Morgunblaðið - 20.08.1991, Blaðsíða 11
MORGUl'ÍBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 1091
Síðbúin afmæliskveðja:
Matthías Bjarnason
Kannski kann einhver skýringu
á því, að nánast allir alþingismenn
síðari ára sem eitthvað veður er í
koma frá Vestfjörðum, eða eru
ættaðir þaðan. Sá sem stærði sig
af að vera eðalborinn Vestfirðingur
var ekki bara að tala um sjálfan
sig. Kotungshugsun virðist ekki al-
geng í þessum landshluta.
Matthías Bjarnason gæti sem
best verið af konunga kyni, bæði í
sinni og skinni og honum lætur vel
að vera með höfðingjum. Þó er
hann ekki síður í essinu sínum með
alþýðufólki, enda er það hans fólk.
Hann hefur reisn og virðuleika á
við hvaða fyrirmann sem er, en
getur líka ef því er að skipta kveðið
í kútinn kjarnyrtustu sjómenn. Það
eru ekki margir tæpitungulausari
en hann.
Matthías hefur ekki verið óum-
deildur maður. Til þess er hann allt-
of hreinskiptinn, baráttuglaður og
fylginn sér. Hugsjónir hans eru
ekki nein skiptimynt á markaðs-
torgi metorðanna, þótt hann á hinn
bóginn hafi heldur ekki látið pólit-
ískt óraunsæi blinda sig.
Hann hefur einatt þrek til að
vera sannur og sjálfum sér sam-
kvæmur; Skemmtilegur, hlýr, oft
ögrandi, orðhvatur og bráður — en
aldrei með hátíðlega tilgerð eða
hálfvelgju. Alltaf litríkur og lifandi.
Lífsreynslan hefur mýkt og mild-
að viðmótið, en enginn skyldi ætl.a
að garpsiundin sé að meyma.
Eg hef lengi glaðst yfir að eiga
vin í þessum skapheita, umbúða-
lausa manni, þessu kvikusára næmi
undir úfnu yfirbragði, sem kennir
svo til þegar aðrir þjást eða eru
sviptir mannlegri reisn að hann af-
ber það varla.
Þó að við séum pólitískir samheij-
ar höfum við auðvitað ekki alltaf
verið á sama máli. Reyndar svo
ósammála einu sinni að vestfirskt
dramb og ausfirskur þótti tókust á
af fullri hörku. En eftir hæfilegan
meðgöngutíma af beggja hálfu var
endurnýjaður vináttusáttmáli inn-
siglaður með innilegu faðmlagi.
Matthías Bjarnason hefur í ára-
tugi verið einn af máttarstólpum
Sjálfstæðisflokksins. Það hefur ver-
ið gæfa og styrkur flokksins að
ólíkir einstaklingar í forystusveit
hans hafa fengið olnbogarými innan
hans. Litríkt fólk með ólíkar áhersl-
ur og sjálfstæðan vilja hefur starfað
hlið við hlið, ekki alltaf sátt við alla
hluti, en samtaka í að standa vörð
um sameiginlega hugsjón og vinna
henni fylgi. Ásýnd Sjálfstæðis-
flokksins hefur í áranna rás endur-
speglað þetta og þess vegna hefur
hann verið stærsti stjórnmálaflokk-
ur þjóðarinnar.
Þegar söguskýringarpennar lí-
tilla flokka kvarta undan því að
Sjálfstæðisflokkurinn sé svifaseinn
í ákvarðanatöku og hæla sér af
hinu gagnstæða, beita þeir rökum
einræðisins. Lýðræðið er alltaf sein-
legt og þeim mun seinlegra sem
sjónarmiðin eru fieiri sem þarf að
sætta. Enginn stjórnmálaflokkur
endurspeglar íslenskt þjóðlíf eins
og Sjálfstæðisflokkurinn. Innan
hans vébanda eru forystumenn
launþega og atvinnurekenda og
allra atvinnugreina. Þar takast á
sjónarmið þéttbýlis og dreifbýlis og
þar verða menn að finna málamiðl-
anir sem þjóðin sættir sig við. Láti
Sjálfstæðisflokkurinn siðameistara
annarra flokka brýna sig til að
verða eins og þeir vilja, gerist ná-
Verðum með
Armaflex
Á góðu verði
pípueinangrun í hólkum,
plötum og límrúllum frá
Þ. ÞORGRÍMSSON &C0
Ármúla 29 - Múlatorgi - Sími 38640
að sem því er fenginn.
Ég hygg að Vestfirðngar hafi
jafnan verið upplitsdjarfir vegna
Matthíasar Bjarnasonar. Sjálfstæð-
isflokkurinn hefur lyft honum til
áhrifa sem þingmanni og ráðherra
og Matthías hefur aukið álit og
styrk flokksins með verkum sínum
og svipmikilli persónu. Um leið og
ég sendi honum og Kristínu hlýjar
kveðjur í tilefni af nýliðnum heið-
ursdegi, þakka ég fyrir áralöng og
ánægjuleg kynni.
Ég hef orðið þess vör í umtali
fólks um Matthías, að auk skaphit-
ans, er hann fólk hugstæðastur
fyrir störf sín sem sjávarútvegsráð-
herra og heilbrigðisráðherra. Sjálfri
þykir mér mest um vert að eiga
vináttu hans og svo hitt, að hafa
talsmann á alþingi sem á það sem
dýrmætast er — vitsmuni hjartans.
Jónína Michaelsdóttir.
