Morgunblaðið - 20.08.1991, Side 44

Morgunblaðið - 20.08.1991, Side 44
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGUST 1991 l'"r1 —r* H—r——H—H í——i— Halldóra Daníels- dóttír - Minning Fædd 1. júní 1899 Dáin 10. ágúst 1991 í dag, þriðjudaginn 20. ágúst, verður frú Halldóra Daníelsdóttir, Fellsmúla 10, Reykjavík, jarðsett frá Dómkirkjunni í Reykjavík klukkan hálf tvö eftir hádegi. Hún andaðist 10. ágúst sl. á Borgarspítalanum eftir fárra daga legu þar. Halldóra fæddist í Klettakoti á Skógarströnd 1. júní 1899. Hún var dóttir heiðurshjónanna Daníels Jónatanssonar og Jóhönnu Önnu konu hans er þar bjuggu þá. Fimm ára gömul fluttist hún með foreld- rum sínum að Haukabrekku, sem er næsti bær við Klettakot. Þar ólst hún upp hjá þeim til fullorðins- ára ásamt einum bróður, Óskari Daníelssyni, sem víða varð þekktur sem mikill hagleiksmaður. Um tvítugsaldurinn kynntist Halldóra glæsilegum ungum pilti, Hermanni Ólafssyni, syni Ólafs Jóhannssonar bónda og oddvita í Ólafsey og konu hans Elínar Óla- dóttur. Hermann og Halldóra gengu í hjónaband árið 1921 og hófu þá búskap á Klungurbrekku. Klungurbrekka er næsta jörð við Haukabrekku og þurfti Halldóra því ekki að flytjast langt í burt frá foreldrum sínum. Halldóra var mjög vel verki farin ein og bróðir hennar, hún lærði saumaskap og þótti mjög flínk saumakona. Hermann var bæði mikill dugn- aðar- og hagleiksmaður, hann var smiður góður bæði á tré og járn. Oft var til hans leitað ef menn vantaði járn undir hestana, kengi og króka í dyrastafi, lamir og hesp- ur á hurðir og margt annað sem menn vanhagaði um. Alltaf var aðstoðin veitt fljótt og vel. Her- mann var mörg ár organisti í Breiðabólsstaðarkirkju. Þegar ungu hjónin Hermann og Halldóra hófu búskap á Klungurbrekku var ég á næsta bæ Setbergi, og naut ég alltaf gestrisni þeirra, alúðar og greiðvikni. Þegar ég og konan mín Sigurlaug Jónsdóttir fluttum að Ósi og byijuðum þar búskap árið 1933 áttum við því láni að fagna að eiga góða nágranna á öllum næstu bæjunum. Fljótt urðu samskiptin þó mest við Klungur- brekku, það er stytt á milli bæj- anna, skepnur frá Ösi sóttu nokkuð upp í Klungurbrekkuland og stund- um gat maður átt erindi til-að biðja annaðhvort hjónanna bónar, svo átti Hermann líka bát sem settur var í naust fyrir neðan túnið á Ósi og notaður var við að nytja eyjar sem Hermann hafði yfir að ráða. Líka fór Hermann oft kaupstaðar- ferðir á honum til Stykkishólms, og nutu þá nágrannarnir oft góðs af. Það var mikil snyrtimennska á búskapnum á Klungurbrekku, og myndarskapur í öllu heimilishaldi. Öllum gestum var tekið með rausn og alúð, og nutum við á Ósi þess í ríkum mæli. Þó að mörg erindin féllu til á milli bæjanna þá komum við nú stundum saman til að njóta skemmtilegs félagsskapar. Klung- urbrekkuhjónin voru skemmtilegir félagar, bæði félagslynd, glöð og hreinskiptin. Við hjónin söknuðum þeirra þegar þau fluttu úr nágrenn- inu. Hermann og Halldóra eignuðust fimm böm á Klungurbrekku. Þau eru: Unnur Lilja, Haraldur og Anna Elín, velgefin börn sem öll eiga heimili og tjölskyldur í Reykjavík, og tvíburadrengi sem þau misstu strax. Barnabörnin eru 10 og barnabarnabörnin 9. Árið 1946 fluttu þau hjónin frá Klungurbrekku til Reykjavíkur, og keyptu þá lítið hús á Holtsgötunni og bjuggu þar á meðan Hermann lifði, hann andaðist 1. nóv 1960, og flutti þá Halldóra til Önnu dótt- ur sinnar og Kjartans manns henn- ar, og átti þar heima næstu fjögur árin. Árið 1965 flytur hún svo í nýja íbúð í Fellsmúla 10 í félagi með dóttur sinni Unni og manni hennar Haraldi, þar hafði hún litla íbúð út af fyrir sig þar sem hún gat tekið á móti vinum sínum. Þarna hafði hún ákjósanlega aðstöðu í ellinni, að geta verið út af fyrir sig en þó í félagsskap fjölskyldu