Morgunblaðið - 06.12.1990, Page 73

Morgunblaðið - 06.12.1990, Page 73
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 6! DBSEMBER 1990 73- KORFUKNATTLEIKUR / LANDSBANKAMOTIÐ Seljaskóli og Breidholtsskóli sigruðu LANDSBANKAMÓT ÍR íkörfu- knattleik - minnibolta, fórfram í áttunda sinn um síðustu helgi og var leikið til úrslita að þessu sinni í íþróttahúsi Seljaskóla. Ellefu ára krakkar úr skólunum ■' Breiðholti tóku þátt í mótinu. Seljaskóli sigraði í piltaf lokki og Breiðholtsskóli í stúlkna- flokki. Alls voru níu lið í pilta og stúlknaflokki sem tóku þátt í úrslitakeppninni og voru þau frá öllum fimm skólunum í Breiðholti. Aður hafði farið fram undan- keppni, en alls tóku á annað hundr- að krakkar þátt í mótinu. í piltaflokki sigraði Seljaskóli 6 ÁH annað árið í röð. í öðru sæti varð Breiðholtsskóli. Leikmaður mótsins í piltaflokki var kjörinn Guðbrandur Elí Lúðvíksson, Selja- skóla. I stúlknaflokki sigraði Breið- holtsskóli 6D og Ölduselsskóli varð í öðru sæti. Leikmaður mótsins í stúlknaflokki var valin Dögg Guð- mundsdóttir, Breiðholtsskóla. Að lokinni keppni fór fram verð- launaafhending í Breiðholtsútibúi Landsbankans. Þar afhenti Bjarni Magnússon, útibússtjóri, verðlaun, bikara og verðlaunapeninga, en auk þess var sérhver þátttakandi leystur út með gjöf og viðurkenningu fyrir þátttökuna. Síðan þáðu keppendur og starfslið mótsins veitingar í boði bankans. Ikvöld EINN leikur verður í 1. deild karla á íslandsmótinu í hand- knattleik í kvöld. KR og ÍR eigast við í Lauagrdalshöll kl. 20.00. SIEMENS MorgunblaðiÖ/Sverrir Sigurlidin í Landsbankamóti ÍRV Seljaskóli sem sigraði í piltaflokki og Breiðholtsskóli í stúlknaflokki, ásamt útibús- stjórum banskans í Mjódd, Bjarna Magnússyni (t.v) og Sigurði Jóhannssyni. Morgunblaðið/Sverrir Bjarni Magnússon, útibússtjóri ásamt bestu leikmönnum mótsins; Guðmundi Elí Lúðvíkssyni og Dögg Guðmundsdóttur. FRJALSAR Jónas nálægt metinu í þrístökki 4T Agætis árangur náðist á innan- félagsmóti IR í fijálsum íþrótt- um sem fram fór í Baldurshaga í síðustu viku. Jónas Jónasson náði bestum árangri er hann stökk 11,31 m í þrístökki og var aðeins 17 sm frá unglingametinu í flokki 13 - 14 ára pilta. Hann var einnig nálægt metinu í 50 m grindahlaupi er hann hljóp á 7,8 sek, en metið er 7,6 sek. í flokki stelpna 12 ára og yngri hljóp Birna María Gunnarsdóttir á 8,9 sek í 50 m grindahlaupi og er það aðeins einu sekúndubroti frá unglingametinu. Hún stökk 4,62 m í langstökki og 9,13 m þrístökki. Hildur Ingvarsdóttir stökk 10,47 m i þrístökki 15-16 ára. Hjalti Sigur- jónsson hljóp 50 m á 6,3 sek í flokki 15 - 16 ára sveina. Mörg persónuleg met voru sett í mótinu og er ljóst að unglingalið ÍR er í mikilli framför. Næsta mót hjá unglingunum verður 12. des- ember í Baldurshaga. /'/ Þvottavélar Þurrkarar VINNU- PALLAR Viö bjóðum upp á létta hjólapalla úr áli, níösterka og meðfærilega. Þú rennir þeim í lægstu stööu um öll dyraop og hækkar þá síðan með einu handtaki, þrep af þrepi, í þá hæð sem óskað er að vinna í. íím§ mm Uppþvottavélar inni-vinnupallar eru atls staðar til þæginda 5: Þrepafjöldi 4x6 4x9 4x11 Pailhæð Hæð með handriði Vinnuhæð Þyngd 1.80- 3,00 m 2.80- 4,00 m 3.80- 5,00 m 50 kq 2.60- 4,56 m 3.60- 5,56 m 4.60- 6,56 m 55 kq 3.16- 5,68 m 4.16- 6,68 m 5,15-7,68 m 59 kq Eldavélar zn Pallur í lægstu stöðu án handriðs smýgur léttilega um öll dyraop. VELDU VANDAD - VELDU PALLA ““ Pallar hf. SALA Dalvegi 16, Kópavogi sími 641020 - 42322 Örbylgjuofnar Gœfiatœki fyrir þig ug þína! SMITH& NORLAND Nóatúni 4 - Sími 28300

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.