Morgunblaðið - 06.12.1990, Side 46

Morgunblaðið - 06.12.1990, Side 46
46 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1990 • LITAVER • LITAVER • LITAVER • LITAVER • SÖMÆElggJf'' GÓLFEFNI • LITAVER • LITAVER • LITAVER • LITAVER • Metsölulisti New York Times (25 11) Mest seldu kiljurnar SkáWsógur Vikur á lislanum Dawn eftir V.C. Andrews. Skólastúlka i Virginiu verður fyrir skeHilegum ásóknum 4 H£jijjU Daddy eftir Danielle Steel. 6 Q Reasonabie Doubt eftir Philip Friedman. 5 D *^ark HaW ef1ir s,ePhen Kin9- 9 The Captíve eftir Víctoria Holt. 5 The Qreat and Secret Show eftir Clive Barker. 2 Sorceress of Darshiva eftir David Eddings. 4 The Bad Place eftir Dean R. Koontz. 1 Oldest Living Confederate Widow Tells All eftirAllanGurganus. 9 Defcon One eftir Joe Weber. 3 The Secret Diary of Laura Palmer eftir Jennifer Lynch. 8 So Worthy My Love eftirKathleenE. Woodiwiss. 20 The Mínotaur eftir Stephen Coonts. 8 Exiles, Strak Trek Next Generation eftir Howard Weinstein. 3 Poodle Springs eftir Raymond Chandler og Rcbert B. Parker. 1 AfmæUskveðja: Helga Rafnsdóttir Helga Rafnsdóttir, Austurbrún 33 í Reykjavík, á 90 ára afmæli í dag, 6. desember. Öll fjölskylda hennar, margir vinir og gamlir fé- lagar gleðjast innilega yfir því að heilsa hennar hefur hingað til verið nægilega góð til að gera henni mögulegt að búa í eigin íbúð og vera fullgildur þátttakandi í lífí fjöl- skyldunnar og áhugasamur og skemmtilegur félagi. Helga fæddist á Norðfirði. Móðir hennar var Guðrún Gísladóttir, fædd í Götuhúsum í Reykjavík 27. júní 1872. Götuhús voru á horni Vesturgötu og Bakkastígs og byggði faðir hennar húsið. Faðir Helgu var Rafn Júlíus Símonarson fæddur27.júlí 1866 í Mælifellssókn í Skagafírði. Hann ólst upp á Vind- heimum. Helga flutti til Vestmannaeyja frá Norðfírði 1918, árið sem Katla gaus og sá hún til gossins af skips- fjöl í ferð sinni. Hún réðst fyrst til Steins Sigurðssonar klæðskera og konu hans, Kristínar Friðriksdóttur, systur hins þekkta uppeldisfrömuð- ar séra Friðriks Friðrikssonar. Haustið sem Helga kom til Eyja barst spánska veikin til landsins og heijaði'sem drepsótt. Helga var meðal þeirra sem unnu hjúkrunar- störf fyrir þá sem veiktust af þess- ari lífshættulegu farsótt í Vest- mannaeyjum. Þegar leið að jólum á þessu við- burðaríka ári var Helga beðin um að skrifa á jólakortin til fjölskyldu- vina hjónanna sem hún vann hjá. Helga hafði og hefur enn fagra rit- hönd. Einn af þeim sem fékk jóla- kort með rithendi hennar var Gunn- ar Ólafsson útgerðarmaður og eig- andi Tangaverslunarinnar. Hann varð svo hrifínn af rithendi Helgu að hann óskaði eftir henni til skrif- stofustarfa og vann Helga hjá Tangaversluninni í 2 ár. Helga giftist ísleifi Högnasyni 20. ágúst 1921. ísleifur var fæddur 30. nóvember 1895 á Seljalandi undir Eyjafjöllum. Foreldrar hans voru Marta Jónsdóttir (1867-1948), Eystri-Sólheimum í Mýrdal, og Högni Sigurðsson (1863-1923) frá Barkarstöðum í Fljótshlíð af Prest- Högnaætt. Högni og Marta fluttu til Vestmannaeyjá 1902 og var hann útvegsbóndi og hreppstjóri í Eyjum. ísleifur