dóttur sinnar þegar hún vildi og í öruggu skjóli hennar. Eftir að við hjónin fluttum til Reykjavíkur árið 1968 heimsóttu þær oft hvor aðra, Halld- óra og Sigurlaug. Halldóra hringdi oft til okkar og bauð okkur í kaffi í litlu huggulegu íbúðinni sinni, hún var líka ólöt að heimsækja okkur, okkur til ánægju. Eftir að Sigur- laug var orðin heilsulítil kom hún oft til hennar til að halda henni selskap og gera henni langa daga skemmtilegri þegar hún var ein heima og hún sýndi trygglyndi sitt með því að halda því áfram meðan báðar lifðu. Nú eru þrjú af okkur fjórum sem oft hittumst til að eiga saman ánægjulegar stundir horfin yfir hin miklu landamerki lífs og dauða. Já, þannig endar lífsins sólskinssaga vort sumar stendur aðeins fáa daga en kannski á upprisunnar mikla morpi við mætumst öll á nýju götuhomi. (T-G.) Nú að leiðarlokum vil ég þakka þessari vinkonu okkar hjónanna fyrir þá tryggð og velvilja sem hún sýndi okkur frá fyrstu kynnum til æviloka. Ég bið henni Guðs blessunar. Bömum hennar og öðr- um aðkomendum og vinum óska ég gæfu og gengis. Guðmundur Daðason Það var nú um miðjan júlí er amma kom í heimsókn til mín að hún sagði að hún hefði nú haldið að síðasta heimsókn yrði sú síð- asta. En þessi heimsókn var sú síðasta. Amma hefur vitað að hveiju stefndi þó hún hafi ætíð þvertekið fyrir að nokkuð amaði að sér. Hún vildi vera fijáls eins og fuglinn og henni tókst það. Margs er að minnast er leiðir skilja og minningar liðinna ára hrannast upp. Á Holtsgötunni á ég mínar fyrstu minningar með afa og ömmu, en aðeins elstu barnabörnin voru þess aðnjótandi að geta heimsótt þau þar, því amma fluttist fljótlega eftir andlát afa til dóttur sinnar sem býr í sama húsi og foreldrar mínir. Ég ber nafn ömmu minnar og leit dagsins ljós á heimili hennar. Komst ég því upp með ýmislegt á yngri árum sem ég trúlega hefði annars ekki gert. Eg hikaði ekki við að íjúka til ömmu á Holtsgötu ef mér líkaði ekki eitthvað heima hjá mér, fékk áheym og að sjálfsögðu var amma sammála klögum mínum. Það var vinsælt að fá að gista og tilkynnti ég um leið hvers ég óskaði í mat- inn og var sú ósk jafnan uppfyllt og bar þá hæst á óskalistanum „hvíta súpan“ hennar sem borðuð var í lítratali. Amma fór með mig vestur þegar ég fór í fyrsta sinn í sveit til sumardvalar. Var ég fyrst með henni í nokkra daga á Hauka- brekku og fórum við saman í heim- sóknir á bæina í sveitinni. Þótti mér heldur daufleg vistin í sveit- inni eftir að amma var farin suður. Amma var í raun nútimabarn en ekki barn síns tíma. I mörgu var hún á undan sinni samtíð í hugsun og framkvæmd, enda tal- aði hún oft um að það hlyti að vera gaman að vera ungur í dag. Það væri hægt að læra og gera svo margt sem ekki var hægt í gamla daga. Hún hafði mjög gam- an af pólitískum umræðum og hitn- aði oft í kolunum þegar hún ræddi landsmálapólitík við aðra. Amma var fíngerð kona, mikil smekkmanneskja og mjög umhug- að um útlit sitt og klæðaburð. Það kom fram í heimsókn hennar til mín í sumar er við sátum úti í stól- inni og ég spurði hana hvers vegna hún væri búin að setja klút yfír sig er aðrir voru fáklæddir. Hún svaraði því til, að of mikil sól gerði manni ekki gott, hún gerði mann bara ellilegri. Þetta finnst mér lýsa ömmu vel, hún vildi alla tíð vera óaðfínnanleg í útliti. Amma var ekki fyrir að ræða aldur sinn og var svo ung í hugsun og kvik í hreyfingum að oft gleymdist hve fullorðin hún var og það var ein- mitt það sem hún vildi láta gleym- ast. Amma var ákaflega handlagin. Hún saumaði mikið á fjölskyldu- meðlimi sem og aðra og skipti þá ekki máli hvort um var að ræða prestshökkul, peysuföt eða tísku- fatnað. Á mínum unglingsárum, áður en tískuverslanir voru á hveiju strái, gat ég alltaf treyst hugmyndum