Morgunblaðið - 06.12.1990, Síða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1990
Ofbeldi - Einelti í skóla
eftirHansínu B.
Einarsdóttur
„Krakkarnir höfðu skrúfað
borðplötu kennarans lausa til þess
að hann dytti þegar hann tyllti sér
á kennaraborðið. Ég gat ekki hugs-
að mér að vera með í þessu og
sagði kennaranum frá þessu.
Krakkarnir voru auðvitað skamm-
aðir. Þegar ég kom út úr þessum
tíma þá var búið að binda saman
skóna mína. Ég var lengi að leysa
'^lkþá, svo lengi að ég missti af næsta
tíma og fékk auðvitað skróp, ég
missti móðinn og grét. Þegar ég
kom svo út úr skólanum þá fann
ég hvergi nýja hjólið mitt. Mér
þótti vænt um hjólið, það var það
eina sem ég átti sjálf. Ég fann það
loksins, bútað í sundur og sumir
hlutir voru upp á skólaþakinu. Ég
gafst upp og fór grátandi heim.
Eftir þetta þá ákvað ég að hætta
að reyna að eignást vini og reynd-
ar þá hætti ég öllum samskiptum
við krakka á mínum aldri. Þetta
var þegar ég var 11 ára. Ég bjó
mér til einkaheim og þar lifði ég
ein, félagslega afskipt í fleiri ár.“
Inngangur
Þetta er ein lítil saga úr, skóla
hér í bæ. Það hefur vakið athygli
mína við kennslu um þessi málefni
að flestir þeir sem ég hef rætt
þessi mál við kannast að einhveiju
leyti við þetta vandamál, sumir
þekkja þetta af eigin raun, eða
muna eftir slíkum tilvikum og þá
fyrst og fremst í tengslum við
skóiagöngu.
í öðru lagi þá eru sífellt að koma
fram meiri upplýsingar um ofbeldi
almennt í hvaða formi sem er.
Nægir hér að nefna umræðu í fjöl-
miðlum um „vernd“ skólabarna svo
og þá umræðu sem átti sér stað á
kirkjuþingi nú í vetur.
Ofbeldi í skólum
í þessari grein mun ég fyrst og
fremst ijalla um ofbeldi í skólum.
Ég vil taka það skýrt fram að ein-
elti og ofbeldi er ekki einkavanda-
mál skólamanna og þeirra sem
starfa að skólamálum heldur vand-
amál sem snertir okkur öll.
Ástæðan fyrir því að ég fjalla
um ofbeldi í skólanum er hinsvegar
sú að þar á ofbeldið sér oftar stað
en t.d. á heimavelli, samanber þá
umræðu sem átt hefur sér stað.
(Þessu til viðbótar hef ég talsvert
af upplýsingum bæði frá kennurum
og foreldrum sem vilja halda því
fram _að ofbeldi í skólum hafi auk-
ist.) í öðru lagi er skólinn ef til
vill sá vettvangur þar sem æskilegt
er í samráði við foreldra að heija
markvissa fræðslu til að koma í
veg fyrir ofbeldi og til þess að fjalla
um afleiðingar ofbeldis og eineltis
í skóla. Nú þarf það ekki að vera
að hér sé um að ræða stóran hóp
barna eða unglinga heldur geta
hér verið ákveðnir áberándi ein-
staklingar eða smærri hópar sem
ráðast að öðrum börnum og ungl-
ingum og annaðhvort ógna þeim
andlega eða valda þeim líkamleg-
um áverkum.
Hvað er einelti eða ofbeldi í
skóla?
Einelti í skóla er fyrst og fremst
félagslegt og líkamlegt. Þegar tal-
að er um félagslegt einelti er átt
við að börn og unglingar einang-
rist, þau eignast ekki félaga eða
'vini. Börnin eru ekki tekin með,
þeim er ekki boðið með, þau fá
ekki upplýsingar um öll þau óform-
legu atriði sem skipta máli fyrir
skóla og félagsstarf.
