Morgunblaðið - 20.08.1991, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 1991
Skýrsla Ríkisendurskoðunar um Byggðastofnun:
Ekkert athugavert við skýrsl-
una í ljósi nýrra viðhorfa
- segir Halldór V. Sigurðsson ríkisendurskoð-
andi sem samþykkti reikninga Byggðastofnun-
ar áður en nýja skýrslan sá dagsins ljós
Halldór V. Sig-urðsson ríkisendurskoðandi, segir ekkert óeðlilegl við
þá staðreynd, að hann hafi samþykkt reikninga Byggðarstofnunar
aðeins sjö mánuðum áður en Ríkisendurskoðun birti dökka skýrslu
um stöðu stofnunarinnar. Hann leggur áherslu á að á þessum tíma
hafi orðið sljórnarskipti og að núverandi ríkistjórn hafi ákveðið að
hætta stuðningi við fiskeldi og Alafoss.
„Fyrirtæki út í bæ endurskoðaði
þessa reikninga sem ég skrifaði síð-
an upp á, og tek þá fulla ábyrgð á
endurskoðuninni. Menn verða að
athuga undir hvaða kringumstæð-
um endurskoðunin fór fram, en þá
voru bæði Alafoss og fiskeldið stutt
af stjómvöldum á þeim tima. Þegar
stjórnvöld nú og viðskiptabankarnir
ákveða að hætta að styðja við bak-
ið á þessum atvinnurekstri, verðum
við að meta hlutina í öðru ljósi. En
á meðan stjórnin sá ástæðu til að
styðja þar við, sáum við enga
ástæðu tii að afskrifa lán Byggðar-
stofnunar. Raunar gerðum við þá
athugasemd við útlán Atvinnu-
tryggingasjóðs í skýrslu a síðasta
ári, að um 15-20% af útlánum sjóðs-
ins mundi tapast, og niðurstöður
skýrslunnar nú eru í samræmi við
það sem við spáðum.“
Halldór leggur áherslu á, að
gagnrýni sú sem beinst hefur að
Ríkisendurskoðun sé óréttmæt, og
að hann telji að skýrslur þeirra sé
unnar af samviskusemi og fyllsta
hlutleysi. „Hefðum við viljað hag-
ræða hlutunum okkur í hag, eða
fela okkar álit sem skýrslan sýnir,
væri ekki torvelt að hagræða tölun-
um á þann hátt. En allar þær skýrsl-
ur sem frá okkur koma, eru unnnar
samkvæmt bestu samvisku og af
hlutleysi. Eg vísa því allri gagnrýni
á bug.“
Morgunblaðið/Ami Sæberg
Donald E. Banker, alþjóðaforseti Lionshreyfingarinnar og Erlendur
G. Eysteinsson, fjölumdæmisstjóri hreyfingarinnar á íslandi.
Lionshreyfingin á íslandi 40 ára:
Rækta birkiskóga
í tilefni afmælisins
ISLENSKA Lionshreyfingin er fjörutíu ára um þessar mundir. Lions-
menn og konur minnast afmælisins með ýmsu móti. Meðal annars á
að gróðursetja fjörutíu birkiplöntur á hvern meðlim hreyfingarinnar.
Meðal erlendra gesta í tilefni fertugsafmælisins er Donald. E. Banker,
alþjóðaforseti Lionshreyfingarinnar, sem bráðlega situr friðarráð-
stefnu samtakanna í Japan.
Magnús Kjaran var aðalforgöngu-
maður þess að stofna fyrsta Lions-
klúbbinn á íslandi. Hann var stofnað-
ur í Reykjavík 14. ágúst 1951. Nú
eru starfandi hérlendis 88 Lionsklúb-
bar, 16 Lionessuklúbbar og 1 Leó-
klúbbur, en meðlimir í honum eru á
aldrinum 14 til 26 ára. Alls e_ru
meðlimir Lionshreyfingarinnar á ís-
landi 3.300 talsins.
Núverandi fjölumdæmisstjóri Li-
onshreyfingarinnar á íslandi er Er-
lendur G. Eysteinsson. Hann segir
að starfsemi hreyfingarinnar þróist
stöðugt meira út í það að klúbbfélag-
ar leggi af mörkum vinnu að ákveðn-
um verkefnum auk hinnar velþekktu
fjáröflunar til góðgerðarmála. Sem
dæmi um slík vinnuverkefni nefnir
Erlendur landgræðslu og skógrækt.
