Morgunblaðið - 24.12.1992, Side 60
GRINDAVÍK
Yngstu bömimum boðið á litlu jólin
TONLEIKA
fyrir gesti fædda'77 og ffyrr
aðgangseyrir aðeins kr. 700.-
opið frá kl. 21.04 tif ki. 00.46
og allír heim í strætó á eftir.
forsala tónleikadaglnn frá kl. 14.00
29. desember
Salin HAN$ vlÖNS MÍNS
MORGUNBI.ÁÐIÐ FIMMTUDÁGUR 24. DESEMBÉR 1992
Bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár! Þökkum samstarfið á árinu sem er að líða.
Grindavík.
Starfsmenn í fjarskiptastöð
bandaríska hersins í Grinda-
vík hafa undanfarin ár boðið nem-
endum í 7 ára bekk á jólaskemmt-
un fyrir jólin.
Þeir brugðu ekki út af venjunni
fyrir þessi jól og buðu til jóla-
skemmtunar. Þær breytingar hafa
hins vegar átt sér stað að þeir
hafa ekki fasta búsetu í stöðinni í
Grindavík og er ekið frá herstöð-
inni í Keflavík og var því jóla-
skemmtunin haldin þar. Rúta frá
gestgjöfunum sótti bömin í Grunn-
skólann og ók þeim á áfangastað.
Þar beið þeirra hópur starfsmanna
með kökur og annað góðgæti.
Kevin Francis Lover kapteinn í
bandaríska hernum bauð nemend-
ur velkomna og sagði við þá að
þetta væri 31. skipti sem nemend-
um úr Grindavík væri boðið á jóla-
skemmtun starfsmanna fjarskipta-
stöðvarinnar í Grindavík og það
væri gaman að eiga þessi sam-
skipti við þau. Þá væri gaman fyr-
ir þá að sjá muninn á jólasiðum
hjá Bandaríkjamönnum.
Eftir að hafa gert veitingum góð
skil varð uppi fótur og fít meðal
nemendanna því inn gekk maður
í kunnuglegum jólasveinabúningi
og var þar kominn Sankti Kláus,
jólasveinn þeirra í útlöndum. Hann
settist niður í stól og ræddi við
bömin. Karlinn varð mjög hissa
að heyra að hér væru hvorki fleiri
né færri en 13 jólasveinar og böm-
in jafnhissa að heyra að erlendis
væri aðeins 1 og fannst með ólík-
indum að hann gæti annað öllum
þeim störfum sem á hann falla.
Sankti Kláus leysti börnin síðan
út með veglegum gjöfum og fengu
drengirnir fjarstýrða bíla en stúlk-
umar barbídúkkur.
Nemendurnir frá Grindavík
þökkuðu góðar móttökur með því
að syngja jólalög fyrir gestgjafana
og héldu síðan heim á leið reynsl-
unni ríkari um jólahald annars
staðar en hjá þeim.
- FÓ
Morgunblaðið/Frímann Ólafsson
Börnin úr Grindavík þyrptust kringum Sankti Kláus á jólaskemmtun
sem þeim var boðið á á Keflvíkurflugvelli.
MorgunblaðiO/Porkell
Erla Kristjánsdóttir, Grigol Matsjavariani og eiginkona hans Irma
Oboladze.
Á stóra sviði:
Ronja ræningjadóttir
eftir Astrid Lindgren
Tónlist: Sebastian. Þýðendur: Þorleifur Haufisson og Böðvar Guðmundsson.
Leikmynd og búningar: Hlín Gunnarsdóttir. Dansahöfundur: Kuður Bjarnadóttir.
Tónlistarstjóri: Margrét Pálmadóttir. Brúðugerð: Helga Arnalds. Lýsing: Elfar Bjarnason.
Leikstjóri: Ásdís Skúladóttir.
Leikarar:
Ronja: Sigrún Edda Björnsdóttir. Árni Pe'tur Guðjónsson, Björn Ingi Hilmarsson,
Ellert A. Ingimundarson, Gunnar Helgason, Guðmundur Ólafsson, \ón Hjartarson, \ón Stefán
Kristjánsson, \akob Þór Einarsson, Karl Guðmundsson, Margre't Ákadóttir, Margre't Helga
fókannsdóttir, Ólafur Guðmundsson, Pe'tur Einarsson, Soffta Jakobsdóttir, Theodór lúlíusson,
Valgerður Dan og Þröstur Led Gunnarsson.
FRUMSÝNING: Laugard. 26. des. kl. 15- UPPSELT
Sunnud. 27. des. kl. 14 - UPPSELT
Þriðjud. 29. des. kl.14 - UPPSELT
Miðvikud. 30. des. kl. 14 - UPPSELT
Laugard. 2. jan. kl. 14 - FÁEIN SÆTI LAUS
Sunnud. 3. jan. kl. 14 - FÁEIN SÆTI LAUS
Mtðaverð kr. 1.1OO -
sama verð fyrir börn og fullorðna
LEIKFELAG
REYKJAVÍKUR
wfk
BORGARLEIKHUSIÐ
SÍMI680 680
LESTUR
Matsjavariani
færð bókagjöf
Erla Kristjánsdóttir, formaður
Minningarsjóðs Jóns Júlíusar
Þorsteinssonar kennara, afhenti
Georgíumanninum Grigol Mat-
sjavariani fjórar bækur eftir Jón
að gjöf á þriðjudag. Bækumar
fjórar em Hljóðstöðumyndir, ís-
lensk málhljóð, Lestrarkennsla og
Hljóðlestraraðferð og eru þær ætl-
aðar til notkunar við lestur- tal-
og söngkennslu.
Erla sagði að sjóðurinn hefði
verið stofnaður árið 1982 og væri
hann því tíu ára um þessar mund-
ir. „Af þeirri ástæðu og þar sem
ég er mjög hrifín af því framtaki
Matsjavarianis að læra íslensku
fannst mér kjörið tilefni að færa
honum bækumar að gjöf,“ sagði
Erla. Hugmyndina sagðist hún
hafa fengið eftir að hafa séð við-
tal við Matsjavariani í sjónvarpi
og lesið viðtal við hann þar sem
kom fram að hann ætti í erfiðleik-
um með myndun margra sérís-
lenskra hljóða.
Bækurnar vom gefnar út árið
1983 í eitt þúsund tölusettum ein-
tökum og hafa nú þegar selst um
þijú hundruð eintök. í þeim em
83 myndir, m.a. 33 myndir eftir
Jón af öllum hljóðum málsins og
níu myndir sem Árni Böðvarsson
bætti við. Erla sagði bækurnar
vera til í flestum gmnnskólum í
Reykjavík og Akureyri og þar að
auki verið notaðar við söng-
kennslu. Síðustu árin hefðu þær
einnig verið seldar til erlendra
háskóla þar sem kennd er íslenska
eða norræna og hefðu Þjóðveijar
verið sérstaklega spenntir fyrir
þeim.