Morgunblaðið - 06.12.1990, Page 2

Morgunblaðið - 06.12.1990, Page 2
H39M323Q OAQlJTMMr* Jt MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1990 Björgólfur Guðmundsson fyrrv. fram- kvæmdastjóri Hafskips; Aætlanir tilbúnar um stofnun skipafélags BJÖRGÓLFUR Guðmundsson, fyrrum framkvæmdastjóri Hafskips, hefur að undanförnu unnið að gerð frumáætlana að stofnun skipafé- lags í samvinnu við innlenda og erlenda aðila. Björgólfur staðfesti í samtali við Morgunblaðið að ónefndir aðilar hefðu rætt við sig um þátttöku í skiparekstri og að hann hefði verið ráðgefandi við gerð áætlana sem væru tilbúnar um slíkt félag en engar ákvarðanir hefðu verið teknar. Hann sagðist sjálfur vera óráðinn í hvort hann tæki þátt í því frekar. Hann vildi ekkert segja um hvaða aðila væri að ræða. „Það er engin launung á því að innlendir og erlendir aðilar á meg- inlandi Evrópu hafa rætt þetta við mig. Það eru til fullbunar áætlanir sem ég tók þátt í að gera en engar frekari ákvarðanir hafa verið teknar og ég á ekki von á að fleira gerist í málinu fyrir áramót. Menn fara rólega í þetta,“ sagði hann. Björgólfur sagði að áætlanir gerðu ráð fyrir að innlendir aðilar yrðu í meirihluta en erlendir þátt- takendur myndu einnig leggja fram fjármagn ef af þessu yrði. „Það eru m.a. gamlir samstarfsaðilar í skipa- rekstri erlendis sem hafa áhuga á þessari siglingaleið," sagði Björg- ólfur. Sagði hann áætlanir gera ráð fyrir rekstri sem væri gjörólíkur því sem viðgengist hefur í flutningum á íslandi til þessa. Álviðræður í Atlanta á sunndag: Áhersla á tryggingar og endurskoðunarákvæði FUNDUR álviðræðunefndar Landsvirkjunar og Atlantsáls um raforkusamninginn hefst í Atl- anta á sunnudag. Að sögn dr. Jóhannesar Nordal, formanns stjórnar Landsvirkjunar og formanns viðræðunefndarinnar, Holiday Inn: verður höfuðáherslan lögð á samninga um endurskoðunar- og tryggingarákvæði. Jóhannes segpr að enn sé mikil vinna eftir í samningaviðræðunum við Atl- antsál, en hann telur enn að hægt sé að ljúka samningagerð- inni í marsmánuði á næsta ári, eins og stefnt er að. Námsfólki boð- in lesaðstaða HÓTEL Holiday Inn við Sigtún í Reykjavík hefur ákveðið að leigja stúdentum við Háskóla íslands lesaðstöðu yfir jólahát- íðina og fram í miðjan janúar. Að sögn Wilhelms Wessmann hótelsljóra, er gert ráð fyrir að þrír námsmenn geti fengið að- stöðu í hveiju herbergi. „Ég hef heyrt um vandræði á heimilum námsmanna, sem krefj- ast algers næðis við lesturinn fyr- ir prófin í janúar,“ sagði Wilhelm. „Annað heimilisfólk getur oft ekki hlustað á útvarp eða jafnvel talað saman og þess vegna datt mér í hug að leigja út herbergi sem annars stæðu auð. Þetta er hvort daufur tími hjá hótelun- sem er um. Leiga fyrir hvert herbergi er 15 þús. krónur fyrir allt tímabilið og geta þrír námsmenn sameinast um eitt herbergi. Rúmin eru fjar- lægð og skrifborðum komið fyrir. Þríburar fæddust á Landspítala ÞÓRA Karlsdóttir frá Grund- arfirði fæddi þríbura á fæð- ingardeild Landspítalans í gærmorgun. Drengimir þrír voru níu og tíu merkur og gekk meðganga og fæðing að óskum. Faðirinn heitir Rúnar Russel. V estmannaeyjar: Frá slysstað í gærkvöldi. Morgunblaðið/Júlíus _ * Banaslys í Artúnsbrekku Stúlka látin og önnur alvarlega slösuð eftir