Morgunblaðið - 06.12.1990, Qupperneq 75
75
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
íWVTO9fk\ OHOM
FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 1990
KNATTSPYRNA / 1. DEILD
KA hefur augastað á tveim
ur eriendum leikmönnum
ÚRSLIT
Valur - Selfoss24 : 18
íþróttahúsið að Hlíðarenda, íslandsmótið í
handknattleik, 1. deild karla — VÍS-keppn-
in y- miðvikudaginn 6. desember 1990.
Gangur leiksins: 2:3, 6:5, 11:10, 15:12,
16:15, 19:15, .20:18, 24:18.
Mörk Vals: Valdimar Grímsson 7, Jón
Kristjánsson 4, Jakob Sigurðsson 3, Júlíus
Gunnarsson 3, Dagur Sigurðsson 3, Ingi
R. Jónsson 2, Örn Amarsson 1.
Varin skot: Árni Þ. Sigurðsson 11 skot,
þar af skilaði boltinn sér átta sinnum til
samheija.
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk Selfoss: Einar G. Sigurðsson 8, Gú-
staf Bjarnason 5/1, Einar Guðmundsson
4/1, Siguijón Bjarnason 1.
Varin skot: Gísli Felix Bjamason 17, þar
af skilaði boltinn sér í ellefu skipti til sam-
heija.
Utan valjar: 4. mínútur.
Dómarar: Gunnlaugur Hjálmarsson og Óli
P. Olsen.
Áhorfendur: 60.
KA hefur að undanförnu verið
að kanna möguleika á að fá
tvo erlenda leikmenn til félagsins
fyrir næsta keppnistímabil og hef-
ur þegar ákvéðinn framherja í
huga, en hefur einnig fengið
ábendingar um sterkan vamar-
mann.
„Við höfum augastað á júgó-
slavneskum framherja og höfum
fengið ábendingar um sterkan
varnarmann í Tékkóslóvakíu. Við
munum athuga þessi mál mjög
vel á næstunni, en ljóst er að við
verðum að styrkja hópinn fyrir
næsta tímabil og munum einnig
hafa í huga að fá innlenda leik-
menn til liðs við okkur,“ sagði
Sveinn Brynjólfsson, formaður
knattspyrnudeildar KA, aðspurð-
ur um málið.
Tveir leikmenn liðsins á síðasta
keppnistímabili hafa þegar skipt
yfir í önnur félög; Bjarni Jónsson
í Stjörnuna og Þórður Guðjónsson
í ÍA. Kjartan Einarsson hefur
ekki enn tekið ákvörðun um að
skipta í ÍBK og sömu sögu er að
segja af hugsanlegum félaga-
skiptum Jóns Grétars Jónssonar
í Val. Að sögn Sveins munu þess-
ir menn taka ákvörðun á næst-
unni, „en ég vona að þeir sjái sér
hag í því að leika áfram með okk-
ur.“ Hann sagði ennfremur að
Gauti Laxdal og Heimir Guðjóns-
son hefðu ákveðið að vera áfram
og þá hafa Páll Gíslason, Reyni
Árskógsströnd og áður Þór, og
Sverrir Sverrisson, Tindastóli,.
gengið til liðs við KA.
Guðjón Árnason sendir knöttinn framhjá Stjörnumönnunum Sigurði Bjamasyni og Patreki Jóhannessyni. Morgunblaðið/JúKus
Uppsveifla hjá FH
w
Víkingur - Grótta 23:18
Laugardalshöll, íslandsmótið í handknatt-
leik, 1. deild karla — VÍS-keppnin — mið-
vikudaginn 5. desember 1990.
Gangur leiksins: 0:1, 3:3, 6:6, 9:7, 11:9,
13:9, 16:11, 19:14, 23:18.
Mörk Víkings: Bjarki Sigurðsson 5, Birgir
Sigurðsson 5, Alexej Trúfan 4, Björgvin
Rúnarsson 2, Guðmundur Guðmundsson 2,
Hilmar Sigurgíslason 2, Karl Þráinsson 2,
Árni Friðleifsson 1.
Varin skot: Hrafn Margeirsson 9/1, Reyn-
ir Þ. Reynisson 2.
Utan vallar: 4 mínútur
Mörk Gróttu: Halldór Ingólfsson 6/5, Stef-
án Amarsson 3/1, Guðmundur Sigfússon
3, Páll Bjömsson 2, Svafar Magnússon 2,
Davíð B. Gíslason 1, Friðleifur Friðleifsson
1.
Varin skot: Þorlákur Amasonll/1.
Utan vallar: 6 minútur.
Dómarar: Guðmundur Sigurbjömsson og
J_ón Hermannsson.
Áhorfendur: Um 70.
Stjarnan - FH 27 : 30
Ásgarði, íslandsmótið í handknattleik, 1.
deild karla — VÍS-keppnin — miðvikudaginn
6. desember 1990.
Gangur leiksins: 0:1, 1:4, 2:5, 4:5, 6:6,
6:8, 9:12,10:14,12:15,12:18,14:18,16:22,
18:24, 21:24, 23:25, 23:27, 24:28, 27:28,
27:30.
