Morgunblaðið - 06.12.1990, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 06.12.1990, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1990 41 Reykjaneskjördæmi: Fundur um stjórnmála- ástandið og þjóðarsáttina SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN í Reykjaneskjördæmi og kjördæm- Skífurit víxluðust SKÍFURITIN í sérblaði Morgun- blaðsins, Úr verinu, í gær víxluðust og nafnabrengl urðu á fisktegundum í einu þeirra. Ýsa varð að þorski í skífuriti á forsíðu og að auki víxluð- usti ritin þar. Neðri myndin á við efri textann og öfugt og ekki var um þorskafla að ræða heldur ýsu eins og fram kemur í textanum. Á sama hátt víxluðust skífuritin inni í blaðinu og komi þau því á rangan stað í textanum. Beðizt er velvirð- ingar á þessum mistökum. isráð halda fund um stjórnmáia- ástandið síðustu daga og hvað er framundan, í safnaðarheimilinu Kirkjulundi í Garðabæ, í kvöld 6. desember kl. 20.30. Frummælendur á fundinum verða þeir Þorsteinn Pálsson, formaður flokksins og Ólafur G. Einarsson, formaður þingflokksins. Fundinn setur Pétur Stefánsson formaður Sjálfstæðisfélas Garðabæjar, fund- arstjóri er Ellert Eiríksson bæjar- stjóri í Keflavík og fundarritarar eru Erna Nielsen bæjarfulltrúi á Sel- tjarnarnesi og Örn Kjærnested for- maður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélag- anna í Mosfellsbæ. FISKVERÐ AUPPBOÐSMORKUÐUM - HEIMA 5. desember. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Þorskur 119,00 55,00 96,82 47,615 4.610.206 Þorskur(óst) 70,00 66,00 6,28 0,352 23.332 Smáþorskur 86,00 79,00 79,61 1,896 150.939 Ýsa 130,00 69,00 108,48 15,171 1.645.867 Ýsa (ósl.) 97,00 50,00 89,37 0,764 68.282 Karfi 45,00 45,00 45,00 2,648 119.151 Ufsi 46,00 46,00 46,00 0,449 20.637 Steinbítur 70,00 66,00 68,39 0,708 48.420 Langa 65,00 65,00 65,00 0,993 64.545 Lúða 290,00 250,00 287,09 0,377 108.375 Keiia 51,00 51,00 51,00 1,294 65.994 Skata 50,00 50,00 50,00 0,025 1.250 Blandað 59,00 59,00 59,00 0,035 2.065 Samtals 95,80 72,328 6.929.063 FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík. Hæsta Lægsta Meðal- Magn Helldar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur(sl.) 116,00 80,00 99,80 67,078 6.894.665 Þorskurjósl.) 100,00 83,00 94,95 0,997 94.668 Ýsa (sl.) 130,00 94,00 104,48 16,414 1.714.927 Ýsa (ósl.) 116,00 80,00 103,28 5,688 587.469 Blandað 53,00 53,00 53,00 0,069 3.657 Blandað 57,00 27,00 44,85 0,221 " 9.914 Gellur 350,00 350,00 350,00 0,013 4.550 Grálúða 25,00 25,00 25,00 0,019 475 Karfi 47,00 43,00 46,53 1,240 57.700 Keila 56,00 39,00 49,40 4,316 213.207 Kinnar 260,00 260,00 260,00 0,020 5.200 Langa 79,00 63,00 76,26 2,441 186.158 Lúða 390,00 210,00 284,02 0,797 226.360 Lýsa 60,00 60,00 60,00 1,231 73.860 Saltfiskflök 220,00 220,00 220,00 0,124 27.280 Skata 125,00 60,00 118,04 0,797 94.075 Skarkoli 90,00 88,00 88,58 0,048 4.252 Steinbítur • 76,00 60,00 64,44 1,606 103.486' Ufsi 47,00 40,00 41,53 17,947 745.447 Undirmálsfiskur 81,00 42,00 68,23 2,005 136.800 Samtals 89,25 123.073 10.984.151 FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 90,00 90,00 90,00 1,031 92.790 Ýsa 109,00 90,00 92,07 0,239 22.004 Blandað 44,00 44,00 44,00 0,018 792 Ufsi 34,Ó0 34,00 34,00 0,002 68 Tindaskata 5,00 5,00 5,00 0,008 40 