Morgunblaðið - 31.03.1994, Page 21

Morgunblaðið - 31.03.1994, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1994 21 Vigfús Sigur- geirsson var ráðinn for- setaljós- myndari við stofnun for- setaembætt- isins árið 1944. Hann Ijósmyndaði forsetann á ferðum hans um landið sem og margt sem fyrir aug- un bará þeim ferðalögum. Þessi mynd er tekin í heimsókn Sveins Björnssonar forseta til Húsavíkur árið 1945. Framan við Gistihúsið Garðars- hólma á Húsavík standa þeir Kiddjón for- setabílstjóri, réttu nafni Kristjón Kristjánsson, og Edvard Fredriksen vert og virða fyrir sér stff- pússaða for- setadross- funa. inn og stilla upp myndavélinni, þótt enginn hefði pantað myndina. I dag eru margar þess- ar myndir ómetanlegar. Með þeim skráði Vig- fús þróun byggðar og mannlífs. Myndir hans sýna meðal annars Akureyri fyrir miðja öldina þegar Menntaskólinn stóð í túnfæti og nokkr- ar bryggjur fram úr fjörunni, löngu áður en landfyllingar hófust. Austur í Mývatnssveit tók hann myndir af konum við ullarþvott og ekki er víst að nokkur hafi gert síldarævintýr- inu fyrir Norðurlandi betri skil en Vigfús í myndum sínum. Auk ljósmynda tók Vigfús mikið af kvikmyndum og þykja þær ekki síð- ur merkileg heimild um land og þjóð á fyrri hluta aldarinnar. Listamaður af lífi og sál Vigfús var agaður listamaður, alinn upp á menningarheimili þar sem tónlist var í háveg- um höfð. Vigfús var annar í röð níu systkina. Hann nam ungur píanóleik af föður sínum, Sigurgeiri Jónssyni, og öðrum innlendum og erlendum kennurum. Vigfús var ekki gamall þegar hann var orðinn eftirsóttur undirleikari einsöngvara og kóra sem stigu á tónleikapall á Akureyri. Þeir sem á hlýddu höfðu við orð að þar færi listamaður sem ætti þá náðar- gáfu að miðla list sinni til annarra. Á æskuárum Vigfúsar þótti ekki vænlegt. að leggja stund á tónlist sér til lífsviðuiværis og því fór hann til náms í ijósmyndun, og fetuðu tveir yngri bræður hans síðar í þau spor, þeir Eðvarð ljósmyndari á Akureyri og Hörður Ijósmyndari í Vestmannaevjum. Alla ævi hafði Vigfús samt unun af fagurri tón- list, hann átti vandað hljómplötusafn og sat löngum við píanóið. Nú lifir list hans og gleð- ur augað, en píanóið er löngu þagnað. Fjöldi Akur- eyringa lagði leið sína á Torfunefs- bryggju til að kveðja Svein Björnsson forseta eftir að hann heimsótti Akureyri 1944. Fram- arlega til vinstri má sjá Eðvarð, bróð- ur Vigfúsar, með kvik- myndavél. Útvarpið á Geirastöðum í Mývatnssveit fangaði athyglina þegar Vigf ús tók þessa mynd 1938. Sigurður Sigurjónsson bóndi still- ir tækið en barnabörn hans, þau Finnbogi Stefánsson og Björg Stefánsdóttir, fylgjast hugfangin með. konungur 10. heimsótti Island árið 1926 ásamt fríðu föruneyti. Kristján Kristjánsson bílakóngur á Akureyri ók hinum tignu gestum, íaftursætinu sitja Danakonungurog drottningin. 5

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.