Morgunblaðið - 24.12.1992, Blaðsíða 71

Morgunblaðið - 24.12.1992, Blaðsíða 71
i t ., |í *‘| ’ j' js'»■; H| ( i \ MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1992 HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ Leggjum áherslu á agaðan sóknarleik - segir Þorbergur Aðalsteinsson um landsleikina gegn Frökkum ÍSLENSKA landsliðið í handknattleik leikur þrjá landsleiki við Frakka á milli jóla og nýárs. Að sögn Þorbergs Aðalsteinsson- ar, landsliðsþjálfara, verða leikirnir fyrst og fremst notaðir til að slípa sóknarleikinn. „Við verðum að bæta sóknina fyrir HM í Svíþjóð og leggjum áherslu á agaðan sóknarleik gegn Frökkum." Islenska liðið var á hælunum á móti í Danmörku á dögunum, en Þorbergur sagði að ástæðulaust væri að hafa áhyggjur af því. Margir leik- menn hefðu fengið að reyna sig, en nú væri komin mynd á hópinn og því mætti segja að endanlegur undir- búningur fyrir HM hæfist með jóla- leikjunum gegn Frökkum. Síðan tæki Lotto-mótið við í Noregi með þátt- töku Rússa, Hollendinga og ítala auk heimamanna og íslendinga og í febr- úar yrðu tveir leikir gegn Pólveijum og þrír gegn Dönum. „Þessir mótheijar sýna enn einu sinni hvað B-keppnin í Austurríki fyrr á árinu var mikilvæg. Meðan við vorum b-þjóð fengum við ekki leiki gegn sterkari þjóðum, en nú verðum við að vísa liðum frá. Til að mynda vildu Spánveijar ólmir fá leiki gegn okkur fyrir HM, en því miður gátum við ekki orðið við ósk þeirra,“ sagði þjálfarinn. „Þetta eru allt mjög verðugir mót- heijar og góðir leikir fyrir okkur vegna HM,“ sagði Þorbergur. „Ljóst er að við þurfum að ná upp beittari sóknarleik en verið hefur og við kom- um til með að vinna að því. Vamar- leikurinn hefur verið í lagi og við verðum að gæta þess að tapa ekki því, sem við höfum." Þorbergur sagði að hann myndi SigurAur Sveinsson er klár i slaginn gegn Frökkum. Hann lék ekki með landsliðinu í Barcelona, þar sem íslenska landsliðið tapaði fyrir Frökkum í keppni um þriðja sætið. Uppselt í for- sölu á Blönduósi Mikill áhugi er á landsleik íslands og Frakklands, sem verður á Blönduósi á mánudag. Guðmundur F. Haraldsson, forstöðumað- ur íþróttahússins á staðnum, sagði við Morgunblaðið að allir miðar, um 600 talsins, yrðu seldir í forsölu á Blönduósi, Hvammstanga, Skaga- strönd og jafnvel Sauðárkróki. „Það er engin spuming. Mikill áhugi er á leiknum og við seljum alla miðana í forsölu," sagði Guðmundur. íþróttahúsið á Blönduósi var vígt 6. september s.l. með leik 1. deild- arliða KA og FH í handknattleik og strax á eftir léku úrvalsdeildarlið Tindastóls og UMFN. Guðmundur sagði að þá hefði húsið verið fullt, en síðan hefði ekki verið stórviðburður í því. Þorbergur Aðalsteinsson, landsliðsþjálfari, segir að það verði að ná stöðuleika í sóknarleik landsliðsins. aðallega leggja upp 6-0 vöm gegn Frökkum en reyna lfka að fara meira út á móti andstæðingunum. „Við höfum gert það með góðum árangri og stefnum að því að ná upp grimm- um vamarleik." Sóknarleikurinn hefur verið höf- uðverkur hjá landsliðinu og sérstak- lega hefur verið farið illa með hraða- upphlaupin. Á Ólympíuleikunum í Barcelona voru Frakkar og Svíar með 70%_nýtingu í hraðaupphlaup- um, en íslendingar 58% nýtingu. „Þetta er verulegur munur og við verðum að bæta okkur á þessu sviði," sagði þjálfarinn. „Við höfum verið að æfa ákveðin kerfi og ég legg áherslu á að menn séu þolinmóðir, bíði eftir boltanum og spili yfirveg- að, hvemig sem staðan er.