Morgunblaðið - 20.08.1991, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 1991
15
Þrír úr valdaránshópnum á fréttamannafundi.
Gennadíj Janajev og Oleg Baklanov.
Reuter
Frá v. Borís Púgó,
Janajev á blaðamannafundi:
Gripum til aðgerða
vegna ófremdarástands
Washington. Reuter.
GENNADÍJ Janajev, sjálfskipaður forseti Sovétríkjanna, kallaði saman
fréttamannafund í gær þar sem hann reyndi að útskýra gerðir harðlínu-
mannanna er rændu völdum aðfaranótt mánudags og settu Míkhaíl
S. Gorbatsjov af. Hér fara á eftir kaflar úr ræðu Janajevs á fundinum
en túlkar utanríkisráðuneytisins sovéska þýddu hana jafnóðum á ensku.
„Það er ekkert launungarmál að
framleiðsla hefur snarminnkað,
breytingar í efnahagskerfínu hafa
ekki stöðvað þá þróun, og þessi þró-
un stofnar í hættu frekari framförum
og velferð þjóða Sovétríkjanna. ..
Ókleift er að lifa hér eðlilegu lífi við
þessar aðstæður. Víða í Sovétríkjun-
um er úthellt blóði í deilum þjóða-
brota og sundurlimun sambandsrík-
isins myndi hafa hinar alvarlegustu
afleiðingar, jafnt innanlands sem
erlendis. Að svo komnu máli eigum
við ekki annars úrkosta en að grípa
til markvissra aðgerða til að koma í
veg fyrir endanlegt og skelfilegt hrun
ríkisins...
Við erum staðráðnir í að koma
tafarlaust á lögum og reglu, binda
enda á blóðsúthellingamar, heýja
vægðarlaust stríð gegn glæpalýð og
uppræta þetta þjóðfélagsmein...
Við viljum raunhæfar lýðræðisum-
bætur, staðfasta umbótastefnu er
hafi að markmiði félagslega end-
urnýjun og efnahagslega farsæld
sem geri landi okkar kleift að skipa
þann sess sem því ber í heiminum.
En framþróun í landinu má ekki
byggja á versnandi lífskjörum.
Við viljum eiga friðsamleg sam-
skipti við alla en lýsum yfir því að
enginn fær að misbjóða fullveldi okk-
ar eða sjálfstæði, enginn fær að
hrófla við landamærum okkar og
allar tilraunir til að skipa okkur fyr-
ir, hvaðan sem þær eru ættaðar,
verða stöðvaðar. Land okkar, byggt
mörgum þjóðum, hefur verið til í
margar aldir og íbúarnir verið stoltir
af því. Við höfum aldrei skammast
okkar fyrir að vera hreykin af því
og teljum eðlilegt að unga kynslóðin
verði alin upp í sama anda.“
JAIUAJEV
1937
Gennadíj Janajev, Perevoz,
fæddist í vestur- Rússlandi
1959
Útskifaðist frá
landbúnaðarháskólanunn í Gorkíj
Nam síðar lög og lauk
doktorsprófi í sögu
1962
Gekk í kommúnistaflokkinn
1968-1986
Formaður sovéska
æskulýðssambandsíns
Varaformaður sambands
vinafélaga Sovétríkjanna og
erlendra ríkja
1986-1990
Ritari og síðar varaformaður
sovéska alþýðusambandsins
júlí 1990
Gengur í miðstjórn og stjórnmálaráð
desember 1990
Kjörinn varaforseti
19. ágúst, 1991
Starfandi forseti Sovétríkjanna
ákveðnum hópi manna sem þekktur
er fyrir afturhaldssamar skoðanir.
í heimsókn Gorbatsjovs til Japan
í apríl síðastliðnum var hernám Kúr-
íleyja í síðari heimsstyijöldinni á
dagskrá. Þá sagði Jasov opinberlega
að Gorbatsjov fengi ekki að ráða því
einn hvað um semdist. Auk þess
hefur Jasov verið einn helsti and-
stæðingur þess að sovéski herinn
verði dreginn út úr Þýskalandi og
fleiri löndum í Mið-Evrópu.
Boris Púgo: Innanríkisráðherra
Sovétríkjanna. Fæddur í Lettlandi
árið 1937, þar sem hann var bæði
formaður kommúnístaflokksins og
leyniþjónustunnar KGB.
Hann var gerður að innanríkisráð-
lierra í fyrra en hefur aldrei verið
hrifinn af hugmyndum Gorbatsjovs
um markaðsbúskap, og kennir þeim
um hið lélega efnahagsástand í land-
inu.
Það var Púgo sem fyrirskipaði
hinar blóðugu aðgerðir sovéska hers-
ins í Vilnius og Riga, og líklegt má
telja að hann hafi þann málaflokk
áfram með höndum.
O. D. Baklanov: Varaformaður
varnarmálanefndar Sovétríkjanna.
Hefur lengst af verið háttsettur
embættismaður í sovéska hernaðar-
og vopnaiðnaðargeiranum.
Gorbatsjov skipaði hann ritara
miðstjórnar kommúnistaflokksins
árið 1988 þar sem hann skyldi fara
með mál er lytu að hergagnafram-
leiðslu.
Viktor Starodúbtsév: Formaður
Bændasamtaka Sovétríkjanna.
Hann hefur verið lítt áberandi síðan
hann var sendur til liðs við nýja
deild flokksins er sjá skyldi um af-
vopnunarmál árið 1988.
Hann hefur þvílíka reynslu af af-
vopnunarviðræðum við vestræn ríki
að líklegt er talið að hann verði eins
konar utanríkisráðherra hinnar nýju
stjórnar.
A. I. Tisjakov: Formaður Sam-
taka ríkisrekinna fyrirtækja í Sov-
étríkjunum.
_i..______________|
Hvemig
lnttn
varoað
5,5 miljónum.
Sá sem keypti KJARABRÉF fyrir 6 árum
fyrir eina milljón króna á nú tæpar 5,5 milljónir.
Á verðlagi dagsins í dag hefur hann fengið
tæplega 2.7000.000 kr. í vaxtatekjur auk verðbóta.
Með öðrum orðum, raungildið hefur
2,7-faldast á þessum tíma!
Nú er rétti tíminn til að kaupa KJARABRÉF.
Góð ávöxtun framundan!
VERÐBRÉFAMARKAÐUR
FJÁRFESTING ARFÉLAGSINS HF
- Löggiltverðbréfafyrirtæki -
HAFNARSTRÆTI28566 • KRINGLUNNI689700 • AKUREYR111100