Morgunblaðið - 20.08.1991, Síða 12
12
JGCI TgUOA . )2 M'JOAOUWIIJM UIGAJUZUOflOM
MORGUNBLAÐID ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 1991
Jeltsín leiðir andstöð-
una og boðar verkfall
Vill vald yfir KGB o g hernum í Rússlandi
Viðbrögð á Vesturlöndum:
Vonað að umbætur
verði ekki stöðvaðar
Lundúnum, París, Bonn, Peking, Nikósíu, Bagdad. Reuter.
VIÐBROGÐ vestrænna ríkisstjórna við falli Gorbatsjovs og valda-
ráni harðlinumanna í Moskvu einkennast af vonbrigðum og áhyggj-
um. Vestrænir þjóðarleiðtogar fordæma valdatökuna en láta þó í
ljós von um að umbótum í Sovétríkjunum verði ekki snúið við úr
þessu. Víða um Vesturlönd hafa ríkisstjórnir verið kallaðar til
neyðarfunda og þjóðarleiðtogar hafa haft samráð sín á milli
símleiðis.
Moskvu. Reuter.
BORIS Jeltsín, forseti rússneska sam-
bandslýðveldsins, sagði í gær að myrkir
tímar ógnarsljórnar væru í vændum ef
þeim, sem steyptu Míkhail Gorbatsjov, for-
seta Sovétríkjanna, tækist ætlunarverk
sitt og skoraði á herinn að styðja ekki
nýju harðlínustjórninar. „Hermenn, yfir-
menn og herforingjar. Ský ógnar og ein-
ræðis hrannast upp yfir landinu öllu. Það
má ekki leyfa þeim að láta eilifa nótt
skella á,“ sagði Jeltsín í yfirlýsingu, sem
gefin var í þinghúsi rússneska þjóðþings-
ins. Þar gæta Jeltsíns þrautþjálfaðra lög-
reglusveita, sem eru á bandi hans.
Jeltsín á blaða-
mannafundi í gær.
John Major, forsætisráðherra
Bretlands, sagði að valdaránið i
Moskvu bryti í bága við stjórnar-
skrá Sovétríkjanna, en sagðist
vona að það þýddi ekki að hafið
væri nýtt kalt stríð. „Framtíðar-
hagsæld Sovétríkjanna er háð
umbótum. Það eru jafnt hagsmun-
ir þeirra og Vesturlanda,“ sagði
Major. Hann tilkynnti að Bretar
myndu frysta lán til Sovétríkjanna.
„Ástandið er mjög alvarlegt.
Gorbatsjov færði sovézku þjóðinni
nýja von. Hann innleiddi lýðræði,
málfrelsi, trúfrelsi og ferðafrelsi.
Hann færði heiminum nýja von,“
sagði Margaret Thatcher, fyrrver-
andi forsætisráðherra Bretlands,
en henni og Míkhaíl Gorbatsjov var
vel til vina.
Valdarán harð-
línuaflanna í Sov-
étríkjunum:
Kom banda-
rískum ráða-
mönnum í
opna skjöldu
Washington. Reuter.
FRÉTTIR af valdaráni harðlínu-
afla í Sovétríkjunum komu
bandarískum ráðamönnum í
opna skjöldu. George Bush, for-
seti Bandaríkjanna, sem er í
leyfi á sumarsetri sínu í Maine,
fékk fréttirnar frá öryggismála-
ráðgjafa sínum Brent Scowc-
roft, sem fyrst heyrði þær í
fjölmiðlum. Bush gerði hlé á
sumarfríi sínu og hélt til Was-
hington, þar sem hann ráðgaðist
við ráðgjafa sína. Hann ræddi
einnig í síma við ýmsa helztu
þjóðarleiðtoga á Vesturlöndum.
Nokkrum erfiðleikum hefur verið
bundið að ná í æðstu ráðamenn
landsins, þar sem þeir eru flestir í
fríi. Sam Grizzle, talsmaður varna-
málaráðuneytisins, fullyrti í gær-
morgun að tekist hefði að ná í alla
þá sem nauðsyn væri á og að ráðu-
neytið réði vel við ástandið sem
hefði skapast. Grizzle vildi ekki
gefa upp hvort heijum Bandaríkja-
manna yrði skipað í viðbragðsstöðu.
Embættismaður í varnarmála-
ráðuneytinu, sem ekki vildi láta
nafns síns getið, taldi að stjórn
Bush hefði ekki fengið neina aðvör-
un um að yfirvofandi valdarán en
sagði menn gera það sem þeim
væri uppálagt þegar ástand sem
þetta kæmi upp. Ástandið yrði þó
tæplega þannig að menn streymdu
í hundraðatali til ráðuneytisins.
Helmut Kohl, kanzlari Þýzka-
lands, sneri heim til Þýzkalands
úr fríi í Austurríki þegar hann
heyrði af valdaráninu. Hann sagði
að áframhaldandi aðstoð Þjóðveija
við Sovétríkin væri háð því að
nýju leiðtogarnir yrðu trúir um-
bótastefnu og lýðræði.
