Morgunblaðið - 20.08.1991, Síða 1
64 SIÐUR B
186. tbl. 79. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 1991
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Valdarán harðlínumanna í Sovétríkjunum:
JELTSIN LEWIR ANDOF
ÚR VÍGGIRTU ÞINGHÚSI
- Gorbatsjov haldið í herstöð
- Námamenn efna til verkfalls
- Janajev boðar framhald umbóta
Moskvu. Reuter, The Daily Telegraph.
HARÐLÍNUMENN steyptu í gær Míkhaíl Gorbatsjov, for-
seta Sovétríkjanna, og skipuðu neyðarnefnd til þess að
stjórna landinu. Heimsbyggðin var slegin óhug vegna þess-
ara tíðinda og hafa Vesturlönd hótað efnahagslegum refsi-
aðgerðum. Borís Jeltsín, forseti rússneska sambandslýð-
veldisins, skoraði á almenning að leggja niður vinnu. Að
sögn sjónvarpsfréttastöðvarinnar Sky er Gorbatsjov í haldi
í herstöð eftir að hafa verið tekinn höndum þar sem hann
var í sumarleyfi á Krímskaga við Svartahaf. Seint í gær-
kvöldi bárust fréttir af því að hermenn hefðu skotið
bílstjóra sendibifreiðar til bana í Ríga, höfuðborg Lettlands.
Gennadíj Janajev, varaforseti Sov-
étríkjanna og nú forseti, settur af
neyðamefndinni, sagði á blaða-
mannafundi að ekki væri ætlunin að
snúa baki við pólitískum og efna-
hagslegum umbótum. Gorbatsjov
hefði verið orðinn langþreyttur og
þurft hvíldar við. Janajev kvaðst vona
að „vinur“ sinn Gorbatsjov gæti sem
fyrst snúið aftur til starfa og sest á
ný í forsetastól. Segist Janajev hafa
rætt við Jeltsín í síma í gærmorgun
■og væri neyðarnefndin reiðubúin að
starfa með leiðtogum lýðveldanna.
Neyðamefndin lýsti yfir neyðar-
ástandi, bannaði verkföll og starf-
semi stjómmálaflokka og setti á rit-
skoðun.
Borís Jeltsín, forseti Rússlands,
.leiðir stjórnarandstöðuna. Hann
hvatti til allsherjarverkfalls og náma-
menn í Síberíu hófu þegar að leggja
'niður vinnu. Ráðamenn í ýmsum
•borgum Síberíu hvöttu almenning til
veita Jeltsín lið með því að koma
ekki til vinnu í dag.
Jeltsín hefur skorað á hermenn
að hlýða ekki skipunum og lýst yfir
því að neyðarnefndin sitji í trássi við
stjórnarskrána. Hann sagði að Gorb-
atsjov væri í stofufangelsi á
Krímskaga og krafðist þess að hann
fengi að ávarpa þjóðina.
Eftir að kvölda tók færðist lævi
blandin kyrrð yfir Moskvu. Stefán
L. Stefánsson, sendiráðsritari í
íslenska sendiráðinu í Moskvu, ók
um klukkan níu í gærkvöldi að stað-
ártíma frá sendiráðinu i miðborg
Moskvu til úthverfis, þar sem hann
býr. „Fólk var á ferli og spjallaði við
hermenn," sagði Stefán. „Áilt virtist
rólegt." Stefán sagði að lögreglu-
þjónar hefðu staðið víða við umferð-
argötur, en þeir hefðu ekki verið
fleiri en venjulega. Þegar komið var
úr miðborginni sagði hann að það
eina óvenjulega hefði verið að um-
ferðarlögregla, sem venjulega er far-
in af vakt um þetta leyti, stóð enn
vörð. Sagði Stefán að engin tilraun
hefði verið gerð til að stöðva hann.
í Leníngrad söfnuðust 4.000
manns saman fyrir utan höfuðstöðv-
ar borgarráðsins. Anatolíj Sobtsjak
borgarstjóri ávarpaði ráðið og kvaðst
hafa sagt Viktor Samsonov, yfir-
manni sovéska heraflans í Leníngrad,
að hann yrði sóttur til saka ef hann
hlýddi skipunum hinnar ólöglegu
stjórnar í Moskvu.
Sjá ennfremur fréttir á bls. 12
til 21 og miðopnu.
Rússlandsforseti veifar til mannfjöldans
Borís Jeltsín, forseti Rússlands, veifar til stuðningsmanna sinna af svölum
rússneska þinghússins. Fimm þúsund manns hafa safnast þar saman, þar
af nokkur hundruð liðsmenn úrvalssveita á bandi Jeltsíns. Víggirðingar hafa
verið settar upp og áhafnir nokkurra skriðdreka sovéska hersins hafa búist
til varnar gegn hugsanlegri árás að undirlagi forsprakka valdaránsins. Morg-
unblaðið náði símasambandi við þinghúsið um klukkan hálffímm að rússnesk-
um tíma í nótt og var þá sagt að 20 „okkar“ skriðdrekar væru nú við húsið.
