Morgunblaðið - 24.12.1992, Síða 69
I
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. DESEMBER 1992
69
jBestu óskir um gleðileg jól
og iðnaðarríkt komandi ár.
þökkum samstarfið
á árinu sem er að líða.
LANDSSAMBAND
IÐNAÐARMANNA
Samiök alvinnurekenda t lOnaOi
SIGLFIRÐINGAFÉLAGIÐ
í Reykjavík
og nágrenni
Jölatrésskemmtun Siglfirðingafélagsins
verður haldin ífélagsheimili Kópavogs, Fannborg 2,
sunnudaginn 27. des. kl. 15.00.
I
I
I
I
I
f
f
f
I
I
Hangikjötið er kælivara
- kæling þess má aldrei rofna
í tilefni af gæða- og verðkönnun
Morgunblaðsins á hangilg'öti frá
17. desember óska Landssamtök
sláturleyfishafa að koma eftir-
f arandi áframfæri:
Samkvæmt upplýsingum frá Holl-
ustuvernd þá fylgdu hangikjötssýn-
um engar upplýsingar um hitastig á
þeim búðarkælum sem sýnin voru
tekin úr og í umfjöllun Morgunblaðs-
ins um könnunina verður ekki séð
hvort hitastig þeirra hafi verið mælt
þegar sýnin voru tekin. Óæskitegur
gerlavöxtur verður einna helst ef
kæling á hangikjötinu rofnar eða er
ekki nægileg allan geymslutímann.
Við sjö af tólf sýnum gerði Holl-
ustuvemd engar athugasemdir. Af
þeim fímm sem við var gert athuga-
semdir voru fjögur ófullnægjandi eða
ábótavant hvað gerlafjölda snertir.
Það er ekki hættulegt heilsu manna.
Það sem er ófullnægjandi eða ábóta-
vant í þessu sambandi er fyrst og
fremst skert geymsluþol.
Þegar heilbrigðiseftirlit sveitarfé-
laganna tekur sýni úr kælivöru til
rannsóknar er jafnframt hitastig
kælanna mælt sem sýnin voru tekin
úr. Þannig má fá vísbendingu um
hvar í vöruferlinum gerlavöxturinn
verður.
Hangikjöt er viðkvæm kælivara.
Mikilvægt er að það sé strax að lok-
inni reykingu geymt í 3 til 5 stiga
hita til að hindra óæskilegan gerl-
avöxt. Það á við bæði um dreifíngu
þess og smásölu.
VELVAKANDI
FRAKKI
Dökkur ullarfrakki var tekinn
í fatahenginu í Ingólfskaffí sl.
föstudag. Viðkomandi er vin-
samlegast beðinn að skila honum
þangað aftur eða hringja í Sig-
urð í síma 40090.
MYNDAVÉL
Fuji myndavél tapaðist í leið
3 hinn 12. des. Finnandi er vin-
samlegast beðinn að hringja í
síma 654175.
KETTLINGAR
Kettlingar fást gefins. Sími
20267.
VESKI
Veski tapaðist fyrir utan
Mílanó í Faxafeni fyrir
skömmu. í því voru m.a. nótur,
peningar og ávísun stíluð á
nafn. Finnandi er vinsamlegast
beðinn að hringja í síma 985-
37450.
ÞUNGLYNDI
Guðbjörn Hjálmarsson, Víði-
nesi:
Það getur.verið mjög þreyt-
andi að útskýra fyrir fólki
þunglyndi, ég tala nú ekki um
þegar maður er þunglyndur.
Spurt er til dæmis: Þú hefur
ekki látið sjá þig lengi?
Nei, ég hef verið veikur.
Hvemig veikur?
Með þunglyndi.
Hvað er þetta maður, það
verða allir þunglyndir?
Nú vaknar sú spurning hvort
maður eigi að halda smá fyrir-
lestur eða segja bara einfald-
lega: Innra þunglyndi á sér
engar ytri orsakir, það kemur
og fer með ákveðnu millibili og
á sér sennilega líffræðilegar
orsakir. Ytra þunglyndi má hins
vegar rekja til ytri aðstæðna.
í innra þunglyndi koma fram
bæði sálræn og líkamleg ein-
kenni, svartsýni, sektarkennd,
og sjúklegur kvíði, svefnleysi,
höfuðverkur, bakverkur o.fl.
