Morgunblaðið - 24.12.1992, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1992
21
Leikfélag Akureyrar
Leikritið Útlend-
ingurmn frumsýnt
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Bryndís Petra Bragadóttir og Jón Bjarni Guðmundsson í hlutverkum
sínum.
JÓLALEIKRIT Leikfélags Akur-
eyrar er að þessu sinni bandarísk-
ur gaman- og spennuleikur, „Út-
lendingurinn" eftir Larry Shue,
sem frumsýnt verður að kveldi
þriðja dags jóla, sunnudaginn 27.
desember. Böðvar Guðmundsson
þýddi leikritið en leikstjóri er
Sunna Borg. Sjö leikarar fara með
stór hlutverk í sýningunni, en að-
alpersónuna, Charlie, leikur Þrá-
inn Karlsson.
„Það er alltaf afstætt að meta
hvað er erfítt, en þetta hlutverk er
allt öðruvísi en þau sem ég hef verið
að leika síðustu ár. Ég hef ekki leik-
ið grínhlutverk lengi, þannig að þetta
er ný reynsla fyrir mig og ég kann
ágætlega við hana,“ sagði Þráinn.
„Það er svolítið sérkennilegt að vera
á leiksviðinu og skilja allt sem fram
fer, en þykjast ekkert skilja af því
sem fram fer.“
Charlie þjáist af mikilli feimni og
minnimáttarkennd. Hann hefur setið
við sitt gráa borð og prófarkalesið
hasarblöð í 31 ár og sér ekki tilgang-
inn með starfinu, enda á öllum að
vera sama þó eitt eða tvö k séu í
sumum orðanna. Honum fínnst hann
ósköp leiðinlegur og persónuleika-
laus og eiginkonunni fínnst fátt
merkilegt við hann. Vinur hans býð-
ur honum með sér í ferðalag frá
heimkynnum þeirra í Bretlandi til
Þráinn Karlsson í hlutverki
Charlie í Útlendingnum.
Georgíu í Suðurríkjum Bandaríkj-
anna og þar sér hann fram á að
neyðast til að umgangast fólk sem
honum er meinilla við. Það verður
þrautalending þeirra félaga að segja
Charlie dularfullan útlending, sem
ekkert skilji og því tilgangslaust að
halda uppi samræðum við hann. Þar
sem fólk telur að Charlie skilji ekki
nokkum skapaðan hlut kemst hann
að ýmsu sem honum er ekki ætlað
að vita.
„Charlie er óhamingjusamur,
taugaveiklaður og einangraður, en
þegar hann lendir í þessum undar-
legu kringumstæðum í Suðurríkjum
Bandaríkjanna uppgötvar hann að í
honum býr gamansamur púki og eft-
ir að hafa dregið hann út úr hug-
skoti sínu og dustað af honum rykið
uppgötvar hann sér til ánægju að
hann hefur ákveðinn pereónuleika
og fer að kunna betur við lífið en
áður,“ sagði Þráinn um aðalpersónu
leiksins sem hann túlkar í verkinu.
Þó meginviðfangsefni Útlendings-
ins sé ekki útlendingahatur eða öfga-
hreyfingar geta menn séð ýmsar
tengingar í verkinu þar um, en á
sviðinu birtast nokkrar aukapersónur
í gervi Ku Klux Klan, þessum banda-
rísku samtökum sem þykja eitt ill-
ræmdasta tákn fyrir skipulagðar
kynþáttaofsóknir á síðari tímum.
Auk Þráins fara sex aðrir leikarar
með hlutverk í Útlendingnum, þau
Sigurveig Jónsdóttir, sem leikur
Bettý, eiganda gistihússins þar sem
Charlie dvelur á meðan á ferðalaginu
stendur, Aðalsteinn Bergdal leikur
Froggý, félaga Charlies, Bryndís
Petra Bragadóttir, Jón Bjami Guð-
mundsson og Sigurþór Albert Hei-
misson fara með hlutverk gesta á
gistiheimilinu, Bryndís og Jón Bjami
leika par, Katrínu og séra Davíð, sem
áhuga hafa á að kaupa gistihúsið,
og Sigurþór fer með hlutverk bróður
Katrínar, Ellards. Björn Karlsson
leikur Owen, byggingafulltrúa á
staðnum, sem kemur töluvert við
sögu.