“ Þorbergur sagði ennfremur að ná þyrfti stöðugleika í sóknina. „Sókn- arleikurinn nú er ekki eins beittur og áður. Hann er ekki lélegri, en Landsliðið gegn Frökkum íslenska landsliðið sem leikur gegn Frökkum verður skipað eftirtöldum leikmönnum: Markverðir: Guðmundur Hrafnkelsson, Val Bergsveinn Bergsveinsson, FH Sigmar Þröstur Óskarsson, ÍBV Aðrir leikmenn: Gunnar Beinteinsson, FH Guðjón Ámason, FH Geir Sveinsson, Val Valdimar Grímsson, Val Dagur Sigurðsson, Val Gústaf Bjamason, Selfossi Einar G. Sigurðsson, Selfossi Sigurður Sveinsson, Selfossi Patrekur Jóhannesson, Stjömunni Magnús Sigurðsson, Stjömunni Gunnar Gunnarsson, Víkingi Konráð Olavson, Dortmund Héðinn Giisson, Dusseldorf Júlíus Jónasson, Paris St. Germain öðruvísi — leikmennimir hafa aðra eiginleika. Þetta er ekki áhyggju- efni, því ég veit að við eigum eftir að bæta okkur verulega." Dússeldorf burst- aði Gummersbach Héðinn Gilsson og félagar hans í Diisseldorf unnu Gum- mersbach auðveldlega, 21:14, íþýsku úrvalsdeildinni í handknattleik um síðustu helgi. Héðinn var tekinn úr umferð nær allan leikinn en gerði þó 3 mörk. Diisseldorf er nú í 15. sæti deildarinnar með 13 stig. Sigurður Bjarnason gerði tvö mörk fyrir Grosswallstadt er liðið gerði jaftefli við Flensburg 18:18 á úti- velli. Grosswallstadt er með 15 stig í 11. sæti. Wallau Massenheim, sem leikur gegn FH í Evrópukeppninni, er í efsta sæti með 24 stig og Ess- en, sem Valur mætir í sömu keppni, er í öðru sæti með 22 stig. Héðinn kemur heim um jólin og leikur með íslenska landsliðinu . á sunnudagskvöld gegn Frökkum, en fer til Þýskalands daginn eftir til að leika með Diisseldorf í deildinni 30. desember. Sigurður Bjamason kem- ur ekki heim uin jólin vegna þess að hann á að leika tvo leiki með Grosswallstadt milli jóla og nýárs. FIMLEIKAR Wecker kemur til íslands - á annað hundrað eriendir dómarar taka þátt í dómaranámskeiði hér á landi Fimleikastjarnan, Andreas Wecker kemur hingað til lands í vetur í boði Fimleikasambandsins og Fimleikadeildar Gerplu. Wecker sem kemur frá aust- urhluta Þýskalands vann tii tvennra silfurverðlauna á síð- ustu Ólympíuleikum. Hann kemur hingað til lands í byrjun febrúar og verður líklega gestakeppandi á Þorramóti FSÍ. Fimleikasambandið heldur upp 4 25 ára aiinæli sitt á næsta ári. í tilefni af því verða verkefni mörg hjá sambandinu. Búist er við að á annað hundrað dómarar sem standa í fremstu röð á Norðurlönd- unum komi hingað til lands á al- þjóðlegt dómaranámskeið í lok næsta mánaðar. Samkvæmt regl- um Alþjóða fimleikasambandsins breytast skylduæfingar f fimleik- um eftir hveija Ólympfuleika og fram koma nýjar æfingar. Af þess- um sökum þurfa alþjóðadómarar jafnan að gangast undir nýtt dóm- arapróf fjórða hvert ár. Fjórir ís- lenskir dómarar hafa þegar sótt námskeið í nýju reglunum. Berg- lind Pétursdóttir, Asta ísberg og Áslaug Óskarsdóttir sóttu nám- skeið í kvennagi'einunum í Frakk- landi og Jónas Tryggvason sótti nýlega námskeið f Englandi f kar- lagreinunum. Fimleikasambandið hyggst standa fyrir fjölmennu fimleika- móti í ágúst á næsta ári. Mótið er ætlað fólki sextíu ára og eldra og hefur hlotið nafnið „Gym í nord- en.“ Margrét Bjömsdóttír, formað- ur FSÍ sagði að sambandið hefði fengið mjög góð viðbrögð frá fím- leikahópum á öðrum Norðurlönd- um og að hún reiknaði með að þátttakendur yrðu á bilinu 5-600. BILALEIGA Úrval 4x4 fólksbfla og station bfla. Pajero jeppar o.fl. teg. Pickup-bllar með einf. og tvöf. húsi. Minibussar og 12 sæta Van bllar. Farsímar, kerrur f. búslóðir og farangur og hestakerrur. Reykjavík 686915 interRent Europcar BÍLALEIGA AKUREYRAR Fáöu gott tilboö!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.