Morgunblaðið - 05.12.1992, Side 60

Morgunblaðið - 05.12.1992, Side 60
60 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1992 f«mfw „ Efþú ert c& hugsa. um aé ósta mer U hamingfjU' meé ufrnattié, þa i/arþaét síoustu viku. * Af hverju ertu svona úfin í dag? HÖGNI HKEKKVÍSI BREF TDL BLAÐSINS Aðalstræti 6 101 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691222 Sólskríkjusjóður og fuglafóður Frá Erlingi Þorsteinssyni: Ég hef nær árlega um langt skeið sent Morgunblaðinu smápistil f.h. Sólskríkjusjóðsins til þess að skýra frá tilgangi hans hvað hefur verið að gerast á hans vegum. Þessi sjóður er nú að verða 45 ára. Móðir mín stofnaði hann og afhenti Dýravemdunarfélaginu árið 1948 í minningu manns síns og föð- ur míns, Þorsteins skálds Erlings- sonar, en hann var eins og þjóð veit mikill fuglavinur sem mörg ljóða hans bera glöggt vitni. Eftir að móðir mín, Guðrún J. Erl ingsdóttir, lést árið 1960 hef ég veitt sjóðnum forstöðu. Tekjur hans voru frá upphafi aðeins ágóði af útgáfu og sölu jólakorta og minning- arspjalda, en auk þess hafa honum borist margar gjafir sem hafa komið sér vel og ég þakka innilega. Útgáfu jólakorta lauk um árið 1980, en minningarspjöld eru enn fáanleg hjá mér. Það hafa í tímans rás verið reynd- ar margar korntegundir til að finna þá heppilegustu fyrir smáfuglana. Fyrir allmörgum árum komumst við að raun um að kurlaður maís með hæfilega kornstærð væri ákjós- anlegastur, bæði næringarríkur og ódýr. Við höfum meðal annars reynt ómalað hveitikom, sem sýndi sig að vera bæði of gróft og dýrt. Mílókomið, grasfræ frá Suður Ameríku, notuðum við í 3 ár. Það reyndist vel, var á stær við lítil sagó- grjón sem var hæfilegt fyrir fugl- ana. Það var bæði næringarríkt og ódýrt. Ekki þurfti að mala það sem var mikill kostur á margan hátt. Brátt reyndist það ófáanlegt og loks þegar það fékkst aftur var það orð- ið langtum dýrara en maískurlið sem við höfum því haldið okkur við síðan. Að sjálfsögðu má gefa smáfugl- unum ýmislegt annað, svo sem brauðmylsnu, sem líklega mætti fá ódýrt í brauðgerðarhúsum og hefur verið gefin með ágætum árangri. Hrísgijón eru vel þegin en alltof dýr. Maískurlið er sem sagt það sem mest hefur verið gefið og er enn. Það hefur verið erfítt að fá maísinn kurlaðan í hæfílega komstærð, en það hefur tekist síðustu árin. Hygmynd móður minnar var sú að fuglakornið skyldi sent barna- skólum úti á landi, einkum þangað sem snjóþyngst væri. Þeirri stefnu hef ég haldið og tel eins og hún að það sé gott fýrir uppeldi barna að þeim sé kennt að gefa smáfuglunum á fönnina. Nokkur síðari ár höfum við sent skólunum 70 til 80 sekki í byijun vetrar. Þeir hafa vegið 35 til 50 kíló hver en áður fyrr vom þetta munm léttari pokar og meðfærilegri. Vegna þess hve snjólétt hefur verið síðustu tvö til þijú árin a.m.k. hafa allmargir skólar átt nokkuð eftir af korni. Þess vegna sendum við að þessu sinni aðeins rösklega 50 sekki. Sökum þess að seljendur Frá Pétri Magnússyni: Jónas Gíslason vígslubiskup fer geyst í Morgunblaðinu 15. nóvember þegar hann fjallar um fyrirgefningu syndanna. Við eigum að rétta hvort öðm fyrirgefandi hönd í smáu sem stóm. Það er fögur hugsjón að fyrir- gefa meðbræðmm okkar flestar mis- gjörðir, en við læknum ekki .illvirkj- ann með því einu að fyrirgefa honum heldur verður hann jafnframt að endurfæðast og öðlast nýtt líf. Sé það vilji okkar að skapa himnaríki á þessari jörð nægir fyrirgefning ekki, heldur verður maðurinn jafn- framt að endurfæðast. Við höfum líka trúaijátningu sem segir: „Situr við hægri hönd Guðs Föður Almáttugs og mun þaðan koma að dæma lifendur og dauða.