Morgunblaðið - 06.12.1990, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1990
Bretland:
Rushdie í viðræðum við einn af
leiðtogum múhameðs trúamiamia
St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari
Frímannssyni, fréttaritara Morgun-
blaðsins.
Rithöfundurinn Saiman Rus-
hdie sagði í síðustu viku, að
hann hefði átt viðræður við einn
af leiðtogum múhameðstrúar-
manna í Bretlandi. Leiðtoginn,
sem ekki hefur verð nefndur,
Svíþjóð:
Israelar mót-
mæla bréfi
til Saddams
Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara
Morgunblaðsins.
FULLTRÚAR stjórnar ísraels
hafa mótmælt því að sænsk
stjórnvöld skuli hafa líkt her-
námi Israela á Vesturbakkanum
og Gazasvæðinu við innlimun
Kúvæts í írak. Ingvar Carlsson,
forsætisráðherra Svíþjóðar,
lýsti þessari skoðun í bréfi er
hann ritaði Saddam Hussein ír-
aksforseta fyrir skemmstu en
bréfið var lesið upp á íraska
þinginu og er talið hafa átt mik-
inn þátt í að sænskir gíslar í
Irak fengu heimfararleyfi.
Sten Andersson, utanríkisráð-
herra Svíþjóðar, sagði á þriðjudag
að undirrót allra átakanna í Mið-
Austurlöndum væri deilan milli
ísraela og Palestínumanna. ísra-
elsstjórn hefur ávallt vísað slíkum
staðhæfingum á bug.
Carl Bildt, leiðtogi sænskra
hægrimanna, og Bengt Wester-
berg, formaður Þjóðarflokksins,
hafa báðir gagnrýnt bréf Carlssons
en talsmenn jafnaðarmanna hafa
svarað fullum hálsi. Stjómvöld
neituðu fyrst í stað að birta bréfið
en það var loks gert sl. föstudag.
Komið hefur fram tillaga um að
framvegis verði fjallað um bréf af
þessu tagi í utanríkismálanefnd
þingsins áður en þau eru send.
I4ÝTT 5ÍMANÚMER
PRENTMYNDAGERÐAR-.
JRorijimWnbíít
staðfestir þetta í viðtölum við
tvö blöð sl. sunnudag.
Salman Rushdie hefur verið í
felum undir eftirliti öryggislög-
reglumanna í eitt og hálft ár. Hann
hefur reynt smám saman að hefja
eðlilegt Ííf á ný, en það getur ekki
gerst nema múhameðstrúarmenn
failist á að láta hann afskipta-
lausan.
í viðtalinu á annarri rás BBC-
sjónvarpsins upplýsti Rushdie, að
hann hefði átt viðræður við einn
leiðtoga múhameðstrúarmanna til
að reyna að finna einhvern sameig-
inlegan grundvöll. Hann sagði að
hann ætti margt sameiginlegt með
breskum múhameðstrúarmönnum
og það þyrfti að styrkja.
Þessi leiðtogi breskra múha-
meðstrúarmanna segir í samtali
við The Sunday Telegraph sl.
sunnudag, að hann hafi að fyrra
bragði haft samband við Rushdie
fyrir tveimur mánuðum. Hann seg-
ist ánægður með samræðurnar,
sem hann hafi átt við rithöfundinn
og vongóður um framhaldið. Hann
segist halda, að múhameðstrúar-
menn átti sig á því, að Rushdie
sé ekki óvinurinn.
Leiðtoginn segist vera reiðubú-
inn að tala máli Rushdies við mú-
hameðstrúarmenn í löndum araba
og í íran til að fá dauðadómi Kho-
meinis, erkiklerks, aflétt.
Aðrir leiðtogar breskra múham-
eðstrúarmanna hafa fordæmt
þessar yfirlýsingar. Talsmaður
bresks ráðs um málefni múha-
meðstrúarmanna, sem hefur haft
forystu um aðgerðir gegn Rushdie,
segir að ekki sé hægt að semja
um eitt né neitt við trúvilling og
múhameðstrúarmenn hafí aldrei
óskað eftir viðræðum við höfund
þessarar trúlausu bókar, þ.e.
Söngva Satans.
Leiðtoginn, sem hefur talað við
Rushdie, segir að múhameðstrú
liggi uhdir ámæli vegna afstöðu
sinnar til Rushdies. Rushdie sé
reiðubúinn að leggja sitt af mörk-
um með því að þrýsta ekki á um
útgáfu bókarinnar í pappírskilju
og hann muni ekki halda bókinni
á lofti í framtíðinni.
