Morgunblaðið - 05.12.1992, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 05.12.1992, Qupperneq 2
;321 -5 :ní i. .; :i íu.us .l ;i .v l :i:- j ,i 3> u ;s <>v MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1992 Innbrot og íkveikja í verkstæðishúsi við þjónustustöð Olíufélagsins Morgunblaðið/Júlíus Um 70 slökkviliðsmenn börðust við eldinn og tókst að ráða niðurlögum hans áður en eldtungurnar læstu sig í næstu hús. Við lá að eldur læsti sig í dæluverkstæðið Settu lög- reglubún- ing í bök- unarofn Fáskrúðsfirði. LÖGREGLUBÚNINGI og húfu var stolið af lögreglu- stöðinni á Fáskrúðsfirði að- faranótt fimmtudags. Tveir menn voru síðar gripnir um borð í aðkomubát í höfninni og fannst búningurinn í bök- unarofni í eldavél bátsins. Aðdragandi málsins var sá, að þrír sjómenn á Vestmanna- eyjabát voru að skemmta sér á hótelinu. Á leið til skips höfðu þeir viðdvöl við lögreglustöðina, þar sem tveir þeirra hófu upp raust sína í miklum söng, en sá þriðji stjómaði. Tilþrif hans voru svo mikil, að hann datt, skall á rúðu í glugga lögreglu- stöðvarinnar og braut hana. Hann tók síðan til fótanna, en félagar hans fóru inn á stöðina og höfðu á brott með sér lög- regluhúfu og búning. Sjónarvottur hafði samband við lögregluna, sem hélt á eftir mönnunum niður í skip. Þar var mikil ölvun, en lögreglunni tókst að hafa uppi á búningnum, sem hafði verið falinn í bökunarofni. Ofninn hafði ekki verið betur þrifinn en svo, að búningurinn var ónýtur vegna fitubletta. Mennimir sem fóru inn á stöðina fengu að gista í fanga- geymslum um nóttina. - Albert. Peningum stolið úr bíl TÖSKU með um 160.000 kr. var stolið úr bifreið við Strandgötu eða Hringbraut í Hafnarfirði í gærdag. Peningunum var stolið úr bifreið frá sælgætisgerðinni Góu. Milli 10- 15.000 kr. voru i reiðufé en annað í ávísunum stíluðum á sælgætis- gerðina. Lögreglan í Hafnarfirði biður fólk um að hafa samband við embættið verði það vart við ávísan- imar. MIKILL eldur kom upp í 600-700 fermetra verkstæðis- og birgða- bragga á Gelgjutanga skammt frá Kleppsmýrarvegi um kl. 19 í gærkvöldi. Dæluverkstæði Olíu- félagsins hf. er í húsi sem er samfast verkstæðishúsinu og tókst Slökkviliðinu í Reykjavík að koma í veg fyrir að eldurinn næði að læsa sig í mikinn elds- mat sem þar var. Slökkvistarfi lauk um kl. 22, en vakt var höfð við húsið í nótt. Fullvíst þykir að um íkveikju hafi verið að ræða. Verksummerki voru um að brotist hefði verið inn i eitt af úthýsum verkstæðishússins og kveikt í þar. Um eins metra hár hlaðinn vegg- ur aðskilur húsin tvö, auk timbur- þilja, en lofthæð hússins er töluvert mikið meiri. Þykir það bera vott um snarræði slökkviliðsins að takast skyldi að takmarka útbreiðslu elds- ins við verkstæðishúsið. Allt tiltækt lið, um sjö tugir slökkviliðsmanna, börðust við eldinn og náðu þeir fljótt tökum á honum. Mikill viðbúnaður var í gangi og var slökkviliðið á Reykjavíkurflugvelli í viðbragðs- stöðu, enda óvíst hver þróunin hefði orðið ef eldurinn hefði læst sig í sambyggt hús Olíufélagsins. Á þjónustusvæðinu hefur félagið m.a. birgðastöð, gasstöð, rafinagns- og trésmíðaverkstæði og vélsmiðju. Slitnar upp úr viðræðum TUTTUGU og átta stunda löng- um sáttafundi í kjaradeilu Sjúkraliðafélags íslands og við- semjenda lauk á sjötta tímanum í gær án þess að fullfrágenginn samningur, sem tilbúinn var til undirskriftar, væri undirritaður. Strandaði undirskriftin á þeirri kröfu sjúkraliða að þeir fengju í dag Skyldusparnaður greiddur út Áætlað er að endurgreiða 1.200- 1.600 milljóna skylduspamað á næsta ári 4 Munið eftir smúfuglunum Erlingur Þorsteinsson hvetur alla til að gefa fuglunum út á fönnina þegar snjór þekur jörð 60 