Morgunblaðið - 24.12.1992, Page 4

Morgunblaðið - 24.12.1992, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1992 Kópavogur Beindi byssu að lögreglu MAÐUR ógnaði tveimur Iögreglu- mönnum með hlaðinni haglabyssu á stigagangi fjölbýlishúss í aust- urbæ Kópavogs um klukkan hálffjögur í fyrrinótt. Lögreglu- mennirnir yfirbuguðu manninn og Grímur Gíslason, stjórnarfor- maður Heijólfs hf., staðfesti að tvö tilboð hefðu borist í skipið og sagði að verið væri að vinna að sölunni. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins er annað tilboðið frá sænska sjóhemum en hitt frá dönskum skipamiðlara. Tilboðin em nálægt 70 milljónum kr. Þórhallur Jósepsson, deildarstjóri í samgönguráðuneytinu, sagði í gær færðu hann í fangageymslur en hann var ölvaður og æstur og hafði brotist inn á heimili fyrrum sambýliskonu sinnar og barna en ekki ógnað þeim með byssunni. Að sögn Valdimars Jónssonar, að ráðuneytið hefði ekki heimild til að kaupa svona dýrt skip fyrir Slysavarnaskólann og gæti því ekki keppt við þá sem sýnt hefðu áhuga á Heijólfi. Því væri verið að athuga aðra möguleika. Sagði hann að meðal annars væri verið að athuga með kaup á hollensku skólaskipi sem kosta myndi 30-35 milljónir króna. yfírlögregiuþjóns í Kópavogi, hafði maðurinn fyrr um kvöldið brotist inn á heimilið en var farinn þaðan er lögreglan kom. Síðar var hringt og beðið um að maðurinn yrði handtek- inn þar sem hann hefði á ný ruðst inn á heimilið og fóru þá tveir lög- reglumenn á staðinn. Þeir voru í stigahúsi fjölbýlishúss- ins þegar maðurinn kom í flasið á þeim og beindi að þeim haglabyssu. Að sögn Valdimars hafði ekki fylgt tilkynningunni að maðurinn væri vopnaður og er talið að hann hafí nálgast byssuna á annan stað í hús- inu eftir að hringt var á lögregluna. Vitni höfðu heyrt hann segja að hann ætlaði að sitja fyrir lögreglunni og skjóta hana. Þegár maðurinn mund- aði byssuna réðust lögreglumennirnir á hann og náðu að yfirbuga hann, þrátt fyrir mikla mótspymu. í ljós kom að fjögur skot voru í skotgeymi byssunnar, sem er pumpa sem rúmar fjögur skot í geymi og eitt í hlaupi. Maðurinn var færður í fanga- geymslu lögreglunnar og síðan til yfírheyrslu hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins. Sænski sjóherinn býður 70 milljónir í gamla Heijólf STJÓRN Herjólfs hf. hefur fengið tvö tilboð í gamla Herjólf. Annað tilboðið er frá sænska sjóhernum. Ekki er útlit fyrir að ríkið kaupi skipið fyrir Slysavarnaskóla sjómanna eins og Slysavamafélagið óskaði eftir en verið er að athuga með ódýrari skip erlendis. VEÐUR V /DAG kl. * Heimild: Veðurstofa íslands (Byggl á veðurapd kl. 16.15 f gær) VEÐURHORFUR I DAG, 24. DESEMBER YFIRLIT: Við austurströnd Grænlands, vestur af Bjargtöngum, er 964 mb lægð sem grynnist smám saman. 8PÁ: Áfram verður suðvestlæg átt, víða stinningskaldi eða allhvasst. Éljagangur um landið sunnan- og vestanvert, en Téttskýjað norðaustan til. Vægt frost í flestum landshlutum. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á JÓLADAG: Fremur hæg vestlæg ótt og smáél vestanlands en léttskýjað annars staðar. Vægt frost um allt land. HORFUR A ANNAN JÓLADAG: Nokkuð hvöss sunnanátt, og rigning sunnan- og vestanlands en úrkomulftið norðaustanlands. Hiti 3-9 stig. HORFUR A SUNNUDAG: Hvöss vestanátt með éljum sunnan- og vestan- lands, en skýjað með köflum norðan- og austanlands. Vægt frost um allt land. Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30, 22.30. Svarsfmi Veðurstofu Isiands - Veðurfregnir: 990600. Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað r r r * r * r r * r r r r r * r Rigning Slydda V Ý * * * * * * * * Snjókoma Skúrir Slydduél Alskýjað * V Él Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu ögf|aðrimarvindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig.^ 10° Hitastig y súid s Þoka riig-. FÆRÐA VEGUM: (Ki, 17.30 ígær) Fært er á vegum í nágrenni Reykjavíkur, um Hellisheiði, Þrengsli og Mosfellsheiði. Töluverður éljagangur er á Suður-, Vestur- og Norður- landi og slæmt skyggni í éljunum. Fært með suðurströndinni austur á Austfirði og fært á öllum aðalleiðum eystra. Einnig er fært fyrir Hval- fjörð og um vegi í Borgarfirði og á Snæfeilsnesi og fært er um Heydal í Dali og Reykhólasveit. Brattabrekka er fær. Fært er frá Brjánslæk til Patreksfjarðar og þaðan til Tálknafjarðar, en ófært á Hálfdán. Á norðan- verðum Vestfjörðum er fært milli Þingeyrar og Flateyrar en ófært á Breiðadals- og Botnsheiðum. Þá er fært á milli Bolungarvíkur og Súðavfk- ur en ófært í ísafjaröardjúpi og á Steingrímsfjarðarheiði. Fært er um Holtavörðuheiði og Strandasýslu til Hólmavíkur og einnig um vegi á Norðurlandi, svo sem til Siglufjarðar, Akureyrar og Olafsfjarðar, en víða skafrenningur og versnandi færð. Frá Akureyri er fært austur um Víkur- skarð til Húsavíkur, þaðan upp í Mývatnssveit og með ströndinni til Vopnafjarðar. