790.-
r\-12 ára . 5.395.- Buxur sU 6-16
Afinæliskveðja:
Gerður Magnús-
dóttir kennari
Fátt er dýrmætara en sá eigin-
leiki að geta haft gaman af tilver-
unni, þrátt fyrir amstur dægranna,
mótlætið og erfiðleikana, sem eng-
inn sleppur við; sá gullvægi eigin-
leiki að geta lyft huganum hátt
yfir hversdagsleikann og notið lysti-
semda lífsins. Ég hef oft dáðst að
þessum kosti í fari tengdamóður
minnar, Gerðar Magnúsdóttur
kennara, en hún á sjötugsafmæli í
dag. Kjarkur hennar og dugnaður
er einstakur, að ekki sé minnst á
glaðværðina.
Gerður fæddist að Guðrúnarstöð-
um í Vatnsdal í Austur-Húnavatns-
sýslu 12. desember 1919 ogforeldr-
ar hennar voru Magnús Magnússon,
ritstjóri Storms, og kona hans,
Sigríður Helgadóttir.
Magnús Stormur bjó á heimili
dóttur sinnar og tengdasonar síðari
hluta ævinnar, en með þeim feðgin-
um var afar kært. Ég minnist ótal
stunda, þegar þau ræddu um stjórn-
mál og bókmenntir af meira fjöri
og ákafa en ég hafði áður kynnst;
rökvísi dótturinnar og gáski ásamt
meinhæðni gamla mannsins gleym-
ist seint.
Þótt Gerður sé ekki fædd í
Reykjavík, heldur hafí skotist inn í
tilveruna í lítilli torfbæjarbaðstofu
norður í landi, eins og hún hefur
sjálf komist að orði, telur hún sig
hafa nokkurn rétt á að kalla sig
Reykvíking, því að hingað fluttist
hún tæplega eins árs og hér hefur
hún búið óslitið síðan.
Snemma kom í ljós, að Gerður
hafði hlotið ritleikni föður síns í
vöggugjöf. Hún hlaut fyrstu verð-
laun og þótti bera af í ritgerðarsam-
keppni um Reykjavíkurstúlkuna
1939, sem Vikan efndi til í tíð stofn-
anda blaðsins, Sigurðar Benedikts-
sonar, síðar uppboðshaldara. Hún
hefur flutt fyrirlestra og erindi í
útvarp, og um skeið drýgði hún
tekjurnar með því að þýða fram-
haldssögur fyrir Alþýðublaðið; sat
við eldhúsborðið og skrifaði að
næturlagi, ung barnakona, sem
stjórna þurfti stóru heimili og ekki
hafði næði til ritstarfa.
Bernsku- og æskuminningar
sínar birti Gerður nýverið í ritsafn-
inu Aldnir hafa orðið, og er þar
brugðið upp mörgum eftirminnileg-
um svipmyndum úr Reykjavíkurlíf-
inu á dögum kreppu og styijaldar.
Hún lýsir til dæmis vel, hve al-
gengt það var á árunum fyrir stríð
að fólk færi búferlum um bæinn.
„Flutningadagana sem voru 14.
maí og 1. október settu vörubílar
með búslóð fólks mikinn svip á
götur bæjarins,“ skrifar hún. „Bú-
slóðin aftan á þessum bílum var
töluvert keimlík á þeim öllum: það
var kommóða og dívan, klæðaskáp-
ur og servantur, málaðir rúmgaflar
og alltaf var þvottabali, einn eða
fleiri, þvottabretti og taurulla.
Stundum sáust borðstofuhúsgögn
og einn og einn rauður plusssófí."
