Morgunblaðið - 29.03.1994, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 29. MARZ 1994
17
Sjúkraliðar - stoðstétt
allra heilbrigðisstétta?
eftir Astu Möller
Heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðherra hefur tilkynnt að hann
hyggist leggja fram frumvarp til
laga um breytingu á lögum um
sjúkraliða til afgreiðslu á vorþingi.
Hafa sjúkraliðar þrýst hart á ráð-
herrann í þessa veru. Hugmyndir
um breytingu á lögum um sjúkra-
liða koma í kjölfar skýrslu nefnd-
ar, en hún hafði m.a. það verkefni
að ijalla um hugsanlegar breyting-
ar á og um nám þeirra. Nefndin
skilaði af sér í desember sl. Nefnd-
in var sammála um að lögvernda
bæri starfsvið sjúkraliða, en klofn-
aði í afstöðu sinni um 5. gr. frum-
varpsins, sem Qallar um útvíkkun
á starfssviði sjúkraliða. Meirihluti
nefndarinnar, þ. á m. fulltrúar
sjúkraliða, vildi að sjúkraliðar
störfuðu á hjúkrunarsviði, en eftir-
leiðis einnig á lækningasviði undir
stjórn og á ábyrgð læknis eða sér-
fræðings. Minnihluti nefndarinnar
lagði til að sjúkraliðar störfuðu á
hjúkrunarsviði eins og núgildandi
lög segja til um. Afstaða minnihlut-
ans byggist á faglegum rökum um
þarfir heilbrigðisþjónustunnar fyrir
sjúkraliða og um skipulag heil-
brigðisþjónustunnar.
Mikil þörf fyrir sjúkraliða á
núverandi starfssviði
Þörf fyrir sjúkraliða til starfa
innan hjúkrunarsviðs er í dag eng-
an veginn uppfyllt. Skv. könnun frá
1992 var einungis 41% stöðuheim-
ilda sjúkraliða á öldrunarstofnun-
um setin sjúkraliðum og um 82%
stöðuheimilda á sjúkrahúsum. í
framtíðinni er aukin þörf fyrir
starfsfólk í umönnunarstörfum
m.a. vegna fyrirsjáanlegrar fjölg-
unar aldraðra á íslandi. Það þjónar
því ekki hagsmunum samfélagsins
að beina sjúkraliðum til starfa á
öðrum sviðum en þeir eru menntað-
ir til.
Sjúkraliðar eru menntaðir á
hjúkrunarsviði
Sjúkraliðar eru menntaðir til
starfa á afmörkuðu sviði hjúkrunar
sem er framkvæmd hjúkrunar-
verka við umönnun sjúkra á sjúkra-
stofnunum undir stjórn hjúkrunar-
fræðinga. Menntun sína hljóta
sjúkraliðar í fjöibrautaskólum
landsins. Til að fá réttindi til að
starfa sem sjúkraliði þarf viðkom-
andi að ljúka alls 117 einingum,
þar af 32 einingum í sérlegu bók-
legu sjúkraliðanámi og 32 eining-
um í launaðri starfsþjálfun á sjúk-
rastofnunum. Hinar 53 einingarnar
eru almennar grunngreinar í fram-
haldsskólum s.s. íslenska, tungu-
mál, íþróttir o.fl. Hinn bóklegi hluti
sjúkraliðanámsins samsvarar
1 ‘/2—2 önnum í skóla (meðaltal 18
ein. á önn skv. uppl. frá Pjölbrauta-
skólanum í Breiðholti). Til saman-
burðar má nefna að nám hjúkrun-
arfræðinga er fjögurra ára nám í
háskóla.
Sjúkraliðar eru eina sérmennt-
aða stoðstétt hjúkrunarfræðinga.
Það er skoðun hjúkrunarfræðinga
að sjúkraliðar geti ekki undirbún-
ingslaust og án frekari menntunar
orðið aðstoðarstétt annarra heil-
brigðisstétta. Hvetjum dettur t.d.
í hug að læknaritarar, lyfjatæknar
og aðstoðarmenn tannlækna fari
að starfa sem slíkir við að aðstoða
aðra heilbrigðisstarfsmenn. Þessar
stéttir hljóta menntun sína við hlið
sjúkraliða í fjölbrautaskólum og
sitja í mörgum tilfellum sömu nám-
skeið og sjúkraliðar í hinum sér-
hæfða hluta náms síns.
Með hugmyndum um breytt
starfssvið sjúkraliða er verið að
beina þeim inn á brautir sem þeir
hafa ekki menntun til að starfa á.