„Þegar partýin byijuðu upp úr
12 ára aldri þá var mér aldrei boð-
ið með. Ég sat ein heima og horfði
á sjónvarpið. Stundum heyrði ég
hlátrasköll og glaum þegar skóla-
félagarnir voru að koma heim. Ég
sat oft við gluggann og fylgdist
með þeim. Mér leið ömurlega,
stundum fannst mér ég eldgömul,
stundum óskaði ég þess að vera
ekki til.“
Afleiðingar félagsleg eineltis eru
þær að barnið kvíðir skólagöngu,
hveijum skóladegi. Barnið þrosk-
ast ekki eðlilega, og á erfitt með
öll félagsleg samskipti. Þessi
kvíða- og hræðsluköst verða síðan
oft til þess að barnið eða ungling-
urinn fer að eiga við veruleg hegð-
unarvandamál að glíma. Önnur
tegund eineltis er líkamlegt of-
beldi. Hér er þá átt við beint of-
beldi þar sem börnum eð^ ungling-
um eru veittir líkamlegir áverkar.
Þessir áverkar geta verið allt frá
sparki eða höggi til grófra mis-
þyrminga.
„Hann var á heimleið frá félags-
miðstöð með vinum sínum eitt
föstudagskvöld. Þeir komu við í
sjoppunni og eftir að þeir komu
út rákust þeir á tvo skólafélaga.
Annar skólafélaginn þrífur til hans
og tekur af honum peninga. Síðan
gerðist allt mjög snöggt, þeir börðu
hann í andlitið, og þegar hann féll
í götuna þá var sparkað aftur í
andlitið á honum. Vinimir urðu
hræddir og hlupu á braut. Hann
lá eftir í götunni og átti erfitt með
að komast heim.“ Atburðir sem
þessir eru alls ekkert einsdæmi,
og margir foreldrar vita ekki hvað
á til bragðs að taka. Barnið vill
ekki kæra og oft er það svo að
þau vilja ekki að foreldrar eða forr-
áðamenn aðhafist nokkuð af ótta
við það að verða aftur fyrir árás.
Það er e.t.v. við þessar aðstæður
sem einhver börn hafa gripið til
þess ráðs að „kaupa sér vernd“
annarra að þekktri fyrirmynd.
Hverjir verða fyrir ofbeldi
eða einelti?
Það er erfitt að segja til um það
hveijir verða fyrir ofbeldi í skóla.
Það getur jafnt verið sá sem ekk-
ert virðist skera sig úr í upphafi
en eitthvert örlítið atriði eða útlits-
galli orðið til þess að draga at-
hygli annarra barna að viðkom-
andi. Þeir sem verða fyrir einelti
geta eins vel verið þeir sem skara
fram úr í námi eins óg þeir sem
sýna lakan námsárangur. Það er
hægt að telja upp ótal dæmi um
það hversvegna einhver varð fyrir
valinu og ástæðurnar eru jafn-
margar. „Ég var alltaf kallaður
Óli-piss og krakkarnir sögðu að
ég lyktaði illa.“ „Ég var með útlits-
galla sem ekki kom í ljós nema í
leikfimi þegar við þurftum að af-
klæða okkur. Það var nóg.“ „Ég
held að það hafi verið vegna þess
að ég- átti í erfiðleikum með að
segja r!“-
Foreldrar eru oft meira meðvit-
uð um þau börn sem eitthvað skera
sig úr í útliti, hafa t.d. gleraugu,
eru feit eða annað og fylgjast mjög
gjarnan með því að þessi börn verði
ekki fyrir einelti. En eins og áður
sagði þá er erfitt að vita hver verð-
ur fórnariamb aðstæðnanna og
staðreyndin virðist oft vera sú að
þau sem ekki beint skera sig úr
veljast sem þolendur.
Hverjir standa fyrir einelti
eða beita ofbeldi?