Og skemmtileg er lýsingin á
Mörsu gömlu, sem bjó í Bjarnaborg
og var ógnvaldur barnanna í hverf-
inu: „Marsa gamla kom oft til ömmu
minnar, en að henni laðaðist margt
utangarðsfólk því að hún vildi hvers
manns vandræði leysa. Marsa hafði
ekki eldhús en eldaði á olíuvél inni
í stofu sinni sem var sæmilegt her-
bergi. Líklega hefur hún ekki viljað
biðja sambýlisfólk sitt um vatn og
færði amma henni alltaf vatn á
kvöldin. Ég gisti stundum hjá ömmu
og eitt sinn fór ég með henni til
Mörsu. Hún var ekkert mjúk á
manninn þó að amma væri að gera
henni þennan greiða og sendi hana
eftir einhveiju. Amma skildi mig
eftir hjá henni á meðan. Þetta var
hræðileg stund. Aðra eins vistar-
veru hefi ég aldrei séð. Þarna var
þykkt ryklag á öllu og sótflyksur
héngu niður úr loftinu. Marsa var
sérvitur, enginn fékk að þrífa í
kringum hana en hún var sjálf orð-
in gamalmenni. Hún vildi vera góð
við mig og ætlaði að gefa mér
kandís sem hún geymdi í kistli við
rúmið sitt. Ekki hafði ég lyst á
þessu, en þorði ekki að segja það
og sagðist ætla að borða kandísinn
seinna og stakk honum í vasann.“
Gerður varð stúdent frá Mennta-
skólanum í Reykjavík árið 1938,
og 2. nóvember 1940 giftist hún
Tómasi Gíslasyni rafvirkja, sem
fæddur er 3. ágúst 1913. Þegar hún
giftist, hafði hún lokið kennara-
prófi við Kennaraskóla íslands, var
stundakennari við Skóla ísaks Jóns-
sonar í Grænuborg og starfaði á
sumrin við barnaheimili Sumargjaf-
ar. „Nú var stríðið komið heim að
bæjardyrum hjá okkur,“ skrifaði
hún undir lok æskuminninga sinna.
„Hætta þótti á loftárásum. Nokkr-
um sinnum höfðu þýsku vélarnar
flogið yfir og gefin höfðu verið loft-
varnarmerki. Sumargjöfin ákvað að
reka ekki heimilin í Vesturborg og
Grænuborg, en fékk í staðinn hús-
næði í Reykholti og á Hvanneyri."
Jafnframt kennslu sótti Gerður
fyrirlestra í íslenskum bókmenntum
við Háskóla íslands hjá Sigurði
Nordal í tvo vetur og lauk cand.
phil.-prófi árið 1940. Árið 1949
varð hún stundakennari við Gagn-
fræðaskóla Austurbæjar og hafði
það starf með höndum í þtjú ár,
en réðst þá til Gagnfræðaskóla
verknáms og starfaði þar uns sá
skóli var lagður niður vegna breyt-
inga á skólakerfinu. Síðan varð hún
kennari við Fjölbrautaskólann í
Ármúla og kenndi yfirleitt íslensku,
en einnig ensku og dönsku. Hún
sagði stöðu sinni lausri vegna ald-
urs vorið 1987 og átti þá að baki
áratuga fórnfúst starf. Hún hefur
verið kennari af lífi og sál, og rækt-
arsemi gamalla nemenda er til
marks um þau áhrif, sem hún hefur
haft á líf og þroska ungs fólks svo
hundruðum skiptir.
Þau Gerður og Tómas hafa eign-
ast sjö börn. Elstur er Sverrir,
fæddur 1941, doktor í íslenskum
bókmenntum, starfar við Stofnun
Árna Mgnússonar, en kona hans
er Sigríður Þorvaldsdóttir, mál-
fræðingur. Magnús fæddist 1943
og er myndlistarmaður, en kona
hans er Jóhanna Ólafsdóttir, ljós-
myndari. Þriðja í röðinni er Þór-
anna, fædd 1945, nemandi í íslensk-
um fræðum við Háskóla íslands,
en hún er gift undirrituðum. Fjórði
er Sigurður G., útvarpsmaður,
kvæntur Steinunni Bergsteinsdótt-
ur, textílhönnuði. Sigríður, fædd
1955, er nemandi í íslensku og bók-
menntum við Háskólann, og Jó-
Við fengum takmarkað magn afþessum gæðalitsjónvörpum frá TOSHIBA
á einstöku verði.
* Flatur, kantaðurskjármeð fínniupplausn, hægtað sitja Í2mfjarlægð frá
tækinu.
* Fullkomin fjarstýring, allar skipanir birtast á skjánum, en hverfa að 5 sek.
liðnum.
★ Gert fyrir framtíðina, tekur við útsendingum frá öllum kerfum: PAL
(evrópska), SECAM (franska), NTSC (bandaríska).
* SUPER VHStengingogEURO-AVtengifyrirmyndbandstæki, hljómtæki,
tölvur og gerfihnattamóttöku.
★ Tímarofi, sem getur slökkt á tækinu að 30, 60, 90 eða 120 mínútum
liðnum.
Þetta er jólagjöf allrar fjölskyldunnar í ár. Hafið hraðar hendur, því svona
tækifæri til að endurnýja gamla tækið gefst ekki aftur á næstunni! I
* Staðgreiðsluverð.
Afborgunarverð erkr. 89.900
Einar Farestveit & Co hf.
Borgartúni 28 — »? 16995 og 622900