Morgunblaðið - 24.12.1992, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTIJDAGUR 24. DESEMBER 1992
Jólatónleikar
Welch. Lög þessi, Adesta Fideles
og perlan, Nóttin var sú ágæt
ein, eiga rétt á því að hljóma í
upprunalegri, einfaldri og fallegri
gerð sinni. Tónleikunum lauk með
Heims um ból, og söng Kristján
fyrsta versið en kirkjugestir tóku
síðan undir.
Þar með lauk þessari hátíðlegu
samkomu og víst er, þrátt fyrir
að allir listamennirnir, sem gáfu
vinnu sína, stæðu sig frábærlega
vel, hefðu kirkjugestir ekki haft
á móti því að heyra meira til
heimssöngvarans okkar, sem von-
andi getur orðið fljótlega.
P.s. í sjónvarpsviðtali sl. mánu-
dag nefndi Kristján undirritaðan
og var líklega að vitna til sjón-
varpsviðtals nokkrum dögum fyrr,
þar sem undirritaður var spurður
álits á Kristjáni og söngframa
hans. Eitthvað kannast undirrit-
aður ekki við tilvitnun Kristjáns
og telur líklegt, ef hann hefur séð
viðtalið, að um misskilning sé að
ræða og hafi hann ekki séð það,
hafí sá er endursagði Kristjáni
innihald þess, mjög affært það.
Kristján hefur ávallt átt óskipta
aðdáun undirritaðs, sem vill að
þessu sinni þakka honum kærlega
fyrir góða tónleika og óska honum
gleðilegra jóla og farsældar á
nýju ári.
sterkt. FVrri hluta tónleikanna
lauk með 4. þætti úr orgelsinfó-
níu eftir Saint-Saens, sem Hörður
Áskelsson lék á nýja orgelið af
þrumandi krafti, undir kraftmik-
illi stjóm Rico Saccani.
Eftir hlé söng Kristján Ombra
mai fu eftir Handel mjög vel en
það var þó í Ingemisco tanquam
reus aríunni, úr Dies iræ þættin-
um í Sálumessu Verdis, þar sem
glæsilegur söngur Kristjáns naut
sín, svo og í Agnus Dej, eftir Biz-
et og í Jólanóttinni frægu, eftir
Adams. Þarna var Kristján stór-
kostlegur. Á milli laganna sem
Kristján söng, voru flutt jólalög
og tvö þeirra í vægast sagt ós-
mekklegum útsetningum eftir Ed
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Félagsskapurinn Barnaheill
stóð fyrir jólatónleikum í Hall-
grímskirkju sl. þriðjudagskvöld
og fékk til liðs við sig óperu-
söngvarann Kristján Jóhannsson,
hljómsveitarstjórann Rico Sacc-
ani, Sinfóníuhljómsveit íslands,
Mótettukór Hallgrímskirkju, sem
Bernhard Wilkinson stjórnaði, og
Hörð Áskelsson orgelleikara, er
lék með á nýja orgelið í Hallgríms-
kirkju. Á efnisskránni voru verk
eftir Albinoni, Bach/Gounod,
Byrd, Harris, Franck, Saint-
Saéns, Handel, Verdi, Bizet,
Parry og Adams en aðeins eitt
íslenskt jólalag, Nóttin var sú
ágæt ein, eftir Sigvalda Kaldal-
óns.
Tónleikarnir hófust á Adagio,
eftir Albinoni og mátti þar heyra
skemmtilegt samspil milli orgels
og hljómsveitar, undir stjórn Rico
Saccani. Ave Maria, eftir Bach/
Gounod, hófst með ágætum ein-
leik Guðnýjar Guðmundsdóttur
konsertmeistara en síðan hóf upp
raust sína heimssöngvarinn Krist-
ján Jóhannsson og flutti þessa
fallegu bæn af hógværð og mjög
vél.
Mótettukórinn spng tvö ensk
kirkjuverk, það fyrra eftir Byrd
en seinna eftir Harris og flutti
þau mjög vel undir öruggri stjórn
Bernhards Wilkinsons. Þegar hljó-
man kirkjunnar hefur verið hamin
að miklu leyti, eins og nú hefur
átt sér stað, kemur fram hljóm-
firrð, er merkir að kirkjuskipið
hugsanlega kallar á mun stærri
kór en Mótettukórinn er nú, auk
þess sem hljómur kórsins er sér-
lega mjúkur. Trúlega veldur
nokkru dempunin í þéttsetinni
kirkjunni, en þessi hljómfírrð kom
einnig fram eftir hlé, þegar kórinn
söng Nóttin var sú ágæt ein, með
undirleik hljómsveitar og í verki
eftir Parry, þar sem orgelið lék
með en bæði þessi verk voru
ágætlega flutt undir stjórn Bem-
hards.
Fyrir hlé lauk Kristján sínum
hluta með Panis Angelicus, eftir
César Franck, sem hann söng af
reisn og hélt vel í við hljómsveit-
ina, sem lék stundum nokkuð
FASTEIGNA lf
|^EJ MARKAÐURINN
Óðinsgötu 4, símar 11540 - 21700,
Jón Guðmundsson, sölustj., lögg. fasteigna- og skipasali,
Ólafur Stefánsson, viðskiptafr., lögg. fasteignasali.
FASTEIGNAMIÐSTÖÐIN HF.
Skipholti 50b, 105 Reykjavík, sími 91 -622030, fax 91 -622290.
ILAUFÁSi
FASTEIGNASALA
SÍÐUMÚLA 17
Starfsfólk Laufáss óskar
viðskiptavinum sínum
gleðilegra jóla
og farsældar á
komandi ári.
Þökkum viðskiptin
á árinu sem er að
líða.
SAMTENGD
söluskrA
ÁSBYRGI
IIGMÁSM W
812744 *
Fax: 814419 ■■
Magnús Axelsson, lögg. fastsali.
Metsölubiad á hverjum degi!
Gleðileg jól og farsœlt komandi ár.
Þökkum viðskiptin á árinu.
Sæberg Þórðarson, löggiltur fasteigna- og skipasali,
Skúlatúni 6, hs. 666157.