varð kunnur fyrir upp- byggingu samvinnuverslunar í Vestmannaeyjum 1920-1942 og síðan í Reykjavík, sem forstjóri KRON 1942-1953. Hann var eig- andi og forstjóri Kaupstefnunnar frá 1956 til dauðadags 1967. Það fyrirtæki stóð fyrir miklum alþjóð- legflm vörusýningum hérlendis. ísleifur var þingmaður Kommún- istaflokksins og síðar Sósíalista- flokksins, sameiningarflokks al- þýðu 1937-1942. ísleifur og Helga tóku mjög virk- an þátt í verkalýðsbaráttunni í Vestmannaeyjum í rúma tvo ára- tugi og hús þeirra nefnt Bolsastað- ir vegna þess að það var miðstöð fyrir verkalýðsbaráttuna og stjóm- málastarfsemi róttækra sósíalista. Heimili Helgu og ísleifs var líka samastaður margra skálda og lista- manna bæði Eyjanna og Reykjavík- ur. Frá Reykjavík voru það einkum listamenn sem tengst höfðu sterk- um hugsjónaböndum í Unuhúsi hjá Erlendi. Helga og ísleifur voru því löngum í kjarnmiklum félagsskap í réttindabaráttu alþýðunnar um 40 ára skeið. Til að fá góða mynd af verkalýðsbaráttu millistríðsáranna í Vestmannaeyjum og víðar, veit ég engan texta betri en „Vor í ver- um“ eftir Jón Rafnsson, bróður Helgu. A árunum meðan ísleifur sat á þingi í Reykjavík hvíldi kaupfélags- reksturinn á herðum Helgu. í grein sem Haraldur Guðnason skrifar í Eyjablaðið 1989 um kreppuárin 1930-1940, segir hann: „Ég heyrði sjálfstæðismenn segja, að „hann ísleifur væri forretningsmaður fram í fíngurgóma" og margir virtu hann sem andstæðing í stjórnmálum. Áreiðanlega fór fátt framhjá honum í rekstrinum. Dæmi uppá það. Eitt sinn er ísleifur var nýkominn af þingi var ég staddur í skrifstofu kaupfélagsins. Hann segir í léttum tón: — Þú varst að plata hana Helgu. — Hvemig þá, spurði ég og kom af fjöllum. — Sjóvettlingamirfráþérseljast ekki, vertíðin er búin. Ég átti sem sé nokkur pör af sjóvettlingum og seldi þá Helgu, konu ísleifs, sem settist í stól ísleifs þegar hann var á þingi.“ Isleifur og Helga fluttu heimili sitt frá Vestmannaeyjum 1942 er ísleifur varð forstjóri KRON. Þau bjuggu á Skólavörðustíg 12. Heim- ili þeirra þar hélt áfram að vera vinsæl miðstöð fyrir samherja og vini þeirra hjóna og einnig sama- staður fyrir marga vini og skóla- systkini barna þeirra, Erlu, Högna og Gísla. Ég held að enginn okkar, sem urðum heimagangar á heimili Helgu og ísleifs höfum nokkru sinni feng- ið sektarkennd af að íþyngja heimil- inu með samræðum, söng og þrá- setum, auk þess að vera þungir á kaffí og meðlæti. í söng reis stjama okkar hæst, þegar hið heimsfræga tónskáld frá Ármeníu, Aram Katsj- aturian, kom í heimsókn á Skóla- vörðustíg 12 og við fengum ein- stakt tækifæri til að sýna hvað í okkur bjó. Hann sagði hvað eftir annað „í þjóðleikhúsið, í þjóðleik- húsið“ meinandi af fyllstu ein- lægni, held ég enn, að söngur okk- ar verðskuldaði að heyrast þar. Helga lét sig ekki muna um að standa fyrir félagsmiðstöð nokk- urra stúdenta til viðbótar öllum öðrum störfum við félagsmál á heimilinu og utan þess. Ég held reyndar að það hafí alla tíð verið mesta ánægja hennar að vera innan um fólk, sérstaklega ungt fólk. Ymis hagsmunamál og