Reuter
Stjörnusjónaukar bandarísku geimfeijunnar Kólumbiu, er sjást hér
á myndinni, eru hluti af „rannsóknarstofu" sem komið var fyrir í
vörulest feijunnar.
Kólumbía myndar ósýni-
leg geimfyrirbrigði
Houston. Canaveralhöfða. Reuter.
TEKIST hefur að laga bilun í
miðunarbúnaði fjögurra stjörnu-
sjónauka um borð í bandarísku
geimfeijunni Kólumbíu eftir
þriggja daga glímu áhafnarinnar
og sérfræðinga á jörðu niðri við
að leiðrétta tölvuforrit miðunar-
búnaðarins sem tengdur er sjálf-
stýribúnaði geimfeijunnar.
Strax og komist var fyrir bilunina
tóku sjónaukarnir að skyggnast
milljarða ljósára aftur í tímann og
hafa þeir náð merkjum og myndum
af leyndardómsfullum fyrirbrigðum
sem eru í milljarða ljósára fjarlægð
frá jörðu. Hefur ekki verið hægt
að rannsaka þau með tækjum af
jörðu niðri.
í gærmorgun skoðaði áhöfn Kól-
umbíu og myndaði t.a.m. stjörnu-
þyrpinguna Krabbann sem er í
nautsmerkinu, en þar er um að
ræða leyfar gamallar sprengi-
stjörnu. Er tilgangurin.n með rann-
sóknunum m.a. að mæla röntgen-
og útfjólubláa geisla frá atvikum
sem áttu sér stað í geimnum fyrir
milljörðum ára og kortleggja hinn
„ósýnilega alheim". Mikill fögnuður
braust út í stjórnstöð geimfeijunnar
í Houston þegar fyrstu myndirnar
fóru að berast og sagði fulltrúi hjá
bandarísku geimferðastofnuninni,
NASA, að þetta væri stór dagur í
sögu mannkynsins.
Á þriðjudag fylgdist áhöfn Kól-
umbíu með því er sovéska geimfar-
ið Sojúz-TMll lagðist að geimstöð-
inni MÍR en aðeins 53 km voru á
milli geimfaranna er leiðir þeirra
skárust í 320 km hæð yfir Kyrra-
hafi. „Stefnumótið" stóð þó mjög
stutt vegna mismunandi hraða
þeirra.
Deby lýsir sig forseta í Tsjad
N’Djamena, París, Túnis. Reuter.
LEIÐTOGI uppreisnarmanna í Tsjad, Idriss Deby, hefur lýst sig
forseta landsins og lofað þjóðinni frelsi og réttlæti. Deby hét því í
ræðu sem hann flutti á þriðjudag að koma á fjölflokkalýðræði í
landinu, halda leynilögreglunni í skefjum og tryggja grundvallar-
mannréttindi. í yfirlýsingu sem gefin var út sama dag var Deby
sagður vera þjóðhöfðingi og formaður ríkisráðs, sem í sitja 27 menn
og fer tímabundið með völd í landinu. Nokkur hundruð pólitískum
föngum var sleppt eftir valdatökuna og tóku tveir þeirra sæti í
ríkisráðinu. Deby skipaði einnig tvo af ráðherrum fráfarandi ríkis-
stjórnar til setu í ráðinu. Deby-sagði ekki hvenær boðað yrði til
frjálsra kosninga.
Hissene Habre, sem farið hefur
með völd í Tsjad sl. átta ár, flýði
til Kamerún frá höfuðborginni,
N’Djamena, á laugardag ásamt
nánustu samstarfsmönnum sínum
og hermönnum, sem voru honum
hliðhollir. U.þ.b. 5.000 Tsjadar
flýðu til Kamerún á laugardag en
margir þeirra hafa snúið aftur til
heimalands síns. Í ræðu sinni, sem
Deby hélt á þriðjudag, gágnrýndi
hann Habre, kallaði hann einræðis-
herra er hefði fangelsað og pyntað
andstæðinga sína. Deby sakaði
hann um að hafa stolið fjármagni
sem borist hefði erlendis frá og var
ætlað til hjálparstarfs og jafnframt
að flýja með meginhluta ríkissjóðs.
