Morgunblaðið - 12.12.1989, Blaðsíða 66

Morgunblaðið - 12.12.1989, Blaðsíða 66
66 MORGÍJNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 1989 ' .A t ÁSGEIR GUÐJOHNSEN lést 8. desember í Dallas, Texas. Fyrir hönd ættingja, Aðalsteinn Guðjohnsen. t BJARGMUNDUR JÓNSSON frá Stykkishólmi andaðist þann 10. desember í Landspítalanum. Fyrir hönd barna og tengdabarna. Jensfna Óskarsdóttir. t KOLBEINN GUÐMUNDSSON, Auðnum, Vatnsleysuströnd, lést í Landspítalanum föstudaginn 8. desember. Útförin fer fram frá Kálfatjarnarkirkju föstudaginn 15. desember kl. 14.00. Árný Kolbeinsdóttir, Magnús Kolbeinsson. t Eiginkona mfn og móðir, BJÖRNÝ HALL, lést aðfaranótt 10. desember á heimili sínu, Skólavörðustíg 18, Reykjavík. Hallgrímur Magnússon, Júlfana Erla Hallgrímsdóttir, Magnús Hallgrímsson, Halla Hallgrimsdóttir, Þorleifur J. Hallgrimsson, Elvar Hallgrímsson. t Móðir okkar og tengdamóðir, HELGA JÓNSDÓTTIR, áður til heimilis f Sólheimum 25, Reykjavík, lést í Hafnarbúðum sunnudaginn 10. desember. Halldór Kristinsson, Mínerva Kristinsdóttir, Iðunn Kristinsdóttir, Ágúst Kjartansson, Jón Kristinsson, Sigrfður Eysteinsdóttir, Sólveig Kristinsdóttir, Einar Guðmundsson. t Útför föður okkar og afa, * BJARNA E. GUÐMUNDSSONAR frá Seli, Grfmsnesi, Hlaðhömrum, Mosfellsbæ, verður gerð frá Lágafellskirkju miðvikudaginn 13. desember kl. 11.00 f.h. Jarösett verður á Mosfelli í Grímsnesi. Helga Bjarnadóttir, Björg Bjarnadóttir og barnabörn. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, MARGRÉT SAMÚELSDÓTTIR, Fossvogsbletti 13, Reykjavík, er lést á Droplaugarstöðum 6. desember, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 13. desember kl. 13.30. Samúel D. Jónsson, Dóra G. Jónsdóttir, Stefán Jónsson, Kolbrún Þórðardóttir, Jón J. Jóhannsson, Steinunn Stefánsdóttir. t Faöir okkar, tengdafaðir og afi, STYRKÁR SVEINBJARNARSON prentari, Torfufelli 27, verður jarðsettur í dag, þriðjudaginn 12. desember, kl. 15.00 í Fossvogskirkju. Hrafn Helgi Styrkársson, Sveinbjörn Styrkársson, Auður Styrkársdóttir, Svanur Kristjánsson, Snorri Styrkársson, Kristrún Ragnarsdóttir, Unnur Styrkársdóttir, Sveinn Bragason, Herdfs Ditta Styrkársdóttir, Jón Ágúst Reynisson og barnabörn. Minning: Styrkár Sveinbjam- arson prentari Fæddur 23. febrúar 1927 Dáinn 2. desember 1989 I dag verður ti! moldar borinn tengdafaðir minn, Styrkár Svein- bjarnarson prentari, er lést fyrir ald- ur fram, 62 ára að aldri. Foreldrar hans voru Sveinbjöm P. Guðmunds- son kennari, síðast í Flatey á Breiða- firði, og seinni kona hans, Margrét Guðmundsdóttir. Styrkár var við nám í Héraðsskólanum á Reykjanesi við Isaíjarðardjúp, lærði setningu í prentsmiðju Þjóðviljans og lauk sveinsprófi í faginu árið 1953. Hann starfaði lengi við iðn sína í prent- smiðju Þjóðviljans og síðar í prent- smiðjunni Odda uns kraftar þrutu. Styrkár var virkur félagi í stéttar- félagi sínu og einnig í Sameiningar- flokki alþýðu — Sósíalistaflokknum, meðan sá flokkur starfaði og síðar í Alþýðubandalaginu. Hann var einn af stofnendum ferðafélagsins Úti- vistar og tók mikinn þátt í starfsemi þess. Styrkár kvæntist árið 1949 Herdísi Helgadóttur, Jónssonar hús- gagnasmiðs og konu hans, Elísabet- ar Magnúsdóttur. Þau skildú. Börn þeirra eru: Hrafn Helgi (f. 1949), búsettur í Svíþjóð; Sveinbjörn (f. 1950), búsettur í Reykjavík; Auður (f. 1951), maki Svanur Kristjánsson og eiga þau þijú börn, búsett í Reykjavík; Snorri (f. 1958), maki Kristrún Ragnarsdóttir og eiga þau eitt barn, búsett á Norðfirði; Unnur (f. 1961), maki Sveinn Bragason og eiga þau eitt barn, búsett í Dan- mörkuj Herdís Ditta (f. 1970), maki Jón Agúst Reynisson, búsett í Reykjavík. Ég kynntist Styrká fyrir rúmum áratug er við Auður dóttir hans hóf- um sambúð. Nokkru áður hafði ég gengið í Alþýðubandalagið og fyrstu áhrifin af kynnum mínum við tengdaföður minn urðu mjög til að styrkja mig í þeirri ákvörðun, því hinn stéttvísi launamaður var ekki