Hjúkrunarfræðingarnir er sæti áttu
í fyrrgreindri nefnd um endurskoð-
un á sjúkraliðalögum lögðu til að
sjúkraliðar fengju að loknu viðbót-
arnámi að starfa á öðrum sviðum
en hjúkrunarsviði, en það fékk lít-
inn hljómgrunn hjá viðkomandi
stéttum; sjúkraliðar töldu að þeir
þyrftu ekki að bæta við sig námi
og t.d. sjúkraþjálfarar og iðjuþjálf-
ar höfnuðu þessari hugmynd og
töldu að sjúkraliðar hefðu ekki
þann menntunargrunn sem þeir
væru að leita eftir hjá aðstoðarfólki
sínu.
Ringulreið á
heilbrigðisstofnunum?
Stjórnskipulag innan hjúkrunar
er þess eðlis að hjúkrunarfræðingar
skipuleggja hjúkrun þeirra sjúk-
linga sem þeir bera ábyrgð á hveiju
sinni. Komi sjúkraliðar til með að
starfa bæði á lækninga- og hjúkr-
unarsviði mun það skapa ringulreið
í stjórnkerfí heilbrigðisstofnana þar
sem ekki væri ljóst hvenær
hjúkrunarfræðingur væri yfirmað-
ur sjúkraliðans og hvenær læknir
eða aðrar heilbrigðisstéttir er falla
undir lækningasvið.
Engin kynning hefur farið
fram
Hugmyndir um breytingar á
starfssviði sjúkraliða hafa ekki ver-
ið formlega kynntar þeim heilbrigð-
isstéttum sem málið varða og þeim
jafnvel ókunnugt um þau áform
að sjúkraliðar verði hugsanlega
stoðstétt ýmissa stétta innan heil-
brigðiskerfisins, s.s. sjúkraþjálfara,
iðjuþjálfa, meinatækna, röntgen-
tækna, eðlisfræðinga, sálfræðinga,
auk lækna. Viðbrögð þeirra er hafa
með einhveijum ráðum komist í
tillögur nefndarinnar, þ.e. hjúkr-
unarfræðinga og ófaglærðs starfs-
fólks, hafa verið á einn veg, þeir
hafa hafnað drögunum í núverandi
mynd.
Hjúkrunarfræðingar vara við
hraðri afgreiðslu svo umfangsmik-
ils máls sem hefur í för með sér
miklar breytingar á verkaskiptingu
starfsstétta og skipulagi heilbrigð-
isþjónustu og skapar hættu á veru-
iegum ágreiningi milli heilbrigðis-
Ásta Möller
„Það þjónar ekki hags-
munum samfélagsins
að beina sjúkraliðum til
starfa á öðrum sviðum
en þeir eru menntaðir
til.“
stétta. Sá flýtir sem einkennir með-
ferð þessa máls er óskiljanlegur.
Eðlileg umræða meðal þeirra er
málið varðar þarf að fara fram og
er skorað á yfirvöld heilbrigðismála
að standa fyrir því.
Virðing fyrir samstarfsfólki
Að lokum. Hulda Karen Ólafs-
dóttir sjúkraliði talar um virðingu
fyrir öðrum í grein sinni um þetta
málefni í Mbl.,18. mars sl. Hjúkrun-
arfræðingum, Sóknarfólki og öðru
samstarfsfólki sjúkraliða fannst
sjúkraliðar sýna sér litla virðingu
er þeir leituðu eftir áritun á undir-
skriftalista til heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráherra um að hraða af-
greiðslu sjúkraliðafrumvarpsins.
Sjúkraliðar misbuðu trausti sam-
verkafólks með því að gefa misvís-
andi upplýsingar um eðli frum-
varpsins.
Ég tek hins vegar undir með
Huldu Karenu um nauðsyn þess
að samskipti heilbrigðisstétta ein-
kennist af gagnkvæmri virðingu
fyrir starfi og starfssviði viðkom-
andi. M.a. af virðingu fyrir sjúkral-
iðum er þessi grein skrifuð, til að
gera grein fyrir á hvaða grunni
afstaða hjúkrunarfræðinga til
sjúkraliðafrumvarpsins er byggð.
Höfundur er formaður Félags
íslenskrfl hjúkrunarfræðinga og
átti sæti ínefnd um endurskoðun
á lögum um sjúkraliða.
wiÍPMim na uliuwnii
Á 10MÍR
EKKI AÐEINS HEITT, HELDUR NÝBAKAÐ
HATTING brauðið er fryst áður en það er fullbakað. Settu HATTING smábrauð eða
rúnstykki í ofninn og aðeins 10 mín. síðar er brauðið tilbúið, nýtt og rjúkandi á borðið.
c,
tMTlN
BAGERI
«»Sá
.
• . k- ■■
’ S ....-'&c.
—
■--V- - - ----