Bush viður-
kennir ekki
stjórniiia
Vesturlönd íhuga að
hætta efnahagsaðstoð
Washington, Lundúnum, París,
Amsterdam, Reuter.
GEORGE Bush Bandaríkjafor-
seti lýsti því yfir í gær að hann
viðurkenndi ekki nýja stjórn
Gennadíjs Janajevs, starfandi
forseta Sovétríkjanna, og tók
undir kröfu Borís Jeltsíns Rúss-
landsforseta um að Míkhaíl Gorb-
atsjov setjist aftur á Valdastól.
Forsetinn sagði að Bandaríkin
myndu hætta efnahagsaðstoð við
Sovétríkin ef áfram yrðu notuð
meðul, sem væru andstæð
sovézku stjórnarskránni.
John Major, forsætisráðherra
Bretlands, og Francois Mitterrand
Frakklandsforseti gáfu í skyn í gær
að leiðtogar Vesturlanda myndu
hittast fljótlega til að ræða viðbrögð
við atburðunum í Sovétríkjunum.
Utanríkisráðherrar Evrópubanda-
Iagsríkjanna hafa verið kallaðir
saman til skyndifundar í dag og er
búizt við að þeir ákveði að minnka
eða stöðva efnahags- og tækniað-
stoð EB við Sovétríkin.
Leiðtogar beggja flokka á
Bandaríkjaþingi lýstu því yfir að
valdaránið gerði að engu líkur á
því að viðskiptasamningurinn, sem
veitir Sovétmönnum beztu við-
skiptakjör í Bandaríkjunum, yrði
undirritaður. Jafnframt sögðu þeir
að frestað yrði staðfestingu
START-samkomulagsins um fækk-
un langdrægra kjarnavopna, sem
Bush og Gorbatsjov undirrituðu í
Moskvu fyrir tæpum þremur vikum.
Þingmaðurinn Gleb Anisjenkó í samtali við Morgunbiaðið:
FÖRUMMEÐ SIGUR AFHÓLMI
„HÉR fyrir utan er gífurlegur mannfjöldi
til varnar þinghúsinu. Fólkið hefur reist
götuvígi og slær skjaldborg um bygging-
una,“ sagði Gleb Anisjenkó, þingmaður
og formaður Kristilega demókrataflokks-
ins í Rússlandi, í samtali við Morgunblað-
ið í gærkvöldi, um klukkan ellefu að rúss-
neskum tíma. Anisjenkó,var þá staddur á
skrifstofu sinni í þinghúsi rússneska lýð-
veldisins á bökkum Moskvufljóts. „Ein
skriðdrekaherdeild, tíu skriðdrekar, er á
ieiðinni hingað til að verja rússnesku
stjórnina og þingið. Á göngum hússins
eru hermenn, hliðhollir Borís Jeltsín. Við
erum vissir um að hersveitir valdaræn-
ingjanna munu reyna að ráðast inn í þing-
húsið.“
Anisjenkó sagði að þingmaðurinn, sem
deilir með honum skrifstofu, Míkhaíl
Astafíev, formaður Lýðræðislega stjórnar-
skrárflokksins, hefði farið til fundar við her-
mennina, sem umkringt hefðu þinghúsið.
„Hann ætlar að ræða við þá og reyna að fá
þá til að snúast ríkisstjórn Rússlands til varn-
ar,“ sagði Anisjenkó. Lýðræðislegi stjórnar-
skrárflokkurinn og Kristilegi demókrata-
flokkurinn eru nýstofnaðir flokkar frjáls-
lyndra umbótasinna í rússneska lýðveldinu,
en voru í gær bannaðir af nýju valdhöfunum.
Anisjenkó sagði að hermenn neyðarnefnd-
arinnar, sem tekið hefur völdin, hefðu leyft
þingmönnum að fara inn í þinghúsið í gær-
morgun. Blaðamönnum hefði hins vegar ver-
ið meinaður aðgangur. Borís Jeltsín, forseti
Rússlands, hefði haldið til í þinghúsinu í all-
an gærdag, að öðru leyti en því að forsetinn
hefði þrisvar sinnum farið út á torgið framan
við bygginguna og ávarpað mannfjöldann.
Hann hefði einnig talað til hermannanna og
beðið þá að veija þingið og ríkisstjórnina.
Anisjenkó sagðist jafnvel telja að Gorb-
atsjov forseti ætti afturkvæmt á valdastól.
„Hér í Moskvu og um allt land stendur allur
almenningur með Jeltsín. Fólkið mun rísa
upp gegn hernum," sagði hann. „Ef ég á að
segja eins og er höfum við allar ástæður til
að telja að það stefni í borgarastríð. Við
verðum hins vegar að gera allt, sem í okkar
valdi stendur, til að koma í veg fyrir það.“
Þingmaðurinn sagðist ekki telja að valda-
rán áttmenninganna undir forystu Gennadíjs
Janajevs varaforseta væri upphafið á aftur-
hvarfi til kúgunar Brezhnev-tímans. „Við
höfum fólkið með okkur og við munum fara
með sigur af hólmi í þessum bardaga."