Morgunblaðið - 06.12.1990, Síða 4
4
MORGUNBLABÍÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1990
Morgunblaðið/Emilía
Við afhendingu gjafanna til Skógræktar ríkisins. Frá vinstri eru Sigurður Blöndal, fyrrverandi skóg-
ræktarstjóri, forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, Jón Loftsson skógræktarstjóri, Hulda Valtýsdótt-
ir, formaður Skógræktarféiags íslands, og sendiherra Finnlands á íslandi, Hákan Branders.
VEÐURHORFUR í DAG, 6. DESEMBER
YFIRLIT í GÆR: Við Jan Mayen er 978 mb lægð sem hreyfist norð-
austur en 984 mb lægð við strönd Grænlands vestur af Vestfjörð-
um hreyfist suðaustur.
SPÁ: Norðanátt, víða allhvöss eða hvöss með snjókomu eða élja-
gangi um allt norðanvert landið en úrkomulítið syðra. Vaxandi frost.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG: Minnkandi norðan- og norðvestanátt með
éljum um norðaustanvert landið en björtu veðri sunnanlands og
víða talsverðu frosti. Þykknar upp með vestlægri átt og fer að hlýna
vestanlands.
HORFUR Á LAUGARDAG: Vestlæg eða suðvestlæg átt og hlýn-
andi veður. Rigning eða skúrir um vestanvert landið en þurrt á
Suðaustur- og Austurlandi.
TÁKN:
Heiðskírt
y, Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
r * r * Slydda
/ * /
* # *
* * * * Snjókoma
* * *
1fl° Hitastig:
10 gráður á Celsíus
ý Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
CxD Mistur
—J- Skafrenningur
Þrumuveður
/ VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 2 snjóél Reykjavík 2 úrkoma
Björgvin 2 snjókoma
Helsinki 4-2 hálfskýjað
Kaupmannahöfn 2 léttskýjaö
Narssarssuaq 4-15 heiðskírt
Nuuk 4-11 snjókoma
Ósló 2 skýjað
Stokkhólmur 0 léttskýjað
Þórshöfn 9 skýjað
Algarve 14 rignlng
Amsterdam 7 skýjað
Barcelona 9 mistur
Berlín 3 skýjað
Chicago 4-8 skýjað
Feneyjar 9 skýjað
Frankfurt 5 léttskýjað
Glasgow 7 skýjað
Hamborg 3 s t
Las Palmas 22 skýjað
London 7 léttskýjað
Los Angeles 16 hátfskýjað
Lúxemborg S léttskýjað
Madríd 8 léttskýjað
Malaga 13 súld
Mallorca 16 léttskýjað
Montreal 4-7 snjókoma
NewYork 2 alskýjað
Orlando 6 alskýjað^
París 6 léttskýjað
Róm 8 þokumóða
Vín 2 skýjað
Washington 1 úrkoma
Winnipeg 4-2 léttskýjað
Forsetinn afhend-
ir gjafir til Skóg-
ræktarinnar
FORSETI íslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, • afhenti í gær
Skógrækt ríkisins stórgjafir sem
forseta hafa borist útanlands frá
og eru framlag til skógræktar á
íslandi. Er þar meðal annars um
að ræða 5 kg af lerkifræi sem
Koivisto Finnlandsforseti færði
forsetanum þegar hann var á ferð
í Finnlaudi í október síðastliðnum.
Talið er að allt að 250 þúsund
tijáplöntur geti vaxið af fræjunum
og myndað veglegan íslenskan skóg
þegar fram líða stundir. Þá hafa
Lionsmenn á norðurslóðum í Finn-
landi hafið söfnun á birkifræjum sem
færð verða íslendingum í framhaldi
af gjöf Finnlandsforseta.
Þá barst forseta íslands gjöf frá
Ekenás-skógtækniskólanum í Finn-
landi gjöf sem fól í sé'r tvo náms-
styrki fyrir íslendinga til 4-5 ára
náms í skógtæknifræðum og ná
styrkirnir bæði til skólagjalda og
uppihalds á meðan á námi stendur.
íslensku styrkþegarnir munu hefja
nám við Ekenás-skólann á næsta ári.
Nokkru eftir opinbera heimsókn
forseta Frakklands, Francois Mitt-
errands, til íslands síðastliðið sumar
barst forseta íslands skeyti frá
Frakklandi þar sem Mitterrand til-
kynnti um gjöf til forseta. Gjöfin var
74 birkitré í tilefni af eigin afmæli,
eitt tré fyrir hvert ár. Verða trén
afhent á næsta vori og hefur forseti
íslands óskað eftir að þau verði gróð-
ursett í Vinaskógi.
I Japansheimsókn forseta íslands
nýverið afhenti forstjóri og stofnandi
fyrirtækjasamsteypunnar „Sugar
Island“, Mitsuo Satoh, forseta eina
milljón jena og framkvæmdastjóri
sama fyrirtækis lagði fram 300 þús-
und jen. Ónefndur Japani sem var
viðstaddur afhendinguna afhenti
forseta íslands 5000 jen í sama
skyni. Alls nema þessar peningagjaf-
ir frá Japan vel yfir hálfa milljón
íslenskra króna og eiga að renna til
skógræktarinnar í Vinaskógi í Þing-
vallasveit.
