Morgunblaðið - 31.03.1994, Side 87
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR
FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1994
KORFUKNATTLEIKUR
Loksins. loksins....
Skúli Unnar
Sveinsson
skrifar
EFTIR þrjár misheppnaðar til-
raunir til að komast í úrslitaleik
úrvalsdeildarinnar tókst það
loksins hjá Grindvíkingum. Þeir
unnu Skagamenn næsta auð-
veldlega, 94:77, eftir að hafa
haft 26 stiga forystu um tíma
í síðari hálfleik. Grindvíkingar
eru þar með komnir í Evrópu-
keppnina í körfuknattleik og er
það í fyrsta sinn í sögu félags-
ins.
Nokkurrar taugaveiklunar gætti
á upphafsmínútunum. Grind-
víkingar léku þó grimma vörn og
héldu því út leikinn.
Guðmundur hafði
góðar gætur á Ste-
ven Grayer sem
gerði 40 stig í öðrum
leiknum á Akranesi. Varnarleikur-
inn skilaði sér fyllilega því Grindvík-
ingar tóku miklu fleiri fráköst og
URSLIT
UMFG - ÍA 94:77
íþróttahúsið í Grindavík, 3 leikur í úrslita-
keppi úrvalsdeildar í körfuknattleik, mið-
vikudaginn 30. mars 1994.
Gangnr leiksins: 2:0, 4:6, 14:10, 20:17,
29:21, 29:31, 43:33, 52:35, 62:37, 74:47,
74:58, 83:64, 92:68, 94:77.
Stig UMFG: Wayne Casey 20, Guðmundur
Bragason 16, Pétur Guðmundsson 13,
Hjörtur Harðarson 12, Nökkvi Már Jónsson
12, Marel Guðlaugsson 11, Ingi Karl Ing-
ólfsson 8_og Bergur Eðvarðsson 2.
Stig ÍA: ívar Ásgrímsson 20, Steven Gray-
er 17, Einar Einarsson 15, Eggert Guð-
mundsson 8, Dagur Þórisson 7, Haraldur
Leifsson 4, Jón Þór Þórðarson 4 og Svanur
Jónasson 2.
Dómarar: Leifur Garðarsson og Kristinn
Óskarsson voru vandanum vaxnir og
dæmdu vel.
Áhorfendur: Yfir 1.100
Þór-ÍR 98:84
íþróttahöllin á Akureyri. Úrslitakeppni 1.
deildar, oddaleikur, miðvikudagur.
Gangur Ieiksins: 0:2, 8:12, 19:26, 24:26,
29:29, 33:31, 39:43, 49:49. 49:51, 57:54,
66:62, 72:64, 77:66, 81:74, 85;79, 90:79,
92:82, 98:84.
Stig Þórs: Konráð Óskarsson 30, Helgi
Jóhannesson 21, Sandy Anderson 15, Einar
Valbergsson 11, Birgir Guðfinnsson 10,
Hafsteinn Lúðvíksson 5, Bjöm Sveinsson
4, Birgir Ö. Birgisson 2.
Stig ÍR: Chris Brandt 34, Eiríkur Önundar-
son 11, Broddi Sigurðsson 7, Márus Arnar-
son 7, Halldór Kristmannsson 6, Hilmar
Gunnarsson 8, Bragi Reynisson 2.
Dómarar: Kristján Möller og Þorgeir Jón
Júlíusson.
NBA-deildin
Atlanta - New Jersey.........101: 98
Cleveland - LA Clippers......106: 96
Miami - Detroit..............115:123
Orlando - Washington..........120:101
New York - Charlotte..........106: 95
Chicago - Philadelphia........106:103
Dallas - San Antonio.......... 92:117
Milwaukee - Boston............107:119
BEftir framlengingu.
Utah - Golden State..........113:116
LA Lakers - Minnesota........ 91: 89
Portland - Seattle...........100:114
Sacramento-Houston...........101:122
Úrslitakeppnin
í körfuknattleik 1994
Þriðji leikur liðanna I undanúrslitum
úrvalsdeildarinnar. Leikið i Grindavik.
94 ÚRSLIT 77
23/28 Vfti 14/20
5/19 3ja stiga 7/21
43 Fráköst 27
32 (varnar) lf1
11 (sóknar) 16
16 Bolta náð 6
8 Bolta tapað 13
14 Stoðsendingar 9
25 Villur 25
þar voru Hjörtur og Guðmundur
hvað ákveðnasth' auk Péturs.
Vanarleikur ÍA var ekki nógu
góður. Leikmenn voru allt of seinir
og létu heimamenn taka boltann
hvað eftir annað af fingurgómum
sínum.
Jafnræði var lengstum fyrri hálf-
leiks og þegar 6 mínútur voru eftir
var staðan 29:31 fyrir ÍA. Þá kom
geysilega skemmtilegur kafli hjá
heimamönnum þar sem Marel fór
fyrir fríðu liði. Tólf stig í röð og
síðan frábær karfa frá Guðmundi
á lokasekúndunum urðu til þess að
Grindavík hafði 43:33 yfir í leikhléi.