ömmu um útlit og snið fatnaðar. Það kom líka þsjald- an fyrir að eftir að amma hafði Minning: Marín Magnúsdóttir Fædd 25. júlí 1896 Dáin 8. ágúst 1991 í dag verður til moldar borin amma okkar, Marín Magnúsdóttir frá Akurhúsum í Grindavík. Án þess að fara að rekja hennar æviferil, sem við vitum að var erfíður framan af, svo sem að ala upp og koma fjórum .drengjum á legg ein síns liðs, þá tókst henni ömmu þetta með reisn. Og reisn- inni hélt hún öll sín ár, þó svo að slysið sem hún varð fyrir 1968 hafí haft mikil áhrif á hana. Eftir langa sjúkrahúslegu flutti hún heim til okkar í Háagerði, og fékk nóg að starfa, því ungar stúlk- ur þurftu hjálp við handavinnu. Þolinmæðin sem hún amma bjó yfír var ærin og ekki komu nema hlý orð hversu oft sem rekja þurfti upp og pijóna aftur. En árið 1972 þurftum við að sækja lengra en á neðri hæðina eftir hjálpinni, því amma fékk íbúð í Norðurbrún 1, þegar húsið var tekið í notkun. Þá tók maður bara strætó, því fátt var skemmtilegra en að sitja og hlusta á frásagnir hennar, því hún kunni að segja frá bæði mönnum og málefnum á mjög skemmtilegan hátt, og aldrei var langt í spila- stokkinn. Einnig hafði amma þann hæfíleika að hlusta á aðra, og leit- aði maður oft til hennar með sín mál og alltaf fór maður ánægðari þaðan. Og ekki má gleyma geisp- unni sem allir þekktu og Mæja amma passaði að hafa góðgæti í fyrir litlar hendur, þó svo þær stóru leituðu eftir geispunni líka. Viljum við og fjölskyldur okkar minnast ömmu með hlýhug og þakklæti fýrir þau ár sem hún gaf okkur. Góður guð geymi ömmu okkar. Vertu guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni. Hönd þín leiði mig út og inn, svo aliri synd ég hafni. (HP Ps. 44). Guðrún og Jóhanna Fyrir rúmum fimm árum heim- sótti ég Marínu, þar sem hún bjó í lítilli, fallegri íbúð að Norðurbrún 1 í Reykjavík. Hún var níræð um þær mundir og var það tilefni heimsóknar minnar. Kannski var íbúðin ekki falleg, bara snotur, en Marín var falleg gömul kona og frá henni stafaði þróttur og yndi, svo að allt varð fagurt umhverfis hana. Sjald- an hafði ég séð hana, en oft heyrt á hana minnst, oftast af móður minni en þær voru góðar vinkonur í æsku og frænkur. Mér var ljóst, að sitthvað hafði á daga Marínar drifið og við leiðarlok hennar, skal nú eitthvað af því rifjað upp. Foreldrar hennar, hjónin Sigríð- ur Jónsdóttir og Magnús Ólafsson sjómaður, bæði fædd og uppalin á Suðurnesjum, eignuðust 12 börn og var Marín næstyngst. Þegar hún fæddist bjuggu þau í Akurhús- um í Grindavík. íbúðarhúsið stóð alveg fram við sjávarkambinn. Brimhljóðið var því það vöggulag og undirtónn sem oftast hljómaði á þeim bæ. Svo gerðist það 19. janúar 1925, í mesta stórflóði sem sögur fara af í Grindavík, að sjór- inn tók Akurhús af grunni og flutti það í heilu lagi langt inn á tún, eftir að fólk hafði flúið úr húsinu. Þá bjó frændfólk Marínar þar, en foreldrar hennar þá flutt að Hóp- skoti og síðar að Kvíhúsum. Marín var tápmikil telpa og tók mjög ung þátt í daglegum störfum á hinu barnmarga heimili og aðeins 11 ára var hún ráðin til Helga Magnússonar, kaupmanns í Reykjavík, til að gæta bama hans sem voru mörg. Því sumarstarfið hélt hún til fermingaraldurs. Vorið sem hún fermdist var hún ráðin til ársdvalar i Herdísarvík, til Þór- arins Árnasonar sýslumannssonar frá Klaustri og konu hans, Ólafar Sveinsdóttur, talin afburða hús- móðir, ættuð úr Garði. Undir bú- setu þeirra hjóna var Herdísarvík talin til höfðingjaseturs. Að því ári liðnu réðst hún aftur til Helga Magnússonar og konu hans, Oddrúnar Sigurðardóttur. Það er því augljóst að þeim hjónum hefur falið vel barnagæsla hennar og á sömu lund síðari störf henn- ar, þar sem þau kostuðu hana á Kvennaskólann. Gagnkvæm vin- átta mun hafa orðið milli þeirra og Marínar sem hún orðaði svo: „Helgi og allt hans fólk var yndis- legt fólk.