Lýsa 60,00 39,00 58,71 0,065 3.816 Langa 40,00 40,00 40,00 0,025 1.000 Keila 39,00 30,00 36,09 0,065 2.346 Steinbítur 59,00 50,00 51,50 0,024 1.236 Lúða 300,00 250,00 275,00 0,008 2.200 Karfi 50,00 48,00 48,01 0,267 12.820 Undirm.fiskur 60,00 60,00 60,00 0,023 1.380 Skarkoli 90,00 50,00 74,05 0,074 5.480 Samtals 78,95 1.849 145.972 Olíuverö á Rotterdam-markaði, síöustu tíu vikur, 25. sept. - 4. des., dollarar hvert tonn____ Morgunblaðið/Björn Blöndal Fyrsti bæjarstjórnarfundurinn í Sandgerðisbæ, Sigurður Bjarnason sem var kjörinn forseti bæjarstjórn- ar, er í ræðupúlti. Aðrir á myndinni eru frá vinstri til hægri: Stefán Jón Bjarnason bæjarstóri og bæjar- fulltrúarnir Sigurjón Jónsson, Óskar Gunnarsson, Reynir Sveinsson, Pétur Brynjarsson, Sigurður Jó- hannsson og Ólafur Gunnlaugsson. Miðneshreppur verður að bæ: Sandgerði heitir nú Sandgerðisbær - Keflavík. SANDGERÐINGAR iiéldu mánudaginn 3. desember hátíðlegan, en þann dag varð Sandgerði og Miðneshreppur að bæ og heilir nú Sangerðisbær. Miðneshreppur var stofnaður 3. desember 1886 útfrá Rosmhvalaneshreppi og að sögn Stefáns Jóns Bjarnasonar bæjar- sljóra eru íbúar nú 1.250-1.300. Hátíðarhöldin fóru fram í íþrótta- húsinu og hófust á fyrsta bæjar- stjómarfundi þar sem embætti Stef- áns Jóns Bjarnasonar breyttist úr því að vera sveitarstjóri í bæjar- stjóri. Þá var Sigurður Bjarnason kosinn forseti bæjarstjórnar og Óskar Gunnarsson og Sigurður Þ. Jóhannsson fyrsti og annar varafor- seti. Tvö mál voru á dagskrá, bygg- ing sérhannaðs íbúðarhúsnæðis fyr- ir aldraða og gerð útivistarsvæðis í grjótnámu utan við bæinn þar sem gijót var tekið í hafnargarðinn. Að fundinum ioknum flutti Sig- urður Bjarnason forseti bæjar- stjórnar ávarp, sóknarpresturinn séra Hjörtur Magni Jóhannsson fór með hugvekju, blásarasveit Tónlist- arskólans flutti nokkur lög undir stjórn Odds Björnssonar. Þá söng kirkjukór Hvalsneskirkju við undir- leik Franks Herlufsen og sungu Ingibjörg Hjördís Einarsdóttir og Lilja Hafsteinsdóttir einsöng. Fjöl- menni var í íþróttahúsinu og var öllum viðstöddum boðið uppá veit- ingar í boði bæjarstjórnarinnar. í dagskrárlok söng kirkjukórinn lagið ísland er Iandið og tóku allir við- staddir undir. BB Karpov jafnaði metín óvænt ___________Skák_______________ Karl Þorsteins ANATOLY Karpov gerði sér lítið fyrir og sigraði Garrí Kasparov i 17. einvígisskákinni sem tefld var í gærkvöldi. Um leið og Karpov lék fertugasta leik sínum rétti heimsmeistar- inn fram hönd sína til merkis um uppgjöf. „Ég bara tefldi“ voru orð sigurvegarans að skákinni lokinni og bætti við að Kasparov hefði auðsjáan- lega ekki verið í góðu formi. Með sigrinum jafnaði Karpov stöðuna í einvíginu á ný eftir ósigur i 16. skákinni. Ráðstefnuhöllin í Lyon var þétt- setin þegar meistaranir hófu tafl- ið í gær. Byijunin kom þó fáum á óvart. Drottningarpeðsleik Karpovs svaraði heimsmeistarinn með Griinfeld vörn og byijunar- leikirnir féllu í svipaðan farveg og í 15. einvígisskákinni. Kasp- arov varð fyrri til að breyta útaf þegar hann lék biskup sínum til g4 í níunda leik. Karpov svaraði með rólegum leikjum og fékk heldur þægilegra tafl í áframhald- inu án þess að svartur hefði mikla ástæðu til að óttast. Nema þá helst andstæðinginn, því Karpov