Grindvíkingar brenndu sig ekki
á því sama og í fyrri leikjum, að
slaka á klónni. Þeir léku enn betri
vörn en í fyrri hálfleik og snemma
varð ljóst hvert stefndi. Munurinn
jókst og jókst og Grindvíkingar léku
betur og betur. Skagamenn gáfust
þó ekki upp og bitu aðeins frá sér
undir lokin og björguðu andlitnu.
Allt lið UMFG lék vel. Vörnin
var frábær og þeim tókst ætlunar-
verkið, að halda Grayer niðri. Sókn-
in var einnig nokkuð öflug enda var
baráttan til staðar og menn keyrðu
óhikað inní vörn ÍA, nokkuð sem
varla sást í öðrum leik liðanna.
Þeim gekk einnig vel að koma bolt-
anum inní teiginn þar sem menn
fengu nokkurn frið til að athafna
sig. Guðmundur, Hjörtur, Marel,
Pétur og Casey léku allir vel.
Skagamenn geta verið ánægðir
með árangurinn í vetur. Liðið náði
miklu lengra en búist var við_ og
geta því unað sælir við sitt. ívar
var þeirra bestur og Eggert barðist
af miklum krafti. Einar átti einnig
góðan leik og það fór vel á því að
hann gerði síðustu körfu leiksins,
henti boltanum frá miðlínu og beint
ofan í körfuna. Hann gerði síðustu
níu stig ÍA.
Fögnuður í Grindavík
MIKILL fögnuður ríkti í Grindavík í gær þegar lið þeirra tryggði sér rétt til að keppa til úrslita við UMFN í úrvals-
deildinni. Grindvíkingar tryggðu sér einnig sæti í Evrópukeppninni og er það í fyrsts sinn í sögu félagsins.
M GUÐNI Ölversson er mikill
stuðningsmaður Grindvíkinga.
Hann sagði í leikhléi að lið hans
myndi vinna með 18 stiga mun og
tóku fáir mark á honum. En viti
menn, hann fór nærri um úrslitin
því á endanum munaði 17 stigum.
■ ÞEGAR lið ÍA var kynnt settu
grindvískir áhorfendur dagblöð fyr-
ir andlit sín til að sýna áhugaleysi.
■ ÁHORFENDUR voru vel með
á nótunum og þegar klukkuna vant-
aði stundarfjórðung í sjö, rúmum
klukkustund fyrir leik, var mjög
þéttsetinn bekkurinn.
■ MAREL Guðlaugsson fékk
högg á hálsinn í leiknum á Akra-
nesi á sunnudaginn en var búinn
að ná sér í gærkvöldi enda búið að
nudda _hann vel.
■ NÖKKVI Már Jónsson fyrirliði
UMFG lá véikur heima á þriðjudag-
inn og var alls ekki orðin góður í
gær og var ekki í byrjunarliðinu.
■ ILLA gekk að hefja síðari hálf-
leik því klukkan stóð á sér og varð
leikhléið rúmum 5 mínútum lengra.
■ SKONDIÐ atvik gerðist á 10.
mínútu síðari hálfleiks: Þá blakaði
Haraldur Leifsson knettinum að
körfu UMFG en boltinn festist upp
við körfuspjaldið og dæmt var upp-
kast.
Þórsarar lögðu ÍR-inga
Pálmi
Óskarsson
skirfar
Þórsarar tryggðu sér rétt til að
leika í úrvalsdeildinni næsta
leiktímabil, með góðum sigri á ÍR-
ingum, 98:84, í odda-
leik í úrslitum 1.
deildar á Akureyri í
gærkvöldi. ÍR-ingar
voru heldur sprækari
lengstum af í fyrri hálfleik, hittni
þeirra var mjög góð og Þórsarar áttu
í umtalsverðum vandræðum með
Chris Brandt, sem skoraði 20 stig í
fyrri hálfleik. Þórsarar náðu að jafna
metin, drifnir áfram af góðum leik
Konráðs Oskarssonar og Helga Jó-
KNATTSPURNA
hannessonar. í seinni hálfleik fóru
Þórsarar að sýna tennurnar, grimmd-
in jókst í vörninni og smá saman
dróg sundur með liðunum. ÍR-ingar
klóruðu örlítið í bakkann, en heima-
menn gáfu sig ekki og 14 stiga sigur
þeirra var staðreynd. Bestur Þórsara
var Konráð Oskarsson og Helgi Jó-
hannesson lék einnig vel. Chris
Brandt var yfirburðamaður hjá ÍR
og eins átti Eiríkur Önundarson góða
spretti.
Kolbeinn Pálsson, formaður KKÍ,
afhenti Þórsurum sigurlaunin í 1.
deild eftir leikinn.
