Morgunblaðið - 25.05.1993, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ 1993
21
kerfi. Þegar sérfræðingar OECD
spá áframhaldandi vexti og við-
gangi KES ganga þeir út frá þeirri
forsendu að allt verði með feldi í
Kínaveldi eins og verið hefur
undanfarin ár: Með öðrum orðum
að efnahagslífið og þróun þess fái
að vera sem mest „í friði“ fyrir
pólitískri afskiptasemi öldunga-
veldis Kommúnistaflokksins, sem
þrátt fyrir allt fer með öll völd í
landinu.
Þá er og hollt að hafa í huga
að það er ekkert sem segir að
kapítalismi og lýðræði séu ein-
hveijir óhjákvæmilegir ferðafélag-
ar, og hver með sínum hætti eru
litlu Asíudrekamir fjórir til marks
um það.
Mannréttindi hafa löngum verið
fótum troðin í Kínverska alþýðu-
lýðveldinu, og era morðin á
hundraðum námsmanna á Torgi
hins himneska friðar fyrir fjórum
áram einhver svartasti blettur
samtímasögunnar. Mannsleg við-
brögð við þeirri óhæfu var að setja
valdhafana í alþjóðlegan skammar-
krók og vilja sem minnst af þeim
vita. Slík afstaða, þótt skiljanleg
sé, er þó bjarnargreiði við almenn-
ing í landinu. Við tilteknar aðstæð-
ur, eins og í Kína þessi árin, eru
sem mest samskipti og samgangur
- þar með talin viðskipti - besti
stuðningur okkar við aukið lýðræði
og meiri virðingu fyrir mannrétt-
indum, en því fer því miður fjarri
að þessi brothættu verðmæti dafni
með sama hraða og hagvöxturinn
í landinu.
Höfundur hefur búið í Kína um 5
ára skeið.
Reykhóla-
skóla slitið
Miðhúsum.
REYKHÓLASKÓLI starfaði í
vetur í tæpa níu mánuði en ætlun-
in er að næsta vetur starfi skól-
inn í fulla 9 mánuði. í vetur voru
rúmlega 50 nemendur í skólan-
um í öllum bekkjardeildum.
Nokkur mannaskipti verða við
skólann. Tveir kennarar hverfa til
annarra starfa og einn leiðbeinandi
heldur áfram námi. Einn kennari
hættir sökum aldurs. Skólanum er
eftirsjá að hinum ungu kennuram
en þau þrjú hafa staðið sig með
afbrigðum vel.
Eyjólfur Sturlaugsson sem verið
hefur við skólann í þrjú ár fer að
Laugum í Dalasýslu og kennir þar.
Páll Guðmundsson íþróttakennari
fer til Ólafsfjarðar og þjálfar knatt-
spymu þar og leikur með Leiftri i
sumar en fer svo í framhaldsnám.
Kristín L. Bjamadóttir fer í fram-
haldsnám í haust. Kona Eyjólfs,
Guðbjörg Þorkelsdóttir, skólastjóri
leikskólans á Reykhólum, hættir
einnig störfum. Þessu unga fólki
færir heimafólk hér sínar bestu
þakkir og óskar því allra heilla á
komandi tfmum.
Formaður skólanefndar er Vil-
borg Guðnadóttir, Reykhólum og
skólastjóri er Skarphéðinn Ólafs-
son. Búið er að ráða í nær allar
stöður fyrir næsta vetur.
- Sveinn.
í NAUTAVEISLUNA fer aðeins nýtt kjöt, sérvalið úr efstu gæðaflokkunum • Fullkomið
gæðaeftirlit frá sláturhúsi til verslunar tryggir að kjötið er hæfilega meyrt og með fituinnihald
sem hentar nútíma matreiðslu • Kjötinu er sérpakkað á 9 bakka sem síðan er raðað í
meðfærilegan kassa • Þú ákveður hvort þú kaupir kjötið ferskt eða frosið • Þegar heim kemur
getur þú matreitt hluta þess strax, geymt annað í kæli til næstu daga og sett afganginn í frysti.
Nautaveislan fæst í eftirfarandi verslunum:
Landsbyggðin: Akureyri: Netto, KEA Hrísalundi, KEA Sunnuhlíð, KEA Byggðavegi, Sæland, Lundarkjör og Matvörumarkaðurinn.
Útibú KEA í Grenivík, Ólafsfírði, Siglufírði, Svarfdælabúð, Grímsey og Hrísey. Versl. Einars Ólafssonar og Skagaver Akranesi.
Versl. Jóns og Stefáns og matvörumarkaður KB Borgarnesi. Kassinn, Hvammur og Virkið Ólafsvík. Kjörbúðin Hellissandi.
Höfuðborgarsvæðið: Sunnukjör í Skaftahlíð, 10-11 í Glæsibæ, Laugalæk og Kaupgarði Engihjalla. Matvöruversl. Grímsbær og Straumnes.
10-10 Hraunbæ, Kjöt og fískur í Mjóddinni og Seljabraut. Miðvangur Hafnarfírði.
Vinnslu- og dreifingaraðilar: Kjötbankinn hf, Hafnarfírði, KEA Akureyri og KB Borgarnesi.
NautgripabænduR
STEINBEKKIR, KER OG STYTTUR
Á SKEMMTILEGA HAGSTÆÐU VERÐI
RAÐGJÖF SERFRÆÐINGA UM GARÐ- OG GROÐURRÆKT
YERSLUN SÖLUFÉLAGS GARÐYRKJUMANNA
GRÓÐURVÖRUR SF. SMIÐJUVEGI 5, 200 KÓPAVOGUR, SÍMI 43211