Morgunblaðið - 31.03.1994, Side 83

Morgunblaðið - 31.03.1994, Side 83
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1994 83 Vortónleikar Fjöl- brautaskólans 1 Breiðholti Frá Matthíasi Arngrímssyni Undirritaður hlýddi á kór Fjöl- brautaskólans í breiðholti í Selja- kirkju að kvöldi 20. mars síðastlið- ins. Tónleikarnir hófust klukkan 20 og voru rúmleg tvö hundruð manns mætt til að hlýða á. Dagskráin sem afhent var við dyrnar innihélt mörg mismunandi lög frá mörgum lönd- um og á mörgum tungumálum. Dagskráin hófst með því að kórinn gekk inn í salinn syngjandi „Shalom chaverim" sem er ísraelskur keðju- söngur. Fyrir hlé söng kórinn ís- lensk þjóðlög og dægurlög af ýms- um toga. Þar má nefna „Hver á sér fegra föðurland“, „í Skólavörðu- holtið hátt“, „Smávinir fagrir" o.fl. Erna Guðmundsdóttir kórstjóri hef- ur náð mjög góðum tökum á kóm- um og fýlgdi hann leiðbeiningum hennar mjög vel. Öryggi einkenndi raddimar og var hópurinn vel með- vitaður um styrkleikabreytingar milli radda. Jarþrúður Ásmunds- dóttir lék á flygil undir laginu „ís- lensk vögguljóð á hörpu“ eftir Jón Þórarinsson með texta Halldórs Laxness og tókst það með ágætum. Fyrir hlé lék Sigrún Ásgeirsdóttir verkið „Arabasques“ eftir Claude Debussy á flygil. Það skal tekið fram að allir undirleikarar kórsins era kórmeðlimir og era margir efni- legir hljóðfæraleikarar í hópnum. Gestum var boðið upp á léttar veit- ingar í hléi. Seinni hluti tónleikanna hófst með því að Jarþrúður Ásmundsdótt- ir lék „Valse“ eftir Chopin. Erlend lög réðu ríkjum í seinni hluta og var sungið á ensku, ítölsku o.fl. Hallveig Guðný Kolsöe Ágústsdóttir og Lilja Eggertsdóttir léku lagið „All the Way“ eftir Sammy Cahn og J. van Hause á klarínett og flygil og tókst það mjög vel. Meðal laga á dagskránni eftir hlé voru lögin „The Coasts of High Barbary" sem er sjóræningjavísa frá 18. öld í út- setingu M. Hauser, „Viva tutti le vezzose" (lausleg þýðing: Lifí allar konur) eftir Felice Gardini. Daníel Brandur Sigurðsson og Bóas Vald- órsson léku á gítar lagið „Cavatina" eftir Stanley Myers sem flestir kannst við úr kvikmyndinni „The Deer Hunter“ eða „Hjartabaninn“ á íslensku. Síðustu lögin á dag- skránni voru „Missa Criolla“, 1. þáttur, eftir Ariel Ramirez og „Me- mory“ úr söngleiknum „Cats“ eftir Andrew Lloyd Webber og Trevor Nunn, byggð á texta eftir T.S. Eli- ot. Einsöngvarar úr sópran, þær Alma Gunnarsdóttir, Hera B. Þór- hallsdóttir, Ester Ósk Traustadótt- ir, Kristín Sigurgeirsdóttir og Jó- hanna Valgeirsdóttir, sungu frá- bærlega vel og mega sópransöng- konur landsins fara að vara sig. Bjarki R. Guðmundsson lék á bass- atrommur undir „Missa Criolla" og gaf það laginu, sem er mjög rólegt og fallegt, góðan grunn. Ágúst Ingi Ágústsson lék á flygil undir „Me- mory“ og tókst vel til. Áhorfendur vora greinilega mjög hrifnir og var kórnum gefið stand- andi uppklapp og söng hann tvö aukalög. Það sem athyglisverðast var á dagskránni var þessi skemmtilega blanda ólíkra laga og hljóðfæraundirleiks. Aðrir kórar landsins, og þá á ég ekki endilega við skólakóra, mega taka sér kór F.B. til fýrirmyndar varðandi þetta atriði. Á tónleikum hjá kór F.B. getur manni ekki leiðst og þakka ég honum kærlega fyrir mjög góða skemmtun. MATTHÍAS ARNGRÍMSSON, Keilufelli 2. LEIÐRÉTTINGAR Misritað persónufornafn í minningargrein um Sigríði Hall- dórsdóttur eftir Birnu Jónsdóttur í blaðinu í gær misritaðist persónufor- nafn sem gerbreytti merkingu máls- greinar. Rétt er málsgreinin svo- hljóðandi: „Sigríður fluttist með móður sinni og Ólafi bróður sínum í Borgaríjörð- inn og dvaldist þar í nokkur ár hjá foreldrum mínum, Jóni lækni Bjarna- syni og Önnu Þorgrímsdóttur. Árið 1927 lá svo