þá sér- staklega kvenna og barna kröfðust á fyrri ámm eins og nú mikillar vinnu og tíma vegna funda og vinnu að framgangi mála í bæjarstjóm, á þingi, í Kvenfélagasambandinu, Kvenfélagi sósíalista og Mæðra- styrksnefnd, svo fátt eitt sé talið. Helga var alltaf rausnarleg á tíma sinn fyrir þessi málefni. Hún var löngum öðmm fremri í fjáröflunar- starfí fyrir góð málefni eins og söfn- un í verkfallssjóði í löngum launa- deilum eða til að bjarga illa stöddum baráttumálgögnum eins ogÞjóðvilj- anum. 1963 réð Helga sig til starfs í Þjóðminjasafni Islands sem safn- vörður og vann þar fram til 80 ára aldurs. Hún hafði mikla ánægju af starfí sínu þar, enda fjörleg og fjöl- breytt menningarstarfsemi í safn- húsinu á starfsámm hennar. Sýn- ingar Listasafns ríkisins og sérsýn- ingar í Bogasal safnhússins efldu mjög aðdráttarafl staðarins. Helga er mjög ættfróð, minnug á persónu- sögu og oft ótrúlega giögg á að bera kennsl á svipmót fólks og rekja það til ætta og landshluta. Þessi sérgáfa hennar fékk oft notið sín vel meðan hún vann á Þjóðminja- safninu. í gestastraumnum þar gat hún lesið svipi úr flestum landshlut- um og jafnvel byggðum Vestur- íslendinga, sem komu að skoða þjóðminjar gamla landsins. Oft seiddu þessir svipir fram í góðu minni hennar dijúgan persónufróð- leiþ og þegar best lét hafði hún veitt manni hlutdeild í sögu, sem jafnaðist á við að hafa lesið merka æviminningabók. Á umliðnum ámm hafa ungir sagnfræðingar oft leitað til hennar til að fá upplýsingar um liðna baráttutíma. Barnabörn Helgu, sem vaxin eru úr grasi, eru átta og hún á 5 barna- barnabörn. Ég veit að hún viður- kennir engan sérréttindahóp nema börnin. Þau standa henni næst hjarta nú eins og jafnan áður. Ég vil fyrir hönd þeirra færa Helgu langömmu bestu afmæliskveðjur og heillaóskir frá Ólafí Arnari Þórðar- syni og Ásu Þórhildi Þórðardóttur í Reykjavík, Atla Isleifssyni og Drífu ísleifsdóttur í Hjamp í Svíþjóð og Sigurði Rafni Þorkelssyni í Berg- en í Noregi. Við fullorðnu krakkarn- ir tökum heilshugar undir þetta. Ólafur Jensson Friðrik Karlsson í Pulsinum FRIÐRIK Karlsson gítarleikari heldur tónleika í Púlsinum í kvöld, fimmtudagskvöld. Kynnt verður efni af nýútkominni plötu Friðriks, Point Blank. Auk Friðriks koma fram Eyþór Gunnarsson og Kjartan Valdimars- son, sem leika á hljómborð, Gunn- laugur Briem á trommur, Pétur Grétarsson á slagverk og Jóhann Ásmundsson á bassa. Sérstakur gestur verður Ellen Kristjánsdóttir, söngkona. Friðrik Karlsson. lý REKSTRÁRVÖRUR Réttarhálsi 2,. 110 Rvík. - símar 31956-685554-Fax 687116 2S ■4.E.VI/ Hobby Háþrýstidælan E. Bíllinn þveginn og bónaöur á tíu mínútum. Fyrir alvöru bíleigendur, sem vilja fara vel með lakkið á bílnum sínum, en rispa það ekki með drullugum þvottakúst. Sjálfvirkur sápu- og bónskammtari fylgir. Einnig getur þú þrifið húsið, rúðurn- ar, stéttina, veröndina og sandblásið málningu, sprungur o.m.fl. með þessu undratæki. • Hreinsiefni • Pappír • Vélar • Áhöld • Einnota vörur • Vinnufatnaður • Ráðgjöf • O.fl. o.fl.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.