Morgunblaðið - 20.08.1991, Qupperneq 32
32
Master floor
Níðsterkt parket
kr. 2.669,-fm.
Þolir Þolir votn og fitu
vindlingaglóó
PARKET
Gegnheilt-svissneskt
gæðaparket
pússað og lakkað
Eik Beyki
Askur Merbau
verð frá 2.300. —
WG með harðri setu
kr 13.900,-
Handlaug á fæti
kr. 2.300,—
Baðkör i 70x70
kr N.600,-
zík3LRSTiiFElL
Bíldshöfða 14,112 Reykjavík,
símar 91-672545/676840.
MORGUNBLAÐIÐ vmsrapnAiviNNULír ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 1991
Rannsóknir
„Munum veita fjár-
hagslega fæðingarhjálp“
— segir Lauritz Holm-Nielsen stjórnarformaður Norræna rannsókna-
háskólans
STJÓRNARFUNDUR Norræna rannsóknaháskólans (NorFa) var á
Isafirði á fimmtudag og föstudag. Skólinn hóf starfsemi sína í upp-
hafi þessa árs. Meginmarkmið hans er að stuðla að auknu norrænu
samstarfi á sviði rannsóknamenntunar og að auðveida samvinnu við
rannsóknir innan Norðurlandanna þannig að vísindamenn á Norður-
löndum hafi aðgang að allri sérþekkingu og rannsóknaraðstöðu sem
til er á svæðinu.
í samtali við Morgunblaðið sagði
Lauritz B. Holm-Nielsen stjórnar-
formaður Norræna rannsóknarhá-
skólans að háskólanum sé ætlað að
stuðla að því að þróa ný svið fram-
kvæmda og samvinnu með fjár-
stuðningi og samræmdum aðgerð-
um. NorFa veitir þannig styrki til
rannsóknarnámskeiða og ráðstefna
og einnig til einstaklinga, til að
mynda gestafyrirlesara, gesta-
vísindamanna og norrænna leið-
beinenda.
Samstarf af þessu tagi milli
Norðurlandanna hefur átt sér stað
í nærfellt 20 ár og alls munu 1500-
2000 manns hafa notfært sér það
á hverju ári. Nú munu þessi verk-
efni færast á hendur Norræna rann-
sóknarskólans en með því fjármagni
sem hann hefur til umráða er áætl-
að að allt að 3000 einstaklingar
muni koma til með að njóta styrkja
til þátttöku í rannsóknarmenntun
eða rannsóknarstarfi á vegum
stofnunarinnar árlega.
„Norræni rannsóknarháskólinn
mun ekki reka rannsóknarstöðvar
sjálfur," sagði Holm-Nielsen. „Hlut-
verk hans er einungis að koma fót-
um undir norræn samvinnuverkefni
á rannsóknarsviðinu, að veita eins
konar fjárhagslega fæðingarhjálp.
Við munum hins vegar ekki láta
okkur nægja að viðhalda og þróa
þá starfsemi sem hefur átt sér stað
innan vébanda norrænu ráðherra-
nefndarinnar heldur leita nýrra
leiða í norrænu rannsóknasam-
starfi. Þannig mun NorFa veita
styrki til að koma á fót rannsóknar-
netum, þar sem a.m.k. 3 rannsókn-
arhópar í a.m.k. 3 löndum vinna
saman.“
Það var Norræna ráðherranefnd-
in sem ákvað að stofna þennan
rannsóknaháskóla árið 1990 og
fjármunir hans koma frá henni.
Megintakmark NorFa er að styrkja
gæði og auka framboð á rannsókn-
armenntun á Norðurlöndum með
það fyrir augum að Norðurlöndin
komi til með að starfa sem sameig-
inlegt menntunarsvæði á sviði
vísindarannsókna.
Ekki er verið að leitast við að
láta norræna samvinnu koma í veg
fyrir alþjóðlegt samstarf heldur er
skýrt markmið með starfi háskólans
að norrænt samstarf stuðli að því
að rannsóknir og rannsóknamennt-
un á Norðurlöndum verði með al-
þjóðlegu sniði. Vel þróuð norræn
samvinna muni gera hinar norrænu
rannsóknareiningar áhugaverðari
sem þátttakendur og samstarfsaðila
á alþjóðlegum vettvangi. NorFa á
heldur ekki að stuðla að því að sam-
ræma rannsóknamenntun á Norð-
urlöndum heldur mun hún færa sér
í nyt sérstöðu hvers lands fyrir sig.
Þannig hafa íslendingar vissa sér-
stöðu á sviði eldfjalla- og jarðhita-
rannsókna og hafrannsókna sem
Norræni rannsóknaháskólinn mun
að sjálfsögðu reyna að notfæra sér.
Með yfirstjórn háskólans fer
samnorræn stjórn og það er hún
sem fundaði á ísafirði á fimmtudag
og föstudag. Hana skipa tíu menn,
tveir frá hveiju Norðurlandanna.
Fulltrúar Islands eru Brynjólfur
Sigurðsson prófessor og Þórdís
Kristmundsdóttir prófessor.
„Stjórnin fundar fjórum sinnum á
ári,“ segir Lauritz Holm-Nielsen.
„Hún reynir að hafa samband við
sem fiesta til að tryggja að bestu
hugmyndirnar séu styrktar, til að
mynda íslenska Háskólann,
Menntamálaráðuneytið og Vísinda-
sjóð.