Mörk Stjörnunnar: Patrekur Jóhannesson
9/2, Axel Bjömsson 5, Sigurður Bjamason
5, Skúli Gunnsteinsson 3, Magnús Sigurðs-
son 3/1, Hafsteinn Bragason 2.
Varin skot: Ingvar Ragnarsson 7/1, Brynj-
ar Kvaran 3.
Utan vallar: 4 mínútur.
Mörk FH: Stefán Kristjánsson 7, Hálfdán
Þórðarson 6, Guðjón Árnason 6/1, Þorgils
Óttar Mathiesen 5, Gunnar Beinteinsson
3, Pétur Petersen 2, Óskar Helgason 1.
Varin skot: Bergsveinn Bergsveinsson
13/1, Guðmundur Hrafnkellsson 1/1.
Utan vallar: 8 mínútur.
Dómarar: Grétar Vilmundarson og Ævar
Sigurðsson komust þokkalega frá leiknum.
Áhorfendur: Um 250.
Enn frestað
Haukar komust ekki til Vestmannaeyja
í gær - Ekki var flogið - og leiknum gegn
ÍBV því frestað, senniiega þar til í bytjun
janúar. Fyrri leik félaganna var einnig fre-
stað á sínum tima, en hann hefur verið
settur á 15. desember.
Staðan:
Víkingnr .14 14 0 0 350:290 28
Valur ..14 11 1 2 341:299 23
St,jarnan..l4 10 0 4 347:329 20
FH ...14 8 2 4 340:325 18
Haukar....l2 7 0 5 281:289 14
KR ...13 3 6 4 299:307 12
ÍBV ...12 4 3 5 291:284 11
KA 4 1 8 302:291 9
Grótta... ...14 3 1 10 304:328 7
Selfoss... ...14 2 3 9 279:321 7
Fram.... ...13 1 4 8 264:300 6
ÍR ...13 2 1 10 279:314 5
IMM í keilu
íslendingar höfnuðu í neðsta sæti á Norð-
urlandamótinu í keilu, sem fram fór ! Osló
um síðustu helgi, bæði í karla og kvenna-
flokki.
Alls voru 15 lið sem tóku þátt í tveggja
manna sveitakeppninni og 10 lið i þriggja
manna sveitakeppni kvenna. Kvennasveitir
Islands röðu sér í þijú neðstu sætin. Island
2, sem skiguð var þeim Heiðrúnu Þorbjöms-
dótturogAgústu Þorsteinsdóttur, náði best-
um árangri þeirra, 13. sæti með^samtals
2.062 stig. Sigursveit Svía hlaut samtals
2.367 stig. Ágústa náði besta skori íslensku
kvennanna, 1.076 stig. Konumar kepptu
einnig í þriggja manna sveitakeppni. Þar
vora Islendingar með tvær sveitir og skip-
uðu þær neðstu sætin.
I karlaflokki var sama upp á teningnum
og þjá kvennasveitinni, ísland hafnaði í
þremur neðstu sætunum. ísland 3, sem
skipuð var þeim Gunnari Gunnarssyni og
Atla Þór Karlssyni, náði bestum árangri,
13. sæti. Þeir hlutu samtals 2.110 stig, en
sigursveit Svía hlaut samtals 2.456 stig.
Besta skori íslendinga náði Valgeir Guð-
bjartsson, samtals 1.056 úr sex umferðum.
„ÞETTA voru dýrmæt stig og
nú erum við öruggir í úrslita-
keppnina - í bili að minnsta
kosti. Það er gott áð vinna Val
og Stjörnuna með svona stuttu
millibili og nú eru Víkingar
næstir," sagði Þorgils Ottar
Mathiesen þjálfari FH eftir að
þeiru nnu Stjörnuna. FH virðist
hafa tak á Stjörnunni þegar lið-
in leika í Garðabænum því þar
hafa þeir ekki tapað hin síðari
ár.
Leikurinn var slakur og vilja
Stjörnumenn eflaust gleyma
honum sem fyrst. FH-ingar væru
alveg til í að gera slíkt hið sama,
nema hvað þeir vilja
Skúli Unnar eflaust muna eftir
Sveinsson stigunum sem þeir
skrítar feng-u.
Gestirnir höfðu
forustu allan tímann nema hvað
heimamönnum tókst tvívegis að
jafna í upphafi leiks. Varnarleikur
beggja liða var slakur, en Stjörnu-
vömin var þó sýnu verri.
Sóknarleikur heimamanna var
langt frá því að vera eins og hann
getur bestur orðið. Þegar þeir vom
að saxa á forskotið undir lok leiks-
ins höfðu þeir ekki þolinmæði til
að leika skipulega og vildu greini-
lega skora tvö mörk í hverri sókn.
Bestir hjá heimamönnum voru
Patrekur og Axel og voru þeir
reyndar þeir einu sem léku eðlilega.
Ingvar stóð sig þokkalega í markinu
eftir að hann kom inná. Hjá FH
var Bergsveinn sterkur í markinu.
