Morgunblaðið - 06.12.1990, Page 65

Morgunblaðið - 06.12.1990, Page 65
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1990 65 Kveðjuorð: Hugrún Pálsdótt- ir frá Ólafsfirði Fædd 15. desember 1944 Dáin 12. nóvember 1990 Er við vinkonurnar nú kveðjum kæra vinkonu, verður minningin í brjóstum okkar allra björt og hlý alla tíð, eins og þu varst, þann allt- of stutta tíma sem þú fékkst að vera hjá okkur. Hugrún var elsta barn hjónanna Sveinsínu Víglunds- dóttur og Páls Guðmundssonar og jafnframt eina dóttirin og mega þau nú sjá á eftir elskulegri dóttur í blóma lífsins. Sár harmur kveður nú dyra hjá þér, elsku Bjössi, og börnunum ykkar, en það verður þó ljósið í myrkrinu að þið áttuð yndislegt heimili og fjögur mannvænleg börn og verður það hennar minnisvarði um ókomna tíð. Nú, þegar ljóssins hátíð er framundan, hvarflar hug- urinn til hennar, sem var svo mikið jólabarn í hjarta sínu alla tíð og við þökkum fyrir allar dásamlegu stundirnar sem við áttum í klúbbn- um okkar um tuttugu ára skeið og aldrei féll skuggi á þann vinskap. Á tíma hraða og tímaleysis, sem þijáir mannkynið, má staldra við og þakka Guði fyrir þá gjöf, sem hann gaf okkur í Hugrúnu, því að þótt að eiginmaður og börn væru númer eitt hjá henni og ekki síst litlu ömmubörnin tvö sem hún dýrk- aði þann stutta tíma sem hún fékk að njóta þeirra, þá hafði hún alltaf tíma fyrir mannleg samskipti og miðlaði okkur óspart af öllu þvi sem hún hafði lesið í gegnum tíðina og það er eitt af því dýrmætasta sem við eigum á tímum sem þessum. Orð verða svo fátækleg á svona stundu og því biðjum við vinkonurn- ar algóðan Guð að styrkja þá, sem stóðu Hugrúnu næst. Bjössi, Margrét og fjölskylda, Birnir Freyr og Elísa, Sveina, Palli og bræður. í sorginni lifir minning- Hjörtur Oddsson læknir - Fæddur 31. ágúst 1962 Dáinn 26. nóvember 1990 Kveðja frá körfuknattleiks- deild ÍR Ungur félagi okkar er fallinn frá eftir erfiða baráttu við illvígan sjúk- dóm. Við leiðariok vilja félagar Hjartar í körfuknattleiksdeild íþróttafélags Reykjavíkur minnast hans í örfáum línum. Hjörtur hóf að leika með ÍR í yngri flokkum félagsins og kom þá í íjós að þár fór leikmaður sem hafði framtíðina fyrir sér í körfu- boltanum. Er hann hóf að leika með meistaraflokki félagsins varð hann snemma einn af burðarásum félags- ins og fyrirliði var hann um tíma. Hjörtur lék með A-landsliði íslands. Hlé varð á þátttöku Hjartar í körfu- boltanum fyrst eftir að hann veikt- ist, en hann kom aftur og lék með félaginu. Síðastliðinn vetur starfaði Hjörtur á ísafirði og lék með Ung- mennafélagi Bolungarvíkur. Félagar í körfuknattleiksdeild ÍR senda aðstandendum Hjartar inni- legustu samúðarkveðjur um leið og þeir þakka fyrir að hafa fengið að Lokað í dag fimmtudaginn 6. desember kl. 13.00-16.00 vegna jarðarfarar. Línan hf., Suðurlandsbraut 22. Birtíng nfmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting- ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn- arstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að berast siðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tek- in til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta til- vitnanir í ljóð, tvö erindi, eftir þekkt skáld, og skal þá höfundar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minning- argreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar afmæl- isfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Minning kynnast Hirti Oddssyni í leik og starfí. Sigurður V. Halldórsson, formaður körfuknattleiks- deildar ÍR. in sem aldrei verður frá okkur tek- in meðan við lifum. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Klúbbsystur t Okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, INGVELDAR JÓNSDÓTTUR, Skeggjastöðum, Garði. Jón Haraldsson, Þórdís Jónsdóttir, Axel Guðmundsson, Hildur Axelsdóttir, Ingvar Jón Gissurarson, Margrét Hallgrímsdóttir, Nicolai Gissur Ingvarsson. t Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför STEINUNNAR ÞORSTEINSDÓTTUR, Birkiteigi 4, Keflavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Sjúkrahúsi Keflavíkur og deild 6-A, Borgarspítala. Karl Þorsteinsson, Þorbjörg Þorgrímsdóttir, barnabörn, barnabarnabörn og systkini hinnar látnu. Meirn en þú geturímyndad þér! AfflYGUSVERÐAR BÆKUR SKUGGSJÁ BÓKABÚÐ OLIVERS STEINS SF MYNDIR ÚR LÍFI PÉTURS EGGERZ, FYRRVERANDI SENDIHERRA GAMAN OG ALVARA PÉTUR EGGERZ Pétur Eggerz segir hér fyrst frá lífi sínu sem lítill drengur f Tjarnargötunni í Reykjavík, þegar samfélagið.var mótað af allt öðrum viðhorfum en nú tíðkast. Síðan fjallar hann um það, er hann vex úr grasi, ákveður að nema lögfræði og fer til starfa í utanríkis- þjónustunni og gerist sendiherra. Pétur hefur kynnst miklum íjölda fólks, sem hann segir frá í þessari bók. KENNARI Á FAR ALDSFÆTI MINNINGAR FRÁ KENNARASTARFI AUÐUNN BRAGISVEINSSON Auðunn Bragi segir hér frá 35 ára kennara- starfi sínu í öllum hlutum landsins. Hann greinir hér af hreinskilni frá miklum fjölda fólks, sem hann kynntist á þessum tíma, bæði til lofs og lasts. Hann segir hér frá kennslu sinni og skólastjórn á fimmtán stöðum, m.a. á Akranesi, Hellissandi, Bol- ungarvík, Ólafsfirði, Skálholti, Kópavogi og í Ballerup f Danmörku. BÍLDUDALSKÓNGURINN ATHAFNASAGA PÉTURS J. TH0RSTEINSS0NAR ÁSGEIR JAKOBSSON Þetta er saga Péturs J. Thorsteinssonar, sem var frumherji f atvinnulífi þjóðarinnar á síðustu áratugum nítjándu aldar og fyrstu áratugum þeirrar tuttugustu; saga manns, sem vann það einstæða afrek að byggja upp frá grunni öílugt sjávarpláss; hetjusaga manns, sem þoldi mikil áföll og marga þunga raun á athafnaferlinum og þó enn meiri í einkalífinu. SONUR SÓLAR RITGERÐIR UM DULRÆN EFNI ÆVAR R. KVARAN Ævar segir hér frá faraónum Ekn-Aton, sem dýrkaði sólarguðinn og var langt á undan sinni samtíð. Meðal annarra rit- gerða hér eru t.d.: Sveppurinn helgi; Haf- steinn Björnsson miðíll; Vandi miðilsstarfs- ins; Bréf frá sjúklingi; Miðillinn Indriði Indriðason; Máttur og mikilvægi hugsun- ar; Er mótlæti í lífinu böl?; Himnesk tónlist; Hefur þú lifað áður?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.