Morgunblaðið - 06.12.1990, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1990
Æviskýrsla lögreglumanns
Bókmenntir
ErlendurJónsson
Kristján Pétursson: MARGIR
VILDU HANN FEIGAN. 230 bls.
Bókaútgáfan Skjaldborg hf.
1990.
»Niðurstaðan varð sú að enda
þótt um endurminningar væri að
ræða kaus ég að skrifa þær að hluta
til í skáldsöguformi en byggja samt
á staðreyndum úr lífi mínu sem
lögreglumanns,« segir Kristján Pét-
ursson í formála. Við lesturinn skýr-
ast þessi orð. Nöfnum er breytt.
Um annað var víst ekki að ræða.
En þar að auki er talsverður hluti
hvers þáttar skráður í samtals-
formi. Og það er vitanlega skáld-
skapur. Enginn man frá orði til
orðs þrjátíu fjörutíu ára gömul
samtöl, í mesta lagi eitt og eitt til-
svar. Samtölin setja verulegan svip
á textann. Kristján er maður ritfær
í besta lagi. Hins vegar er hann
ekki vanur að skrifa samtöl. Að
minni hyggju hefði frásögnin orðið
áhrifaríkari ef hann hefði samið
þetta meira sem beina frásögn, þó
flotið hefði með eitt og eitt tilsvar
sem hann kann að muna orðrétt.
Því nóg eru frásagnarefnin. Ekki
vantar það. Þetta er á við þijátíu
skammta af Derrick. Munurinn er
þó sá að sakamálaþættirnir þýsku
eru skáldskapur frá rótum en hér
blasir við hrollkaldur veruleikinn.
Kristján ólst upp í fámennri sveit
við einfalda lífshætti þar sem
krafan um heiðarleika, réttlæti og
hjálpsemi var í heiðri höfð. Þessar
dygðir hafði hann síðan að leiðar-
ljósi sem lögreglumaður. Því lög-
reglumaður gerðist hann ekki að-
eins að starfi, heldur einnig að hug-
sjón. Hann vann ekki aðeins tilskil-
inn tíma samkvæmt klukku. Tóm-
stundum sínum varði hann flestum
til starfsins kauplaust! Og þannig
náði hann þeim frábæra árangri
sem í minnum er hafður. Hann fór
til New York til að læra af lögregl-
unni þar. Þar gildir 'reglan að verða
fyrri til að skjóta. Kristján mátti
fylgjast með — sem áhorfandi. En
þess háttar statistahlutverk hentaði
ekki íslendingnum. Fyrr en varði
var hann sjálfur tekinn að upplýsa
mál og láta hendur standa fram
úr ermum — í bókstaflegum skiln-
ingi! Einnig heimsótti hann Scot-
land Yard þar sem starfshættirnir
reyndust öðruvísi og viðhorfin til
lögreglustarfsins annars konar en
í Ameríku. Einnig þangað hafði
hann sitthvað að sækja. Undirbún-
ingur hans til starfsins gat því varla
betri verið.
En yfirmönnunum hér heima
féllu ekki alls kostar vinnubrögð
þessa manns. í fyrsta lagi gerði
hann sér aldrei mannamun. Og það
kann sjaldan góðri lukku að stýra
í þjóðfélagi kunningskaparins! í
öðru lagi fór hann stundum króka-
leiðir að úrlausnarefnunum, beitti
jafnvel smábrögðum ef því var að
skipta. Störf hans utan vinnutíma
voru sömuleiðis litin hornauga. Þeg-
ar öll kurl komu til grafar var hann
'síst alls sá auðsveipi undirmaður
sem margur yfirmaðurinn kýs sér.
