Morgunblaðið - 20.08.1991, Page 28
28
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGUST 1991
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúarritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakurh.f., Reykjavík
Flaraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guðmundsson,
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Ritstjórn ög skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðal-
stræti 6, sími 691111. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 691122. Áskriftar-
gjald 1100 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið.
Valdarán í Moskvu
Það versta hefur gerzt,“ sagði
Shevardnadze, fyrrum ut-
anríkisráðherra Sovétríkjanna,
við blaðamenn í Moskvu í gær
er hann ræddi um valdaránið í
Kreml. Undir þau orð er tekið
í flestum ríkjum heims. Svo
miklar vonir hafa verið bundnar
við umbótastefnu Gorbatsjovs,
forseta Sovétríkjanna. Raunar
hefur stefna hans í utanríkis-
málum þegar skilað stórkostleg-
um árangri frá sjónarhóli Vest-
urlandabúa: frelsun Austur-Evr-
ópuríkjanna, sameining Þýzka-
lands, fall Berlínarmúrsins,
endalok kalda stríðsins og samn-
ingar um gagnkvæma afvopn-
un. Þetta er ótrúleg bylting á 6
árum og mun nægja til þess að
halda nafni Gorbatsjovs á lofti
um langa framtíð, hver svo sem
niðurstaða átakanna, sem nú
standa yfir í Kreml, verður.
Þetta er ekki í fyrsta sinn,
sem leiðtogi Sovétríkjanna er
settur af með samsæri. En að
þessu sinni gerast atburðir í
tengslum við valdaránið, sem
aldrei áður hafa gerzt við svip-
aðar aðstæður í sögu Sovétríkj-
anna. Segir það meira en flest
annað um þær breytingar, sem
þrátt fyrir allt hafa orðið í Sov-
étríkjunum. Þeir, sem tóku völd-
in, hafa séð sig knúna til að
efna til blaðamannafundar og
færa fram rök fyrir gerðum
sínum. Það þurftu valdhafar í
Kreml ekki að gera'iyrr á árum.
Borís Jeltsín gengur laus,
a.m.k. þegar þetta er skrifað á
mánudagskvöldi. Hann er eini
pólitíski forystumaðurinn í Sov-
étríkjunum, sem sækir vald sitt
til fólksins, þar sem hann var
kjörinn forseti Rússlands í
fyrstu almennu atkvæðagreiðsl-
unni, sem fram hefur farið innan
Sovétríkjanna um pólitískt emb-
ætti frá valdatöku Kommúnista-
flokksins snemma á öldinni.
Jeltsín hefur hvatt hermenn til
þess að hlýða engum skipunum
um valdbeitingu. Jeltsín hefur
hvatt verkamenn til þess að
leggja niður vinnu og í gær-
kvöldi bárust fréttir um, að
námamenn í Síberíu og fleiri
hefðu þegar hlýtt kalli hans,
þótt honum hafi verið meinaður
aðgangur að fjölmiðlum.
I gærkvöldi gerðist það einn-
ig, að skriðdrekar tóku sér stöðu
við þinghúsið í Moskvu að því
er virðist til þess að verja Jeltsín,
ekki til þess að handtaka hann.
Þessi atburður veitir vísbend-
ingu um, að innan sovézka hers-
ins kunni að vera skiptar skoð-
anir um valdaránið.
Þeir, sem völdin tóku, ráða
yfir ijölmiðlum og hersveitum.
Þrátt fyrir það er ekki hægt að
ganga út frá því sem vísu að
valdataka þeirra hafi tekizt.
Misjöfn viðbrögð berast frá ein-
stökum lýðveldum innan Sov-
étríkjanna. Forystumenn sumra
þeirra styðja valdaránsmennina,
forystumenn annarra eru þeim
andvígir. Framvinda mála í dag
og næstu daga leiðir í ljós, hvort
borgarastyijöld er að bijótast
út í Sovétríkjunum eða hvort
nýrri einræðisstjórn tekst að
sölsa undir sig öll völd.
