Morgunblaðið - 06.12.1990, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 06.12.1990, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1990 43 Leikfélag Akureyrar: Framlag af fjár- aukalögrim hækkað úr 2,5 í 6 milljónir Morgunblaðið/Rúnar Þór Fjórðungssamband Norðlendinga efndi til kynningarfundar um umhverfismál á Hótel KEA á föstudag- inn, en daginn áður hafði sambandið efnt til fundar um sama efni á Sauðárkróki. Fundur um umhverfismál: Brýnast að koma upp mót- tökustöð fyrir hættuleg efni MÓTTÖKU STÖÐ fyrir hættuleg efni ér brýnasta verkefnið á sviði sorphreinsunar á Eyjafjarðar- svæðinu, að mati Valdimars Brynjólfssonar heilbrigðisfull- trúa, en hann hélt eitt framsögu- erindanna á fundi Fjórðungssam- bands Norðlendinga um umhverf- ismál, sem haldinn var á föstudag. Júlíus Sólnes umhverfisráðherra hélt framsöguerindi á fundinum og einnig þau Birgir Þórðarson, frá Hollustuvernd, Davíð Egilsson frá Náttúruverndarráði og Sigurbjörg Sæmundsdóttir frá Umhverfisráðu- neyti. Þá rættu framkvæmdastjórar Heilbrigðiseftirlits Eyjafjarðar og Norðurlands eystra, þau Valdimar Vinnumiðlunarskrifstofan: Mikið um nýskráning- ar fólks án atvinnu MIKIÐ hefur verið um nýskrán- ingar fólks án atvinnu hjá Vinnumiðlunarskrifstofunni á Akureyri eftir helgina. Fyrstu tvo dagana í desember höfðu 20 manns látið skrá sig atvinnu- lausa hjá skrifstofunni. í lok síðasta mánaðar voru 198 á atvinnuleysisskrá, 111 karlar og 87 konur, en í nóvember öllum voru 270 skráðir atvinnulausir. Karlar voru 145 og konur 125. Ef miðað er við fyrra ár, er at- vinnuleysi heldur minna, nú, en þá. í lok nóvember á síðasta ári voru 223 skráðir atvinnulausir, eða um 20 fleiri en á þessu ári. Hjá Vinnumiðlunarskrifstof- unni fengust þær upplýsingar að nokkur aukning hefði verið á milli mánaða, en í október voru 259 skráðir atvinnulausir, 140 karlar og 119 konur. í lok þess mánaðar voru 1.84 án atvinnu, á móti 198 i lok nóvember. Aukninguna má m.a. rekja til þess að fleiri bílstjórar hafa komið inn á skrána og einnig hafa verka- menn í auknum mæli komið inn, en hvað iðnaðarmenn varðar er ástandið svipað. Brynjólfsson og Auður Arnórsdóttir um stöðu mála á sínu svæði. Guð- mundur Guðlaugsson yfírverkfræð- ingur hjá Akureyrarbæ fjallaði um tæknileg atriði varðandi framkvæmd mengunarvarnamála og Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri á Dalvík um fjármálahlið mengunarvarna sveit- arfélaga. Valdimar Brynjólfsson sagði að sveitarstjórnarmenn væru almennt orðnir mun jákvæðari gagnvart umhverfismálum en áður og sér virt- ist sem þessum málaflokki væri meiri gaumur gefinn nú. Brýnasta yerkefnið nú er að koma upp móttökustöð fyrir hættu- leg efni, en menn hafa engan stað fyrir slík efni hér á svæðinu. Sumir hafa verið mjög forsjálir og sent slík efni til sorpeyðingarstöðvar á höfuð- borgarsvæðinu, en aðrir fara því miður með slík efni á haugana. FRAMLAG ríkissjóðs af fjáraukalögum til Leikfélags Akureyrar hefur hækkað úr 2,5 milljónum eins og ráðgert var við fyrstu umræðu í 6 milljónir, en fram kom í máli formanns fjárveitinganefndar Alþingis við þriðju umræðu í fyrradag að vegna mikils rekstrarvanda félagsins hefði verið samþykkt að hækka framlag ríkisins upp í 6 milljónir króna. Sigurður Hróarsson leikhús- stjóri sagði að mikið hefði verið barist til að fá upphæð þá sem fyrst kom fram í fjáraukalögum • hækkaða. Menn væru því ánægðir þegar þessi árangur hefði náðst. „Það bráðvantaði þessa peninga til að hreinsa hjá okkur borðið, með þessu framlagi komum við út á sléttu,“ sagði Sigurður. Hann sagði að aðhalds hefði verið gætt í rekstrinum og menn gripið tíl spamaðarráðstafana