Morgunblaðið - 05.12.1992, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 05.12.1992, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. DESEMBER 1992 49 Kristín Kristmunds- dóttir - Kveðjuorð Það er miðvikudagurinn 25. nóv- ember, rétt fyrir hádegi, þá berst mér sú harmafregn að „amma á Hjalló“ sé dáin. Þetta var eftir stutta en erfiða sjúkdómslegu en það er samt alltaf jafn erfítt að kyngja svona löguðu. Það er huggun harmi gegn að hún er i góðum höndum. Mig langar að minnast hennar í nokkrum orðum því það sem hún gerði fyrir mig og mína fjölskyldu er það margt að það verður seint fullþakkað. Ég var aðeins 12 ára þegar móð- ir mín lést og stóð þá faðir minn einn með tvö ung börn en amma lét það ekki aftra sér að ferðast vestur til okkar í rútu sem sjálfsagt hefur ekki verið létt verk fyrir fullorðna konu; að ferðast svo langa leið. En aldrei heyrði ég ömmu kvarta. Það var ekki hennar siður. Hjá okkur var hún vön að vakna snemma og gefa okkur morgunmat og koma okkur systkinunum í skólann og í hádeginu beið okkar ljúffengur há- degisverður. Þess á milli sá hún að sjálfsögðu um öll venjuleg heimilis- störf. Hún var sem sagt allan dag- inn að stjana í kringum okkur. Svo þegar ég fór að sækja skóla til Reykjavíkur stóðu mér allar dyr opnar hjá ömmu. Hún nánast heimt- aði að fá að þvo af mér leppana eins og hún kallaði það. Einnig átti Kveðja * Elín O. Helgudóttir Fædd 13. júlí 1989 Dáin 28. nóvember 1992 Þegar þú ert sorgmæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn og þú munt sjá að þú grætur vegna þess sem var gleði þín. („Spámaðurinn") Okkur á Blómadeild langar að minnast Ellu Lóu með nokkrum orð- um. Fyrir tæpu ári urðum við þeirr- ar gæfu aðnjótandi að fá að kynn- ast henni. Nokkrum sinnum þurfti Ella Lóa að fara inn á sjúkrahús á þessu tæpa ári sem við fengum að hafa hana. Og alltaf fundum við fyrir tómleika þegar hana vantaði. Þrátt fyrir fötlun sína var hún svo virk og gefandi. Bömin fylgdust með líðan hennar og fögnuðu henni þegar hún kom aftur. Það var gam- an að fylgjast með mestu gaurunum á deildinni, hvað þeir vildu allt fyrir Ellu Lóu gera og rifust um að fá að keyra hana úti. Þau virtust öll skilja vanmátt hennar en hún var ljúf og gefandi og tók alltaf þátt í leik og starfi. Það er stórt það skarð Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við grein\im á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tekin til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta tilvitnanir í ljóð eftir þekkt skáld, og skal þá höfund- ar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar eru birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin, vélrituð og með góðu línubili. Leðursófasett og hornsófar í öllum litum. Frábært verð. Opid í dag; laugardagy kl. frá 10-16. Sunnudagkl. 10-17. Valhnsgögn Ármúla 8, símar 812275 og 685375. Kveðja Hafþór I. Þórsson ég að koma með sokkana og fá þá bætta af því ég nennti ekki að læra að stoppa í þá sagði hún. Ég var alltaf í leiguhúsnæði i bænum og ef illa stóð á í sambandi við það þá var ekkert sjálfsagðara en að fá „að liggja inni“ eins og hún sagði. Svo þegar ég fór að koma með fjöl- skyldu mína í heimsókn ruku strák- arnir beint inn í stofu og fengu að leika sér með bílana sem amma átti og á meðan útbjó amma ávallt kaffí og með því eins og fyrir 10 manns. Konan mín bað mig alltaf um að feiðja hana að hafa ekki svona mik- ið fyrir okkur en þáð var ekki hægt, svona var hún bara, vildi gefa okk- ur nóg að borða. Við kveðjum nú með söknuði konu sem var okkur ávallt góð. Amma verður ætíð efst í huga okkar sem tákn um manngæsku og ást. Friðrik Friðriksson, Hulda Georgsdóttir og synir. sem hún skilur eftir og margt er hægt að segja um Ellu Lóu þó við höfum ekki haft lengri tíma með henni þá eigum við á Blómadeild, Garðaseli, hugljúfar minningar um elsku Ellu Lóu og þær munum við geyma í huga okkar. Við skiljum ekki tilganginn en við viljum trúa því að nú sé hún heilbrigð og að hún leiki sér við englabömin smá. Elsku Helga, við viljum þakka þér fyrir það traust sem þú sýndir okkur með því að lofa okkur að gæta hennar. Við dáumst að þinni hugarró Helga mín og biðjum góðan Guð að styrkja þig, Diddu, ömmu og afa á Miðtúni. Siffa, Gunnheiður, Brynja, Asgerður, Dóra, Inga og börn á Blómadeild, Garðaseli. Fæddur 13. ágúst 1988 Dáinn 26. nóvember 1992 Okkur langar til að kveðja elsku litla vin okkar, Hafþór Inga Þórs- son, sem lést svo snögglega þann 26. nóv. sl. Kynni okkar flestra og Hafþórs Inga voru stutt. Hann byijaði hjá okkur í leikskólanum snemma í haust og honum fannst jafn gaman að vera hjá okkur eins og okkur fannst að hafa hann. Átti hann oft skemmtilegar sam- ræður við einhveija okkar, því hann hafði sínar skoðanir á hlut- unum og þær ákveðnar. Hann var kraftmikill og duglegur strákur og skilur eftir sig skarð sem ekki verður fyllt. Við þökkum fyrir að hafa fengið að vera með honum þennan stutta tíma. Sjá eina perlu skorti í ykkar fagra sveig. Þið áttuð rósadýrð vorsins og sumars gróðrarteig, en aldrei hafði dauðans klukkan ykkur vígslu boðað og aldrei logbjart stálsverð harmsins brjóstin táknum roðað. En nú skiptir um útsýn — og harmsins heita lind í hjartans fýlgsnum streymir og laugar eina mynd, bamsins, sem að alvizkan, er enginn maður skilur, en aðeins finnur, nú á bak við tjaldið mikla hylur. Sjá eina perlu skorti - hún heitir hjartasorg og helgar fegurst ástvini og auðgar þeirra borg. Að einskis væri ávant hana ykkur lífið sendi. — Ó, að hún verði stjama, er í hæðir hæða bendi. (Hulda) Elsku Sigga, Þór, Elli, Hrefna- og Harpa, við samhryggjumst ykk- ur af öllu hjarta og vonum að Guð gefí ykkur styrk í sorg ykkar. Arnheiður, Sæja, Alda, Gunna og Ragnheiður. Þessi bók hefur að geyma 270 fallegar litmyndir af íslenskum fossum. Gerð er góð grein fyrir hverjum fossi í fróðlegum texta, m.a. nefndar gönguleiðir að fossinum og sagt frá þjóðsögum og sögnum er tengjast honum. Bókinni er skipt niður eftir sýslum með kortum er sýna staðsetningu fossanna. Eftirmála ritar dr. Jón Jónsson jarðfræðingur. íslenskir fossarer 352 bls. með texta bæði á íslensku og ensku. I SKUGGSJÁ s BÓKABÚD OLIVERS STEINS SF. sem beðið hefu ICELANDIC WATERFALLS PIN(
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.