En jafnvel þótt hið síðar-
nefnda gerist verður ekki séð,
að slíkir valdhafar í Moskvu eigi
margra kosta völ. Sovétríkin eru
enn mikið herveldi en iðnaðar-
og efnahagsveldi þeirra er hrun-
ið. Það verður ekki byggt upp á
einum degi í krafti einræðis-
stjórnar, sem almenningur fyrir-
lítur og á eftir að fyrirlíta enn
meir. Hvað ætla þeir að gera?
Hvar ætla þeir að fá peninga
til þess að fæða þennnan gífur-
lega mannfjölda í vetur? Vara-
forsetinn, sem hefur tekið við
störfum forseta, kveðst ætla að
halda áfram stefnu Gorbatsjovs.
Hvers vegna var hann þá settur
frá völdum? Á þessari stundu
veit enginn hvað gerist'næstu
daga í þessu víðfeðma ríki.
Hitt vitum við, að innanlands-
ófriður í Sovétríkjunum getur
haft alvarlegar afleiðingar fyrir
heimsbyggðina alla og þá ekki
sízt Vesturlönd og alveg sér-
staklega Evrópuríkin. Nú er
komið í ljós, að sú stefna aðild-
arríkja Atlantshafsbandalagsins
að fara sér hægt í minnkun
varnarviðbúnaðar hefur reynzt
rétt. Vesturlönd geta enn þurft
á sameiginlegum hernaðarstyrk
sínum að halda vegna þess
ástands, sem er að skapast inn-
an Sovétríkjanna.
Verði valdaránið að veruleika
til frambúðar í. Sovétríkjunum
getum við íslendingar búizt við
harðari átökum við valdhafana
í Kreml vegna þeirrar ákvörðun-
ar okkar að viðurkenna sjálf-
stæði Litháens en ella hefði orð-
ið. Þessi nýju viðhorf breyta
ekki afstöðu okkar. Hugur okk-
ar er ekki sízt hjá Eystrasalts-
þjóðunum nú, þegar harðnar á
dalnum. Hins vegar er hyggilegt
að sjá hveiju fram vindur næstu
daga áður en við göngum endan-
lega frá samningum um stjórn-
málasamband við Litháen.
Þjóðir heims hafa bundið
miklar vonir við umbótastefnuna
í Sovétríkjunum. Þess vegna er
valdaránið í Moskvu gífurlegt
áfall. Hins vegar er ljóst, að
hinir nýju valdhafar, takist þeim
að festa sig í sessi, geta ekki
snúið atburðarásinni við. Þeir
geta stöðvað hana um skeið en
fyrr eða síðar brýzt ný umbóta-
hreyfing fram á sjónarsviðið.
VALDARANIÐ I KREML - Viðbrögð
Ríkisstjórn íslands fordæmir valdaránið:
Nauðsynlegt að rHá I
verði í viðbrasfðsstö
- segir forsætisráðherra
RÍKISSTJÓRN íslands fordæmir það valdarán sem átti sér stað í Sov-
étríkjunum í fyrrinótt. Davíð Oddsson forsætisráðherra segir það vekja
sér ugg að hópur harðlínukommúnista ráði nú hernaðarstyrk Sovétríkj-
anna, sem enn sé hinn sami og fyrr. Nauðsynlegt sé að ríki Atlantshafs-
bandalagsins verði í viðbragðsstöðu. Ríkisstjórnin muni hafa samráð
við bandalagsríkin, önnur Norðurlönd og ROSE-lönd. Stjórnvöld í hinum
fijálsa heimi verði að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að tryggja
að afleiðingar atburðanna í Sovétríkjunum verði ekki varanlegar.
Davíð Oddsson segir að ríkis-
stjórnin sé undrándi og hrygg yfir
atburðunum í Moskvu. „Sú ró sem
komin var á í Sovétríkjunum er ekki
lengur fyrir hendi,“ segir Davíð.