UTSALA UTSALA
20-50% afsláttur
5% staðgreidsluafsláttur
»hummel^
N>u — _ _ - Armúla 40,
greiðslukortatímabil hafiú SPÖRTdUÐIN sími 813555
p imi I
| Meimenþúgeturímyndaðþér!
kvæmlega það sem að er stefnt —
stjórnin og stefnumörkun verður
einföld og afgerandi og flokkurinn
lítill.
Atkvæði ráða áhrifum í lýðræðis-
þjóðfélagi og bak við atkvæðin er
mismunandi fólk með mismunandi
hagsmuæni og úr ólíku umhverfi.
Þetta eru engin ný sannindi, en ef
vel á að vera þarf forystusveit al-
vöru stjórnmálaflokks að vera
þannig skipuð að sem flestum finn-
ist þeir eiga þar málsvara sem má
sín einhvers. Það með er ekki sagt
að ekki eigi að taka á málum af
fullri einurð þegar stefnan er mörk-
uð, enda hefur Sjálfstæðisflokkur-
inn aldrei vikið sér undan því.
Það skiptir nokkru máli fyrir fólk
sem lætur sig stjómmál einhveiju
varða, að geta borið höfuðið hátt
vegna frammistöðu og framkomu
sinna mann á opinberum vettvangi.
Eitthvað í innsta afkima sjálfsvirð-
ingarinnar kveinkar sér eins og
ósjálfrátt ef fólkið sem maður tre-
ysti fyrir atkvæðinu sínu týnir átt-
um. Á sama hátt fyllist maður
óskýranlegri sjálfsánægju og bjart-
sýni þegar talsmenn flokksins vaxa
af verkum sínum og viðmóti. Þetta
fólk er þessvegna á vissan hátt al-
menningseign og ekki einkamál
þess hvernig það fer með þann trún-
útboð markaðsverðbréfa
Jj, iF
2. fl. 1991
Heildamafnverð: 260.000.000 kr.
Gjalddagar einstakra flokka:
Gefnireru út fjórir flokkar bréfa.
Gjalddagar hvers flokks eru árlega, alls 5 gjalddagar.
Gjalddagar flokka eru eftirtaldir:
2.fIokkurA 20.12. ár hvert, fyrst 20.12. 1991.
2. flokkur B 20.03. ár hvert, fyrst 20.03. 1992.
2. flokkur C 20.06. ár hvert, fyrst 20.06. 1992.
2. flokkur D 20.09. ár hvert, fyrst 20.09. 1992.
Einingar bréfa: 1.000.000 kr.
Verðtrygging og ávöxtun:
Bréfin eru verðtryggð m.v. hækkun lánskjaravísitölu.
Arsávöxtun umfram verðtryggingu er 9,5% í upphafi útboðs.
Fyrsti söludagur: 19. ágúst, 1991.
Allar nánari upplýsingar veita söluaðilar, sem eru:
Landsbréf hf. og umboðsmenn Landsbréfa í útibúum Landsbanka íslands.
Umsjón með útboði: Landsbréf hf.
fl
LIND
LANDSBRÉF H F.
Landsbankinn stendur með okkur
Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík, sími 91-679200, fax 91-678598.
Löggilt verðbréfafyrirtæki. Aðili að Verðbréfaþingi íslands.
VOTN 0£
DALIR I
SKOTLANDI
- firnm daga ferð,
33.990,-*
Loch Achray hótelið stendur í draumfögru og
hlýlegu umhverfi við rætur hins tignarlega Ben
Venue fjalls í hjarta Skotlands. Hótelið er
skemmtilega í sveit sett, umkringt óspilltum
skógi á bökkum Achray stöðuvatnsins. Allt í
kring eru víðar lendur, ótal skógarstígar og
þægilegar gönguleiðir meðfram vatninu.
Innifalið í ferðinni er:
• Flug báðar leiðir milli Keflavíkur og Glasgow
með Flugleiðum.
• Flugvallarskattur.
• Gisting I fjórar nætur á Loch Achray hótelinu.
• Hlý og notarleg svefnherbergi með sérbaði.
• Akstur.
• Skoðunarferðir á hverjum degi, auk
verslunarferða.
• Skemmtisigling.
• Ríkulegur morgunverður að skoskum hætti
hvern dag.
• Þríréttaðar kvöldmáltíðir að eigin vali.
Ferðaáætlun:
1. dagur
Brottför frá Keflavíkurflugvelli til Glasgow.
Þaðan flytur rúta farþegana til Loch Achray
hótelsins.
2. dagur
Dagsferð til Inversnaid, en þangað liggur leiðin
um fögur héruð að bökkum hins nafntogaða
Lomond vatns. Farið verður í siglingu á vatninu,
en síðan ekið til baka um skosku hálöndin.
3. dagur
Dagsferð til höfuðborgar Skotlands, þeirrar
sögufrægu Edinborgar. Þar gefst kostur á að
skoða sig um eða versla að vild.
4. dagur
Dagsferð um hálöndin og meðal annars numið
staðar í Crieff. Þar verður gestunum boðið að
skoða Glenturret, elsta brugghús í Skotlandi.
5. dagur
Brottför til Glasgow oc
Keflavíkur. Farþegar f’
októþer, njóta þó góðs af kvöldflugi og geta
eytt fyrri hluta dagsins í Glasgow, verslað eða
skoðað sig um i stórborginni.
Brottför/heimkoma:
15. október -19. október
12. nóvember-16. nóvember
10. desember- 14. desember
FERDASKRIFSTOFA
ÍSLANDS
dtb
aðan til
érðinni, 15. til 19.
Söluaðili: Ferðaskrifstofa Islands - Skógarhlíð 18 -
101 Reykjavík - sími 91-2 58 55
* Miðað við gengi 01.08,1991