íþróttir______________________ íslendingar skoruðu jöfnunarmark gegn Portúgal á síðustu sekúndum landsleiks í gærkvöldi 62 Leiðari_______________________ Hækkanir í kjölfar gengisbreyting- ar 32 Lesbók Menning/listir ► Öræfin ekki fremst á óskalista ► Bækur Vigdísar Grímsdóttur erl. ferðamanna - Minningar frá og Ólafs Gunnarssonar kynntar- hemámsárum- Hannes Sigurðs- Tónleikar og myndlistarsýning- son skrifar um Guggenheim-safn- ar. ið - Desembergrein Einars Más. laun þá tvo daga sem þeir voru frá störfum í bytjun vikunnar og að fallið yrði frá því að láta reyna á lögmæti vinnustöðvun- arinnar fyrir Félagsdómi. Fjall- að var um samninginn á fundi trúnaðarmannaráðs sjúkraliða í gærkvöldi. Annar fundur er boð- aður í ráðinu kl. 10 árdegis í dag. Guðlaugur Þorvaldssson ríkis- sáttasemjari sagði að fyrir lægi fullfrágenginn samningur til undír- skriftar þegar rætt var við hann við lok fundarins uppúr kl. 18 í gær. „En áður en að undirskrift kom lýstu fulltrúar sjúkraliða því yfir að þeir óskuðu eftir að yrði fallið yrði frá öllum eftirmálum, þ.e. félagsdómsmálinu og hýru- drætti. Þessu var hafnað og þá var ekkert annað að gera en að slíta fundi og bíða átekta,“ sagði hann. í fréttatilkynningu samninga- nefndar ríkisins, Reykjavíkurborg- ar og St. Jósefsspítala vegna samn- inganna segir m.a. að í löglega boðuðu verkfalli falli launagreiðslur niður. Hér sé að mati viðsemjenda sjúkraliða um ólöglegar aðgerðir að ræða og fráleitt að þeir njóti betri réttar en þeir sem séu í lög- legu verkfalli. Kristín Guðmundsdóttir, for- maður Sjúkraliðafélags íslands, sagði seint í gærkvöldi að sjúkralið- ar væri afar ánægðir með að vera komnir á endasprett kjarasamn- inga. Hins vegar kæmi þeim veru- lega á óvart að ekki skuli hafa verið farið að kröfu þeirra um að falla frá eftirmálum vinnustöðvun- arinnar. „Þeir eru að leggja þarna gjörólík atriði að líku. Á sama tíma og orðið hefur verið við kröfum rótgróinna félaga, sem að hafa vís- vitandi farið í ólöglegar aðgerðir, er verið að lögsækja félag sem er að beijast fyrir tilverurétti sínum. Það sýnir aðeins hugrekki Ijár- málaráðherra að hann skuli helst leggja af stað og príla yfir vegginn þar sem hann er lægstur," sagði Kristín. Helgi Scheving varðstjóri hjá Slökkviliðinu sagði útkall hafa kom- ið kl. 19.37. Eldurinn hefði komið upp í norðurhluta hússins og er slökkvilið kom að, logaði eftir endi- langri byggingunni. Mörg þúsund tonn af vatni úr brunahönum í að- liggjandi götum var dælt á eldinn og svartur reykjarmökkur lá yfir öllu hverfinu í suðurátt. Húsið er einangrað með plasti og texi og kæfandi reykurinn barst langleiðina UPP í Bréiðholt undan norðangjól- unni. Eldtungur sáust frá húsinu frá Reykjanesbrautinni og gestir á veitingastað við gömlu Fáksvellina kvörtuðu undan reykjarbrælu. Geir Magnús§on, forstjóri Olíufé- lagsins, fylgdist með slökkvistarf- inu og sagði hann að þetta hefði verið eina húsið á svæðinu sem hefði verið því sem næst tómt. Hann, ásamt fleiri fulltrúum Olíufé- Iagsins, skoðaði verkstæðishúsið síðastliðinn miðvikudag, en fyrir- tækið hafði falast eftir því við eig- anda þess, Sigurgeir Sigurdórsson. Sigurgeir, sem er 77 ára, sagði að hann hefði leigt út mestan hluta hússins og var pappírsvöruheildsali nýfluttur út. Auk þess hefði hann sjálfur haft trésmíðaverkstæði og skrifstofuaðstöðu á lofti hússins. Einn bíll var á neðri hæð hússins og I úthýsinu, sem brotist var inn í, var körfupallur sem metinn er á um 2-3 milijónir kr. Sigurgeir hefur starfað í þessu húsi í 30 ár, fýrst við útgerð þriggja báta og fiskverk- un, en bragginn var byggður á stríðsárunum. Húsið var tryggt.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.