„Sovétríkin eru sama herveldi og
fyrr og það vekur ugg að harðlínu-
kommúnistar ráði nú vopnabúnaðin-
um. Það er athygli vert að floti lokar
höfnum Eystrasaltslanda, hermenn
og skriðdrekar eru ekki aðeins í mið-
borg Moskvu, heldur við fjölmiðla,
háskóla og aðra þá staði sem miklu
skipta ef til borgarastyijaldar kem-
ur.“
Davíð segir flest benda til að her-
inn, öfl jnnan gamla kommúnista-
flokksins og KGB hafi sameinast
gegn Mikhaíl Gorbatsjov. „En vissu-
lega hefur Borís Jeltsín, forseti
stærsta lýðveldisins og vinsælasti
maður þjóðríkisins, efnt til andófs
og skorað á alþýðu manna að fylgja
hvergi tilskipunum nýju valdhaf-
anna.
Á Vesturlöndum hafa menn
ímyndað sér að Jeltsín hefði heilmik-
il tök innan hersins, en talið æðstu
yfirmenn þar áhyggjufulla yfír að
Gorbatsjov hafi skaðað hagsmuni
hersins með samskiptum við Vestur-
lönd. Staða hans virðist því heldur
veik gagnvart Sovéther. Menn muna
kannski að þegar Níkíta Khrústsjov
var steypt á sinum tíma kom herinn
honum til bjargar."
Davíð kveðst ekki telja að atburð-
irnir í Sovétríkjunum hafí áhrif á
stöðu Þýskalands þótt þar séu enn
um 290 þúsund sovéskir hermenn.
„Ég held líka að Pólland, Tékkósló-
vakía og Ungveijaland séu komin
fyrir horn, en hef miklu meiri áhyggj-
ur af stöðu Eystrasaltslandanna,“
segir hann.
Er eitthvert sjálfstæði til að
viðurkenna?
Davíð kveðst óttast mjög að ekki
sé um tímabundið ástand að ræða,
þar sem hinir nýju valdhafar hafi
lýst því yfir að þeir muni einskis virða
sjálfstjómarrétt lýðveldanna. „ís-
lendingar hafa fyrstir þjóða viður-
kennt baráttu þeirra fyrir sjálfstæði,
Alþingi fól ríkisstjórn að undirbúa
formlegt stjómmálasamband við Lit-
háen og að því hefur verið stefnt.
En nú þarf að athuga hvort yfirlýs-
ing hinnar nýju miðstjórnar merki
að ekki sé lengur neitt til að viður-
kenna. Sé yfirlýsingin tekin bókstaf-
lega hafa stjórnvöld lýðveldanna í
Engar ráð-
stafanir hjá
Vamarliðinu
VARNARLIÐIÐ á Keflavíkur-
flugvelli greip ekki til neinna
sérstakra ráðstafa í gær vegna
atburðanna í Sovetríkjunum.
Terry Bamthouse, blaðafull-
trúi hjá Vamarliðinu, sagði í gær
að engar óvenjulegar aðgerðir
væm í gangi. Hún sagði að vita-
skuld yrði fylgst náið með hveiju
fram yndi í Sovétríkjunum. En
ekkert yrði aðhafst af hálfu
Bandaríkjahers utan venjulegra
eftirlitsstarfa við landið, nema
boð bærust frá þar til bærum
aðilum.
raun verið sett af. Við lítum þó auð-
vitað svo á að ríkisstjómir í hveiju
þeirra séu enn rétt stjórnvöld."
í ályktun ríkisstjórnarinnar, sem
birt er sérstaklega í blaðinu, segir
Davíð notuð sterk orð, sem stjórn-
völd hafi ekki notað áður um valda-
skipti í Sovétríkjunum. „Við tölum
um valdarán," segir Davíð, „og geP
um til kynna að sú stjórn sem nú
hefur verið komið á í Kreml sé ólög-
leg stjórn.
Við vitum að fyrri stjórn var ekki
komið á með almennum kosningum
Sovétborgara. Við vitum líka að regl-
um var búið að breyta þannig að
næstu stjórnarskipti hefðu átt að
verða með lýðræðishætti. Þess vegna
sæta þessir atburðir miklu meiri
tíðindum en forðum, til að mynda
þegar Khrústsjov va’r settur af 1964.