goðsögn heldur raunveruleikinn sjálfur. A seinni árum virtist mér hins vegar sem flokkapólitík skipti tengdaföður minn ekki miklu máli. Ekki vegna þess að hann hefði skipt um skoðun — sem fyrr var hann sannfærður sósíalisti og verkalýðs- sinni — heldur vegna hins að hann skynjaði að íslenskt þjóðfélag hafði t Útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, KRISTÍNAR PÉTURSDÓTTUR, fyrrum húsmóður á Spítalavegi 8, síðasttil heimilis á Dvalarheimilinu Hlfð, Akureyri, fer fram frá Akureyrarkirkju, miðvikudaginn 13. desember kl. 13.30. Margrét Helgadóttir, Guðrún Helgadóttir, Pétur Helgason, Sigurlaug Helgadóttir, Hallgrímur Helgason, Björg Helgadóttir, Páll Helgason, Jóhann Ingimarsson, Ása Ásbergsdóttir, Ragnar Á. Ragnarsson, Magnús Fr. Sigurðsson, Bjarney Einarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍN ÞORSTEINSDÓTTIR frá Svínárnesi, er látin. Jarðarförin hefur farið fram. Jóhann Jónasson, Emilfa Stefánsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir til allra er sýndu okkur samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar JÓRUNNAR STEFÁNSDÓTTUR, Hátúni 10. Hrönn Aðalsteinsdóttir, Gunnar Bjarnason og barnabörn. t Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu hlýhug og samúð við fráfall og útför móðursystur minnar, STEINUNNAR GUÐMUNDSDÓTTUR, Hvassaleiti 95, Reykjavík. Fyrir hönd ættingja hinnar látnu, Sæmundur Óskarsson. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við fráfall eigin- manns mfns, ÁSGRÍMS SIGURÐSSONAR, Selási 7, Egilsstöðum. Guð blessi ykkur öll. Steinvör Þórarinsdóttir. breyst; tími hinna hörðu andstæðna, tími harðrar stéttabaráttu, væri lið- inn og kæmi ekki aftur. Ég hygg að Styrkár hafi ekki saknað þeirrar fortíðar mikið. Landið var enn fagurt og frítt og enn mátti ferðast með vinum og félögum, oft í skipulögðum ferðum með Útivist en einnig á eigin vegum, og þá ekki síst með þeim hjónum Guðjóni Bjarnasyni og Gunni Jónsdóttur og bróður sínum Asbirni. Styrkár unni íslandi, náttúru þess, veðrabrigðum og dýraríki. Sjaldan sá ég hann sælli en eftir ferðalag, stutt eða langt, og ekki spillti fyrir ef hrakn- ingar höfðu verið með í spilinu, t.d. að ryðja þyrfti slóð fyrir samferða- menn í hávaðaroki og blindbil. Tengdafaðir minn bar með sér margt af hinu besta í fari foreldra- kynslóðar minnar: Hann var hógvær maður og vinnusamur, hlýr og um- burðarlyndur í dómum um menn og málefni, bókhneigður og fjölfróður um landið okkar, náttúru þess og sögu. Styrkár var fáorður um eigin hag og bar ekki tilfinningar sínar á torg. Börnum sínum, tengdabörnum og barnabörnum var hann bundinn traustum böndum sem ávallt héldu. Hann brást við áf reisn við áföllum lífsins, en þungt var reitt til höggs er sex ára sonarsonur hans og nafni lést af slysförum fyrir tveimur árum. Fáum mánuðum síðar tók sig upp sjúkdómur er hann fyrst kenndi fyr- ir fjórum árum, og nú var baráttu- þrekið horfið. Þegar ljóst var að hveiju stefndi kvaddi tengdafaðir minn landið sem hann elskaði með ferð í bifreið sinni norður um land og á æskuslóðir á Austurlandi þar sem hann dvaldi síðan hjá syni sínum Snorra, konu hans Kristrúnu og syni þeirra og nafna sínum. Þangað hélt Auður fyrir hálfum mánuði til að kveðja föður sinn. Hann var sáttur við allt og alla og líka sáttur við að deyja, farinn að kröftum og heilsu. Að kvöldi 1. desember lagðist hann til svefns og hlakkaði til næsta dags því þá var von á tveimur barna hans í heimsókn. Hann vaknaði ekki að morgni og lést 2. desember, sama dag og nafni hans var borinn til hvíldar fyrir tveimur árum. í dag verður Styrkár Sveinbjarnarson jarðsettur við hlið nafna síns í Foss- vogskirkjugarði. Við söknum þeirra. Svanur Kristjánsson Blómastofa Frídfínm Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavík. Sfmi 31099 Opið öli kvöld til kl. 22,- einnig um helgar. Skreytingar við öll tilefni. Gjafavörur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.