Morgunblaðið - 20.08.1991, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 1991
Nýir valdhafar í Sovétríkjunum:
Gorbatsjov sagður
þurfa á hvild að halda
Reuter
Mótmæli í Moskvu
Mótmælendur velta stórri járnpípu til að byggja vegatálma fyrir framan rússneska þingið í Moskvu í gær
eftir að ljóst varð að Míkhaíl Gorbatsjov Sovétforseta hafði verið steypt af stóli.
Dalía Bankauskaite, starfsmaður litháísku sendinefndarinnar í Moskvu:
Fólkið gefur hermönnun-
um blóm, ís og sígarettur
Reynslan frá Vilníus lofar ekki góðu
„FÓLKIÐ er vinsamlegt við hermennina í skriðdrekunum og
gefur þeim alls konar gjafir, til dæmis blóm, ís og sígarettur.
Það talar við þá og spyr: „Ætlið þið virkilega að skjóta okkur,
ykkar eigið fólk?“ sagði Dalía Bankauskaite, starfsmaður lit-
háísku sendinefndarinnar í Moskvu í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi. Hún hafði þá verið úti á götum Moskvu og fylgzt með
atburðum.
„Þegar ég opnaði fyrir sjónvarp-
ið í gærmorgun og ætlaði að fylgj-
ast með morgunfréttum voru engar
fréttir, heldur var allt önnur dag-
skrá en venjulega. Hún var fljót-
lega rofín til að lesa upp tilkynning-
ar frá neyðarnefndinni svokölluðu.
Þannig hefur það gengið fyrir sig
í dag, tilkynningar hafa verið lesn-
ar öðru hvoru en allur eðlilegur
fréttaflutningur er í lamasessi."
Bankauskaite sagði að um
klukkan sex eða sjö hefðu skrið-
drekar og brynvagnar byrjað að
streyma inn í Moskvuborg frá her-
búðum í úthverfunum. „Fyrst komu
brynvagnar í smáhópum, síðan sá
ég langa röð af herbílum streyma
eftir Leníngrad-götu. Flestir fóru
til þinghúss Rússlands og um-
kringdu það, en margir skriðdrekar
óku einnig í átt til Kremlar."
Bankauskaite sagði að um
þrjátíu brynvagnar hefðu ekið inn
í Kremlarvirki, aðsetur æðstu
stjómvalda Sovétríkjanna. „Mér er
sagt að þeirra menn hafi beðið inn-
an múranna. Þeir lokuðu öllum hlið-
um Kremlar og rýmdu Rauða torg-
ið,“ sagði hún.
„A hádegi safnaðist fólk saman
til fjöldafundar á Manies-torgi, rétt
hjá Rauða torginu, þrátt fyrir
fundabann neyðarnefndarinnar.
Torgið er hefðbundinn fundarstað-
ur umbótasinna í Moskvu, þar var
morðunum í Vilníus í janúar til
dæmis mótmælt. Að fundinum
loknum gekk mannfjöldinn fylktu
liði eftir Kalinin-götu til þinghúss
Rússlands. Á leiðinni talaði fólk við
hermennina og reyndi að fá þá til
að ganga í lið með sér. Þegar til
þinghússins var komið, var þar
þegar fjöldi fólks, sem var byijað
að reisa götuvígi. Jeltsín hefur
komið út á torgið við þinghúsið
nokkmm sinnum í dag, og um
klukkan átta í kvöld hélt hann
ræðu, þar sem hann skoraði á fólk
að safnast saman og verja þinghús-
ið. Ég ætla út á eftir að fylgjast
með — ég á von á að mannfjöldinn
verði við þinghúsið í alla nótt,“
sagði Bankauskaite.
Hún sagði að á hádegi í dag
hefði verið boðaður fjöldafundur á
Manies-torgi á hádegi; Lushkov,
varaborgarstjóri Moskvu, hefði gef-
ið út tilkynningu, þar sem hann
hvetti fólk til að leggja niður vinnu
og koma á fundinn.
Bankauskaite sagði að meðal
Moskvubúa ríkti uggur og skelfing,
þótt fólk reyndi að sinna sínum
daglegu störfum. „Fólk hefur verið
hvatt til að sýna nýju valdhöfunum
þögla og friðsamlega andspyrnu,
en ekki að æsa til átaka. Við vitum
ekki hvað mun gerast. Hefur of-
beldið náð hámarki eða á þetta
Utanríkisráðherrar Evrópu-
bandalagisns (EB) hittast á
skyndifundi i Haag á Hollandi
í dag til þess að ræða sameigin-
leg viðbrögð við valdaráninu í
Sovétríkjunum. Gert er ráð fyr-
ir að utanríkisráðherrar Atl-
antshafsbandalagsins (NATO)
komi saman til fundar í Brussel
innan skamms til að fjalla um
sama efni. Samkvæmt heimild-
um í Brussel kemur til greina
að boðað verði til sérstaks leið-
eftir að versna? Þegar sovézki her-
inn réðist á almenning í Vilníus í
janúar hafði verið kyrrt í nokkra
daga og allir héldu að það versta
togafundar EB vegna atburð-
anna í Sovétríkjunum.
í stuttri yfirlýsingu sem Manf-
red Wörner, framkvæmdastjóri
NATO, sendi frá sér að loknum
fundi fastafulltrúa aðildarríkjanna
í Brussel í gær segir m.a. að
síðustu atburðir í Sovétríkjunum
séu sérlegt áhyggjuefni. Sagt er
að aðildarríkin muni fylgjast
grannt með þróuninni og hafa um
það náið samráð. Búist er við því
Moskvu. Reuter.