leiðin til Reykjavíkur." Síðar í sömu grein er rifjað upp þegar Sigríður breiddi saltfisk á stakkstæðið sunnan við Sjómanna- skólann sem seinna reis, en ekki stakkastæðið, eins og misritað var. Beðist er velvirðingar á þessu. Línur féllu niður í minningargrein um Guðrúnu Albertsdóttur eftir Valgerði Ólafs- dóttur í blaðinu í gær féllu niður nokkrar línur. Þær fara hér á eftir: „Sumarið þegar fjölskylda hennar fluttist í Hátúnið og íbúðin þeirra var ekki tilbúin, þá fékk hún að búa hjá ljölskyldu minni sem var flutt á Kaplaskjólsveginn. Allar skautaferð- imar á Melavöllinn eða Tjörnina, hún var svo góð á skautum. Saumaklúb- barnir með kók og lakkrísröri. Það var oft mikið hlegið enda stutt í hlát- urinn. Sumarfríið, þegar við vorum 14 og 15 ára, kom hún með mér norður að Stekkjarflötum og við fór- um tvær einar ríðandi í Ábæ þar sem mamma mín átti heima sín fyrstu ár, en bærinn var þá löngu kominn í eyði.“ Föðurnafn misritaðist Á baksíðu „Úr verinu“ í gær, er skýrt frá því að nokkrir starfsmenn Hampiðjunnar hafí verið heiðraðir. Þar er rangt farið með föðurnafn Hilmars Þórhallssonar og er beðizt velvirðingar á því. VELVAKANDI LEIKBRÆÐUR Á SNÆLDU ÁSTVALDUR Magnússon, einn Leikbræðrat hringdi: Gunnar Ólafson spyr í Velvak- anda 24. mars sl. hvort væntanleg sé snælda með sönglögum Leik- bræðra. Ég get upplýst hann og aðra aðdáendur kvartettsins að verið er að undirbúa útgáfu snæld- unnar en yfirfara þurfti eldri upp- töku laganna sem tekin voru upp við mun ófullkomnari tækni en nú er völ á. Vonir standa því til að hljómgæði snældunnar verði betri en á plötunni. Þessari endur- vinnslu mun nú vera að mestu lokið og fer nú að styttast í það að snældan komi út, en það mun verða auglýst. TIL STYRKTAR GUNNARI HÓPUR fólks sem notið hefur hjálpar Gunnars Guðlaugssonar vill vekja athygli á ljársöfnun sem hafin er til styrktar starfi hans, svo honum sé gert kleift að starfa áfram hér á landi. Þeir sem vilja leggja þessu málefni lið er bent á reikning nr. 110630, bankanr. 0301, Búnaðarbanka íslands, Austurstræti 5, Reykjavík. HJÚKRUNARFRÆÐ- INGAR, SKJÓTIÐ EKKIYFIR MARKIÐ ÉG HEF fylgst með orðahnipping- um sjúkraliða og hjúkrunarfræð- inga í blöðunum og fínnst mér bera of mikið á menntahroka hjá þeim síðarnefndu. Eitt er víst að þegar við liggjum veik á spítala spyijum við ekki hjúkranarfólk um prófskírteini éða háskólagráðu. Þá er aðalatriðið góð framkoma og nærgætni. Ég þurfti að gangast undir stóra aðgerð fyrir nokkrum árum og var ég ávítuð af einni hjúkk- unni fyrir að láta ekki vita þegar skipta þurfti um flösku sem gefur næringu í æð. Sú sama skipti um flösku með þeim hætti að vatn gusaðist um mig í rúminu og án þess að biðjast afsökunar eða láta mig hafa þurr föt strunsaði hún út. Eftir þessa hremmingu leitaði ég mest aðstoðar hjá sjúkraliðum á deildinni. Reyndust þær mér mjög vel. Guðrún Magnúsdóttir, Bugðulæk 15. VINNA ERLENDIS GUÐRÚN Bachmann hringdi til að athuga hvort einhver gæti gef- ið henni upplýsingar um vinnu við hótel og/eða veitingastörf í Grikk- landi eða Frakklandi. Sé svo vin- samlega hringið í síma 689487. Hver tapaði myndum? ÞESSI mynd ásamt tveimur öðr- um fundust í Kringlunni fyrir skömmu. Eigandinn má vitja þeirra í afgreiðslu Morgunblaðs- ins, Kringlunni 1. Páfagaukur tapaðist GRÆNN páfagaukur flaug út um gluggann á heimili sínu í Sæbóls- landi í Kópavogi sl. þriðjudags- kvöld. Hafí einhver orðið hans var hringið í síma 45596. TAPAÐ/FUNDIÐ Filofax tapaðist BRÚNT filofax sem innihélt öll hugsanleg persónuskilríki tapaðist í sl. viku í Ármúlaskóla. Skilvís finnandi vinsamlega hringi í síma 76543. Þú týndir úri ÉG fann það. Uppl. í síma 611211. GÆLUDÝR Týnd læða GRÁ-brúnbröndótt 6 