Francois Mitterrand Frakk-
landsforseti krafðist þess að líf og
frelsi Míkhaíls Gorbatsjovs og Bo-
risar Jeltsíns yrði tryggt. „Leiðtog-
arnir verða dæmdir af verkum
sínum, sérstaklega hvernig farið
verður með þessar tvær mikilvægu
persónur," sagði Mitterrand í yfir-
lýsingu, sem hann sendi frá sér í
gær. Hann sagði að fall Gorbatsj-
ovs gæti hægt á lýðræðisþróun í
Sovétríkjunum, en ekki væri hægt
að stöðva þá fjöldahreyfingu, sem
komin væri af stað í Sovétríkjun-
um. Hann sagði að heimurinn
myndi bregðast við af hörku, ef
nýju leiðtogarnir beittu almenning
ofbeldi.
Á stöku stað var falli Gorbatsj-
ovs fagnað. Þannig gáfu Saddam
Hussein íraksforseti og Moammar
Gaddafi, forseti Líbýu, út yfirlýs-
ingar þar sem lýst var yfir ánægju
og stuðningi við nýju valdhafanna.
Kínverskir fjölnjiðlar greindu frá
því án frekari skýringa að Gorb-
atsjov hefði verið vikið úr embætti
og ekkert hefur heyrzt, frá
kínverskum valdhöfum.
„Hermenn, ég tel að þið getið
breytt rétt á þessari raunastund.
Dýrð og ljóma rússneskra manna
undir vopnum má ekki ata blóði
fólksins. Á þessu sorglega augna-
bliki fyrir Rússa bið ég ykkur að
láta ekki flækja ykkur í net lyga
og loforða og frýjuorð lýðskrum-
ara um að þið eigið að gera „hern-
aðarlega skyldu ykkar“.“
Fyrir utan þjóðþingið söfnuðust
saman stuðningsmenn Jeltsíns og
gerðu sér götuvígi úr strætisvötn-
um, sem var lagt þvert á Kalinin
breiðgötu, eina aðalgötu Moskvu,
þar sem skriðdrekar fóru um fyrr
í dag á leið inn í miðborgina.
Margir veifuðu rauðum, hvítum
og bláum fána Rússlands og aðrir
hrópuðu vígorð gegn neyðamefnd-
inni, sem setti Gorbatsjov af.
Fyrr í gær hafði skriðdrekum
verið stillt upp fyrir utan þinghús-
ið, en þeir voru kvaddir brott. Inn-
an þinghússins bjuggust lögregla
og einkasveit öryggisvarða, sem
kvaddar höfðu verið á vettvang,
til að þreyja langt umsátur.
Jeltsin gaf í gær út tilskipun
þar sem hann lýsti yfir fullveldi
Rússlands, sem er áhrifamest Sov-
étlýðveldanna 15. Hann fyrirskip-
aði að öll stjórn herafla sovéska
innanríkisráðuneytisins, KGB og
varnarmálaráðuneytisins segði af
sér. Þeirra hlutverk skyldi fært í
hendur sveitum sér hliðhollum.
Jeltsin sagði ekki hvemig hann
hygðist framfylgja tilskipun sinni.
Ruslan Khasbúlatov, aðstoðar-
maður hans, sagði hins vegar við
blaðamenn: „Eina vopnið, sem við
höfum til að stöðva innleiðingu
einræðis, er allsheijarverkfall.
Jeltsín fór í gær út úr þinghús-
inu eftir að hafa haldið blaða-
mannafund og klifraði upp á skrið-
dreka, sem stóð fyrir utan. Þar
skoraði hann á Sovétmenn að
leggja niður vinnu og hermenn að
hlýða ekki skipunum. Hermenn-
irnir í skriðdrekanum hreyfðu
hvorki legg né lið, en um tvö
hundruð stuðningsmenn Jeltsíns
fögnuðu honum ákaft.
Jeltsín er sennilega einn vinsæl-
asti stjórnmálamaður Sovétríkj-
SOVÉSK yfirvöld virtust í gær
reyna eftir megni að láta lífið
ganga sinn vanagang, þrátt fyrir
valdaránið og brottvikningu
Míkhaíls Gorbatsjovs úr embætti,
skriðdreka á götum úti, mótmæli
anna. Hann hóf feril sinn í komm-
únistasflokknum og var undir
verndardvæng Gorbatsjovs. Árið
1985 kvaddi Gorbatsjov Jeltsín til
Moskvu til þess að aðstoða sig við
að framfylgja umbótastefnu sinni.
Hann reis hratt til metorða og
settist fljótlega í stjórnmálaráðið.
