Morgunblaðið - 06.12.1990, Side 15

Morgunblaðið - 06.12.1990, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR '6. DESEMBER 199R 15 EINAR ÁSKELL Bókmenntir Sigurður Haukur Guðjónsson MÁL OG menning sendir frá sér 3 myndabækur um Einar litla Áskel. Höfundur þeirra er Gun- illa Bergström Qg Sigrún Árna- dóttir snaraði þeim á islenzku. Prentstofa G. Benediktssonar sá um setningu og filmuvinna, en pentun unnin af Aarhus Stifts- bogtrykkerie. Þetta eru sögur fyrir ungar manneskjur, krakka sem eru að byrja að sækja bækur í hillu, bera að hnjám sér eldri og biðja um lest- ur. Þær eru stuttar, einfaldar í allri gerð, og því auðskildar. Tvær þær eldri eru glíma barnshugans við áleitnar spurnir, sú yngsta ærsla- full gamansaga. Einar Áskell býr einn með pabba sínum í þeim tveim fyrri, eins og góðri, sænskri bók hæfir. En komum aðeins nær. Er það vofa, Einar Áskell? heitir sú elzta (1983). Þar er sagt frá því er flest börn kynnast, myrkfæln- inni. Einar Áskell hræðist myrkrið, undarleg hljóð í faðmi þess, og höf- undur einsetur sér að hjálpa snáð- anum að sigrast á óttanum, gerir það á glettin, áhrifaríkan hátt. Onnur sagan er Höldum veislu, Einar Áskell! (1986). Hér er eftir- væntingu þess sem er að vaxa lýst, þeim stórviðburði sem afmælisdag- ur barns er. Fía frænka býður fram kunnáttu sína við undirbúning all- an, nokkuð stórtæk að áliti föður snáðans. Veizla er haldin og eins og oft heimamenn því fegnastir er henni lauk. Þá loks er hlustað á óskir afmælisbarnsins, og það fær að halda sína veizlu. Grínagtug lýs- ing á ráðsmennsku fullorðinna með Iítil börn. Engan æsing, Einar Áskell! (1989) er þriðja bókin. Hér hefir drengurinn eingazt systur, Millu. Þetta er sprenghlægileg lýs- ing á innkaupaferð þeirra feðgina, eða réttara sagt, röðun þess er þau höfðu keypt, í hirzlur heimilisins. Hefði karlmaður skrifað svo um konu, hefði hann verið ásakaður um karlrembu, en ekki kann ég að kvenkenna það orð. Allt, hreint allt, fer úrskeiðis þrátt fyrir góðan ásetning. Teikningar hefir Gunilla sjálf gert, einfaldar, barnslegar, en þær tjá það er lýsa þarf. Þýðing Sigrúnar tær og vel gerð. Frágangur allur góður. Bækur fyrir ung börn. -----• ♦ ♦ ■ ANNALÍSA eftir Ib H. Cavl- ing er komin út hjá Bókaútgáf- unni Hildi. Á bókarkápu segir m.a.: „Annalísa er sext- án ára og býr heima hjá foreld- rum sínum, þar sem búa fimm manns í lítilli tveggja herbergja íbúð. Hún vill allt til vinna, að þau geti fengið stærri íbúð, en leigumarkaðurinn er erfið- ur. Hún tekur það ráð að ráða sig til starfa á lögfræðiskrifstofu, sem sér um úthlutun leiguíbúða. Þar lendir hún í klónum á kvensömum lögmanni, en sleppur þó ósködduð og reynslunni ríkari." Ib H. Calving ■ KOMIN er út hjá Máli og inenningu Percival Keene eftir sæfarann kaptein Marryat sem var uppi á fyrri hluta 19. aldar. í kynn- ingu útgefanda segir m.a.: „Perciv- al Keene er óforbetranlegur prakk- ari sem gerir uppreisn gegn hefðum heimilis og skóla og er ungur til sjós þar sem hann lendir í stórkost- legum ævintýrum, orustum og lífsháska. Sagan af honum er talin meðal sígildra strákabóka og hefur verið endurútgefín margoft víða um heim, m.a. hér, en hefur lengi verið ófáanleg." Um ár og vötn á Islandi. Litmyndir og kort. KIMNI OG SKOP í NÝJA TESTA- MENTINU Jakob Jónsson Kimnl og skop í Nýja testamentlnu LJOÐ OG LAUST MÁL Hulda J-íuláa Jakob Jónsson íslensk þýðing á doktors- riti. Könnuð ný viðhorf í túlkun og boðskap Krists. SIÐASKIPTIN Will Durant I Ðuranl 2. bindi. Saga evrópskrar menningar 1300—1564. Tímabil mikilla straum- hvarfa. Þýðandi: Björn 'Jónsson, skólastjóri. ALMANAK ÞJÓÐVINA- FÉLAGSINS ALMANAK Hins Íslonika Þjóðvinafótagj 1991 WW l>t 4«W ÍHllil Hlrf/, Orval úr kvæðum og sög- um. í útgáfu Guðrúnar Bjartmarsdóttur og Ragn- hildar Richter. KJOT Ólafur Haukur Símonarson Ólafur Haukur Simonarson ÍSLENSK^él IFJKRÍT Nútímaleikrit, sem gerist í kjötbúð í Reykjavík. Frum- sýnt í Borgarleikhúsi s.l. vetur. ANDVAR11990 VARl RAFT/EKNI- ORÐASAFN III. Orðanefnd rafmagns- verkfræðinga RAFTÆKNI ORÐASAFN Vltmáa. jyninguroji Arijinx HtWbv Hugtök á sviði vinnslu, flutnings og dreifingar raf- orku. 4. bindi.' Lokabindi sögu hins mikla athafnamanns í íslensku atvinnu- og menningarlífi. ■ Almanak um árið 1991, reiknað af ■ Þorsteini Sæmundssyni Ph.D., og Árbók íslands 1989 eftir Heimi Þorleifsson. Tímarit Bókaútgáfu Menn- ingarsjóðs og Hins ís- lenska þjóðvinafélags. Rit- stjóri: Gunnar Stefánsson. Aðalgrein: Æviþáttur um Jón Leifs, tónskáld, eftir Hjálmar H. Ragnarsson. Bókaúfgöfa /14ENNINGARSJOÐS SKÁLHOLTSSTÍG 7« REYKJAVÍK 621822

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.