Útlendingurinn er ijórða og síð-
asta leikritið sem Larry Shue skrif-v
aði, en hann lést í flugslysi árið 1985.
Hann var þá að vinna að kvikmynda-
handriti að þessu verki, honum hafði
verið falið að skrifa gamanþáttaröð
fyrir CBS-sjónvarpsstöðina og eins
hafði hann undirritað samning um
að skrifa handrit að söngleik fyrir
Broadway auk þess að vera vinsæll
leikari. Útlendingurinn hefur hvar-
vetna notið mikilla vinsælda, m.a.
verið sýnt um 700 sinnum í Off-
Broadway í New York og einnig er
hann var sýndur í London. Þá hefur
hann verið sýndur í 17 leikhúsum á
Norðurlöndunum og var fmmsýndur
að nýju í leikhúsum á öllum Norður-
löndunum nú í haust.
„Ég vona svo sannarlega að þetta
verk fái aðsókn og mun njóta vin-
sælda hér og það hefur alla burði til
þess, þetta er spennandi og skemmti-
legt leikrit," sagði Þráinn.
Fmmsýningin verður sem fyrr
segir sunnudagskvöldið 27. desem-
ber, en síðan verður leikritið sýnt
mánudagskvöldið 28. desember,
þriðjudagskvöldið 29. desember og
loks miðvikudagskvöldið 30. desem-
ber, eri' sýningar hefjast síðan að
nýju eftir áramót föstudagskvöldið
8. janúar.
TEXTI: mþþ
Leikhús
Frumsýningar um jólin
BÆÐI Þjóðleikhúsið og Borgar-
leikhúsið eru með frumsýningar á
annan í jólum. Eins og oft tilheyr-
ir jólasýningum er hér um söng-
leiki að ræða með skrautlegum
sviðsbúnaði. Söngleikurinn My
Fair Lady eftir Alan Jay Lerner
og Fredrick Loewe verður á Stóra
sviði Þjóðleikhússins, en á Stóra
sviði Borgarleikhússins er barna-
leikritið eða söngleikurinn Ronja
ræningjadóttir, byggður á sögu
sænska barnabókahöfundarins,
Astrid Lindgren, með tónlist eftir
danska dægurlagahöfundinn
Sebastian.
Rúmlega 30 manns taka þátt í
söngleiknum My Fair Lady, leikarar,
dansarar, Þjóðleikhúskórinn, þrír
dansarar, auk 20 manna hljómsveit-
ar. Leikstjóri er Stefán Baldursson,
leikmynd gerir Þórunn S. Þorgríms-
dóttir, en búninga þýskur búninga-
teiknari, María Roers. Tónlistarstjóri
er Jóhann G. Jóhannsson. Breskur
dansahöfundur, Kenn Oldfield semur
dansana. Lýsingu hannar Bjöm B.
Guðmundsson, en hljóðblöndun
Sveinn Kjartansson.
í sýningunni Ronja ræningjadóttir
em 20 leikarar. Leikstjóri er Ásdís
Skúladóttir. Leikmynd og búninga
gerir Hlín Gunnarsdóttir, Margrét
Pálmadóttir er söngstjóri, en Helga
Arnalds sér um brúðugerð. Þýðendur
eru Þorleifur Hauksson og Böðvar
Guðmundsson.
Söngleikurinn My Fair Lady var
á fjölum Þjóðleikhússins fyrir 30
árum, fmmsýndur í mars 1962.
Hann gekk fyrir fullu húsi fram í
júlí og sýningar urðu alls 68. My
Fair Lady hefur fengið orð fyrir að
vera með vinsælustu söngleikjum og
hefur slegið öll sýningarmet bæði á
Broadway og í Lundúnum. Kvik-
mynd hefur verið gerð eftir honum,
sem sópaði til sín Óskarsverðlaunum.