Allt var þetta illa þolað þrátt fyrir
frækilegan árangur í starfi. Svo fór
að yfirmennirnir þráðu það heitast
að losna við manninn en — brast
hins vegar kjark til að reka hann
hreinlega! Kristján leitast ekki við
að útskýra það kjarkleysi. Skýring-
in mun þó liggja nokkuð ljós fyrir
ef grannt er skoðað. Kristján lét
nefnilega oft til sín heyra á þessum
• árum. Blaðaskrif hans vöktu veru-
lega athygli. Hann var í raun þjóð-
kunnur maður. Fullyrða má að hann
hafi notið almennrar samúðar, ekki
aðeins vegna þess árangurs sem
hann náði í starfinu heldur einnig
sakir réttarfarshugmynda sinna
sem mjög fóru saman við almennar
skoðanir í þann tíð, og vonandi
enn. Fjársvikamál voru þá allt að
daglegt brauð. Að vísa á brott
manninum sem reynst hafði hvað
ötulastur að koma upp um ósómann
hefði litið grunsamlega út svo ekki
sé meira sagt! Kristján fékk því að
sitja. En að lokum var honum orðið
svo illa sætt að hann kaus að hverfa
Kristján Pétursson
á brott um stundar sakir, eða þar
til honum bauðst að gerast deildar-
stjóri í tollinum á Keflavíkurflug-
velli. En þar má segja að hann
tæki upp þráðinn þar sem frá var
horfið. Því þá var svo komið að
mörg alvarlegustu sakamálin komu
einmitt til kasta þeirrar stofnunar.
Saga Kristjáns er engin alhliða
úttekt á íslensku þjóðlífi. En hún
lýsir vel efstu og neðstu þrepum
samfélagsstigans. Reynsla Krist-
jáns er sérstæð, að minnsta kosti
frá sjónarhóli meðalborgarans séð.
Sjálfur er hann enginn meðalmað-
ur. Hann kynnir sig sem forvitinn
mann og tilfinninganæman. í lög-
reglumannsstarfi kann hið fyrrtalda
Bakhúsið
tískuvörwerslun
Blómahöllin
blóm og gjofovörur
Bræðraborg
söluturn
BúnaÓarbanki íslands
Byigjan
hórgreiöslustofa og snyrtivöruverslun
Doja
tiskuverslun
Filman
Ijósmyndavörur og framköllun
Gleraugnoverslun
Benedikts
Hans og Gréta
bamafatoverslun
Verslunin Inga
tisku-, vefnaðar- og gjafavora
íslondsbanki
Klvkknn
úr, klukkur og skartgripir
Kópavogs Apótek
Mamma Rósa
vertingastaður
verslana- og þjónustumiðstöð
í hiarta Kópavogs
TAKTU ÞATT
í LEITINNIAÐ JÓIA-BOMBUNNI!
Við „felumu þrjár 5.000 kr. jóla-bombur
í jafn mörgum verslunum í
Hamraborginni hvern laugardag
í desember.
Gerðu jólainnkaupin spennandi.
Komdu í Hamraborgina og ef til vill
verður heppnin með þér.
OpiÖ alla laugardaga
Pú færð allt til jólahaldsins
í Hamraborgmni, Kópavogi
NÆG OKEYPIS BILASTÆÐI!
ffmm
HAMRAB0RG
„Allt ó einum staÖ"
Mólý
honnyrðaverslun
Nóatún
nýfenduvöruverslun
Óli Prik
skyndibitastaSur
Rfltvís
ferioskrifstofa
Sevilla
rakorastofa
Skóverslun Kópavogs
Sólarland
sólboisstafa
Sportbúð Kópavogs
Sveinn Bakari
Teleffaxbúðin
Tónborg
hljómplötur og gjotavörur
Vedfl
bókoversiun
VídeómarkaÓurinn
VIS
Vófryggingofólag Islands
að þykja gagnlegt, en tæpast hið
síðartalda. Má um hann segja eins
og sagt var um breskan leynilög-
reglumann að »spenna og áhætta
virðist honum í blóð borin«. En
vegna þessara samtvinnuðu eigin-
leika varð starfið honum snöggtum
meira en venjulegt brauðstrit. Það
varð honum ástríða. Slík var bar-
áttugleðin að hann gat naumast
hugsað sér annað en fullnaðarsigur
í hveiju máli. Oft lagði hann sig í
verulega hættu. Titillinn: Margir
vildu hann feigan — er ekki valinn
út í hött! En alltaf slapp Kristján.