“ Sumarið 1916 hugðist hún taka þátt í síldarævintýrinu á Siglufirði og afla vel á stuttum tíma, eins og röskra kvenna var siður í þá daga. Hún var því ein af þeim mörgu sem stigu um borð í strand- ferðaskipið Flóru í Reykjavík um miðjan júlí 1916 með Siglufjörð og fjáröflun þar að takmarki. Heimsstyijöldin fyrri var þá hvað áköfust. Sjóherir beggja stríðsaðila hömuðust á N-Atlantshafi og á Norðursjó og var því ferð þessi ekki áhættulaus. Frá Reykjavík var haldið vestur fyrir Reykjanes og austur með suðurströndinni. Skammt austan við Vestmannaeyj- ar var Flóra stöðvuð af ensku her- skipi. Eftir nokkurt þars milli skip- stjórnarmanna voru hermenn settir um borð í Flóru og henni snúið til Englands. Fyrst var komið til Lerwick á Shetlandseyjum, legið þar á ytri- höfn í viku og síðan farið til Leith, hafnarborgar Edinborgar og legið þar í „dock“ í tvær vikur. Við þær aðstæður rann upp 25 júlí, 20 ára afmælisdagur Marínar. Ekki var unnt að gera sér gleðistund á þeim degi, aðeins 2 krónur í buddu henn- ar og ekki var herleidda fólkinu veitt landgönguleyfi og heldur var vistin nöturleg í hertekna skipinu. Sérhver dagur glatað, tækifæri frá hressilegri erfiðisvinnu og nauð- . synlegri fjáröflun. Mikill fögnuður braust því út meðal fanganna er hinn nýi Goðafoss Eimskipafélags- ins kom til Leith og tók alla fajg- ana um borð og flutti þá til Is- lands. Eftir mánaðar herleiðingu var komið til Seyðisfjarðar. Þar var tekið á móti þeim með ræðuhöld- um, söng og ýmsum fagnaðarlát- um enda þótti fólkið úr helju heimt. Þaðan var haldið til Akureyrar og þar voru móttökumar enn stór- kostlegri, sannkölluð fagnaðarhá- tíð, því að margir Akureyringar voru á farþegalista Flóru. Þegar Marín komst loks til Siglufjarðar var langt liðið á síldarleyissumar og minna varð en til stóð um ríku- lega fjáröflun. Er suður kom réðst Marín ver- tíðarstúlka á heimaslóð í Grinda- vík, síðan næsta sumar í kaupa- vinnu í Borgarfirði og um haustið réði hún sig hjá Garðari Gíslasyni, heildsala í Reykjavík, þar sem hún var við ýmis störf í þijú ár. Góður vinskapur hélst við þá fjölskyldu alla tíð. Á þeim árum kynntist hún manni sínum, Thorvalds Gregers- en, jámsmið. Þau bjuggu í Reykja- vík og eignuðust 4 syni; Brynjúlf, Magnús, Ragnar og Helga. Þeir lifa allir nema Ragnar er dó 1988. Nú em afkomendur hennar orðinir um 70 sem dreifst hafa víða um landið. Þegar kreppan mikla svarf að þjóðinni um og eftir 1930 varð atvinnuleysi í flestum greinum. Þá vann Thorvald hvað sem bauðst. En svo kom að því að mehn með erlent ríkisfang fengu ekkert að gera og var nánast vísað úr landi. Þá stóð Marín frammi fyrir alvar- legasta vandamáli lífs síns. Thor- vald vildi leita fjölskyldu sinnar farsældar í heimalandi sínu, Nor- egi, en þar var atvinnuástand síst betra en á íslandi. Marín ákvað því að bíða átekta þar til séð yrði hvernig til tækist hjá manni sínum erlendis. Hér átti hún vini og vand- amenn sem rétta myndu hjálpar- hönd ef með þyrfti en þar með slitu þau sambúð. Kreppan varð langvinn og ströng og urðu marg- ir að lúta lágum örlögum af henn- ar völdum, en Marín sem alist hafði upp við þolgæði og strit allt frá barnæsku, gafst ekki upp. Hún var staðráðin í því að koma drengj- unum sínum til manns, gera þá að góðum og nýtum mönnum. Það tókst henni vissulega. Þeir urðu allir mestu myndar- og dugnaðar- menn. Eðlilega voru fjölbreyttar mannlífsmyndir og minningar, sumar bjartar, aðrar daprar, er liðu fyrir hugskotssjónum hennar 25. júlí sl., er hún hélt upp á 95 ára afmælið. Lífsreynslan hafði þrosk- að hana og þjálfað í að taka hveiju

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.