og einnig hefði lán verið tekið fyrir hönd félagsins til að mæta fjárhags- vandanum. Á fjárlögum næsta árs er gert ráð fyrir rúmlega 15 milljón króna framlagi úr ríkissjóði til LA og kvaðst Sigurður vonast til.að sú tala hækkaði svo unnt væri að halda áfram óbreyttri stefnu fé- lagsins varðandi fjölda verkefna og fleira. Akureyrarbær hefur einnig lagt fram fé til LA og sagði leikhússtjóri að fjárframlag bæjar- ins hefði verið rausnarlegt, en jafnan væri við það miðað að fram- lag hans væri í það minnsta jafn- hátt framlagi ríkisins. „Forráða- menn bæjarins hafa verið áhugas- Lesum og brosum: Samfelld bókmennta- dagskrá í Samkomuhúsinu í TILEFNI af ári læsis verður efnt til viðamikillar dagskrár í Samkomu- húsinu á Akureyri á laugardag, 8. desember, en hún mun standa yfir frá því kl. 10 árdegis og fram til kl. 16. Fyrir hádegi verða fluttir fyrirlestrar um málþroska barna, undirbúning lestrarnáms, hvernig örva megi lestraráhuga barna og úrræði vegna lestrarörðugleika á framhaldsskólastigi. Eftir hádegi verður samfelld bókmenntadagskrá með upplestri og samlestri barna og leikara. Þá verða tónlistaratriði á dagskránni og sýningar á bókum og myndum nema í Myndlistarskó- lanum. Að þessari dagskrá standa fjölmargir aðilar er málið varða. Yfirskrift dagskrárinnar er „Les- um og brosum“ og er hún sem fyrr segir haldin í tilefni af ári læsis. Fyrsta erindið sem flutt verður fjall- ar um málþroska forskólabarna og það flytur Björg Bjarnadóttir, sál- fræðingur. Þá flytur Elín Stephen- sen yfirkennari erindi sem ber heitið „Þetta er leiðinleg bók, má ég skipta?" Helga Siguijónsdóttir námsráðgjafi fjallar um úrræði vegna lestrarörðugleika á fram- haldsskólastigi og þá munu félagar í Leikklúbbnum Sögu lesa reynslu- amir, ég fínn að rnenn hafa áhuga á að halda hér úti öflugú leikhúsi." Sigmundur Ofeigsson ráðinn deildar- stjóri hjá KEA SIGMUNDUR Ófeigsson hefur verið ráðinn deildarsljóri Bygg- ingavörudeildar KEA. Hann tek- ur við starfinu um áramótin af Mikael Jóhannessyni, er tekur við störfum aðstoðardeildarstjóra Byggingavörudeildar. Sigmundur er fæddur 20. apríl árið 1958. Hann lauk námi í iðn- rekstrarfræði frá Háskólanum á Akureyri vorið 1989 og hefur starfað við áætlanagerð og fleira hjá KEA frá því í febrúar á liðnu ári. Akureyrsk- ir tónar á Sauðárkróki SEX akureyrskar hljómsveitir halda tónleika í félagsheimilinu Bifröst á Sauðárkróki annað kvöld, föstudagskvöld. Þeir hefj- ast kl. 21 og standa i þrjá klukku- tima. Hljómsveitir þessar hafa að und- anförnu staðið sameiginlega að tón- leikahaldi og stefna innan tíðar á Húsavík og seint í desember á Sjall- ann á Akureyri. Hljómsveitirnar sem fram koma í Bifröst eru Exit, Skurk, 1/2 Dust, Hrafnar, Norðanpiltar og Helgi og hljóðfæraleikararnir. sögur ungs fólks með lestrarörðug- leika. Eftir hádegi munu nemendur í skólum bæjarins lesa upp, börn af dagvistum syngja og upplestur fé- laga í Sögu og Leikfélagi Akureyrar verður á dagskránni. Auk þess verð- ur boðið upp á tónlist á milli atriða. Stutt hlé verður á milli atriðanna, þannig að fólk getur valið úr dag- skrárliðum. í anddyri og Borgarsal verður Amtsbókasafnið með sýningu á bókum fyrr og nú og þar verður einnig sýning á verkum nemenda Myndlistarskólans. TISSOT GÆÐIOG GLÆSILEIKI 1! S. 96-25400 Leikfangalistinn 1990 Vörur úr listanum verða seldar í kjallaranum laugardaginn 8. des. kl. 13.00-18.00. Leikfangamarkaðurinn PARÍSHF., Hafnarstraeti 96 — Akureyri. Pöntunarsími 27744. Hægt er að greiða með greiðslukorti þegar pantað er í gegnum síma. ÚTGEFANDI: ISLENSK SPIL HF. VERÐBREFASPH.IÐ DREIFING:
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.