Morgunblaðið - 06.12.1990, Page 50
50
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1990
Er forsjárhyggjan að mola allt
starfsfræðslukerfi okkar?
eftir Guðjón
Tómasson
Samkeppnishæfni atvinnulífs
ræðst að langmestu leyti af þeim
skilyrðum, sem löggjafinn og fram-
kvæmdavaldið býr því til fijálsrar
þróunar og framsækni.
Þröngsýni og höft forsjárhyggj-
unnar, hvort sem þau birtast beint
í laga- og reglugerðarsetningu, eða
.framkvæmd embættismanna sem
fneta stöðu sína fremur sem valda-
stöðu en þjónustustöðu, mun ávallt
vinna gegn þróun og framsækni
alls atvinnulífs. Löggjafarvald sem
skapa vill trausta og ábyggilega
umgjörð um tilgang og stjórnskipan
lagasettningar sinnar, verður að
leggja þá starfshætti af, að sam-
þykkja sífellt galopin lög. Já, með
óheimilu framsáli löggjafai’valds,
þar sem sett er í lagatexta að nán-
ar skuli kveðið á um atriði eins og
gildissvið, verksvið, valdsvið eða
starfshætti í reglugerð. Slík laga-
smíð er sérhveiju Alþingi til van-
sæmdar og getur valdið því, að til-
gangur laganna snýst upp í and-
hverfu sína. Mér virðist sem slíkt
sé að gerast í lögum um framhalds-
skóla, já, sérlega þeim hluta sem
samþykktur var sem lög nr.
72/1989.
Menntakerfi hverrar þjóðar eða
samfélags er og verður alltaf einn
þeirra meginþátta sem móta sam-
keppnis- og markaðshæfni atvinnu-
lífs á hveijum tíma. Slitni bein
tengsl atvinnulífs og menntakerfis,
eða séu þau heft á einn eða annan
veg, koma stöðnunareinkennin þeg-
ar í ljós bæði hjá menntastofnunum
og atvinnulífinu. Þróun starfs-
menntunar í okkar forsjárhyggju-
hijáða landi er vægast sagt dapur-
leg. í stuttu máli má segja, að
tengsl og áhrif atvinnuhfs á alla
starfsmenntun í landinu hafi nánast
aðeins verið í orði en ekki á borði
síðan 1955. Þá afhentu fijáls sam-
tök atvinnulífsins ríki og sveitarfé-
lögum starfsmenntunina til rekst-
urs. Allt frá þeim tíma hafa fijáls
samtök atvinnulífsins mátt sæta
því, að tillögur þeirra til endurbóta
á menntun starfsmanna sinna hafa
að meira eða minna leyti rykfallið
í skúffum forsjárhyggjukerfisins.
Það tók t.d. 18 ár að koma í gegn
námskrá í stálskipasmíði hjá okkar
sjávarútvegsþjóð. Nánast engin
fræðsla hefur til dæmis fengist inn
ÁSIARSÖGURNAR
KI.:
FÓRNFÚS MÓÐIR
ELSE-MARIE NOHR
Hún hefur aldrei verið mikið fyrir börn, en
í fríi sínu verður hún ástfangin af manni
nokkrum og kynnist lítilli dóttur hans, sem
er hjartveik og bíður eftir því að komast
undir læknishendur.
f DAG HEFST LÍFIÐ
ERIK NERLÖE
Aðeins sautján ára gömul er hún að verða
fræg og rík. Og margt er að gerast í lífi henn-
ar. Hún fær tækifæri sem söngkona; hún
verður ástfangin; hún hittir móður sfna,
sem hún hefur aldrei þekkt, en hefur svo
oft dreymt um.
HAMIN G JUHJARTAÐ
EVA STEEN
Hún er rekin úr ballettskólanum og fer þvf
til London, þar sem hún gerist þjónustu-
stúlka hjá fjölskyldu einni, og gætir lftillar
stúlku. Á leiðinni til London kynnist hún
ungum manni, sem sýnir henni mikinn á-
huga.
ÆVINTYRI I MAROKKO
BARBARA CARTLAND
Nevada Van Arden var bæði mjög falleg og
vellrík, og hún naut þess að kremja hjörtu
ungu mannanna. Tyrone Strome varð æva-
reiður, þegar hann komst að raun um,
hvernig hún fór með aðdáendur sína, og
hve laus hún var við alla tillitssemi og
hjartahlýju.
í SKUGGA FORTÍÐAR
THERESA CHARLES
Ilona var dularfuíl í augum samstarfsfólks
síns. Engu þeirra datt íhug, að hún skrifaði
spennusögur í frítfma sínum, eða að þessi
,,Nikulás“ sem hún átti að vera trúlofuð,
væri aðeins til í hugarheimi hennar.
SKUGGSJÁ
BÓKABÚÐ OLIVERS STEINS SF
í almenna starfsfræðslukerfið um
háþrýst vökvakerfi eða frysti- og
kælikerfi hjá okkur tæknivæddu
fiskveiði- og matvælaþjóð, þó þjóð-
félagið geri þá kröfu til þjónustuað-
ila í málmiðnaði, fyrirtækja og iðn-
aðarmanna að þeir geti bilanagreint
og haldið þessum kerfum við af
fagmennsku. Fijáls samtök at-
vinnulífsins hafa sem betur fer
brugðist þannig til varnar neyðar-
ástandi, að setja sjálf upp á sinn
kostnað annað fræðslukerfi. Nú
taka þau þar á þessum málum og
fjölda annarra vanræktra fræðslu-
mála, allt með dyggri samhjálp fyr-
irtækja og starfsmanna þeirra.