Undanfarin ár hafa Lionsklúbbar á
þeim svæðum Norðurlanda, sem eru
á sömu breiddargráðum og ísland,
safnað birkifræi og sent íslensku
hreyfingunni. Alls hafa með þessum
hætti borist nær 20 kíló af birkifræi
Reuter
Michael Sheehan á skrifstofu
sinni í Miami
hvað verstir, til dæmis í St. Paul.
Ég hef því miður ekki enn komið
til Islands, en hef verið nokkuð á
hinum Norðurlöndunum, og líkað
vel.“
Sheehan, sem er 31 árs gamall,
tók háskólapróf í fjölmiðlafræði í
Nebraska-fylki, og starfaði síðan
nokkuð við sjónvarp. Hann starfaði
síðan sem upplýsingafulltrúi fyrir
tvo bandaríska þingmenn á Capitol
■ Hill í Washington, áður en honum
bauðst það starf sem hann er í nú
fyrir um fimm árum síðan. Það
segir hann vera skemmtilegt, en
erfitt, ekki síst þar sem mikið er
um smygl á eituriyfjum frá syðri
hluta álfunnar til suð-austurhluta
Bandaríkjanna.
til landsins. Að jafnaði má reikna
með sex til átta hundruð þúsund
ttjám úr hveiju kílói af fræi, þannig
að birkiskógur Lionshreyfmgarinnar
verður myndarlegur, ef öll þau tré
ná að festa rætur og þroskast.
Á næsta ári er auk þess fyrirhug-
að að Lionsfélagar planti að jafnaði
40 birkiplöntum hver í tilefni fertugs-
afmælisins í ár. Bæði þessi skóg-
ræktarverkefni eru unnin í samráði
við Skógrækt ríkisins. .
Annað stórt verkefni íslensku Li-
onsfélaganna um þessar mundir er
það sem þeir kalla Pólska verkefnið.
Þar er um að ræða samstarf klúbb-
anna á öllum Norðurlöndum, sem
miðar að því að aðstoða við uppbygg-
ingu hreyfingarinnar í Póllandi. Þá
er einnig fyrirhugað að klúbbamir á
Norðuriöndum afli fjár til aðstoðar
pólskum börnum, sem fæðst hafa
með heilalömun.
Umdæmisstjóri Lionshreyfingar-
innar norðanlands og vestan er
Gunnar Oddur Sigurðsson, en Ólafur
Briem er umsdæmisstjóri sunnan
iands og austan. Jón Bjarni Þor-
steinsson er formaður afmælisnefnd-
ar hreyfingarinnar. Þeir félagarnir
lögðu á það áherslu í samtali við
Morgunblaðið, að aðalmarkmiðið
með starfseminni væri að leggja þeim
lið sem hjálpar væru þurfi. Þessi lið-
veisla væri oftast í formi fjárhagslegs
stuðnings. Þann góða árangur sem
hreyfmgin hefði iðulega náð í fjáröfl-
unum sínum sögðust þeir þakka því
að almenningi væri fyrirfram gerð
grein fyrir því til hvers fénu yrði
varið.
Að sögn þeirra félaganna eru sjóð-
ir hreyfingarinnar tveir og algerlega
aðskildir. Annars vegar er líknarsjóð-
urinn. Fjár til hans er aflað meðal
almennings. Hins vegar er félaga-
sjóðurinn. Fé í hann kemur frá félög-
unum sjálfum, einkum í formi félags-
gjalda, og er honum varið til rekstr-
ar klúbbanna.
Donald E. Banker, alþjóðaforseti
Lionshreyfmgarinnar, var gestur ís-
lenskra Lionsfélaga í tilefni afmæl-
isins. Hann segist vera eins konar
sendiherra tæplega 40 þúsund
klúbba í rúmlega 170 iöndum. Ban-
ker segir að Lionshreyfingunni sé
það kappsmál að leggja lóð sín á
vogarskálamar í þágu friðar í heim-
inum. Dagana 24. - 31. ágúst næst-
komandi efnir Lionshreyfmgin til
friðarráðstefnu í Japan. Ráðstefnuna
munu sitja félagar víðs vegar að úr
heiminum, jafnt úr áustri og vestri.
Að sögn Bankers er fyrirhugað að
afhenda Sameinuðu þjóðunum álykt-
un ráðstefnunnar til þess að gera
þeim grein fyrir því mikla friðarafli
sem búi í félögum Lionshreyfingar-
innar um allan heim.