mánaða læða hvarf frá heimili sínu á Hverfísgötu í Reykjavík nokkrum dögum fyrir páska. Hún er ómerkt. Möguleiki er á að hún hafi stungið sér inn í flutningabíl sem var á leið inn í Kleppsholt. Hafi einhver orðið hennar var vin- samlega hringið í síma 618058. Loðnir kettlingar ÞRJÁ sjö vikna fallega kettlinga af blönduðu kyni (loðnir) vantar góð heimili. Kassavanir. Uppl. í síma 27949. HÁRRÉTT Líkt og svo margir hef ég prófað margar tegundir af hársnyrtivörum. Eftir að ég fór að nota MANEX hár- snyrtivörurnar og vítamínið varð ég loksins ánægð og get hiklaust mælt með Manex hársnyrtivörunum. Harpú Hjo/ta/dóth'í. HEFUR ÞÚ KYNNT ÞÉR MANEX TILBOÐIÐ? í TILBOÐSPAKKANUM ER HÁRHREINSIR, HÁRNÆRING OG HÁRVÖKVI. Ainfiro.iia Manex hársnyrtivörumar fást í flestum apótekum og hársnyrtistofum HEILBRIGT HÁR MEÐ NÁTTÚRULEGUM HÆTTI Líttu betur út með No 7 snyrtivörum Frá Attenborough Associates Góð húð getur verið meðfædd en þú þarft samt að hafa fyrir henni nú á tímum. Þar sem stress og mengun taka sinn toll er mikilvægt að nota réttar snyrtivörur. Þess vegna hefur No 7 línan verið hönnuö fyrir daglega og sérstaka umönnun húðar sem inniheldur allt það sem hún þarfnast, 24 tíma á dag, sérhvern dag ársins. Það er aldrei of seint aö byrja. Gerðu að vana daglega umhirðu húðar. No 7 umönnun tekur aðeins nokkrar mínútur á dag, kostar ekki milljón og dugar fyrir lífs- tíð! Dagleg umönnun húðar felst í fljótvirkum hreinsi, andlits- vatni, dag- og næturnæringu, fyrir sérhverja húðgerð. Hvern- ig húð ertu með, þurra, eölilega til þurra, blandaða eða feita? Þú velur þér hreinsi, andlitsvatn og næringu fyrir þína húð. Sérstök umönnun er sérhönnuð krem sem fullnægja og bæta á augljósan hátt útlit og áferð húö- ar. Línan inniheldur augnkrem, varakrem, hrukkukrem, djúp- næringarkrem, E-vítamínkrem, hreinsi, næringarmaska o.fl. Notfærðu þér þekkingu og sér- stöðu Boots lyfjafyrirtækisins sem hefur á rannsóknarstofum sínum rannsakað og hannað vörur fyrir húðina í yfir 60 ár. Það gefur engin fölsk loforð um eilífa æsku heldur bæta vörurn- ar og næra þína húðgerð. Boots gerir miklar kröfur um gæðaeft- irlit enda er það lyfjafyrirtæki svo þú ert í öruggum höndum hjá Boots. Njóttu þess að nota make up lín- una frá No 7. Hún inniheldur allt sem þarf fyrir fullkomna fórðun: mest nærandi meikin sem gefa rétta áferð, púður, hylj- ara og grænt krem sem hylur rauða bletti, krem undir meik sem yngir og festir meikið, og fyrir augu; flauelsmjúka skugga í öllum litum, augnskuggagrunn með festi, kremaða blýanta og allar gerðir af möskurum fyrir Unnur Arngrimsdóttir linsur, vatnshelda o.fl. Varalitir í ótrúlegu litavali, varalita- grunnur, varalitafestir, vara- litablýantar og naglalökkin í stíl við varalitina. Þú færð þetta allt í No 7 og á réttu verði. No 7 vörurnar uppfylla hæstu gæðakröfur nútímakonunnar. Unnur Arngrímsdóttir hefur alltaf haft trú á góöri umhirðu húðar. Unglegt útlit hennar og falleg húð er sönnun þess að það borgar sig að hugsa ætíð vel um húðina. Unnur lifir annasömu lífi og þarfnast því snyrtivara sem virka fljótt og vel. Það sama á viö um litaval hennar, hún velur náttúrulega liti sem fegra en breyta ekki útliti hennar og krefst þess aö fórðunin endist. Þess vegna velur hún No 7: „No 7 lætur mig líta út eins og ég vil. Hreinsilínan og kremin þeirra eru árangursrík og á réttu verði. Litalína No 7 inni- heldur alla nýjustu tækni.“ Unnur er fórðuð með: Positive Action næringarmeiki no 305, glæru, lausu púðri, kinnalit no 470, augnskugga no 725, dökk- brúnum Lashluxe næringar- maska, varalit no 020. No 7 fæst í apótekum og betri snyrtivöru- verslunum. Auglýsing

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.