Stefán og Guðjón skoruðu falleg
mörk, Þorgils stjórnaði leik liðsins
af festu og Hálfdán var öruggur á
línunni.
Grótta engin hindrun
Lið Gróttu var engin hindran á
sigurbraut Víkinga í 1. deild-
inni í handknattleik. Víkingar sýndu
þó engan stórleik og í heildina var
leikurinn frekar
slakur. Jafnræði var
með liðunum fram í
miðjan fyrri hálfleik.
Þá misstu Gróttu-
menn boltann nokkrum sinnum
klaufalega í sókninni. Víkingar
gengu á lagið og höfðu tveggja
marka forystu i hálfleik. í síðari
hálfleik juku Víkingar forskotið og
var sigur þeirra aldrei í hættu.
Hraðaupphlaup Víkinga gengu vel
í þessum leik og gerðu þeir 11
mörk úr hraðaupphlaupum. Þeir
voru einnig snöggir aftur í vörnina
og náðu að kæfa öll hraðaupphlaup
Gróttumanna í fæðingu. Alexej
Trúfan var bestur Víkinga, var
geysisterkur í vörninni og lék vel í
sókn. Birgir Sigurðsson og Bjarki
Sigurðsson áttu einnig góðan leik.
Lið Gróttu er skyttulaust og háir
það sóknarleik liðsins. Hraðaupp-
hlaup Gróttu gengu ekki upp í þess-
um leik og gerði liðið hvorki mark
úr langskotum né hraðaupphlaup-
um. Páll Björnsson átti ágætan leik
fyrir Gróttu á línunni, var
sívinnandi og fiskaöi_ 4 vítaköst.
Einnig lék Þorlákur Árnason vel í
markinu.
Valur í basli með nýliðana
alsmenn lentu i nokkru basli
með nýliða Selfoss og það var
ekki fyrr en stundarfjórðungur var
til loka leiks að þeim tókst að gera
•■■■■■ út um leikinn með
Frosti þremur mörkum, og
Eiðsson breyta stöðunni úr
skrífar 16;15 ; 19;15
Síðustu mín-
útumar einkenndust síðan af miki-
um mistökum bæði hjá leikmönnum
og dómurum. Valsmenn náðu betur
að nýta sér mistök andstæðinganna
og þeir skoruðu síðustu fjögur mörk
leiksins eftir að Selfoss hafði
minnkað muninn í tvö mörk, fímm
mínútum fyrir leikslok.
Jón Kristjánsson var besti maður
Vals í leiknum, gifurlega útsjóna-
samur og kunni á Gísla í markinu.
Þá var Valdimar sterkur, sérstal^-
lega í hraðaupphlaupum þar sem
hann skoraði fjögur mörk af þeim
átta sem Valsmenn gerðu úr hraða-
upphlaupum. Ungu strákarnir eru
mjög frískir og þrátt fyrir að liðið
léki án Einars markvarðar og
Brynjars Harðarssonar þá kom það
ekki að teljandi sök.
Breiddin er lítil hjá Selfyssingum
og gott dæmi um það er að aðeins
fjórir leikmenn skoraðu fyrir liðið.
Gísli Felix varði mjög vel og nafn-
arnir, Einar Sigurðsson og Guð-
mundsson voru atkvæðamiklir í
sóknarleiknum. Þá var gaman að
sjá til Stefáns Halldórssonar í vörn-
inni.
KR féll á eindaga
B-lið meistaraflokks KR átti að
leika gegn Haukum í gærkvöldi
og voru liðin tilbúin, en dómararnir
flautu leikinn af og dæmdu Haukum
10:0 sigur. Ástæðan var sú að hahd-
knattleiksdeild KR hafði ekki greitt
tilskilin dómaragjöld til HSÍ vegna
þátttöku í 1. deild, í keppni b-liða, í
1. flokki og 2. deild kvenna.
í 7. grein reglugerðar HSÍ um
handknattleiksmót segir m.a. að
dómaragjöld og ferðakostnað dóm-
ara beri að greiða I einu lagi 1. sept-
ember ár hvert eða á fjórum gjald-
dögum; 15. október, 15. nóvember,
15. janúar og 15. febrúar. Eindagi
skal vera 15 dögum eftir gjalddaga.
{ 16. grein segir m.a. að vegna van-
skila skuii leikur tapast 10:0.
Vigfús Þorsteinsson, sem hefur
umsjón með mótamáium HSÍ, sagði
að félög reyndu almennt að draga
eins lengi og unnt væri að greiða
þessi gjöld og hefðu m.a. fjögur 1.
dfeiidar félög greitt í gær. Hver af-
borgun væri 83.080 krónur og hefðu
KR-ingar verið aðvaraðir í gær, en
þar sem greiðsla hefði ekki borist,
hefði ekki verið um annað að ræða
en fara að lögum.
KR á að leika gegn ÍR í 1. deild
í kvöld, en leikurinn fer ekki fram
og dæmist heimamönnum tapaður
10:0, hafí þeir ekki gert upp fyrir
kiukkan 20.
Pétur
Hraf
Sigurðsson
skrifar