Morgunblaðið - 31.03.1994, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1994
Háskólinn á Akureyri fýsilegur kostur fyrir þá sem vilja skapa sér sérstöðu
Rækt lögð
við sér-
kennin
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Fjöruferð
NEMENDUR við sjávarútvegsdeild í fjöruferð við Ytri-Vík í Eyjafirði.
eftir Pól Þórhallsson.
PERSÓNULEG tengsl milli
nemenda og kennara eru mögu-
leg í háskóla nútímans. Það
sýnir Háskólinn á Akureyri
enda eru nemendur ekki nema
tæplega þrjú hundruð. Skólinn
býður nú upp á nám í fjórum
deildum og er þess gætt að það
hafi sérstöðu miðað við sam-
bærilegt nám í öðrum skólum
hér á landi.
Sérstaða skólans er marghátt-
uð. í fyrsta lagi er hann lítill sam-
anborið við Háskóla íslands, nem-
endur ekki nema tæplega þrjú
hundruð. Því fylgja kostir eins og
þeir að hver og einn fær að njóta
sín, andrúmsloftið er heimilislegt
og bekkirnir fámennir sem á að
stuðla að bættri kennslu. Má
minna á að offjölgun er eitt helsta
böl háskóla á Vesturlöndum. í
öðru lagi er skólanum ætlað að
tengjast atvinnuvegunum náið. í
þriðja lagi er gjarnan við það mið-
að að þeir sem ljúki námi við skól-
ann eigi eftir að starfa á lands-
byggðinni. Í fjórða lagi er vert að
nefna sjávarútvegsdeildina sem er
nýjung hérlendis. Má reyndar
furðu sæta að íslendingar hafa séð
metnað sinn í að byggja upp há-
skólanám í ýmsum greinum sem
eru eins hvar sem þær eru kennd-
ar í heiminum á meðan sjávarút-
vegnum hefur lítið eða ekkert ver-
ið sinnt fyrr en nú.
Háskólinn á Akureyri tók til
starfa haustið 1987. Má með sanni
segja að þar hafi verið um að
ræða eitthvert stærsta byggðamál
seinni tíma. Háskólinn hefur líka
reynst mikilvæg lyftistöng fyrir
byggðarlagið en að sama skapi
ódýr. Skólinn fær 162 milljónir á
fjárlögum en til samanburðar má
nefna að milljarður rann úr opin-
berum sjóðum til Álafoss síðasta
árið sem hann var starfræktur
fyrir norðan, að sögn Guðmundar
Heiðars Frímannssonar forstöðu-
manns kennaradeildar skólans.
Sem dæmi um gildi skólans fyrir
landsbyggðina alla nefnir Sigríður
Halldórsdóttir forstöðumaður
hjúkrundareildar að hjúkrun-
arnám á Akureyri hafi gerbreytt
aðstöðu landsbyggðarinnar til að
fá hjúkrunarfræðinga til starfa.
Hún segir háskólann mikilvægan
til að halda ungu fólki á svæðinu.
Á háskólaárunum festirfólk gjarn-
an ráð sitt og það segir sig sjálft
að líkur eru á að fólk sem fer
suður til náms komi ekki aftur.
Má segja að það séu sjálfsögð rétt-
indi landsbyggðarfólks að geta
stundað nám án þess að þurfa að
fara suður.
Til marks um vöxt og viðgang
skólans nefnir Haraldur Bessason
rektor að hann hafi byijað í hluta
af einni byggingu en starfsemin
sé nú komin í níu hús. Eru þá
meðtaldir stúdentagarðar og
sjúkrahúsið þar sem kennsla í
hjúkrunarfræði fer meðal annars
fram. Félagsmálastofnun Háskól-
ans sér um rekstur stúdentagarð-
anna en þeir eru nú orðnir fjórir
talsins.
Rekstrardeild
Rekstrardeild Háskólans á Ak-
ureyri býður upp á tveggja ára
nám á iðnrekstrarbraut og rekstr-
arbraut. Var nám við Tækniskól-
ann í Reykjavík haft sem fyrir-
mynd þegar þessum brautum var
ýtt úr vör. Auk þess er í boði
tveggja ára viðbótarnám til BS-
prófs í gæðastjórnun þar sem inn-
LAXINN HR
Meistaramót Reykjavíkur:
Dorgveiöi
Á Reynisvatni í Reykjavík er hafiö meistaramót Reykjavíkur í dorgveiöi.
Mótiö er opiö öllum landsmönnum og eru glæsileg verölaun í boöi.
1. verölaun: Gisting fyrir tvo í hótel Stykkishólmi í tvær nætur ásamt
áletrun meö nafni vinningshafa á glæsilegan farandbikar.
2. verðlaun: Dorgveiöitjald ásamt stól frá Seglageröinni Ægi.
3. verölaun: Kvöldverður fyrir tvo á veitingastaðnum Við Tjörnina.
Verölaunin eru veitt fyrir stærstu fiska, sem veiddir verða í vetur í
dorgveiði.
Opiö er alla virka daga þegar veöur leyfir frá kl. 13.00-19.00 og.um
helgar frá kl. 9.00-19.00.
Veiðileyfiö kostar kr. 2.000 og eru fimm fiskar innifaldir í veiðileyfinu.
Veiðimenn fá inneignarnótu nái þeir ekki að klára veiöikvótann þann
dag sem veiði hefst og gildir hún þar til kvótinn 5 fiskar er tæmdur.
Mótinu lýkur um leiö og ís tekur af vatninu.
JEPPITILSÖLU
- sá fallegasti í bænum!
Einn með öllu:
GMC JIMMY árgerð 1991
4.3 lítra vél, sjálfskiptur, svartur,
litaó gler, ekinn 48.000 km.
Sami eigandi frá upphafi
Verð kr. 2.990.000.
Skipti á ódýrari bíl koma til greina
Uppl. í símum 20620/22013
og á kvöldin í síma 44122.
Af alhug þakka ég öllum þeim, sem glöddu
mig með nœrveru sinni og góÖum gjöfum í til-
efni 80 ára afmœlis míns.
GuÖ geymi ykkur öll.
Esther Finnbogadóttir,
Tjarnargötu 10,
NjarÖvik.
MetsöluUad á hvetjum degi!