Mjög stoltur af íslensk-
um uppruna mínum
Listamenn hljóta viðurkenningar
Morgunblaoið/KGA
Tveir listamenn hlutu viðurkenningar frá Reykjajvíkur-
borg sunnudaginn 18 ágúst. Auður Hafsteinsdóttir,
fiðluleikari, fékk 3 ára starfslaun frá borginni en Kjart-
an Ólafson, myndlistamaður, var valinn borgarlista-
maður og 'fékk eins árs starfslaun. Myndin er tekin
við afhendingum viðurkenninganna í Höfða. Lengst til
vinstri á myndinni er Hafsteinn Hafsteinsson, sem tók
við viðurkenningunni fyrir Auði dóttur sína, næstur
honum er Markús Öm Antonsson, borgarstjóri, sem
afhenti viðurkenningarnar, og Kjartan Óiason, borgar-
listamaður. Við sama tækifæri voru afhentar viður-
kenningar fyrir fallega garða og hús í Reykjavík, en
fegursta gata borgarinnar var valin Holtasel.
— segir Michael Sheehan talsmaður tollayfirvalda í Miami
í VIKUNNI sem leið komst á Miami í Bandaríkjunum upp um vopna-
smyglara, sem höfðu ætlað sér að smygla vopnum til Króata í Júgó-
slavíu með viðkomu á Islandi. I tengslum við þennan atburð hafði
Morgunblaðið samband við tollayfirvöld á Miami — og viti menn,
sá sem varð fyrir svörum sagðist vera íslendingur, að minnsta kosti
að hluta, og nefndi það sem dæmi um þjóðræknina að fjölskylda
sín héldi 17. júní ætíð hátíðlegan, og að sér hefði stundum dottið í
hug að flytjast hingað til lands.
„Þannig háttar til að afi minn,
Halldór Guðmundsson, fluttist sem
ungur drengur vestur um haf til
Kanada laust fyrir aldamótin,"
sagði Michael Sheehan, sem er yfir-
maður upplýsingadeildar tollayfir-
valda í suð-austurhluta Bandaríkj-
anna. „Við systkynin erum stolt af
íslenskum uppruna okkar, og þrátt
fyrir að ýmsir kunningjar okkar
skopist að þjóðrækninni í okkur
finnst okkur einfaldlega fróðlegt
og skemmtilegt í senn að rækta
tengsl okkar við landið."
Sheehan sagði, að afi sinn hafi
upp úr aldamótunum flutt til St.
Paul í Minnesota í Bandaríkjunum,
en þar er Sheehan fæddur. „Því
miður var afi minn dáinn þegar ég
fæddist, en innan ijölskyidunnar
ganga af honum miklar sögur,“
sagði Sheehan. „Systursonur minn
er kallaður Hal í höfuðið á honum.“
Fjöiskylda Sheehans safnast
ætíð saman á heimili systur hans
í Washington á 17. júní og heldur
daginn hátíðlegan. „Við drögum
íslenska fánann að húni, og gerum
okkur svo glaðan dag. Við þessi
tækifæri gluggum við gjarnan í
fornbókmenntirnar, en íslenska
sendiráðíð hefur verið okkur innan
handar við að útvega þýðingar á
þeim. Við höfum átt ógleymanlegar
stundir við að lesa í þessum sögum
og ræða um þær og sögusvið
þeirra,“ sagði Sheehan. „Á 17. júní
fyrir tveimur árum vorum við sam-
an komin í garði systur minnar
þegar maður sem átti leið hjá með
fjölskyldu sína fór að forvitnast um
hvernig stæði á að við flögguðum
íslenska fánanum á þessum degi.
Kom þá í ljós að hann var íslending-
ur, Sigfús Gauti Þórðarson, sem
mér skilst að starfi hjá íslenska
Seðlabankanum. Við buðum þeim
í mat, og síðan þetta var höfum
við haldið sambandi við hann og
fjölskyldu hans, og hefur hann ver-
ið að grepnslast fyrir um ættingja
okkar á íslandi fyrir okkur. Þetta
fannst okkur frábær tilviljun."
Sheehan sagði, að sér hefði
stundum dottið í hug að flytjast til
íslands. „Mér skilst að til sé ein-
hverskonar áætiun um embættis-
mannaskipti á milli íslenskra og
bandarískra yfii-valda, sem mér
finnst mjög áhugaverð," sagði
hann. „Ég vildi gjarnan búa í tvö
til þijú ár á Islandi. Ég hugsa að
veðráttan myndi ekki koma mér í
opna skjöldu, því meirihluta ævi
minnar hef ég búið á þeim svæðum
í Bandaríkjunum þar sem vetur eru