Styrkirnir eru eingöngu veittir
út frá faglegum sjónarmiðum. Engu
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
RAIUNSOKNIR —
Lauritz Holm-Nielsen, stjórnar-
formaður Norræna rannsókna-
háskólans.
máli skiptir hvaða landi hugmynd-
irnar koma frá, við höfum engan
kvóta. Allar styrkveitingar eru af-
greiddar með víðtækri samstöðu.
Stjórnarmenn eru hver frá sinni
vísindagrein og við reynum að færa
okkur það í nyt.“
Um daglegan rekstur háskólans
fer lítil skrifslofa sem er nú í Kaup-
mannahöfn en flyst til Osló 1.
janúar n.k. og mun síðan flytjast
milli landa eftir því af hvaða þjóð-
erni framkvæmdastjórinn er. Fram-
kvæmdastjóri hefur verið ráðinn
Norðmaðurinn Leif Egil Westgaard
og tekur við störfum 1. nóvember.
Tölvur
GEISLADISKAR OG TÖLVUR — Steinþór Grímsson
hjá TÖK hf. viá CD ROM drifið og diskana sem innihalda mikið magn
upplýsinga. I drifinu er geisladiskur með World Atlas sem geymir
yfir 240 kort og fjölda blaðsíðna af upplýsingum. Fyrst birtist kort
af hnettinum og er þá hægt að velja tiltekið svæði, meðal annars er
hægt að biðja um kort af Islandi.
Geisladiskar sem innihalda
mikið magn upplýsinga
TÖLVUÞJÓNUSTA Kópavogs hf., TÖK, hefur hafið sölu á CD ROM
drifi sem framleitt er af Sony og geisladiskum með gögnum. CD
ROM drifið byggir á ISO 9660 staðli sem gerir kleift að lesa hvaða
geisladisk sem er. Diskarnir gela geymt allt að 650 MB og eru af
sömu gerð og notaðir eru í venjulega geislaspilara.
Steinþór Gjtmsson tæknimaður
hjá TÖK segir CD ROM drifin sér-
staklega hentug fyrir bókasöfn,
skóla, námsmenn og atvinnumenn
sem þurfa að fletta upp miklu
magni af upplýsingum.
Auk þess að lesa gögn er hægt
að nota • CD ROM drifið eins og
geislaspilara. Mögulegt er að hlusta
á venjulega geisladiska hvort sem
er með heyrnartækjum eða með því
að tengja drifið við magnara og
hátalara. Með CD ROM drifinu
fylgja 6 diskar. Fjórir þeirra eni frá
The Software Toolworks Corp., hin-
ir tven iia oouy og vvond Libtary
Inc. Fleiri diskar eru fáanlegir hjá
TÖK.
Á diskunum eru meðal annars
alfræði orðabók með 9.000.000 orð-
um og þúsundum mynda, uppfletti-
rit af ýmsu tagi, 450 bækur á ensku
í fullri lengd meðal annars með leik-
ritum og Ijóðum. Þá eru rit um
heimspeki, trúarbrögð og vísindi,
World Atlas sem geymir yfir 240
kort og fjölda blaðsíðna af upplýs-
ingum og sérstakt kort af Banda-
ríkjunum. Einn diskanna inniheldur
132 orðabækur þar sem um er að
ræða 12 tungumál.
Bifreiðar
Slökkviliðsbifreið
sýnd um landið
KRAFTUR hf. hefur undanfarin 8 ár flutt til landsins 9 nýjar
slökkviliðsbifreiðar. Bifreiðarnar eru af gerðinni Man með yfirbygg-
ingu frá H.F. Nielsen í Danmörku. Á næstu vikum verður farið um
Iandið og sýnd sérhönnuð slökkviliðsbifreið sem talin er henta vel
slökkviliðum um allt land.
í fréttatilkynningu segir að
ástæða sýningarferðarinnar sé að
samræma uppbyggingu slökkviliðs-
bifreiða sem henta landsbyggðinni
auk þess að tryggja bestu mögulegu
þjónustu fyrir brunavarnir landsins.
Undirvagn sýningarbifreiðarinn-
ar er af gerðinni Man 9.150 FAE
og er frambyggð með framdrifi,
sætum fyrir 1-2 menn, 150 hest-
afla dieselvél, samhæfðum 5 gíra
gírkassa, hátt og lágt drif í milli-
kassa, 12,5R20 hjólbörðum, loft-
fjaðrandi ökumannssæti ásamt öðr-
um sérútbúnaði. Einnig er í yfír-
byggingu Ruberg dæla R30/2,5
afköst 3000 lítrar á mínútu við 2,5
m soghæð v/10 bar, háþrýst 400
lítrar á mín v/40 bar, vatnstankur
2000 lítra, froðukerfi með 80 lítra
tank, 2 stk háþrýstislöngukefli raf-
drifin og með 2x60 metra háþrýsti-
slöngu. Auk þess er 6 metra Clark
ljósamastur með 2x1000 W-kast-
ara, Honda ljósavél 4500 wött,
Tohatsu laus dæla, 11 metra ál-
stigi, slöngur og tengistykki.
Morgunblaðið/KGA
SLÖKKVIBIFREIÐ — Fyrir framan bifreiðina sem sýnd
verður talið frá vinstri: Eric Lehn umboðsmaður Nielsen, Erlingur
Helgason forstjóri Krafts og Guðmundur Guðmundsson leiðangurs-
stjóri.