Stríð hefur geisað í Tsjad með
litlum hléum frá 1967, sjö árum
eftir að landið hlaut sjálfstæði frá
Frökkum. Líbýumenn hafa haft af-
skipti af átökunum í landinu en
Deby brást skjótt við til að frið-
þægja nágranna sína. Hann sleppti
meira en 400 líbýskum stríðsföng-
um, sem sumir hafa verið í haldi í
Tsjad síðan 1982 þegar Habre
komst til valda, og var flogið með
fangana til Trípólí, höfuðborgar
Líbýu, á þriðjudag. Líbýumenn til-
kynntu í gær að Habre hefði tekið
þrjá Líbýumenn í gíslingu er hann
flýði frá Tsjad og að þeir ætluðu
að fá alþjóðlegar hjálparstofnanir
og alþjóðalögregluna Interpol í lið
með sér til að frelsa þá.
Að sögn varnarmálaráðherra
Frakka, Jean-Pierre Chevenements,
fengu sveitir Debys tæplega helm-
ing vopna sinna frá Líbýumönnum
þegar þær gerðu árangurslausa
valdaránstilraun í apríl á síðasta
ári, en Líbýumenn hafa neitað því.
Deby tilkynnti yfirmanni franska
herliðsins, sem verið hefur í Tsjad
síðan 1986, að hann vildi að liðið
héldi áfram að veija landið fyrir
erlendri íhlutun. Herlið Frakka
gerði ekkert til að bjarga Habre og
sögðu yfirmenn þess að átökin
Stæðu innbyrðis milli Tsjada.
Sendiherra Tsjada í Frakklandi,
með aðsetur í París, lýsti í gær
hollustu sinni við nýja valdhafa í
Tsjad en á þriðjudag hafði hann
dregið lögmæti þeirra í efa. Sendi-
herrann, Ahmed Alami, hvatti aðra
sendimenn Tsjada erlendis að fara
að dæmi sínu sem fyrst. Sendiráðið
í Frakklandi er mikilvægasta sendi-
ráð Tsjada.
Opið í kvöld
Eldhúsid opid
frá kl. 18-24
Yfirmatmdslumadur
David Wallach
frá New York
Dansað til kl. 01.00
Tónlistarstjóri; Árni Jónsson
Aðgangseyrir:
FRÍTT
INN í
KVÖLD
matsölu- og skemmtistaður
Kringlunni 4, sími 689686
Sjö milljónir Asíubúa gera
það gott í Bandaríkjunum
Flórída. Frá Atla Steinarssyni, fréttarit-
ara Morgunblaðsins.
UM SÍÐUSTU aldamót laldist
fólk af asískum uppruna vera
0,3% af íbúum Bandarílganna.
A þessu ári áætlar manntals-
skrifstofan bandaríska, að um
3% bandarískra þegna séu af
asískum uppruna, og ef fer sem
horfir verða þeir 10% af íbúum
Bandaríkjanna árið 2080.
Niðurstöður manntalsins sem
gert var í Bandaríkjunum fyrr á
þessu ári hafa ekki verið birtar
enn. En þær virðast benda til
þess að fólki af asískum uppruna,
er komið hefur með löglegum
hætti til Bandaríkjanna, hafi
ijölgað um 80% á síðasta áratug,
og teljist vera um sjö milljónir
manna. Bróðurpartur þess fjölda
býr í Kaliforníu.
Spænsku- eða portúgölsku-
mælandi fólk (hispanics) verður
stærsti „minnihluta“-hópurinn.
Asíu-hópurinn vex hins vegar
langhraðast. 42% allra innflytj-
enda á níunda áratugnum komu
frá Asíu og sumir sérfræðingar
telja, að fólk af asiskum uppruna
verði e.t.v. orðið 10% bandarísku
þjóðarinnar árið 2080.
Asíufólkið sem sest1 hefur að í
Bandaríkjunum er ýmist ríkara —
eða fátækara en almennt gerist.
Enginn þjóðahópur fólks, að
hvítum meðtöldum, var tekju-
hærri. Meðal fjölskyldutekjur
Asíufólks í Bandaríkjunum 1980
námu 36.100 dollurum (um tvær
milljónir ÍSK), en meðalfjöl-
skyldutekjur allrar þjóðarinnar
voru 28.910 dollarar. En meðal
Asíufólksins er einnig mikil fá-
tækt; 14% þess taldist fátækt á
sl. ári á sama tíma sem 10% hvítra
lifa undir fátæktarmörkum. Mun-
ar þar mest um svokallað „báta-
flóttafólk" frá Víetnam.
Asíufólk er betur menntað en
aðrir hópar Bandaríkjamanna;
40% þess hefur lokið háskóla-
prófi, móti tæplega 25% hvítra.
Og þó aðeins 3% bandarísku þjóð-
arinnar séu af asískum uppruna
er áætlað að 19,6% þeirra sem
útskrifast frá Harvard-háskóla
1994 verði Asíufólk. ■