Það er vitað að einelti á sér sjald-
an stað á milli tveggja einstaklinga
í skóla. Markmið eineltis og ofbeld-
is erfyrst og fremst að sýna hversu
„kiár“ sá aðili er sem stendur fyr-
ir aðgerðunum og stjórnar þeim.
Þessi aðili þarf áhorfendahóp til
þess að ná fram markmiðum sín-
um. Þannig getur hann sýnt fram
á hversu mikið vald hann hefur
eða hversu sterkur hann er.
Oftast kemur eineltið eða of-
beldið frá þeim sem eru eldri eða
sterkari að líkamlegum burðum og
það bitnar á þeim veikari í marg-
faldri merkingu þess orðs.
Ég vil aðeins skjóta því að hér
SIEMENS
Fjölhœf hrœrivél!
MK 4450
Blandari, grænmetiskvöm og hakka-
vél fylgja með.
• Allt á einum armi.
• Hrærir, þeytir, hnoðar, blandar,
brytjar, rífur, hakkar og sker.
• Isl. leiðarvísir og uppskriftahefti.
• Einstakt verð: 13.960 kr.
SMrTH & NORLAND
NÓATÚNI4 - SÍMl 28300
1H
lirvalsbækur sem mali skipta
Eftir dr. Hannes Jónsson, fv. sendiherra
oy *
Evrópumarkaðshyggjan:
Hagsmunir og valkostir Islands.
Hötundur rekur þróun Evrópumark-
aðshyggjunnartilfríverslunarkenningar
Adams Smith. Af henni hati sprottið
jafn ólíkar stofnanir og Gatt, Oeec/
Oecd, Eb, Efta og síðast hucimyndin
um Efnahagssvæði 18 Evropuríkja,
Ees. Gerð er grein fyrir einkennum og
markmíöum þessara stofnana,
yfirþjóðlegu eðli Eb og fullveldisafsali
aðildarríkjanna. Gerö er úttekt á gildandi
pfnahags- og utanríkisviðskiptakerfi
Islands. I lokakafla skoðar höfundur
aðra og betri valkosti fyrir Island en Ees
og Eb.
Þetta er traust og aðgengileg heimild
um mikilvægasta milliríkjamal okkar í
dag. Yfirgripsmikið efni er sett fram á
lipru máli og svo skýran hátt, aö ailir
megi skilja. Fjöldi mynda og skýringa-
teikninga. Kilja í storu broti, 118 bls.
Verðkr. 1000,00.
"ö . • ,it yorra dalA
irá Unðf'ami ^ (> wmjih»rr»
• Islensk sjálfstæöis- og
utanríkismál.
Yfirgripsmikiö grundvallarrit þar sem í
fyrsta sinn er brugðið upp heildarsýn
yfir sjálfstæöis-, fullveldis- og utan-
ríkismál þjóöríkisins, konungsríkisins
og lýðveldisins. „Þjóðveldið" er þjóð-
félagsfræðilega skilgreint sem þjóöríki
meö stjórnskipulagi höfðingjaveldis, er
þróaðist niður í klíkuveldi og tortímdi
sjálfu sér vegna höfðingjadeilna og
ógætilegra milliríkjasamskipta. Megin-
hluti bókarinnar er um utanríkis- og
öryggisstefnu lýðveldisins og 8 hlutlæg
stefnumótandi atriði, sem smáríki getur
ekki sniögengið. Varar höfundur við
hliöstæðum hættum Sturlungagldar,
sem nú steðja að fullveldi okkar. I um-
sögn „Þjóðlífs" segir: „Hér er á ferðinni
bók, sem á erindi til allra þeirra, sem
líta vilja þróun íslandssögunnar frá nýj-
um sjónarhóli." Yfir 70 myndir og upp-
drættir, 336 bls. í stóru broti og vönduðu
bandi. Verð kr. 2800,00.
Lýöræöisleg félagsstörf,
2. útgáfa.