Hle gert á loðnuveið-
um og um 1.000
manns án atvinnu
Veiðanleg loðna er 370 þús. tonn en 400
þús. tonn þarf til að viðhalda stofninum
LOÐNUSKIPIN fóru heim af miðunum við Kolbeinsey í gær, miðviku-
dag, vegna tilmæla sjávarútvegsráðherra og tillögu Hafrannsóknastofn-
unar um að hlé yrði gert á veiðunum en einungis hafa verið veidd um
80 þúsund tonn af loðnu á þessari vertíð. Veiðanlegi loðnustofninn er
nú ekki nema 370 þúsund tonn, samkvæmt mælingum rannsóknaskips-
ins Bjarna Sæmundssonar, sem kom úr loðnuleiðangri á fimmtudag.
Talið er að 400 þúsund tonn af hrygningarloðnu þurfi til að viðhalda
um milljón tonna loðnuveiðistofni en hcildarloðnuveiðin á hverri vertíð
hefur verið 0,8 til 1,3 milljónir tonna frá árinu 1984.
Um 1.000 manns gætu orðið at-
vinnulausir vegna stöðvunar loðnu-
veiðanna og til dæmis er búið að
segja upp starfsmönnum Síldarverk-
smiðja ríkisins á Siglufirði. Starfs-
menn loðnuverksmiðjanna eru
400-500 talsins. Samkvæmt skiln-
ingi Félags íslenskra fiskmjölsfram-
leiðenda eru þeir fiskvinnslufólk og
því hægt að segja þeim upp störfum
fyrirvaralaust þegar um hráefniss-
kort er að ræða, eins og núna. Ein-
hveijir þeirra hafa þó vinnu við
síldarbræðslu en 16 verksmiðjur.hafa
brætt síld í haust.
Loðnuskipin eru 45 talsins og sjó-
menn á skipunum eru um 570. Þar
af eru undirmenn um 300 talsins og
hægt er að segja þeim upp störfum
með viku fyrirvara.
„Það hefut- verið miðað við að 400
þúsund tonn af loðnu hrygni og svo
þarf þorskurinn eitthvað," segir Jak-
ob Jakobsson forstjóri Hafrann-
sóknastofnunar. „Við teljum að þessi
mæling á loðnustofninum núna sé
mjög marktæk og það er meira en
Flug úr skorðum
FLUG lá niðri fyrir hádegi i gær
en eftir hádegi fóru Flugleiðir
tvær ferðir til Akureyrar og Eg-
ilsstaða og til ísafjarðar síðar um
daginn. Flugi til Vestmannaeyja
og Petreksfjarðar var aflýst
vegna ókyrrðar í lofti.
Þá flugu Flugleiðir til Húsavíkur
og Sauðárkróks seinni hluta dags.
Athuga átti með flug til Hornafjarð-
ar.
Arnarflug flaug tvær ferðir til
Vestmannaeyja og eina til Sauðár-
króks og Bíldudals. Flugi til Rifs og
Stykkishólms var aflýst.
Færð var víðast góð í gær en
hálka á fjallvegum um allt land og
á láglendi Suðvestanlands. Það var
helst á Vestíjörðum að ekki var
fólksbílafært, t.a.m. frá Patreksfirði
til ísafjarðar.
við þorðum að fullyrða í fyrra. Ef
eitthvað annað kemur í ljós eftir ára-
mótin hlýtur það fyrst og fremst að
vera vegna þess að loðnustofninn
hefur ekki fundist."
Jakob segir að það sé mjög ábyrg
afstaða hjá skipstjórum loðnuskipa
að verða svona fljótt við tilmælum
sjávarútvegsráðherra um að gera hlé
á loðnuveiðunum. Loðnuskipin fara
aftur í loðnuleit strax eftir áramótin
og Jakob segir að reiknað sé með
að rannsóknaskipin Bjarni Sæ-
mundsson og Árni Friðriksson fari í
loðnuleiðangur 2. janúar næstkom-
andi. Eftir þann leiðangur verði end-
anlegur loðnukvóti á þessari vertíð
væntanlega gefinn út.
Loðnukvótinn er nú 600 þúsund
tonn og þar af mega íslensk skip
veiða um 475 þúsund tonn. Loðnu-
kvótinn var 900 þúsund tonn á
• síðustu vertíð en þá tókst ekki að
veiða nema 808 þúsund tonn. Þar
af veiddu íslensk skip 666 þúsund
tonn en loðnuafli þeirra var 54 þús-
und tonn á síðustu haustvertíð.
Loðnuafli íslendinga á þessu ári
er um 692 þúsund tonn en veidd
voru 667 þúsund tonn af loðnu í
fyrra. Aflaverðmæti loðnuskipa er
jafn mikið í ár og á síðasta ári, eða
um 2,6 milljarðar króna en útflutn-
ingsverðmæti loðnuaflans er um 100
milljónum minna en í fyrra, eða um
4,8 milljarðar króna.
Loðnuverksmiðjurnar eru 20 tals-
ins og 15 þeirra hafa brætt loðnu á
þessari vertíð. Þær hafa greitt 4.200
krónur fyrir loðnutonnið á vertíðinni,
eða samtals 336 milljónir og útflutn-
ingsverðmæti aflans er um 600 millj-
ónir króna. Síldarverksmiðjur ríkisins
greiddu 3.736 krónur að meðaltali á
síðustu vetrarvertíð en þær hafa ein-
ungis tekið á mýti 13.260 tonnum á
þessari vertíð. Á Neskaupstað hefur
mestu verið landað af loðnu á þess-
ari vertíð, eða 17.600 tonnum. Hins
vegar hefur engri loðnu verið landað
í haust á Höfn í Hornafirði, Ólafsfirði
og í Sandgerði.