árekstur UNG stúlka lést og önnur slasaðist mjög alvarlega í hörðum árekstri fólksbíls og sendibíls neðarlega í Ártúnsbrekku laust fyrir klukkan tíu í gærkvöldi. Fólksbíllinn var á austurleið en snerist skyndilega á götunni og lenti í veg fyrir stóra sendibifreið á leið í vestur. Áreksturinn varð mjög harður. í fólksbifreiðinni voru tvær stúlkur. Farþeginn. var látinn við komu á slysadeild en sú sem ók var alvarlega slösuð. Ökumaður sendibílsins slasaðist ekki alvar- lega, að sögn lögreglu. Hálka var á akbrautinni þegar slysið varð og gekk á með éljum. Með Jóhannesi í nefndinni em þeir Davíð Oddsson, borgarstjóri, Birgir ísleifur Gunnarsson, þing- maður, og Páll Pétursson, formaður þingflokks Framsóknarflokksins. „Við vonumst til þess að við get- um komist áfram með ýmsa hluti á þessum fundum, einkum hvað varðar tryggingar og endurskoðun- arákvæði í raforkusamningnum. Ég á ekki von á því að neinum samning- um verði lokið að þessu sinni, enda er mikil tæknileg vinna og ýmis frágangur eftir,“ sagði Jóhannes í samtali við Morgunblaðið. Byij unarörðugleikar sem ráðin hefur verið bót á segir Gunnar H. Kristinsson hitaveitustjóri „ÞETTA voru byijunarörðugleikar sem ráðin var bót á fyrir tveimur vikum,“ sagði Gunnar H. Kristinsson hitaveitustjóri um bókun Sigrún- ar Magnúsdóttur í borgarráði. Sigrún leggur þar til að skipuð verði nefnd er kanni vandamál, sem upp hafa komið hjá Hitaveitunni eftir að Nesjavallaveita var tekin í notkun og útfellinga varð vart í heita vatninu. Hitaveitustjóri gaf Davíð Oddssyni borgarstjóra skýrslu um málið í gærmorgun. Að sögn Gunnars, er það ekki rétt, sem kemur fram í bókun Sig- rúnar, að Hitaveitan hafi ekki vitað af rannsóknum á blöndun á fersku vatni og heitu á vegum Orkustofnun- ar. Þvert á móti hafi skýrslur þaðan verið til umræðu á árunum 1984 til 1986. Það var síðan árið 1987 að tekin var ákvörðun um að haga veitunni á þann veg að hita upp kalt vatn á Nesjavöllum og að fram- leiða þannig heitt vatn inn á kerfi veitunnar. „Það er því ekki rétt að Hitaveitunni hafi ekki verið kunnugt um þetta eða hitt og draga upp skýrslu frá árinu 1983,“ sagði hann. „Við eigum skýrslur frá Orkustofnun frá árinu 1980 og 1983 og frá 1987 um nákvæmlega sama mál og auð- vitað fylgjumst við vel með. Það var þess vegna sem reist var tilrauna- stöð á Nesjavöllum, sem er nánast líkan af núverandi virkjun, þar sem fram hafa farið tilraunir í mörg ár og sú niðurstaða fengin að beita þarf ákveðinni aðferð við upphitun á vatninu og afloftun svo að það sé ' nothæft. Frá árinu 1984 hafa farið fram tilraunir hjá okkur í bænum með blöndun á vatninu. Þeim tilraun- um var lokið árið 1986 en þær eru þó alltaf í gangi og vel fylgst með ástandi vatnsins.“ Gunnar sagði að eftir að virkjunin var sett í gang hafí tekið einn mán- uð að ráða fram úr truflunum í stýri- kerfi og ýmsum öðrum vandamálum en það er eðlilegt þegar um jafn stóra virkjun er að ræða. „Byijað var að dæla vatni í litlu magni í bæinn í september en það var ekki fyrr en um miðjan október að við urðum varir við útfellingar," sagði Gunnar. „Þá var strax farið að skoða það og efnagreina og síðan að breyta blöndun og keyrslu. Á þessu gekk þar til fyrir tveimur vikum að allt var komið í lag og hefur ekki borið á útfellingu síðan. Hitt er annað mál að þessi aðferð er viðkvæm og við verðum að fylgjast vel með og það er gert.