Morgunblaðið - 29.03.1994, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1994
Menntamálaráðherra í umræðum á Alþingi
Safnahúsið verði
áfram bókasafn
ÓLAFUR G. Einarsson menntamálaráðherra segist vera sammála
hugmyndum um að Safnahúsið við Hverfisgötu, þar sem Lands-
bókasafnið er til húsa, verði áfram safnahús fyrir bækur eftir að
Landsbókasafnið flytur í Þjóðarbókhlöðu. Ólafur sagði að mennta-
málaráðuneytið hefði verið andvígt því að Hæstiréttur flyttist í
húsið.
Menntamálaráðherra var að
svara fyrirspum frá Valgerði
Sverrisdóttur þingmanni Fram-
sóknarflokks um framtíðarnýtingu
Safnahússins. Ólafur sagði að eng-
ar ákvarðanir hefðu verið teknar
um það en öllum væri ljóst, að
Safnahúsið væri friðað á grund-
velli þjóðminjalaga og því yrðu
ekki gerðar á því breytingar. Þá
væru innréttingar hússins mjög
merkilegar og því bæri að halda
þeim í sama horfi og þær væru
nú. Af þeim sökum væri það tak-
mörkunum háð hvers konar starf-
semi gæti orðið í húsinu í framtíð-
inni og flestar hugmyndir sem
komið hefðu fram hnygu í þá átt
að þar verði áfram safnahús fyrir
bækur.
Arnasafn
Ráðherra nefndi í því sam-
bandi, að forsvarsmenn Stofnunar
Árna Magnússonar hefðu lagt til
að húsið yrði sýningar- og varð-
veislustaður fyrir handritin. Jafn-
framt yrði húsið tengt Þjóðarbók-
hlöðu þannig að þar yrðu geymd
öryggis- og varaeintök sameigin-
legs safns Landsbókasafns og
Háskólabókasafns.
Valgerður Sverrisdóttir sagðist
geta séð fyrir sér, að ýmis söfn
sameinuðust um húsið sem eins-
konar miðstöð sýninga á innlend-
um menningararfi. Einnig mætti
halda þar tónleika eða myndlistar-
sýningar. Kristín Ástgeirsdóttir
þingmaður Kvennalistans tók und-
ir það sjónarmið, að nýta ætti
húsið sem bókasafn og vinnustað
fyrir fræðiiðkanir.
VEÐUR
f DAG kl.
Heimild: Veðurstofa Iðlands
(Byggt é veðurspá kf. 16.15 í gær)
VEÐURHORFUR í DAG, 29. MARZ
YFIRLIT: Um 400 km vestur af Reykjanesi er víðáttumikil 956 mb lægö, sem hreyf-
ist lítið í bili, en fer austur á bóginn á morgun. 1.010 mb haað er yfir Grænlandi.
STORMVIÐVÖRUN: Búist er við stormi á Vestfjarðamíðum, Vesturdjúpi, Græn-
landssundi, Norðurdjúpi, Suöausturdjúpi, Suðurdjúpi og Suðvesturdjúpi.
SPÁ: Á Vestfjörðum verður norðaustanátt en suðvestlæg átt annars staðar, víðast
kaldi eða stinningskaldi. Skúrir eða slydduél sunnan- og vestanlands, en þurrt og
bjart veður víðast norðanlands og austan-. Kólnandi veður.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Suðaustanstrekkingur allra syðst á landinu en annars
hæg suðlæg átt. Um landiö norðanvert verður víða lóttskýjað en dálitil slydduél
syðra. Hiti verður á bilinu 0-3 stig.
HORFUR Á FIMMTUDAG: Nokkuö hvöss norðaustanátt og slydda eða rigning
norðanlands og austan- en skýjsð með köflum suðvestantil. Hiti verður á bilinu
2-6 stig.
HORFUR Á FOSTUDAG: Norðtæg átt og slydduél norðanlands og suður með vest-
urströndinni en annars lóttskýjað. Hiti verður á bilinu 1-5 stig.
Nýir veðurfregnatfmar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30, 22.30. Svar-
8ími Veðurstofu fslands - Veðurfregnir: 990600.
•0 <AÍ Ádk 'cli o Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrirnar vindstyrk,
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað heil fjöður er 2 vindstig..
/ r r * / * * * * . A * 10° Hitastig
r r r r r * / / * / * * * * * V V V V Súld I
Rigning Slydda Snjókoma Skúrir Slydduél Él = Þoka '
FÆRÐA VEGUM:
(Kl. 17.30ígaer)
Færð er með besta móti á öllum helstu þjóðvegum landsins, ef frá er talin hálka
á heiðum á Vestfjorðum og Austurlandi. Aurbleyta er farin að gera vart við sig á
Austurlandi og á Útnesvegi á Snæfellsnesi.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirtíti í síma 91-631500 og á grænní
línu, 99-6315. Vegagerðin.
/ VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 7 skýjað Reykjavlk 4 rigning
Bergen 5 rigning
Helsinki 3 téttskýjað
Kaupmannahöfn 7 skýjað
Narssarssuaq -i-5 snjókoma
Nuuk +13 léttskýjað
Ósló 3 skýjað
Stokkhólmur 8 léttskýjað
Þórshöfn 7 súld
Algarve 18 hálfskýjað
Amsterdam 9 súld
Barcelona 18 místur
Beriín 9 skýjað
Chicago 1 skýjað
Feneyjar vantar
Frankfurt 10 skýjað
Glasgow 10 skýjað
Hamborg 9 skýjað
London 12 alskýjað
Los Angeles 13 aiskýjað
Lúxemborg 11 skýjað
Madríd 20 léttskýjað
Malaga 17 mistur
Mallorca 18 skýjað
Montreal 1 þokumóða
NewYork 9 rigning
Orlando 24 alskýjað
Parfs 14 skýjað
Madeira 17 skýjað
Róm vantar
Vín 9 hálfskýjað
Washington 9 skúrlr
Winnlpeg +11 léttskýjað
Morgunblaðið/Kristinn
Hreinsað fyrir ferð
NEMENDUR 10. bekkjar Æfingadeildar Kennaraháskóla íslands efndu
til hreingerningamaraþons í skólanum um síðustu helgi. Maraþonið
fór þannig fram að 10. bekkingar hreinsuðu allar ljósagrindur í skólan-
um frá kl. 21 á föstudagskvöld og voru að til kl. 21 á laugardags-
kvöld. Jafnframt hreingerningum voru þeir að undirbúa sig undir sam-
ræmd próf. Afrakstur maraþonsins ætla nemendur að nota til að fjár-
magna skólaferðalag um Suðurlandið nú í vor. Á myndinni er Helena
Kaldalóns að taka niður ljósagrind og Steinunn Benediktsdóttir þurrk-
ar borð.
Tugir innbrota
framin á höfuð-
borgarsvæðinu
TUGIR innbrota voru framin á höfuðborgarsvæðinu um helgina.
Farið var inn í tvö mannlaus íbúðarhús í Hafnarfirði og Garðabæ
og miklu stolið, þar á meðal hljómflutningstækjum og geisladiskum,
auk heimilistækja. Þá var brotist inn á heimili í Mosfellsbæ og það-
an tekin hljómflutningstæki og geisladiskar.
Tveir innbrotsþjófar voru staðnir
að verki í fyrirtæki við Faxafen
aðfaranótt sunnudags. Þeir höfðu
latið greipar sópa um fjögur fyrir-
tæki í húsinu. Einnig var stolið 20
þúsund úr peningakassa í sölutumi
við sömu götu.
Sex fyrirtæki á Suðurlandsbraut
26 urðu fyrir barðinu á innbrots-
þjófum á föstudag. Við Suður-
landsbraut 12 var brotist inn í fyr-
irtæki og stolið myndavél, boga
og örvum.
Þá var brotist inn í sölutum á
Borgarspítala og teknar 25 þúsund
krónur í skiptimynt.
Við Ægisgarð var farið í bát
og tekinn utanborðsmótor og úr
kaffihúsi við Klapparstíg var sakn-
að 5.000 króna auk tóbaks eftir
heimsókn innbrotsþjófa.
í húsinu Grensásvegur 5-7 var
brotist inn í fjölmörg fyrirtæki en
í versluninni Japis við Brautarholt
hafði þjófur brotið rúðu og haft á
brott með sér geislaspilara.
Brotist var inn í 13 geymslur í
húsi við Frakkastíg og m.a. stolið
haglabyssu og haglaskotum. Auk
þess var farið inn í ljósmyndastofu
við sömu götu og stolið símtæki,
símsvara og myndavél sem metin
er á 3-400 þúsund krónur.
í Hafnarfirði var brotist inn í
tvö verslunarhús. Við Strandgötu
28 var farið inn í 6 fyrirtæki og
við Reykjavíkurveg 50 hafði verið
brotist inn í 4 fyrirtæki þegar fólk
kom til vinnu í gærmorgun.
Hermann
hættir ekki
HERMANN Jónsson úrsmiður
í Veltusundi 3, við Ingólfstorg
er alls ekki að hætta rekstri
úrsmíðavinnustofu sinnar eins
og sagt var í myndatexta á
blaðsíðu 20B í Morgunblaðinu
síðastliðinn föstudag.
Myndin, sem þessi rangi
myndatexti fylgdi, er af húsun-
um við Veltusund og ijallar
greinin um þetta gamla og virðu-
lega verzlunarhverfi við Ingólf-
storg og Veltusund, sem kennt
er við hið sögufræga hús Velt-
una, sem nú ér horfið fyrir um
fjórum áratugum. Hins vegar
mun eigandi verzlunarinnar Gull
og Demantar, gullsmíðaverk-
stæði í Aðalstræti 7 hyggja á
flutning á Skólavörðustíg í sum-
arbyijun og mun misskilningur-
inn stafa af þeirri staðreynd.
En sem sagt Hermann Jóns-
son rekur áfram verzlun sína í
Veltusundi 3 og lætur engan
bilbug á sér finna, þótt and-
streymi síðustu mánaða á meðan
framkvæmdir við torgið stóðu
yfir, hafi vissulega veitt honum
andbyr. Morgunblaðið biður
Hermann Jónsson afsökunar á
þessu ranghermi.