Heilsteyptogyfirgripsmikilhandbókfyrir
alla þá, sem taka vilja ábyrgan þátt í
félagsstarfi og ná árangri í fundarstörf-
um og mælsku. Bókin fjallar á hlutlaus-
an, hagnýtan og fræðilegan hátt um
alla þætti télags- og fundarstarfa, fundi
og fundarstjórn, félags- og forystustörf,
mælsku, rökræöur, lýðræðisskipulagið
og samhengi félagslífsins. Margar
fróðlegar teikningar af hentugu fyrir-
komulagi í fundarsal smærri og stærri
funda. í bókinni eru verkefni og dagskrár
til þjálfunar á 10 málfundum. Hentug
bók fyrir málfundarstarfsemi allra
félaga, flokka og skóla, byggð á ís-
lenskum aðstæðum. 304 bls. í fallegu
bandi. Verö kr. 2000,00.
! BÓKASAFN FÉLAGSMÁLASTOFNUNARINNAR
Pósthólt 9168 - 109 Reykjavík - Slmi 75352
Hansína B. Einarsdóttir
„Markmið þessa grein-
arstúfs er að vekja at-
hygli á því alvarlega
vandamáli sem ofbeldi
og einelti er. Þrátt fyrir
að skólinn geti verið sá
aðili sem fer af stað
með markvissa fræðslu
um þessi málefni þá tel
ég að foreldrar og for-
ráðamenn barna eigi að
gegna hér mikilvæg-
asta hlutverkinu.“
að til eru dæmi þess að kennari
hafi með framkomu sinni orðið
öðrum nemendum fyrirmynd að
því að leggja ákveðna nemendur í
einelti. Þetta getur gerst t.d. með
því að kennari hefur einn nemanda
að háði og spotti og niðurlægir
hann fyrir framan skóiafélagana.
Þar með er komið fordæmi sem
getur reynst auðvelt að fara eftir,
sérstaklega þegar haft er í huga
aldur og þroski barnanna sem í
fæstum tilfellum hafa burði til
þess að taka sjálfstæða afstöðu í
aðstæðum sem þessum.
Afleiðingar eineltis
Rannsóknir á þessu vandamáli
leiða í ljós að afleiðingar eineltis í
skóla geta verið margvíslegar eins
og reyndar vísað var til hér að
ofan. Vitað er að nemendur hafa
þjáðst af ýmsum andlegum ein-
kennum svo sem kvíða og hræðslu-
köstum, einmanakennd til þess að
nefna eitthvað. Ennfremur kemur
einelti í skóla í veg fyrir eðlilegan
félagslegan þroska sem aftur getur
leitt til alvarlegra hegðunarvanda-
mála. Þegar fjallað er um líkamleg
einkenni sem fram koma vegna
eineltis þá gerist það oft að börn
fá svitaköst, svefntruflanir, væta
rúmið og sum hver hafa beinlínis
þróað rheð sér enn alvarlegri ein-
kenni sem koma fram m.a. í upp-
köstum, höfuðverk og lystarleysi.
Niðurlag
Markmið þessa greinarstúfs er
að vekja athygli á því alvarlega
vandamáli sem ofbeldi og einelti
er. Þrátt fyrir að skólinn geti verið
sá aðili sem fer af stað með mark-
vissa fræðslu um þessi málefni þá
tel ég að foreldrar og forráðamenn
barna eigi að gegna hér mikilvæg-
asta hlutverkinu. Það er fyrst og
fremst á ábyrgð foreldranna hvaða
samskiptahætti börn og unglingar
temja sér. Forsenda góðra sam-
skipta er ást, umhyggja og virðing.
Érfiðar félags- og efnahagsleg-
ar aðstæður foreldra hafa kostað
okkur miklu meira en við gerum
okkur grein fyrir. Gildismat samfé-
lagsins hefur breyst. Við kaupum
okkur ekki umhyggju með ríkis-
tryggðum skuldabréfum eða öðr-
um skuldabréfum, né heldur getum
við keypt okkur vernd gegn ofbeldi