Þetta bendir til þess að um líf-
fræðilega þætti sé að ræða.
HANDTASKA
Handtaska með skilríkjum
var tekin í misgripum í Casa
Blanca sl. laugardag. Vinsam-
legast skilið henni til lögreglu
eða hringið í síma 75604. Fund-
arlaun.
GIFTINGAR-
HRINGUR
Giftingarhringur fannst í
Inghóli á Selfossi eftir síðustu
helgi. Hringurinn er merktur
með dagsetningunni
29.12.1984. Eigandi getur vitj-
að hringsins í Inghóli.
En þar sem um reykta vöru er að
ræða þá tekur það gerla sem vaxa
í hangikjöti mun lengri tíma að valda
skemmdum en í t.d. ferskvöru þegar
ekki er rétt staðið að geymslu.
Verð- og gæðákönnun Morgun-
blaðsins er áminning til allra um að
hangikjöt er viðkvæm kælivara; bæði
til vinnslu-, dreifíngar- og smásölu-
aðila, að kæling þess má aldrei rofna
á ferli hangikjötsins til neytenda.
Þá telja Landssamtök sláturleyfis-
hafa að þessar niðurstöður bendi
ekki til þess að gæðaeftirlit í kjöt-
vinnslu sé lélegt hér á landi; lengi
getur gott hins vegar batnað og
munu vinnslustöðvar setja vinnslu-
feril hangikjötsins undir smásjá til
að herða enn betur á eftirlitinu.
Landssamtök sláturleyfíshafa telja
vert að ítreka það sem fram kemur
í Morgunblaðinu að þessar niðurstöð-
ur gefí ekki ástæðu til að halda að
hangikjötið ógni heilsu manna.
Landssamtök sláturleyfíshafa vilja
einnig benda á að eins og Hollustu-
vemd bendir sjálf á þá sé fram-
kvæmd könnunarinnar ekki hávís-
indaleg né sýni niðurstöður hennar
óvéfengjanlega niðurstöðu.
Pennavinir
Frá Ghana skrifar 23 ára stúlka
með áhuga á íþróttum, sundi, kvik-
myndum og tónlist:
Dorothy Dontoh,
P.O. Box 1231,
Cape Coast,
Ghana.
Bandarískur háskólanemi, 25
ára, með margvísleg áhugamál og
mikinn íslandsáhuga:
Kevin D. McGlothlin,
The Graduate College,
Princeton,
New Jersey 08544,
U.S.A.
LEIÐRÉTTIN G AR
Röng mynd
í Morgunblaðinu á þriðjudag átti
að birtast mynd af Óskari Ingimars-
syni með frétt á bl. 14. Svo óheppi-
lega vildi til að myndin sem birtist
var af föður hans Ingimar Óskars-
syni. Beðist er velvirðingar á þess-
um mistökum.
Föðurnafn féll
niður
í frétt sem birtist í Morgunblað-
inu sl. þriðjudag um styrkveitingar
úr minningarsjóði hjónanna Helgu
Jónsdóttur og Sigurliða Kristjáns-
sonar að föðurnafn eins styrkþeg-
ans, Sigríðar Þórisdóttur vantaði.
Þá var þess heldur ekki getið fyrir
hvað Elías Ólafsson hlaut styrk en
það var til kanna hlutverk heila-
skurðaðgerða í meðferð hinna ýmsu
tegunda heilaæxla.
Skiparadió hf.
SÝNING
i, Rvík
á Furuno - Kannad - Skanti -
Thrane & Thrane o.fl. siglinga-
og fiskileitartœkjum
dagana 28/12 til 30/121992 og
4/1 til 8/11993
milli kl. 9.30 og 16.30.
Sími 620233.
GLEÐILEG JÓL!
GleðWeg jól
O0 fareælt
komandl ár
Opnunartími yfir hátíðirnar:
Aðfangadagur.........kl. 8-15
Jóladagur..............- lokað
Annar í jólum • ■■■■■viianaa ■kl.9-19
Gamlársdagur........kl. 9-15
Nýársdagur............ - lokað
Ofímvíú bíómabúð
blómaverkstæði
INNA
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 12, BERGSTAÐASTRÆTISMEGIN, SÍMl 19090