Búinn ad,
bíðaeft-
irþessu
mr u w
i tiu ar
Eg var bæði kvíðinn og ekki
kvíðinn fyrir leikinn með
leikinn á Akranesi í huga. Við
ákváðum að
spila okkar leik
Ólafsson og 1Ögðum meg'
jgpon in áhersla á að
bæta varnarfrá-
köstin frá því í hinum tveimur
leikjunum," sagði Guðmundur
Bragason þjálfari og leikmaður
Grindvíkinga eftir sigurinn.
„Þeir voru búnir að vaða
undir körfunni hjá okkur og fá
tvö til þrjú skot í sókn og það
gengur ekki. Við spiluðum vel
í kvöld og náðum að halda Ste-
ven Grayer niðri og þetta gekk
upp. Ég er nú búinn að vera í
þessu með Grindavíkurliðinu í
10 ár og aldrei komist svona
langt. Það er loks búið að koma
Grindavík á landakortið í körf-
unni eftir að vera búnir að
standa í skugganum af ná-
grönnum okkar í Keflavík og
Njarðvík og nú er bara að fara
alla leið. Strákarnir fá tveggja
daga frí núna en síðan förum
við að spá í Njarðvíkurliðið og
þar er af nógu að taka. Svo
má segja að í úrslitaleikjunum
njótum við heimavallarins sem
er ekki svo lítið eins og sást hér
í kvöld," sagði Guðmundur.
„Þetta var mjög erfiður leik-
ur. í fyrri hálfleik lögðum við
áherslu á vörnina og gekk vel
og reyndar spiluðum við góða
vörn allan leikinn. Góð byrjun
í seinni hálfleik þar sem sóknar-
leikurinn fylgdi góðri vörn gerði
síðan út um leikinn. Ég fer
mjög ánægður í páskafrí,"
sagði Wayne Casey sem átti
góðan leik með Grindvíkingum
og hefur unnið hug og hjörtu
áhorfenda með góðum körfu-
knattleik.
ívar Ásgrímsson þjálfari og
leikmaður Skagamanna var
ekki eins kampakátur eftir ieik
inn. „Ég held að spennufall
hafi komið í liðið í seinni hálf-
leik því við töluðum um að taka
eina sókn i einu og spila eins
og lið. Það gekk ekki eftir og
þegar Grindvíkingar fóru að
skora þriggja stiga körfur beint
í andlitið á okkur varð þetta
spennufall. Þá fóru menn að
spila sem einstaklingar og það
gengur náttúrlega ekki. Við
megum vera ánægðir með ár-
angurinn sem við náðum núna
þó við séum óánægðir yfir því
að fara ekki alla leið. Ég vil
óska Grindvíkingutn til ham-
ingju með árangurinn og óska
þeim góðs gengis," sagði Ívar. *
■ m
Oruggt gegn Kínverjum
Strákarnir í 18 ára landsliðinu
unnu öruggan sigur, 5:0, á
Kínverjum i Castiglione á Ítalíu í
gær. Þar sem ítalir lögðu Svisslend-
inga að velli, 4:1, komust þeir í fjög-
urra liða úrslitakeppnina á betri
markatölu en íslendingar — báðir
fengu fimm stig, en markatála Itala
var 10:2, en íslendinga 7:1.
íslendingar höfðu yfirburði á öll-
um sviðum knattspyrnunnar gegn
Kínverjum í fyrsta landsleik þjóð-
anna í knattspyrnu. Sókn íslenska
liðsins var mjög þung í fyrri hálf-
leikinn, en ekki nægilega markviss.
Kínveijar, sem léku nauðvörn,
þurftu aðeins einu sinni að hirða
knöttinn úr netinu hjá sér — mark-
ið skoraði Sigurvin Ólafsson með
skalla, eftir honspyrnu Bjarnólfs
Lárussonar. í seinni hálfleik þyngd-
ist sóknin til muna, en það var þó
ekki fyrr en á 70. mín. að knöttur-
inn hafnaði aftur i marki Kínveija
og við það opnuðust flóðgáttir. Ólaf-
ur Stígsson skoraði markið, tveimur
mín. seinna bætti Bjarnólfur marki
við og Sigurvin skoraði sitt annað
mark á 76. mín. Sigurbjörn Hreið-
arsson átti síðasta orð leiksins,
skoraði fimmta markið, 5:0, fjórum
mín. fyrir leikslok.
Besti leikmaður íslands var Sigt
urvin Ólafsson, en yfirburðarmað^^ *
kínverska liðsins var markvörður-
inn.
Árangur íslenska liðsins var mjög
góður á Ítalíu — kemur ósigrað
heim. Það eins sem skyggði á ferð-
ina var að Vilhjálmur Vilhjálmsson
meiddist á læri í leiknum gegn ítal-
íu. Hann verður líklega frá keppni
í sex vikur. *
dh ww dt dk ^4
•_________________________________________