MÍKHAÍL Gorbatsjov, sem steypt
var af stóli forseta Sovétríkjanna
í fyrrinótt, „hvílist" nú á
Krímskaga, að sögn Gennadijs
Janajevs, varaforseta, sem tók við
embætti Gorbatsjovs. Segir
Janajev að Gorbatsjov hafi á
síðustu þremur árum þreyst mjög
og þurfi nú tíma til að ná aftur
heilsu sinni. Hann kvaðst vona að
Gorbatsjov sneri aftur til skyldu-
starfa sinna þegar hann hefði náð
heilsu á ný.
í fyrstu tilkynningu hinna nýju
valdhafa sagði að Gorbatsjov væri
ófær um að sinna skyldustörfum
sökum heilsubrests. Gorbatsjov hef-
ur dvalið á Krímskaga frá 5. ágúst
og var ætlunin að hlusta á Chopin,
lesa og eyða tíma með bamabömun-
um. Ekki var um frí í þess orðs
fyllstu merkingu að ræða, sagði
Vítalíj Ignatenkó, talsmaður Gorb-
atsjovs, um það leyti sem hann hélt
væri afstaðið. En við sjáum hvað
gerðist þá. Það má segja að reynsl-
an lofi ekki góðu,“ sagði Dalía
Bankauskaite.
að utanríkisráðherrar NATO verðir
boðaðir á skyndifund á næstu dög-
um til að fjalla um ástandið í Sov-
étríkjunum en fastafulltrúar aðild-
arríkjanna hafa þegar komið sér-
staklega saman til að skiptast á
skoðunum um þróunina í Sovétríkj-
unum. Jacques Delors, forseti
framkvæmdastjórnar EB, mun
ásamt Frans Andriessen úr fram-
kvæmdastjóminni sækja sérstakan
fund utanríkisráðherra EB sem
haldinn verður í Haag í Hollandi
til Krímskagans enda var ætlunin
að æðri embættismenn kæmu til
fundar við hann þar. Fylgdist Gorb-
atsjov grannt með gangi mála í
Moskvu og ætlaði að halda þangað
20. ágúst. Þá var ætlunin að undir-
rita samkomulag við verkalýðsfélög-
in, sem átti að koma í veg fyrir ring-
ulreið í landinu.
Þegar Ignatenkó var inntur eftir
heilsu forsetans þáverandi sagði
hann Gorbatsjov hafa gengist undir
venjubundna læknisskoðun í upphafí
frísins og kvaðst ekki vita betur en
heilsa hans væri góð.
• •
Ongþveiti á
fjármagns-
mörkuðum
London. Reuter.
ÖNGÞVEITI ríkti á fjár-
magnsmörkuðum víða um
heim í gær eftir að fréttir
bárust af valdaráninu í Sov-
étríkjunum. Mikið verðfall
varð á hlutabréfamörkuðum,
og verð dollarans og olíu
hækkuðu mikið. Dollarinn
hækkaði um sex pfenninga
gagnvart þýska markinu,
þrátt fyrir aðgerðir þýska
seðlabankans til að hemja
hækkun hans.
Verðfall á hlutabréfamörk-
uðum varð víðast hvar milli
fimm og átta af hundraði, þó
mest í Frankfurt og Hong Kong
þar sem DAX-vísitalan féll um
meira en níu hundraðshluta.
„Ástandið er aftur orðið eins
og það var á kaldastríðsárun-
um. Dollarinn selst, þar sem
hann er lengst frá Sovétríkjun-
um,“ sagði David Cocker yfir-
maður Chemical Bank í Lon-
don.
Gull, sem jafnan selst vel
þegar kreppa ríkir, hækkaði um
fjóra dollara um tíma en lækk-
aði aftur vegna ótta sem braust
út um að Sovétmenn gripu til
þess ráðs að selja gull fyrir
gjaldeyri.
Útgáfabönnuð
Moskvu. Reuter.
LEIÐTOGAR harðlínumanna
bönnuðu i gær útgáfu flestra
dagblaða í Sovétríkjunum. Nú er
heimilt að gefa út níu blöð sem
öll draga taum þeirra sem
steyptu Gorbatsjov fyrir utan
Izvestiu sem er frjálslyndara.
í tilskipun frá harðlínumönnum
sagði að einungis væri heimiluð
útgáfa níu dagblaða um óákveðinn
tíma en útgáfa róttækra og frjáls-
lyndra dagblaða var eitt áþreifan-
legasta merkið um þær breytingar
sem umbótastefna Gorbatsjovs
hafði í för með sér.
í dag. Á fundinum verður lögð
áhersla á að samræma viðbrögð
aðildarríkja EB við atburðunum í
Sovétríkjunum og hugsanleg áhrif
þeirra á samskipti EB við Sovétrík-
in. Nokkur aðildarríki EB hafa
þegar ákveðið að stöðva efnahags-
aðstoð við Sovétríkin þar til ljóst
verður hvort hinir nýju valdhafar
hyggjast virða skuldbindingar
Míkhaíls Gorbatsjovs, forseta, á
alþjóðavettvangi.
Sérstakir ráðherrafundir NATO og EB;
Fjallað um ástandið í Sovétríkjunum
Brussel, frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Mbl.