Söguþráðurinn er byggður á leik-
ritinu Pygmalion eftir Georg Bernard
Shaw, og segir hina sígildu sögu um
alþýðustúlkuna, sem með heilbrigðri
skynsemi sigrast á þröngsýni og for-
dómum yfirstéttarkarlsins og hlýtur
ást hans að lokum. Og söngleikurinn
sprettur upp úr samstarfí tónskálds-
Jóhann Sigurðarson og Steinunn
Ólína Þorsteinsdóttir í hlutverk-
um prófessor Higgings og Elísu
Doolittle.
ins, Frederick Loewe og textahöf-
undarins Alan Jay Lerner.
Þau Jóhann Sigurðarson og Stein-
unn Ólína Þorsteinsdóttir fara með
aðalhlutverkin, prófessor Higgins og
Elísu Doolittle. Vinur Higgings, Pic-
kering ofursti er leikinn af Helga
Skúlasyni. Steinunn Ólína lék fyrsta
hlutverk sitt í Þjóðleikhúsinu í hátíð-
arsýningu hússins á Pétri Gaut, en
þar lék hún Sólveigu. Sama vor lék
hún Elísabetu, elstu dóttur Trampe
greifa í Söngvaseið. í öðrum helstu
hlutverkum eru Pálmi Gestsson, Þóra
Friðriksdóttir, Bergþór Pálsson,
Helga Backmann og Margrét Guð-
mundsdóttir.
Leikgerð á söngleiknum, Ronju
ræningjadóttur, er dönsk með söngv-
um eftir Sebastian, sem þykir einn
af fremstu dægurlagasmiðum í Dan-
mörku. Söngleikurinn var frumsýnd-
ur í Danmörku 1990 og hefur notið
mikilla vinsælda þar. Sögan fjallar
um hina hugprúðu Ronju og vini
hennar, - er nútímaævintýri með
fallegum boðskap, eins og Astrid
Lindgren er þekkt fyrir.
Með hlutverk Ronju fer Sigrún
Edda Björnsdóttir. í öðrum helstu
hlutverkum eru Gunnar Helgason,
Theodór Júlíusson, Margrét Helga
Jóhannsdóttir, Guðmundur Ólafsson,
Pétur Einarsson, Jón Hjartarson,
Árni Pétur Guðjónsson og Karl Guð-
mundsson.
Báðar frumsýningar eru á annan
jóladag. Sýning á Ronju ræningja-
dóttur hefst kl. 14.00, en sýning á
My Fair Lady hefst kl. 20.00. Næstu
sýningar á Ronju verða 29. og 30.
desember, en á My Fair Lady 27.
29. og 30. desember.
EIGNAMIÐUMN
Sími 67-90-90 - Síðumúla 21
Óskum
viðskiptavinum
okkar
og
landsmönnum
öllum
gleðilegra jóla!.
_ÁbyrS þjónusta í áratugi, ^_
»
athugib
Afgreiöslutími auglýsingadeildar
Morgunblaðsins yfir hátíbarnar
verbur sem hér segir:
lii|
Aðfangadagur 24. desember ...opið frá kl. 9-12
Lokað 25. desember - 27. desember
Mánudagur 28. desember....opið frá kl. 9-17
Þriðjudagur 29. desember..opið frá kl. 8-17
Miðvikudagur 30. desember ....opið frá kl. 8-17
Fimmtudagur31. desember ....opiðfrá kl. 8-12
Lokað 1. janúar 1993
Laugardagur 2. janúar.....opið frá kl. 8-12.
Skilafrestur
auglýsingapantana
I blaðið þriðjudaginn 29. desember
Sérauglýsingar: 23. desember kl. 16
Atvinnu- og raðauglýsingar: 28. desember kl. 12
í blaðið miðvikudaginn 30. desember
Sérauglýsingar. 28. desember kl. 16
Atvinnu- og raðauglýsingar: 29. desember kl. 12
í blaðið fimmtudaginn 31. desember
Sérauglýsingar: 29. desember kl. 16
Atvinnu- og raðauglýsingar: 30. desember kl. 12
í blaðið sunnudaginn 3. janúar
Sérauglýsingar: 30. desember kl. 16
Atvinnu- og raðauglýsingar: 30. desember kl. 16.