var gríðarlega einbeittur á meðan viðureigninni stóð og saumaði hægt og sígandi að Kasparov eft- ir ónákvæma leiki heimsmeistar- ans. Tímahrak Karpovs var í raun einasta von heimsmeistarans síðustu tíu leikina og þegar tíma- mörkunum var náð gafst Kasp- arov þegar í stað upp. Þetta er í ijórða skipti í 137 einvígisskákum þeirra sem Karpov vinnur rakleiðis næstu skák eftir tap. Spennan í einvíginu hefur aukist mikið á ný og verður fróðlegt að fylgjast með næstu skákum. Kasparov stýrir hvítu mönnunum í 18. einvígisskákinni sem tefld verður á laugardaginn nema annar hvor keppanda nýti sér réttinn til frídags. Hvítt: Garrí Kasparov Svart: Anatoly Karpov Griinfeld vörn 1. d4 - Rf6 2. c4 - g6 3. Rc3 — d5 4. cxd5 — Rxd5 5. e4 — Rxc3 6. bxc3 — Bg7 7. Be3 — c5 8. Dd2 Karpov notast ennþá einu sinni við sama afbrigðið gegn Grunfeld vörn heimsmeistarans. Það gefur vísbendingu um að hann hyggist ekki tefla á tvær hættur í viðureigninni, heldur vonast eftir þægilegu frumkvæði eftir byijunina sem hann geti teflt áhættulaust til vinnings. Sú ráða- gerð heppnast fullkomlega 8. — 0-0 9. Rf3 — Bg4!? Kasparov er fyrri til að breyta út af fyrri viður- eignum. í 15. einvígisskákinni lék hann 9. — Da5 og eftir 10. Hcl e6 11. Bh6 stóð hvítur heldur betur að vígi. Nú veitir 10. Be2 hvítum ekkert frumkvæði eftir 10. — cxd4 11. cxd4 Rc6 12. Hdl e5!. Karpov grípur til annarra ráða 10. Rg5 — cxd4 11. cxd4 — Rc6 12. h3 - Bd7 12. - Bxd4? væri vanhugsaður leikur. Eftir 13. Bxd4 Dxd4 14. Dxd4 Rxd4 15. hxg4 Rc2+ 16. Kd2 Rxal 17. Bd3 sleppur riddarinn ekki út.13. Hbl — Hc8 14. Rf3 Peðið má ekki drepa. Eftir 14. Hxb7? Rxd4! 15. Bxd4 Bxd4 16. Dxd4 Hcl+ 17. Kd2 Hdl+! 18. Kxdl Ba4+ fellur hvíta drottningin. 14. — Ra5 15. Bd3 - Be6 16. 0-0 - Bc4 17. Hfdl — b5 Hvítu miðborðspeðin veita hvítum þægilegt frumkvæði. Svartur þarf á hinn bóginn ekki að kvarta þegar hér er komið til sögu. Peðameirihluti á drottning- arvæng auk óhindraðs aðgangs riddarans að c4 reitnum veitir honum ágæt mótfæri. 18. Bg5! — a6 19. Hbcl - Bxd3 20. Hxc8 - Dxc8 21. Dxd3 - He8? Það er góð regla í endatöflum þegar aðeins annar biskupinn er á borð- inu, að stilla peðunum upp á reit- um andstæðum lit við eigin bisk- up. Eftir 21. — e6 hefur hvítur aðeins heldur betra tafl. Karpov er í essinu sínu í áframhaldinu. 22. Hcl - Db7 23. d5! - Rc4 24. Rd2 - Rxd2 25. Bxd2 - Hc8 26. Hc6! — Be5Kasparov fellur auðvitað ekki í gildruna 26. - Hxc6? 27. dxc6 Dxc6? 28. Dd8+ Bf8 29. Bh6 og svartur verður skjótlega mát. Með síðasta leik sínum tryggði Karpov sér yfirráð yfir c-línunni sem gerir svörtum erfitt um vik. 27. Bc3! — Bb8?Kasparov er ekki öfunds- verður af stöðunni. Engu skárra var að leika 27. — Bxc3 því eftir 28. Dxc3 Hxc6 29. dxc6! Dc7 30. g3 getur svartur sig hvergi hreyft. 28. Dd4 - f6 29. Ba5!Nú er hót- unin 30. Db6! Dxb6 31. Hxc8+ og næst 32. Bxb629. — Bd6 30. Dc3 - He8 31. a3 - Kg7 32. g3 - Be5 33. Dc5 - h5 34. Bc7! - Bal 35. Bf4 - Dd7 36. Hc7 - Dd8 37. d6 - g5 38. d7 - Hh8 39. Bd2 - Be5 40. Hb7- Kasparov gafst hér upp. Peðið á d7 gerir frekari baráttu vonlausa. Ein af fjölmörgum hótunum hvíts er að leika 41. Ba5! Dxa5 42. Dxe7+ Kg6 43. Df7+! Kxf7 44. d8+ og næst 45. Dxa5.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.