En stöðugar kröfur hans um aukn-
ar endurbætur féllu í grýttan jarð-
veg. Gorbatsjov þótti hann full
bráður og árið 1988 var hann
lækkaður í tign. En Jeltsín lét
ekki deigan síga. Árið 1989 bauð
hann sig fram til þings í Moskvu
og var kosinn með 89 prósentum
atkvæða þrátt fyrir linnulausan
áróður kpmmúnistaflokksins gegn
honum. í júlí á síðasta ári sagði
hann sig úr flokknum og ekki
minnkuðu vinsældir hans við það.
í júní var hann kjörinn forseti
rússneska sambandslýðveldisins
með rúmum 50 prósentum at-
kvæða. Á Vesturlöndum kom hann
eftir þennan sigur næstur Gorb-
atsjov að metorðum. Jeltsín gagn-
rýndi Gorbatsjov harðlega og í
janúar 1991 skoraði hann á Sovét-
leiðtogann að segja af sér. I apríl
tókst þeim hins vegar að gera með
sér samkomulag um að vinna sam-
an að því að koma á lýðræði og
markaðsbúskap í Sovétríkjunum.
og umferðarteppu. Hildur Guð-
rún Eyþórsdóttir bókasafnsfræð-
ingur, sem stödd er í Moskvu,
sagði í viðtali við Morgunblaðið
að hún hefði séð hermenn og
skriðdreka á götum úti og Rauða
torgið hefði verið lokað. Hins
vegar hefði ráðstefnu, sem hún
sækir í borginni, verið fram hald-
ið samkvæmt áætlun.
„Á hádegi sá maður fyrst hvers
kyns var. Ut um glugga rútu sáum
við hvar fólk stóð á gangstéttum
og fylgdist með hermönnum og
skriðdrekum fara fram hjá,“ sagði
Hildur Guðrún. „Fólkið virtist bara
standa og horfa, án þess að hreyfa
sig.“
Hildur Guðrún sækir alþjóðlega
ráðstefnu 12 hundruð bókasafns-
fræðinga í Moskvu. Hún sagði að
í gærmorgun hefði Nikolai Gul-
benko, menningar- og menntamála-
ráðherra, ávarpað ráðstefnuna.
„Hann sagði að við yrðum að taka
ástandinu með þolinmæði," sagði
Hildur Guðrún og bætti við að ráð-
herrann hefði ekki virst vita mikið
um stöðu mála og beðið frétta.
Hildur Guðrún kvaðst síðdegis í
gær hafa farið í móttöku og þar
hefðu gestgjafar hegðað sér eins
og ekkert hefði í skorist. Er hún
kom af sýningu á ballettinum
Rómeó og Júlíu ætlaði Hildur Guð-
rún að ganga yfir Rauða torgið. „Þá
stóð þar hervörður og meinaði okk-
ur aðgang,“ sagði hún.
Hildur Guðrún sagði að hún hefði
aldrei fengið á tilfinninguna að
hætta væri á ferðum. Þrátt fyrir
herlið á götum hefði allt virst rólegt.
Hildur Guðrún er eini íslending-
urinn á ráðstefnunni.
Brottflutning’i hersveita frá
Þýskalandi haldið áfram
Farartæki sovéska hersins kemur hér að herbúðum Rauða hers-
ins í Schwerin í Þýskalandi í gær.
Berlín. Reuter.
BROTTFLUTNINGI sovéskra
hersveita frá austurhluta
Þýskalands verður haldið
áfram samkvæmt áætlun þrátt
fyrir valdatöku harðlinu-
manna, sagði talsmaður sov-
éska hersins í gær. Flutningur-
inn hefur staðið yfir frá því
snemma á þessu ári og er áætl-
að að honum verði lokið fyrir
árið 1994.
„Brottflutningi hersveita og
vopna frá Þýskalandi verður hald-
ið áfram,“ hafði Leonid Los undir-
ofursti í gær eftir Matvei Bur-
lakov yfirmanni þess hluta sov-
éska heraflans sem ennþá er í
Þýskalandi, en hann telur um
290.000 manns.
Samkvæmt samningi sem gerð-
ur var á milli Gorbasjovs og Helm-
ut Kohl kanslara Þýskalands á
síðasta ári, er áætlað að brott-
flutningi sovéska heraflans frá
austurhluta Þýskalands verði lok-
ið fyrir árið 1994. Samningurinn
var síðar staðfestur af Æðsta
ráði Sovétríkjanna.
I yfirlýsingu Burlakovs sagði
að sovéski heraflinn sinnti nú
hefðbundnum skyldustörfum á
herstöðvum Sovétmanna, sem eru
víða í austurhluta Þýskalands.
Los vék sér undan að svara
spurningum fjölmiðlamanna um
það hvort atburðirnir í Sovétríkj-
unum í gær gætu haft áhrif á
brottflutning hersveitanna áður
en honum lyki árið 1994.
Hermenn á götum
en enginn í hættu
- sagði Hildur Guðrún Eyþórsdóttir í Moskvu