Morgunblaðið - 05.12.1992, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1992
Langur laugardagur
TILBOÐ
30% af sláttur
af öllum úlpum
Mikið úrval - stærðir 74-1 76
Aðeins i dag
EN&LABÖRNÍN
Bankastræti 10, Reykjavík.
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
Siðumúla 39, 108 Reykjavík, sími 678500, fax 686270
Fjárhagur eldra fólks
Fræðsludagskrá fyrir 67 ára
og eldri á Vesturgötu 7
Miðvikudaginn 9. desember gengst öldrun-
arþjónustudeild Félagsmálastofnunar
Reykjavíkurborgar fyrir fræðsludagskrá um
„fjármál á efri árurn",
Námsstefnan verður haldin á Vesturgötu 7
og hefst kl. 14.30.
Dagskrá:
1. Ásta R. Jóhannesdóttir, upplýsingafulltrúi ræðir
um bætur almannatrygginga fyrir ellilífeyrisþega.
2. Ingólfur Hjartarson, lögfræðingur ræðir um mikil-
væga þætti í fasteignaviðskiptum, búskipti og
erfðaskrár.
3. Bjarni Ármannsson, tölvunarfræðingur, ræðir um
hvernig unnt er að ávaxta sparifé sem best og
öruggast og almenn verðbréfaviðskipti.
Ræðumenn munu svarafyrirspurnum.
Stjórnandi verður Þórir S. Guðbergsson,
félagsráðgjafi.
Kaffiveitingar kosta kr. 300,-
Þátttöku ber að tilkynna í síma 678 500 og er þátt-
tökufjöldi takmarkaður.
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar,
öldrunarþjónustudeild.
Lítill strákur kr. 850.
Lítill trúður kr. 980.
Lítill Hans kr. 980.
Lítil Gréta kr. 1.280.
DÚKKUSKÁPURINN
Kringlunni (milli Kóko og Body Shop).
Framtíðar-fisk-
veiðistefna
eftir Önund
Asgeirsson
Það er ekki þorsk að fá
í þessum firði.
Þurru landi eru þeir á,
og einskis virði.
Þessi vísa var ekki ort af því til-
efni að í gær var lögð fram skamm-
sýn og ónothæf fiskveiðistefna á
Alþingi allra íslendinga, heldur orti
Páll Olafsson hana til að glettast
við nágranna sína fyrir austan fyr-
ir um 100 árum.
Bolfiskveiðar fyrr og nú
Mér er í bamsminni þegar Finn-
ur Guðmundsson (faðir Garðars
skipstjóra og veiðieftirlitsmanns)
lagði að Flateyrarbryggju á 8 tonna
Litla-Hinrik með 30 tonna þor-
skafla eftir dagsróður á línu. Þegar
slegið var af við bryggjuna lögðust
seilarnar fram með bátnum, og
golþorskurinn dreifðist eins og sól
kringum allan bátinn. Það þurfti
að flytja seilarnar til að hægt væri
„Hinn kosturinn er sá,
að stefnt sé að því að
leyfa aðeins notkun
umhverfisvænna veið-
arfæra innan fiskveiði-
lögsög-unnar, þ.e. aðal-
lega eða eingöngu
krókaveiðar.“
að koma tógi í land, og af því að
lágsjávað var, þurfti að bíða flóðs,
svo hægt væri að kasta upp. Það
voru fjórir eða fimm á bátnum.
Þetta mun hafa verið árið 1932 eða
1934, en síðara árið var sett nýtt
landsmet í bolfiskveiðum, 306.000
tonn upp úr sjó, eða meira en allur
veiðifloti landsmanna aflar nú ár-
lega. Það er mikill munur á tækni
og tilkostnaði nú.
Einmitt nú, þegar þetta er skrif-
að, er smá hrota á Hala og í Djúp-
ál og 300-900 tonna togarar með
20 manna áhöfnum koma að landi
Önundur Ásgeirsson
með 50-80 tonna afla. „í verinu“
má lesa, að 12 togarar voru að á
Halanum, en auk þess lágu 20 tog-
arar undir Grænuhlíð, en flestöll
Vestfjarðaskipin voru komin til
hafnar vegna veðurs og til löndun-
ar. Fjöldi þeirra er 12, og þannig
voru alls 44 togarar, sem haldið
er út á Halann þessa stundina.