“ Verðlagsráð sjávarútvegsins: Samstaða hjá fiskkaup- endum um fijálst fiskverð Kauptryggingu sagt upp hjá tveimur fyrirtækjum Á FUNDI Verðlagsráðs sjávarút- vegsins í gær tóku fulltrúar fisk- seljenda, sjómanna og útgerðar- manna sér frest til klukkan 10 í dag til að svara tilboði fiskkaup- enda í ráðinu um að fiskverð verði gefið frjálst gegn því að eingöngu verði fluttur út óunn- inn fiskur, sem fari beint til neyslu, þannig að Aflamiðlun heimili ekki útflutning á óunnum fiski, sem fari í vinnslu erlendis. karfaaflanum og 11% af ufsaaflan- um flutt óunnin til Vestur-Þýska- lands í fyrra. FISKVINNSLUFÓLKI hjá tveimur fyrirtækjum í Vestmannaeyjum, Vinnslustöðinni og Frostveri, hefur verið sagt upp kauptryggingu frá og með áramótum. Hátt á annað hundrað manns starfa hjá Vinnslustöðinni en að sögn Viðars Elíassonar hjá Vinnslustöðinni bitna þessar aðgerðir á um 60 starfsmanna þess fyrirtækis. Viðár segir að gripið sé til þessa ráðs vegna fyrirsjáanlegrar skerðingar aflaheimilda. „Það hefur ekki tíðkast hér að grípa til aðgerða af þessu tagi en vegna þess hvemig mál hafa þróast sjáum við ekki aðra leið,“ sagði Viðar. „Við sjáum fram á það mikla skerðingu að við náum ekki að vinna nema 11 mánuði á ári. Það er dýr- ast að sækja fiskinn í janúar, þegar mest er um brælu og minnst að hafa af fiski og því teljum við þetta hentugasta tímann fyrir stopp. Það er ekki fullljóst hvenær við getum byijað aftur en það verður strax og við getum, sennilega þegar farið verður að halla eitthvað í janúar." Viðar sagði að í janúar ætti tog- ari fyrirtækisins, Breki, að fara í klössun í Þýskalandi og sá mánuður yrði einnig nýttur til nauðsynlegs viðhalds hjá þeim fímm vertíðarbát- um sem einnig sæju fyrirtækinu fyrir hráefni. Viðar sagði að togar- inn mundi fara til veiða í lok ársins eða skömmu eftir nýár og selja afl- ann í Þýskalandi áður en hann færi þar í slipp. Kauptryggingarsamningum hef- ur einnig verið sagt upp hjá Frost- veri í Vestmannaeyjum, fyrirtæki sem rekur lítið frystihús, en ekki hjá öðrum fyrirtækjum í bænum. Samkvæmt heimildum Morgun-' blaðsins náðist full samstaða meðal fiskkaupenda í Verðlagsráði um þessa tillögu en á fundi Verðlags- ráðs síðastliðinn fimmtudag lögðu fulltrúar kaupenda í ráðinu fram sameiginlega tillögu um að fiskverð verði gefið fijálst frá 1. desember síðastliðnum. Hægt er að gefa fisk- verð fijálst ef allir fulltrúar í Verð- lagsráði eru því samþykkir. í fyrra voru flutt óunnin til Bret- lands 11% af heildarþorskafla okk- ar, 35% af ýsuaflanum og 42% af kolaaflanum, svo og voru 26% af Veitingar M. biðja um gjaldþrot VEITINGAR hf., sem á hús Múla- kaffis í Hallarmúla, og er í eigu sömu aðila og Múlakaffi og Veit- ingahöllin, sem nú er gjaldþrota, hefur óskað eftir gjaldþrotaskipt- um. Beiðnin verður tekin fyrir í skiptarétti Reykjavíkur á morgun, föstudag. Veitingahöllin hf. hafði rekstur Múlakaffis á leigu með samningi við Veitingar hf., þar til að Veitingahöll- in varð gjaldþrota fyrir skömmu. Fyrirtækin munu að mestu eða öllu leyti vera í eigu sömu aðila. í

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.