Heppni má kalla það. Og þó öllu
heldur farsæld.
Að loka augunum fyrir óréttlæti
jafngilti því að fremja það sjálfur
í bændaþjóðfélaginu gamla. Sú til-
finning sýnist einatt hafa vakað
fyrir Kristjáni í starfi hans. Þess
vegna átti hann til að blanda sér í
mál þó þau heyrðu ekki beint undir
stofnun hans. Og þess vegna rækti
hann starf sitt af slíkum eldmóði
að til einsdæma má telja.
Þessi æviskýrsla Kristjáns kemur
fyrir sjónir eins og hrópandi mót-
sögn alls þess sem fyrirmenn mæla
hér á hátíðum og tyllidögum. Fram
kemur að í hópi þeirra, sem brotleg-
ir gerðust á lögreglumannsferli
hans, voru ekki aðeins frúr og for-
standsmenn heldur líka hávaðasam-
ir vandlætarar. Þrátt fyrir hávaða
þeirra sjálfra var ekki alltaf haft
hátt um ávirðingar þeirra. Það er
ekki sama hver maðurinn er!
Kristján dregur ekki fjöður yfir
að hann hafi verið erfiður yfirmönn-
um sínum. Samskiptin lýstu sér
stundum í orðahnippingum, jafnvel
í fálæti. Eigi að síður lætur hann
þá njóta sannmælis og viðurkennir
að sökin hafi einnig verið sín. Óvil-
hallur lesandi hlýtur þó að líta svo
á að orsakarinnar hafi fremur verið
að leita í sjálfu kerfinu, því sálar-
lausa, vélræna vaidi sem allir finna
fyrir en enginn getur þó í raun tek-
ið á. Því öðru fremur ieggur kerfi
þetta höft á hvers konar frum-
kvæði, og fékk Kristján tíðum á því
að kenna.
Að lokum drepur Kristján á til-
tekin mál sem rannsökuð voru af
öðrum. Telur hann að ekki hafi allt-
af verið rétt að rannsóknum staðið,
né réttar ályktanir af því dregnar
sem rannsóknir gáfu til kynna, og
færir fyrir því gild rök. Hann fer
þó vægt í þær sakirnar þar eð fátt
verður fullyrt um mál hvert fyrr
en sönnun liggur á borðinu.
Þegar öllu er á botninn hvolft
er þetta meira en starfssaga lög-
reglumanns. Þetta er í raun hin
prýðilegasta þjóðfélagsfræði. Hér
gefur að líta svipmótið undir grím-
unni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
■ VERÐLA UNvoru afhent föstu-
daginn 30. nóvember sl. í getraun-
asamkeppni Samtaka íslenskra
myndbandaleiga og Samtaka
rétthafa á Islandi. Góð þátttaka
var í getrauninni og kom fyrsti
vinningur, myndbandsupptökuvél,
af SANYO gerð, í hlut Margrétar
Ellertsdóttur, Melgerði 1, Kópa-
vogi,, og sýnir meðfylgjandi mynd
formann SÍM, Ásgeir Þormóðs-
son, afhenda Margréti verðlunin
ásamt fögrum blómvendi. Aðrir
vinningshafar sem hlutu hver um
sig 4.000 króna úttekt á einhverri
myndbandaleigu innan vébanda
SIM, voru eftirtaldir: Kristín Krist-
insdóttir, Stekkjarkinn 17, Hf.,
Rúnar Örn Felixson, Safmýri 33,
R., Hreinn Baldursson, Dalseli
17, R., Elín Birna Árnadóttir,
Herjólfsgötu 22, Hf., Guðmar
Einarsson, Vesturbergi 78, R.,
Ólöf Gerður Pálsdóttir, Brúar-
holti 2, Ólafsv., María Pálsdóttir,
Bleikjukvísl 20, R., Helga Brynj-
ólfsdóttir, Hagamei 52, R., Edda
Þorkelsdóttir, Miðbraut 20,
Seltjn.
(Fréttatilkynning)