I huga mér er fyrst og síðast samúð
með íbúum Sovétríkjanna sem eygt
höfðu frelsi og lýðræði og er nú hót-
að ofbeldi beygi þeir sig ekki undir
ok afturhaldsafla á ný.“
Fundur utanríkisráðherra og sovéska s
Sendiherra Sovéti
burðina löglega o
Jón Baldvin telur líklegra en ekki að
„HEFUR þróun undanfarinna mánaða í átt til lýðræðis og réttarríkis
stöðvast í Sovétríkjunum? Þetta er sú spurning sem fyrst vaknar
eftir valdaránið í Kreml,“ segir Jón Baldvin Hannibalsson utanríkis-
ráðherra. Hann telur mikla hættu á að til borgarastyrjaldar komi í
kjölfar þess. Jón lýsir sérstaklega áhyggjum af framtíð Eystrasalts-
þjóðanna. Hann kvaddi Igor Krasavín, sendiherra Sovétríkjanna á
Islandi, á sinn fund í gær og afhenti honum yfirlýsingu sína og ríkis-
sljórnarinnar um valdaránið. Sendiherrann lýsti því sjónarmiði, að
sögn Jóns, að atburðirnir væru innanríkismálefni Sovétríkjanna og
farið hefði verið að sovéskum lögum. Jón Baldvin segir að stjórnar-
skrá Sovétríkjanna geymi ákvæði um forsetaskipti og að eftir þeim
hafi ekki verið farið.
Jón Baldvin segist telja líklegra
en ekki að til borgarastyijaldar
dragi í Sovétríkjunum. „Nýja stjórn-
in hefur lýst yfir neyðarástandi en
Jeltsín leitað til almennings um að
sýna andstöðu við aðgerðirnar með
virkum hætti. Þá hljóta menn að
spyija: Verður hervaldi beitt? Fari
svo getum við orðið vitni að hroða-
legu blóðbaði og borgarastyijöld.
Það þarf ekki að líta lengra í dæma-
skyni en til Júgóslavíu.“
Hvað gildi samninga um afvopn-
un varðar segir Jón nauðsynlegt
að meta stöðu mála eftir því sem
atburðum í Sovétríkjunum vindur
fram. Hann segir einungis hægt að
benda á að fram komi í yfirlýsingu
nýrra valdhafa að þeir hyggist virða
alþjóðasamþykktir. Óneitanlega sé
ástandið eldfimt.
Jón segist hafa áhyggjur af Eyst-
rasaltslöndunum. „Þessar þjóðir
telja sig með óiögum og valdbeit-
ingu hafa verið þvingaðar til að
vera innan sovétsamveldisins. Þær
hafa lýst því yfir að þær muni ekki
skrifa undir hin nýju sambandslög
og það er líklega ekki tilviljun að
þetta valdarán hafi átt sér stað
degi áður en til stóð að undirrita
þau lög.“
Yfirlýsing Jóns Baldvins
Yfirlýsing utanríkisráðherra
vegna atburða í Moskvu er á þessa
leið: „Hin válegu tíðindi frá Sovét-
ríkjunum um að Gorbatsjov forseta
hafi verið velt af valdastóli og lýst
hafi verið yfir neyðarástandi, dag-
inn fyrir undirritun hins nýja sam-
bandslagasamnings, vekur ugg og
Ríkisslj
dæmir \
HÉR fer á eftir í heild yfirlýs-
ing ríkisstjórnar íslands vegna
valdaránsins í Kreml:
„Ríkisstjórn íslands fordæmir
það valdarán sem átti sér stað í
Sovétríkjunum í nótt. Þjóðir sem
virtust á leið til lýðræðis eru
snögglega hnepptar á ný í fjötra
afturhalds og harðstjórnar. Mjög
áríðandi er að ríkisstjórnir Vestur-
landa og alis hins fijálsa heims