“ Þarna er gefíð í skyn að við megum vænta dóms og ef til vill fær sam- viskan að segja til sín og við fáum að einhveiju leyti að dæma okkur sjálf samanber opinbemn Helga í bókinni „Talað inn í dimman dal“ bls. 13, sem segir: áttu nú nægar fyrningar gátum við sent komið óvenju snemma, eða í byijun nóvember. Ég geri ráð fyrir að bæði Lýsi hf. og Katla hf. sem selja okkur kornið muni eins og undanfarin ár einnig selja einstaklingum sem gefa fuglunum mikið heila sekki, ef óskað er, því það er langtum hagstæðrara en að kaupa smápokana í versl- ununm. Lýsi er með 35 kílóa sekki en þeir eru 50 kíló hjá Kötlu. Úm leið og ég sendi skólunum bestu jóla- og nýjárskveðjur vil ég biðja forráðamenn þeirra að láta mig vita ef þá vatnar meira fuglafóð- ur. Fyrir hönd Sólskríkjusjóðsins vil ég þakka bæði Flugleiðum hf. og íslandsflugi hf. fyrir þá miklu hjálp að flyta kornsekkina ókeypis út á landið til skólanna og einnig Val- geiri Guðmundssyni fyrir að sjá um flutning á þeim til flugvallar og vöru- fluttningstöðva. Þær hafa oft flutt sekkina ókeypis og kann ég þeim einnig bestu þakkir. Að lokum vil ég hvetja alla unga sem eldri til að gefa litlu fuglunum út á fönnina þegar snjór þekur jörð. ERLINGUR ÞORSTEINSSON Skaftahlíð 13, Reykjavík Þegar þið komið, þá verður opnað fyrir ykkur og þið sjáið inn í dýrð- ina, en þá er undir ykkur sjálfum komið hvort þið eruð svo máttug í viljanum, máttug í kærleikanum og máttug í sannþekkingunni að þið þolið að stíga innfyrir. Öllum er leyft að stíga inn í ljómann, en allir vilja ekki koma, af því þeir finna van- mátt sinn af því þeir stigu niður til Jarðarinnar og voru þar lítinn tíma. Þeir hafa farið svo margir í felur, af því að þeir halda að augu Guðs sjái þá ekki meðan þeir standa í regindal tímanna. En sá sem veit að augu Guðs hvíla á sér, vandar allt sitt verk, allt sitt tal, allar sínar gjörðir. Hann veit að hann mun verða kallaður heim á hinar grænu lendur lífsspekinnar og hann þráir það af öllu hjarta, að hafa hreinar hendur, hreinan vilja og hreina hug- sjón og umfram allt hreinan kær- leika, innvígðan í brotalausan sann- leika. PÉTUR MAGNÚSSON Sörlaskjóli 9, Reykjavík Fyrirgefning syndanna Víkveiji skrifar Víkveiji gladdist mikið dag nokk- urn fyrir skömmu er hann kom sem oftar í Hagkaup til þess að gera helgarinnkaup og sá vistvæna pappírspoka merkta Hagkaupum, sem þar að auki voru ókeypis. Þess- ir pokar voru verzlunni til hins mesta sóma, að því er Víkveiji telur, sterk- ir og góðir og mikil framför frá plast- pokunum, sem eyðast ekki og valda ótrúlegum mengunarvanda. En Adam var ekki lengi í para- dís. Þegar Víkveiji kom næst í Hag- kaup, voru pokarnir góðu uppurnir og afgreiðslustúlka við einn kassann vissi ekki, hvort þeir kæmu aftur. Nú vill Víkveiji skora á forráðamenn Hagkaups að taka aftur upp þessa vistvænu poka og reyna með því að stemma stigu við þeirri miklu of- notkun plastpoka sem hérlendis ríð- ur húsum. Pappírspokar sem þessir eru til í hverri einustu verzlun um öll Bandaríkin og þar eru þeir mun meira áberandi en plastpokarnir í öllum matvörubúðum. xxx Nú fyrir skömmu átti Víkveiji leið í dómshúsið nýja, sem sómir sér vel sem slíkt og er ánægju- legt að þetta gamla og virðulega hús við Lækjartorg skuli hafa fengið hlutverk við hæfí. En það er eitt sem stingur mjög í stúf við virðingu dómshússins og það er kofaræksni sem stendur við aðalinngang húss- ins, einhvers konar sölutum. Hann blasir við á vinstri hönd, er gengið er inn í húsið. Og ekki nóg með það, því að á hægri hönd er flöskuk- úla ein grænlituð og stór þar sem fólk getur losað sig við dósa- eða flöskulík. Er þetta hægt við aðalinn- gang að dómshúsi í Reykjavík? XXX Nú í vikunni fór fram mikil kynn- ing í sjónvarpinu á geisla- diski, sem Rauði kross íslands gefur út til styrktar starfsemi sinni. Þar eru nokkur rómantísk lög og voru íjögur þeirra flutt í sjónvarpsþætti. Síðasta lagið, sem sungið var, var hið þekkta lag um blómið „Gleym- mér-ei“ eða „Blátt lítið blóm eitt er“, sem þorri landsmanna þekkir og kann utan að. Ekki ætlar Vík- veiji að gagnrýna söng þeirra tveggja kvenna, sem lagið fluttu, en þriðja ljóðlína erindisins hljómaði ekki eins og Víkveiji hafði lært það. Þær stöllur sungu: „Væri ég fuglinn frjáls", en Víkveiji lærði þessa hend- ingu: „Væri ég fleygur fugl, /flygi’ ég til þín“. Þeir aðilar, sem Víkveiji hefur rætt við um þessa nýju útgáfu af erindinu, könnuðust ekki við „fugl- inn fijáls" og vildu allir hafa textann eins og Víkveiji. Því er Víkveija spurn: Hvers vegna er texta erindis- ins breytt, hver gerir það og með hvaða leyfi?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.