Þegar frumvarp Birgis ísleifs
Gunnarssonar, fyrrverandi mennta-
málaráðherra, varð að lögum nr.
57/1988, virtist sem rofa ætti til í
forsjárhyggju menntakerfisins.
Boðleiðir voru styttar og dreginn
var máttur úr höftum forsjárhyggj-
unnar. Atvinnulífinu tryggt aðgengi
að ákvarðanatöku um námsefnis-
innihald og í stjórnun skóla. En
Adam var ekki lengi í paradís.
Ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar fór
frá vegna ástleitni Alþýðuflokks og
Framsóknarflokks til aukinnar mið-
stýringar.
Ný ríkisstjórn Steingríms Her-
mannssonar var mynduð og í stól
menntamálaráðherra settist þraut-
reyndur aðmíráll íslenskrar forsjár-
hyggju, Svavar Gestsson. Hann
hófst þegar handa við breytingar á
nýsettum framhaldsskólalögum og
fékk samþykkt lög nr. 107/1988
og 72/1989. Aukin áhrif atvinnu-
lífsins voru tekin til baka, stjórn-
kerfi skólanna og menntakerfisins
stóriega breytt og gert nánast
óstarfhæft, með slíkum fjölda
stjórnunarstiga og stjórnskipunar-
þátta, embætta og skilyrða, að eng-
inn veit með vissu lengur hver á
að stjórna hverju. Búið er að skapa
fijósaman jarðveg fyrir beina valds-
stjórnun embættismanna forsjár-
hyggjunnar.
I upphafi reglugerðarsmíðar við
framhaldsskólalögin var þegar ljóst,
að forðast átti sem kostur var öll
afskipti fijálsra samtaka atvinnu-
lífsins af þeirri vinnu. Ekki voru
þau beðin um tilnefningar á mönn-
um til starfans, og það sem verra
er, þeim voru ekki send reglugerð-
ardrögin til umsagnar, fyrr en eftir
mikla eftirgangsmuni og tilkynntur
umsagnarfrestur var nánast liðinn.
Samtök atvinnulífsins lögðu samt
mikla vinnu í skoðun þessara reglu-
gerða og gerðu ýtarlegar athuga-
semdir, sem plássins vegna er ekki
hægt að gera nein skil hér og nú.
Þess skal þó getið, að lögfræðing-
Guðjón Tómasson
„Fyrir mér er megin-
munur skipulags frjáls-
hyggju og forsjár-
hyggju sá, að frjáls-
hyggjan setur skipulag-
ið þjónustunnar vegna
en forsjárhyggjan
valdsins vegna, og þá
gleymist þjónustan.“
ar samtakanna drógu víða mjög í
efa, að ákvæði reglugerðardrag-
anna ættu nokkra stoð í lögunum.
Athugasemdum atvinnulífsins var
flestum tekið, sem vindi er um eyru
þýtur. I reglugerðunum var meira
að segja stofnað til embætta með
starfs- og valdssviði, án beinnar
stoðar í framhaldsskólalögunum.
Þó keyrir gjörsamlega um þver-
bak, þegar framkvæmd kerfisins á
nýsettum lögum og reglugerðum
er skoðuð nánar. Þessu til staðfestu
vil ég taka eitt dæmi af mörgum,
sem taka mætti úr tæplega 400
síðna riti menntamálaráðuneytisins
sem heitir Námskrá handa fram-
haldsskólum og er í eldrauðu
bandi. Á titilsíðu sem undirrituð er
af Svavari Gestssyni og Árna Gunn-
arssyni segir m.a.: „Námskráin
gildir frá og með skólaárinu 1990-
1991 og tekur til skóla sem starfa
samkvæmt lögum um framhalds-
skóla nr. 57/1988 með áorðnum
breytingum frá 1989.“ Einnig seg-
ir: „í námskránni eru tilgreindar
þær námsbrautir sem skólár geta
boðið fram. Einnig er tilgreindur
ijöldi námseininga í einstökum
greinum eða greinaflokkum sem
krafist er á viðkomandi braut.“
Bókin hefur beint reglugerðargildi
varðandi námslengd og námsinni-
hald á framhaldsskólastigi. Hún
markar innihald alls starfsnáms á
iðnaðarbrautum, tæknibrautum,
viðskiptabrautum, heilsugæslu-
brautum og svo framvegis. Skoðum
þá örlítið brot af því, hvernig hún
Skáldsaga eftir
BjörgTÍlf Ólafsson
SÖGUFORLAGIÐ hefur gefið út
bókina Síðasta sakamálasagan
eftir Björgúlf Ólafsson.
í kynningu útgefanda segir um
efni bókarinnar: „Dufþakur Repp,
mikill sérvitringur og fróðasti mað-
ur íslands, lifir fábrotnu lífi í heimi
bóka sinna. Einn dag dregst hann
fyrir tilviljun inn í atburðarás of-
beldis, morðs og eiturlyfjasmygls,
þar sem við sögu koma m.a. stórat-
hafnamaður í veitingarekstri, ut-
anríkisráðherra og tvíburadætur
hans. Frásögnin einkennist af mik-
illi spennu, óvæntum uppákomum
og miklum húmor. Dufþakur sér
atburðarásina með augum sérvitr-
ingsins og um leið veltir hann fyrir
sér, á sinn sérstæða hátt, stærstu
spurningum mannlegrar tilveru.
Höfundur fléttar hér saman
spennusögu, gamansögu og fagur-
bókmenntum á mjög óvæntan og
Björgúlfur Ólafsson.
nýstárlegan hátt.“
Þórhallur Þráinsson gerði káp-
una.