Annars staðar voru 11 togarar að
veiðum innan 50 mílna lögsögunnar
en aðeins 6 utan, samtals 17. Af
Norður — Suður
Átakalínur 21. aldarinnar?
eftir Kjartan
Emil Sigurðsson
Á undanförnum misserum hafa
borist voveifieg tíðindi sunnan úr
Afríkuríkinu Sómalíu. Þar ríkir
stjómleysi og hungursneyð og al-
þjóðastofnanir anna engan veginn
þörfum fólksins fyrir matvæli.
Ljóst er að mikill fjöldi manna
mun láta lífið áður en vargöldinni
þar linnir. En hvað veldur og hvað
er til ráða?
Norðrið mergsýgur Suðrið
Síðasti áratugur einkenndist af
lægð í efnahag Afríku- og Suður-
Ameríkuríkja. Þetta stafaði ekki
síst af því hve þau eru skuldug
ríkjum Norðursins, þ.e. Evrópu og
Norður-Ameríku. Nú er svo kom-
ið, að talið er að skuldir þróunar-
ríkja verði með engum hætti end-
urgreiddar. Ástæðan er sú, að
vextir hafa bæst við höfuðstól
hinna upphaflegu lána frá þróuð-
um ríkjum, og valdið því, að þriðja
heims ríki skulda meira í dag en
fyrir tíu árum, þrátt fyrir að höfuð-
stóll lánanna hafi, að fjárhæð til,
þegar verið endurgreiddur.
Þessi mynd verður enn ískyggi-
legri þegar litið er til þess, að á
umliðnum árum hafa u.þ.b. 50
milljarðar dala runnið frá löndum
Suðursins til hinna ríku landa
Norðursins. Þetta hefur gerst
þrátt fyrir alla þróunaraðstoð og
tal um stuðning Norðursins við
fátækari lönd heimsins.
Staða mála er sú, að þróunar-
löndin eru stórskuldug, vanþróuð
og fátæk, og fyrsta heims löndin
standa sig ekki sem skyldi. Fæst
þeirra uppfylla þannig grundvall-
arregluna, sem samþykkt hefur
verið á vettvangi Sameinuðu þjóð-
„Ef ríkjum þriðja
heimsins er ekki gert
kleift að ná Vesturlönd-
um að lífsgæðum er
hætt við að spenna og
tortryggni verði áfram
við lýði og aukist jafn-
vel.“
anna, um að veita 0,7% af þjóðar-
framleiðslu til aðstoðar. Þannig
veita Bandaríkin einungis 0,2% af
þjóðarframleiðslu til aðstoðar. Á
sama tíma fer 1,11% og 0,98% af
þjóðarframleiðslu smáþjóða eins
og Noregs og Hollands til þróunar-
aðstoðar (sbr. Jón Orm Halldórs-
son: Þróun og þróunaraðstoð).
Skilyrðin fyrir því, að þriðja
heims ríki nái Vestur-Evrópu og
Norður-Ameríku að velferð og
hagsæld, hljóta að byggjast á
þrem meginþáttum. í fyrsta lagi
að ríku löndin (alþjóða fjármála-
stofnanir) láti skuldir þriðja heims-
ins falla niður að meira eða minna
leyti. í annan stað að þau veiti
ærlega aðstoð við fátækari ríkja,
uppfylli a.m.k. 0,7% takmarkið og
helst 1% markið. Og, síðast en
ekki síst, að þau opni markaði sína
fyrir fijáls og sanngjörn alþjóða-
viðskipti.
Átök Norðurs og Suðurs
Á tímum kalda stríðsins voru
flestar deilur og átök á alþjóða-
vettvangi háðar í skugga risaveld-
anna tveggja. Þau létu sér fátt eða
ekkert óviðkomandi í stanslausu
valdabrölti sínu. En nú hefur stað-
an gjörbreyst. Hið sjálfstæða
hernaðarveldi, Rússland, hefur
hallað sér upp að Bandaríkjunum
og svipuðu máli gegnir um önnur
Mið- og Austur-Evrópuríki. Þetta
út af fyrir sig veit á gott eitt.
Hitt er verra, að óstöðugleiki í
Herrakuldaskór úr leðri
Stærðir 41-46.
Litur: Brúnir og svartir.
Verð; 3.600 kr.
áður 5.900,-
Staðgreiðsluafsláttur - Póstsendum samdægurs.
SKÆM MÍLAN0
KRINQLUNNI8-12 S. 689345
LAUGAVEGI 61-63
3fíí)\\ búð af nýjum haustvörum.
Opi& á laugardögum
frá kl. 12—16.
Nýbýlavegi 12, sími 44433.