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og ágrænnilínu 99-6315. Vegagerftin. VEÐUR VÍÐA UM HEIM ki 12.00 ígær að ísl. tíma Akureyrl Reykjavík hítl 0 -r3 veóur úrkoma snjóél Bergen 2 skýjað Helsinki ±2 alskýjað Kaupmannahöfn 2 léttskýjað Naresaresuaq +9 snjókoma Nuuk ■t-B snjókoma Ósló +8 léttskýjað Stokkhólmur +4 léttskýjað Þórshöfn 8 rigning Algarve 17 iéttskýjað Amsterdam 3 (jokumóða Barcelons 14 místur Berlín +2 þokumóða Chicago 2 þokumóða Feneyjar 7 alskýjað Frankfurt 6 þokumóða Glasgow 1 mistur Hamborg 0 þokumóða London 2 þokumóða LosAngeles 9 heiðskirt Lúxemborg 3 súld Madrtd 9 alskýjað Malaga 17 skýjað Mallorca 17 léttskýjað Montreal +2 léttskýjað NewYork 4 alskýjað Orlando 16 þokumóða Parfs 3 léttskýjað Madelra 16 skýjað Róm 12 rignlng Vín +1 iéttskýjað Winnipeg *25 heiðskírt Morgunblaðið/Ingvar Bifreiðin hafnaði á hvolfi í skafli. Faxafen Sex á slysadeild eftir bílveltu SEX voru fluttir á slysadeild eftir að jeppi valt í Faxafeni undir miðnætti í fyrrakvöld. Hálka var á götunni þegar slys- ið átti sér stað. Slysið varð með þeim hætti að ökumaður jeppabifreiðar missti stjórn á bifreið sinni með þeim afleiðingum að hún fór út í kant og valt á hliðina. Sex manns voru í bílnum og voru þeir allir fluttir á slysadeild með minni háttar meiðsl. Upphaflega var talið að kviknað hefði í jeppanum en svo reyndist ekki vera. Borgarráð Tjörnin verði á ný skautaparadís BORGARRÁÐ hefur samþykkt að fela borgarverkfræðingi að leita leiða til að nýta Tjörnina betur til skautaiðkana. Þar á meðal verði kannað hvort vélfrysting á hluta Tjarnarinnar komi til greina eða hvort dæla megi köldu vatni í hana, til dæmis næst Ráðhúsinu. Katrín Fjeldsted borgarfulltrúi lagði þetta til. í greinargerð með til- lögunni segir hún að áhugi borg- arbúa hafí aukist á skautahlaupi og vinsældir vélfrysta skautasvellsins í Laugardal séu svo miklar að oft sé nauðsynlegt að takmarka aðgang eða loka vegna fjölmennis og æf- inga. Tjörnin hafi verið vinsæll vett- vangur fyrir skautafólk á árum áður og Skautafélag Reykjavíkur beitt sér fyrir að svellið væri rutt og vatni sprautað á til að slétta það. í rysj- óttri tíð undanfarna vetur hafi ís varla haldist nægilega lengi í senn til þess að hægt væri að ryðja burt snjó og nota svellið. „Tillagan gerir ráð fyrir því að leitað verði leiða til að gera Tjömina á ný að þeirri skautaparadís sem hún áður var,“ segir síðan í greinargerðinni. * Olafur Þ. Jónsson í Hornbjargsvita Vínarvalsar stignir milli jóla og nýárs Rammgerður stigi brotnaði í spón í óveðri ÓLAFUR Þ. Jónsson, vita- vörður í Hornbjargsvita, fékk loks jólaglaðninginn til sín í vitahúsið í gær, en skipveijar af varðskipinu Tý náðu þá að selflylja varninginn í land. Áður höfðu skipveijar á Óðni reynt að sæta færis í sextán daga og koma vörunum á land en skipið varð frá að hverfa vegna óveðurs og voru vörun- ar fluttar yfir í Tý, sem er stærra skip en Óðinn. Aftaka- veður hefur verið á Horn- bjargi undanfarna daga. Rammgerður stigi við vitann brotnaði í spón í óveðrinu, en Ólafur, sem hefur verið í vitan- um í sex ár, sagði að vel hefði gengið að flytja vörurnar í land. Olafur nýtur aðstoðar austur- ískrar konu við störf sín í vitan- um, Margret Martin, og sagði hann að íslenskt kvenfólk feng- ist ekki til starfans. „Margret kom hingað í vor beint frá Vínar- óperunni. Þar tók hún þátt í flutningi á Vínarvölsum Strauss-fjölskyldunnar. Á milli jóla og nýárs verða stignir Vín- arvalsar í Hornbjargsvita," sagði Ólafur. Hann sagðist eta hangikjöt á aðfangadag og helst vildi hann hafa það í öll mál. „Annars hef ég aldrei gert veður út af mat, en það var farið að skorta ýms- ar lífsnauðsynjar núna, sem sagt bækur, brennivín og tóbak,“ sagði Ólafur. Helsta dægrastytting Ólafs svo fjarri mannabyggðum er bóklestur. Hann kvaðst kaupa bækur á hálfvirði í janúarmán- uði þegar fólk hefði losað sig við jólabækumar á fornbókasöl- ur. Núna væri hann að lesa Snorra á Húsafelli, en mánaðar- lega kveðst Ólafur lesa Komm- únistaávarpið. > > | ) >

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.