Morgunblaðið - 06.12.1990, Side 35

Morgunblaðið - 06.12.1990, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR DESEMBER 1990 Ú5 Manilla. Reuter. ORKUVERÐ var hækkað á Filippseyjum í gær um 45% að meðaltali en Corazon Aquino for- seti sagði að hækkanirnar væru of miklar og bað yfirvöld orku- mála að milda þær á sumum orkutegundum. Herinn fór strax í viðbragðsstöðu vegna ótta við að óeirðir brytust út í mótmæla- skyni við hækkanirnar. Tvisvar sinnum hefur verið reynt að steypa Aquino af stóli og í bæði skiptin í kjölfar orkuverðshækk- unar en talsmenn hersins sögðust að þessu sinni ekki óttast valda- ránstilraun. Aquino sagði í sjónvarpsávarpi að þótt ríkisstjórnin kæmist ekki hjá því að hækka orkuverð vegna Persaflóadeilunnar þá væri hún mótfallin hækkun á dísel-olíu, stein- olíu og eldunargasi. Hagfræðingar sögðu að hækkanir á þessum þrem- ur orkutegundum kæmu hart niður á láglaunafólki og almenningssam- göngum. Aquino lagði til að verð á öðrum tegundum yrði hækkað meira en ráð var fyrir gert til að hægt væri að lækka verð aftur á þrem áðurgreindum orkutegundum. Hækkanirnar koma ekki til með að koma hart niður á iðnaði lands- ins því eldsneyti til iðnaðar hækk- aði aðeins um 1,37%. Tíu Súdanir fórust með farþegaþotu Nairobi. Reuter. VÖRUFLUGVÉL af gerðinni Boeing-707 hrapaði skammt frá flugvellinum í Nairóbí, höfuð- borg Kenýu, á þriðjudag með þeim afleiðingum að allir sem um borð voru biðu bana. Þotan var í eigu flugfélagsins Sudan Aviation Company og hafði verið leigð til þess að flytja hjálpar- gögn frá Kenýu til suðurhluta Súd- ans. Var hún um það bil að ljúka flugi frá Khartoum, höfuðborg Súd- ans, er hún rakst á rafmagnsmast- ur í aðfluginu að flugvellinum í Nairóbí. Mun þotunni hafa verið flogið alltof lágt. Tíu Súdanir voru um borð og biðu þeir allir bana. Þú svalar lestrarþörf dagsins ' síöum Moggans! Fallegir hlutir gefa lífinu gildi Það á einnig við um penna. Sumir misskilja þá en við ætlumst til þess að skrifað sé með þeim. Parker Duofold kúlupenninn hér að neðan er vissulega fallegur, enda hefur ekkert verið til sparað. Hitt er þó mikilvægara að hann er mjög vandaður. Parker Duofold dansar um blaðið með jöfnu flæði af bleki. Það er hrein unun að skrifa með Parker Duofold. Parker Duofold fæst hjá eftirtöldum söluaðilum. mmmm Ý PARKER REYKJAVÍK Penninn, Hallarmúla Mál og menning, Síðumúla Eymundsson, Mjódd Penninn, Kringlunni Griffill, Síðumúla Mál og menning, Laugavegi Eymundsson, við Hlemm Penninn, Austurstræti KÓPAVOGUR Bókaverslunin Veda HAFNARFJÖRÐUR Bókabúð Olivers Steins KEFLAVIK Bókabúð Keflavíkur ÍSAFJÖRÐUR Bókaverslun Jónasar Tómassonar AKUREYRI Bókaverslun Jónasar Jóhannssonar Tölvutæki - Bókval Harðnandi kosningabarátta í Póllandi: Ný könnun bendir til öruggs signrs Walesa Léleg kjörsókn gæti þó aukið möguleika Tyminskis bragðsstöðu eftir orku- Varsjá. Reuter. NÝ skoðanakönnun sem birt var í Póllandi í gær gefur til kynna að Lech Walesa Samstöðuleiðtogi muni vinna yfirburðasigur í seinni umferð forsetakosning- anna í Póllandi næstkomandi sunnudag. Forstöðumaður stofn- unarinnar sem könnunina gerði sagðist efins að hún endur- speglaði raunverulega afstöðu kjósenda og sagði að Walesa yrði Filippseyjar: Herinn í við- því aðeins öruggur um sigur að kjörsókn yrði mikil. Samkvæmt könnuninni fengi Walesa 61% atkvæða en Stanislaw Tyminski 20% sé aðeins tekið tillit til svara þeirra sem afstöðu tóku. Er þetta þriðja könnunin sem birt er á einni viku en samkvæmt þeim öllum ætti Walesa að vinna öruggan sigur. Slawomir Nowotny, forstöðu- maður Demoskop-stofnunarinnar, sagðist þó efins um að niðurstaðan í kosningunum yrði jafn afdráttar- laus og skoðun sín væri að yrði kjörsókn undir 50% væru möguleik- ar Tyminskis á sigri mun meiri. „Hann er fulltrúi hinna óánægðu og þeir munu ekki láta sig vanta á kjörstað. Hættan er hins vegar sú að þorri almennings telji að Walesa eigi auðveldan sigur vísan og stór hópur muni því ekki hafa fyrir því að koma sér á kjörstað,“ sagði Nowotny. Til átaka kom á kosningafundi Tyminskis í námaborginni Jastrzebie á þriðjudag er stuðnings- menn .þeirra Walesa reyndu að yfirbuga hvorir aðra með hrópum og köllum. Hefur barátta frambjóð- endanna harðnað síðustu daga og mikið borið á persónulegum skæt- ingi þeirra í millum. Hefur Walesa Reuter Lech Walesa heilsar varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, Dick Che- ney, sem sótti Pólveija heim í gær. m.a. sakað Tyminski um að vera forsprakki óheilindamanna og einn- ig leiðtogi gagnbyltingarhóps gam- alla kommúnista og leyniþjónustu- manna. Tyminski segist hins vegar hafa komist yfir upplýsingar sem eigi eftir að koma Walesa í klandur og tapi verkaiýsðforinginn fyrir sér á sunnudag muni hann ekki eiga annarra kosta völ en flýja land. verðshækkun

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.