Morgunblaðið - 31.03.1994, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1994
49
Bláfjöll
Slys algeng-
ust hjá 13-
16ára
STÆRSTUR hluti þeirra sem
slasast í Bláfjöllum er á aldrinum
13-16 ára, samkvæmt niðurstöð-
um rannsóknar á skíðaslysum
sem gerð var vorið 1993. Einnig
kemur fram að 43,36% þeirra
sem slösuðust á þessu timabili
hafi verið í skíðaferðalagi á veg-
um grunnskóla.
Ragnheiður Guðmundsdóttir
hjúkrunarfræðingur lagði fram til-
lögu á fundi Bláfjallanefndar 19.
þessa mánaðar. Var hún samþykkt
og beinir nefndin því til sveitastjórna
að þær stuðli að framkvæmd hennar
í sínum umdæmum. í tillögunni seg-
ír meðal annars að í ljósi fram-
greindra upplýsinga um slysatíðni í
skíðaferðalögum grunnskóla verði
að bregðast við með eflingu forvam-
arstarfs. Framkvæmd þess skuli
vera með þeim hætti að heimsóttir
verði grunnskólar og haldnir stuttir
fyrirlestrar fyrir nemendur 8., 9. og
10. bekkja. I þeim verði fjallað um
reglur skíðasvæðanna, nemendum
sýnt hvernig leiðir séu merktar með
litum og greint frá svæðum sem
beri að varast. Einnig verði áhersla
lögð á mikilvægi rétts búnaðar, að
bindingar séu rétt stilltar, skíði hæfi-
lega stór og skíðaskór passlegir.
Loks er lagt til að kennarar grunn-
skólanema sæki fyrirlestrana svo
þeir geti leiðbeint nemendum í skíða-
ferðalögum.
Leó Steingrímur
Steingrímur
les ljóð eftir
Ljón norðursins
STEINGRÍMUR Sigurðsson Ust-
málari les þ'óð eftir Ljón norðurs-
ins, Leó Arnason frá Víkum, í
Kaffi-Krús á Selfossi laugardag-
inn 2. apríl, en þar stendur nú
yfir sýning á vatnslitamyndum
og pastelmyndum eftir Leó. Upp-
lesturinn hefst kl. 15 og stendur
fram eftir degi.
Leó, sem verður 82ja ára í júní
á þessu ári, dvelst nú um stundir á
Sjúkrahúsi Suðurlands þar sem
hann jafnar sig eftir áfall sem hann
varð fyrir, en hann ætlar engu að
siður að spila undir á sög í byijun
hvers ljóðs sem Steingrímur les.
Steingrímur hefur áður lesið upp
ljóð eftir Leó, en það var í Offiséra-
klúbbnum á Keflavíkurflugvelli.
„Hann var að smíða eitthvað fyrir
liðsforingjana þar, enda er hann
mjög laginn smiður, og var hann
með sýningu á vekum sínum í Offis-
éraklúbbnum. Þeir urðu mjög heill-
aðir af Leó, enda er hann eins og
Kaninn vill ímynda sér listamenn,
svona líkur Salvador Dali og dálítið
trylltur," sagði Steingrímur.
Hagkvæmt bílalán!
Staðgreiðslulán er heildarlausn við kaup á nýjum bíl
Lánstími allt að 5 ár
Nú býðst í fyrsta sinn Staðgreiðslulán til allt að 5 ára sem gefur þér kost á enn
léttari greiðslubyrði.
Sveigjanleiki
Hvenær sem er á lánstímanum getur þú greitt aukalega inn á Staðgreiðslulánið
éða greitt það upp.
100% lán
Staðgreiðslulánið getur numið öllu bílverðinu ef lánstími er 30 mánuðir eða
skemmri. Það getur numið allt að 7S% bílverðs ef lánstíminn er 31-48 mánuðir
en 65% ef hann er lengri.
Vextir eru sambærilegir bankavöxtum
Staðgreiðslulánið er í formi veðskuldabréfs og vextir eru sambærilegir skulda-
bréfavöxtum Islandsbanka.
Síllinn er staðgreiddur
Þegar þú kaupir þér nýjan bíl, greiðir Glitnir það sem á vantar. Þannig er bíllinn
staðgreiddur og því nýtur þú bestu kjara hjá seljanda.
Þú tryggir þar sem þér hentar
Tryggja þarf bílinn með kaskótryggingu á lánstímanum og að sjálfsögðu ræður
þú hvar hann er tryggður.
Kynntu þér hagstæð kjör Staðgreiðslulána og gerðu jafnframt samanburð
á þeim lánsformum sem bjóðast. Sölufulltrúar bifreiðaumboðanna veita
þér nánari upplýsingar og útbúa tilheyrandi skjöl á skjótan
og einfaldan hátt.
DÓTTURFYRIRTÆKI ÍSLANDSBANKA
Ármúla 7 108 Reykjavík
Sími 608800 Myndsendir 608810
'% * -
Framkallaðu páska- og fermingarmyndirnar hjá okkur
Litsel
Áusturstræti 6, s. 611788
HAMRABORG 1 KÓPAVOGI
SÍMI 44020
_
FRAMKÖLLUN
STUNDINNI
ÁRMÚLA 30 - S.687785
Gegn framvísun
þessa miða færöu
aukamyndasett
og filmu með
hverri
framköllun
Litsel
, Filman
1 Framköltun á stundinni
Gildir til 12. aprfl 1994